Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Qupperneq 2
„SÍÐAR meir
gengur hann til
liðs við sína
fyrrum fjand-
menn og gerist
þingmaður og
ráðherra,11 seg-
ir Þór Rögn-
valdsson um
aðalpersónu
leikrits síns,
Búasögu, sem
hlaut 1. verð-
laun í leikverka-
samkeppni
Leikfélags
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Golli
X
Atök hugsjónar og raunsæis
Hvernig
líður mér
HVERNIG líður mér er heiti og inntak
myndlistarsýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur,
sem stendur til 24. janúar næstkomandi og
lýkur með styrktarhátíð í Borgarleikhúsinu
þann 26. janúar.
Sýningin er afrakstur verkefnis sem ungl-
ingar í Mótorsmiðjunni unnu að í húsnæði
sem Héðinn Smiðja lánaði hópnum. Þar
unnu listamennirnir samtímis, en þó hver
og einn að sínu eigin verki að túlkun eigin
tilfinninga.
„Listamennimir eru allir úr hópi ungs
fólks sem lent hefur í slæmum málum og
leitað lausna á vandanum með aðstoð mótor-
smiðjunnar," segir í kynningu.
Mótorsmiðjan er byggð að hluta til á hug-
myndafræði norsks læknis og sálfræðings
sem sjálfur er ástríðufullur mótorhjóladellu-
karl og á hugmyndum stofnendanna, þeirra
Guðmundar Þórarinssonar, Mumma og
Björns Ragnarsonar, Bjössa, sem að eigin
sögn eru sjálfir „púkar með vafasama fortíð".
Tilgangur þeirra félaga með stofnun Mót-
orsmiðjunnar var að prófa óhefðbundnar leið-
ir til að hjálpa þessum unglingum að fínna
lífinu tilgang að nýju.
í upphafi var um að ræða tilraun sem
átti að standa í þrjá mánuði og var hún
unnin í samstarfi Iþrótta- og tómstundaráðs
og Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar.
„Þessi tilraun hefur nú staðið yfír í tæp tvö
ár og á þeim tíma hefur komið í ljós hve
þörfín er brýn fyrir starfsemi af þessu tagi,“
segir í kynningu.
Eins og nafnið gefur til kynna tengist
starfsemin í meginatriðum mótorhjólum og
öllu sem þau varðar en allir unglingar eru
velkomnir. Opið er tvö kvöld í viku fyrir þá
sem vilja koma og vinna við hjólið sitt á
eigin spýtur eða með hjálp sérfróðra.
Að málverkasýningunni í Ráðhúsinu og
styrktarhátíðinni í Borgarleikhúsinu standa
Mótorsmiðjan, íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur, Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., Lionsklúbburinn Þór, Leikfélag Reykja-
víkur, Sniglamir og Samskipti.
ÞÓR Rögnvaldsson, heimspekingur og kennari
við Iðnskólann í Reykjavík, hlaut 1. verðiaun
í leikritasamkeppni sem Leikfélag Reykjavíkur
efndi til í tilefni af aldarafmæli sínu. Leikrit
Þórs heitir Búasaga og er það byggt á Kjalnes-
ingasögu en höfuðpersóna Kjalnesingasögu er
Búi Andríðsson.
„Allar helstu persónur Kjalnesingasögu
koma fyrir í mínu verki en ég færi þær til
nútímans," sagði Þór í samtali við Morgunblað-
ið. „Ég ákvað að byggja á þessari sögu því
að ég tel hana vera mjög vanmetið verk.
íslenskumenn hafa ekki komið auga á að í
henni eru mjög mikil og merkileg hugmynda-
leg átök. Búi Andríðsson er uppreisnarmaður;
hann er kristinn en er í andstöðu við höfðingja-
veldi íslenska þjóðveldisins. Síðar meir gengur
hann til liðs við þessa fjandmenn sína og ger-
ist þingmaður Kjalnesinga.
Þessa sögu færi ég til nútímans á þann
hátt að ég geri Búa í upphafi verks að fulltrúa
hippakynslóðarinnar en leikritið hefst árið
1969. Hann er í andstöðu við samfélag sitt,
er uppreisnarseggur eins og fólk af þessari
kynslóð var að reyna að vera, en síðar meir
gengur hann til liðs við sína fyrrum fjandmenn
og gerist þingmaður og ráðherra.
