Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1990, Blaðsíða 16
Mikladalur á Kalsoy-eyju fyrir stafni.
Byggðakjarnar og náttúra eru í falfegu samspili.
„Sumaríð
kemur með
Norrænu“
- segja Seyðfírðingar - og Norræna
kemur og fer næsta fímmtudag
„Eyjarnar eru aðeins fyrir sauðfé og fúgla!"
Snemma morguns 7. júní siglir Norræna inn Seyðisfjörð í fyrstu
vikulegu sumarferðinni, sem tengir Austurland við Færeyjar og
meginlandið. Bílar og mótorhjól bruna frá borðstokk, með ævin-
týraþyrsta ferðamenn til íslands. Klukkan 12 að hádegi léttir svo
færeyska ferjan akkeri frá Seyðisfirði og nú kveðja íslenskir ferða-
menn á leið til Færeyja, Danmerkur og Noregs.
Sjóferð er vissulega „öðruvísi“
en flugferð. Meira ferðalag, Og
félags- og skemmtanalíf er á fullu
um borð, ef Norræna stingur sér
ekki of djúpt í ölduna! Margir
nota tímann í fríhöfn um borðj
þó verðlag þar sé ekki lágt. í
góðu veðri er ógleymanlegt að sjá
Island hverfa í sæ. En aðeins fyr-
ir morgunhana að sjá sæbrattar
„sauðíjáreyjar" fyrir stafni!
Komutími til Þórshafnar klukkan
6 að morgni er óguðlegur! Eins
gott að dansa ekki ölduna af sér
- eða fá sér of marga bjóra!
íslendingi hlýnar um hjartaræt-
ur að koma til Þórshafnar. Húsin
svo skemmtilega lík og í íslensku
sjávarplássi. Götunöfn svo
skemmtiiega „skrítin" og syngj-
andi færeyska bæði lík og ólík
íslensku. Færeyjar eru ekki fram-
andi fyrir íslendinga og fjarlægð-
ir smáar. Feijur ganga eins og
bílar á milli eyjanna. Kannski
þarf enga bíla hér, aðeins hjól.
En verið viðbúin snöggum veðra-
brigðum, sem eru jafnvel enn
tíðari en heima!
„Eyjarnar eru aðeins fyrir fugla
og sauðfé! Hér er ekkert að gera
fyrir mannfólkið nema að sofa,“
sagði gamansamur Færeyingur!
Ekki orð að sönnu, en mannlíf
hér er vissulega rólegt og ekki
fyrir ferðamenn, sem sækja í hið
ljúfa líf. Til að komast í færeysk-
ar ölstofur (aðeins opnar fyrir
staðarfólk og gesti) verður að
koma sér í mjúkinn hjá Færeying-
um! Áfengir drykkir eru ekki seld-
ir eða afgreiddir, en á hótelum
má panta vínveitingar fyrirfram.
Þórshöfn er áhugaverð. Gaman
að rölta um þrönga stíga á Tinga-
nesi, á milli 16. og 17. aldar húsa
á fyrsta þingstað Færeyinga frá
825. Viðarlundin er listigarður
Þórshafnarbúa - einn af fáum
trjálundum í Færeyjum. Norður-
landahús þeirra minnir á álfahól.
Við höfnina er iðandi athafnalíf,
áhugaverðir gamlir bátar og skút-
ur og góð veitingahús í nágrenni.
Á Kirkjubæ er elsta byggð í Fær-
eyjum og menningarsetur. Þang-
að verða allir að koma. En
skemmtilegast er að sigla á milli
eyjanna og skoða sérstætt sam-
spil á milli byggðakjama og nátt-
úru. Lítið inn á „Kunningarstov-
an“ í Þórhöfn til að fá upplýsing-
ar um ferðir út frá Þórshöfn.
Afsiáttur er á þremur fyrstu
brottförum Norrænu og fjórum
síðustu heimkomum. Verð fyrir
hjón með tvö börn, í klefa með
baði og bíl: kr. 109.740 (miðað
við afslátt aðra leið). Dvelja má
2 daga í Færeyjum, með því að
taka Norrænu til baka frá Hanst-
holm og bíða á meðan hún siglir
til Noregs. En flestir fara úr í
Hanstholm og taka feiju frá Dan-
mörku í veg fyrir Norrænu frá
Bergen. Norræna ferðaskrifstof-
an veitir nánari upplýsingar.
O.Sv.B.
Norröna
Ferðafiréttir firá Bretlandi
Norræn listahátíð í
Stratford-upon-Avon
14. júlítil 5. ágúst
Árið 1990 fagnar 125 ára afmæli bæði Síbelíusar og Nielsens
— og 250 ára afmæli Mikaels Bellmanns. Norræn viðfangsefni
verða því efst á baugi á sumarhátíð í Stratford-upon-Avon. Hátíða-
nefndinni er fagnaðarefni að tilkynna, að sendiherrar íslands,
Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa samþykkt að
verða þar heiðursgestir.
Framlag íslands verður mynda-
sýning Magnúsar Magnússonar,
sem sýnir bæði kvikmynd og lit-
skyggnur frá íslandi. Verið er að
vinna að því að fá fleiri til að
sýna frá íslandi. Þjóðdansaflokk-
ar frá Noregi, Danmörku og
Svíþjóð munu koma fram. Frum-
sýnt verður breska leikritið
„Hvaða norn“ sem lýsir vonlausri
ást milli ítalskrar konu og þýsks
biskups og endar á nornaveiðum.
Engilsaxneskur víkingabardagi er
sviðsettur við Avon-ána, sem end-
ar á blysgöngu, bálför víkinga-
skips og flugeldasýningu.
Sælkerarnir eru líka inni í
dæminu — eða þeir sem geta ekki
skemmt sér, nema að fá mat sinn
og engar refjar! I boði er víkinga-
veisla, norræn grillveisla og „sum-
arveisla jólasveinsins“! Meðal
listamanna á hátíðinni verða
Símon Rattle og sinfóníuhljóm-
sveit Birmingham, norska kamm-
ermúsíksveitin og sænski básúnu-
snillingurinn Christian Lindberg.
ENGLAND
Birmingham
• Strattord on Avon
L0ND0N
Bristol
100 km