Lesbók Morgunblaðsins - 02.11.1996, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 02.11.1996, Síða 6
Morgunblaðið/Golli ER hugsanlega hægt að innræta þessu fólki hlýðni, aga og virðingu? Dropi (Kjartan Guðjónsson), Lævfs (Halldóra Geirharðsdóttir), Belgur (Eggert Þorleifsson) og Bóla (Helga Braga Jónsdóttir) hlýða á boðskap meistara sfns, prófessors Blettaskarps, í kennslustund f Trúðaskólanum. EÐU TRÚÐSINS I Trúóaskóla Þjóóverjans Friedrichs Karls Wae- chters, sem Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir á Stóra sviói Borgarleikhússins í dag, reynir prófess- or Blettaskarpur aó innræta nemendum sínum hlýóni, aga og viróingu. Eftir aó hafa fylgst meó kennslustund í skóla þessum er QRRI PÁLL ORMARS- SON hins vegar sannfæróur um aó þessi hugtök stríói gegn eóli trúósins. IÐ viljið vel. Mér er skapi næst að viðurkenna það. Það er bara þessi óskipulegi óskapnaður skapgerðar ykkar, sem skapar hinn óskilgetna óvin hið innra með ykkur. Nú, við megum allir til að beijast gegn óvinum okkar. Heyja styijöld við þá. Ég krefst þess af ykkur, að frá og með þess- ari stundu segið þið veikleika ykkar stríð á hendur." Svo mælir skólameistari Trúðaskólans, pró- fessor Blettaskarpur, þegar ærslin í nemendum hans, Bólu, Dropa, Belg og Lævísum, keyra um þverbak. Framkoman er óþolandi og pró- fessorinn er knúinn til að lesa skjólstæðingum sínum lexíuna: „Ég skal segja ykkur um hvað kennsla snýst - hún snýst um hörku! Seiglu! Allt samkvæmt bókstafnum! Framkoma og fas! Virðing! Hlýðni! Háttpiýði! Háleit markmið! Mannasiðir! Og umfram allt strangur aaaaaagi!" Því næst flettir hann upp í stóru bókinni sinni, þar sem margvísleg umfjöllunarefni er að finna. Dæmi: „Hjáip! Það er kviknað í flugvéiinni minni. Þrír menn sitja við tjöm og veiða. Flug- vél þýtur yfir himininn. Það er kviknað í henni. Fiugmaðurinn æpir hjálp! Og hann spennir á sig fallhlífina og skýtur sér út í himingeiminn. Hann lendir í miðri tjörninni. Skvampið fælir frá alla fiskana og flugmaðurinn skammast sín mjög fyrir að hafa spillt veiðigleði fiskveiði- mannanna. Bóla, Dropi og Lævís eru fiskveiði- mennimir þrír. Belgur er flugmaðurinn. Leik- ið..." Þannig gengur lífíð fyrir sig í Trúðaskólanum sem íjóðveijinn Friedrich Karl Waechter hefur skapað og Leikfélag Reykjavíkur tekið upp á sína arma í útfærslu Englendingsins Kens Campbells. Verður frumsýningin á Stóra sviði Borgarleikhússins í dag kl. 14. Drepfyndió handrif „Trúðaskólinn höfðaði strax til mín enda er handritið drepfyndið við fyrsta lestur,“ segir Gísli Rúnar Jónsson leikstjóri, sem jafnframt hefur þýtt útfærslu Kens Campbells á verkinu. „Trúðaskólinn er sannkölluð stflveisla en höf- undurinn blandar ótrúlegustu hiutum saman, nægir þar að nefna absúrdisma, líkamlegan gamanleik, ballet, tónlist, harm, gleði - ogjafn- vel ást.