Leikritið lýsir átökum á milli hugsjónamanns
og raunsæismanns. í Kjalnesingasögu eru þessi
átök annars vegar í formi heiðingdóms og hins
vegar kristins átrúnaðar. I nútímasögu verða
þetta átök milli hugsjónar og raunsæis. Það
sem er athyglisvert fyrir nútímahöfund er að
Búi Andríðsson er líkamning þessara and-
stæðna og gefur því mikla möguleika til per-
sónusköpunar."
Leikritið er þríleikur og heitir hver þáttur
eftir höfuðpersónum verksins; fyrsti hluti heit-
ir Esja, annar hluti Fríður og þriðji Jökull.
Þór hefur skrifað nokkur leikrit áður en
aldrei fengið neitt þeirra sett á svið. Leikritið
Búasaga verður hins vegar sýnt í Borgarleik-
húsinu að ári liðnu, eða 11. janúar 1998.
„Það liggur vel fyrir mér að skrifa leikrit,
eða hugsa í dramatísku formi, og þess vegna
valdi ég frekar leikritsformið en skáldsagna-
formið," sagði Þór. Hann segist ætla að skrifa
annað leikrit strax á komandi sumri en vildi
ekki gefa upp efni þess.
A NYJUM NOTUM
TÓNLIST
Iláskólabíó
HLJÓMSVEITARTÓNLEIKAR
Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjómandi Flavio
Emilio Scogna, einleikari Rafael Gintoli fiðlu-
leikari, einsöngvari Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Verkefni eftir Ottorino Respighi, Alicia Terz-
ian, Þorkel Sigurbjömsson og Alberto Ginast-
era. Fimmtudagur 16. janúar kl. 20.
ÍSMÚS munu tónleikagestir eiga það að
þakka að fá að njóta fáheyrðra tónverka frá
fjarlægustu kimum hnattar okkar og þá
gjarna verkefni sem aðrir fúlsa við, eins og
Guðmundur Emilsson tónlistarráðunautur
Ríkisútvarpsins kynnir okkur í Morgunblað-
inu fímmtudaginn 16. janúar. Þetta skilst
manni að þjóðin eigi tónlistarráðunautnum
að þakka og heiður sé honum. í grein Guð-
mundar les maður líka að útlendingar og
þá ekki síst höfundar verkanna, séu afar
þakklátir þessu framtaki og skal engan
furða. Þar með ætti að vera kominn mögu-
leiki á að koma okkar íslensku fáheyrðu
tónlist á framfæri, með t.d. skiptum á lista-
mönnum og vonandi hefur Ríkisútvarpið
þegar áttað sig á þeim möguleika.
Ekkert vantaði á að verkin sem flutt voru
í kvöld væru hér, og víðar, lítt þekkt, meira
að segja fyrsta verkefni kvöldsins, Impressi-
one Brasiliane eftir 0. Respighi var eitt af
þessum gleymdu verkum og hélt maður þó
að maður þekkti verkið ekki. Kannski var
það ástæðan fyrir því að flutningurinn virt-
ist í daufara lagi, stjómandinn sló það í
gegn, en gaf því nær engar útlínur sem
haldið gátu manni óskiptum við efnið, nema
þá að því leyti að gaman var að fylgjast
með því hve vel Respighi „instrumenterar"
og kannski ekki furða þar eð hann lærði
þá kúnst hjá engum minni en einum höfuð-
Morgunblaðið/Kristinn
TÓNSKÁLDIÐ Þorkell Sigurbjömsson
þakkar Ingibjörgu Guðjónsdóttur
sópransöngkonu fyrir flutninginn.
Hljómsveitarstjórinn Flavio Emilio
Scogna fylgist með.
snillingi þeirrar listar, Rimsky Korsakov.