“ Að mati leikstjórans virðist Trúðaskólinn vera unninn í leiksmiðju - leikaramir hafí lagt sitt af mörkum þótt Waechter sé skráður höfundur. „Engu að síður er óvenju mikið um leiðbeining- ar í handritinu - höfundurinn vill augljóslega leggja þeim sem setja verkið upp línumar. En þar sem um spunaverk virðist vera að ræða höfum við látið línur höfundar og leiðbeiningar í handriti örva ímyndunarafl leikhópsins enda TRÚÐSNEMARNIR eru prófessor Blettaskarpi (Bessa Bjarnasyni) óþægur Ijár í þúfu. ákaflega fijótt og hugmyndaríkt fólk á ferð,“ bætir hann við en leikhópinn skipa Bessi Bjama- son, sem leikur prófessor Blettaskarp, og Egg- ert Þorleifsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir og Kjartan Guðjónsson, sem leika nemenduma ljóra. Fýrir vikið segir Gísli Rúnar að í sýningu LR á Trúðaskólanum felist að mörgu leyti endur- sköpun, þótt ekkert sé leikhópnum fjær en að eigna sér heiðurinn af verki höfundar. „Sýning- in er eftir sem áður byggð á afar klókindalega skrifuðu og útfærðu leikriti, þótt það breytist nokkuð í meðförum okkar. Við reynum til dæm- is ákaft að beita leikhúsgaldrinum sem greinir kvikmyndimar og leikhúsið að.“ Friedrich Karl Waechter hefur fyrst og fremst teiknað skopmyndir og teiknimyndasögur en jafnframt skrifað fjölda bamaleikrita, bæði frumsamin og upp úr ævintýrum, og árið 1983 hlaut hann Grimmsbræðra-verðlaunin fyrir sag- nagleði sína. Ken Campbell, sem hefur starfað sem leik- ari, leikstjóri og höfundur við hin ýmsu leikhús á Englandi, þýddi og gerði eigin útgáfu af Trúðaskólanum sem leikin hefur verið um heim allan. Þá samdi hann leikritið Trúðar í skóla- ferð, sem fjallar um sömu persónur, sem Wae- chter þýddi á þýsku og hefur sömuleiðis verið leikið um víða veröld. En hvaðan em prófessor Blettaskarpur, Belgur og allir hinir sprottnir? „Trúðar hafa verið til í öllum mögulegum myndum frá tím- um Rómveija, þegar leikarar, og ekki síður höfundar, urðu að geta „skroppið ofan í skúffu" til að sækja ýmsa hraðsoðna karakt- era með litlum fyrirvara. Síðan þekkjum við auðvitað öll hinn dæmigerða sirkustrúð. Að mínu mati fara trúðamir í Trúðaskólanum bil beggja enda sækja þeir í smiðju víða,“ segir Gísli Rúnar. Þótt Trúðaskólinn hafí ýmis skilaboð að geyma kveðst Gísli Rúnar öðm fremur líta á hann sem „Skemmtun - með stóru essi“ - ekki einungis fyrir börn heldur líka fullorðna. Ætlast er til þess að áhorfendur taki á köflum virkan þátt í sýningunni og meðal annars fá þeir úthlutað sérstökum prófhöttum til að hjálpa trúðsnemunum að blekkja hinn gler- augnalausa prófessor Blettaskarp á lokapróf- inu. Jafnframt vonast Gísli Rúnar til að sýn- ingin hvetji bömin til að nota hugmyndaflug- ið, lfkt og nemendurnir gera þegar þeir búa til heilu ævintýrin úr litlu sem engu. „Trúðaskólinn er mjög sérstakt verk, ekki endilega betra eða verra en önnur leikrit sem skrifuð hafa verið fyrir börn - einungis öðru- vísi. Persónumar em líka ákaflega skýrar, einlægar og opinskáar og eiga vonandi með tímanum eftir að verða heimilisvinir okkar Íslendinga - eins og Lína Langsokkur og ræningjamir í Kardemommubænum." Leikmyndin í Trúðaskólanum er eftir Stein- þór Sigurðsson, Helga Rún Pálsdóttir á heiður- inn af búningum og lýsingu annast Láms Bjömsson, leikhljóð em úr smiðju Baldurs Más Amgrímssonar og Vilhjálmur Guðjónsson útsetti tónlistina í sýningunni. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 2. NÓVEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.