Næsta verk, öllu áhugaverðara, Fiðlukon-
sert í d-moll eftir argentískan höfund núlif-
andi, Aliciu Terzian. Við fyrstu heyrn sýnd-
ist hér um mjög vel skrifað verk að ræða
og ekki að öllu ólíkt Respighi, eins og hann
þekktist í verkum öðrum en heyrðist hér á
undan. Fiðluleikarinn í þessum fiðlukonsert
er landi Aliciu Terzian og var auðheyrt í
kadensum konsertsins að um ágætan fíðlu-
leikara var að ræða. Aftur á móti heyrðist
lítið í honum þegar hann lék með hljómsveit-
inni, nema þá helst í hæga kaflanum sem
komst mjög fallega til skila í samleik einleiks
hljóðfærisins og hljómsveitarinnar. Ein-
leikarinn, Rafael Gintoli virðist hafa lítinn
tón, en fallegan, en því miður köfnuðu þessi
ágæti í sterkum leik hljómsveitarinnar, eða
öllu heldur, stjómandi hafði ekki lag á því
að láta sveitina leika í hlutfalli við tón ein-
leikarans. Stjórnandinn sýndi ekki mikla til-
burði í þá átt að móta leik sveitarinnar, lík-
ast því að hann væri hræddur við hljómsveit-
ina, eða að hann væri ekki vanur að vinna
með þetta góðum hljómsveitum. Þrátt fyrir
þetta lék hljómsveitin eins og þær sveitir sem
ekki leyfa sér að spila illa þótt þeir hafi léleg-
an stjórnanda fyrir framan sig og þar með
er hljómsveit komin á gott skrið.
Fyrsta verk eftir hlé var frumflutningur
á verki eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Gylfa-
ginning heitir það og skrifað fyrir hljóm-
sveit og sópran og var um frumflutning
verksins að ræða, stendur í efnisskrá. Ekki
er í lítið ráðist að ætla að koma einhverju
af Eddu Snorra yfir í tónmál. Verkið á for-
sögu nokkra sem veldur því að textinn er
sunginn á spænsku, saga sú mun þó ekki
rakin hér, en Þorkell mun hafa haft gyðjur
Ásgarðs í huga við samningu verksins. Hann
velur textanum einfalt tónmál, t.d. er verkið
að miklu leyti flutt sem söngles með hljóm-
sveitarundirleik, þar sem hann lætur söngv-
arann hækka sig um heil tónbil við hendinga-
skil í texta. Ingibjörg Guðjónsdóttir með sína
fögru rödd, skilaði sínu hlutverki með ágæt-
um, aðeins skaut þó upp í hugann hvort
heppilegra hefði verið að velja dramatískari
rödd, sem ég er þó alls ekki viss um að rétt-
ara hefði verið. Þetta einfalda tónmál Þor-
kels varð furðu máttugt þegar upp var stað-
ið og undirrituðum langeftirminnilegasta
atriði kvöldsins.
Lokaverk tónleikanna var balletttónlist
eftir Alberto Ginastera. Linka eða skapleysi
var einkenni flutningsins, þó var hægi
þátturinn fallega fluttur og stjórnandinn
slapp í vandasömu hlutverki þriðja atriðisins.
Eg vil svo endurtaka það sem ég nefndi
í upphafí. Með hliðsjón af kvöldinu ætti ekki
að vera erfitt að bjóða fram mannaskipti og
segja ef þú gerir þetta fyrir okkur, gerum
við þetta fyrir þig, eða eins og Þjóðverjinn
segir, eine Hand wáscht die andere.
Ragnar Björnsson
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Yfirlitssýn. á verkum eftir Hring Jóhannes-
son í vestursal og sýn. á nýjum verkum eft-
ir Jónínu Guðnadóttur í miðsa! til 16. febr.
og sýn. á verkum eftir Kjarval í austursal
til 11. maí._
Listasafn íslands
Sýn. á verkum Eiríks Smith „Á milli tveggja
heima“ til 16. febr. og sýn. „Á vængjum
vinnunnar" til 19. jan.
Gallerí Hornið - Hafnarstræti 15
Lulu Yee sýnir til 22. jan.
Mokka - Skólavörðustíg
Ljósmyndir eftir Spessa til 6. febr.
Sólon Islandus - við Bankastræti
Sigurlaug Jóhannesdóttir, Silla, sýnir til 19.
jan.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýningar í janúar: í sýniboxi: Haraldur Jóns-
son. 1 barmi: Róbert Róbertsson og Ragn-
heiður Ágústsdóttir ber sýninguna. Hlust:
5514348: G. R. Lúðvíksson.
Gerðarsafn - Hamraborg 4 Kóp.
Bestu blaðaljósmyndirnar 1996 og úrval
mynda liðinna áratuga til 2. febr.
Undir pari - Smiðjustíg 3
Sýning Frakks, „Undur og hljóðmerki“, til
25. jan.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Samsýn. Önnu Guðjónsdóttur og Erlu Sól-
veigar Óskarsdóttur til 26. jan.
Norræna húsið - við Hringbraut
Gerhard Roland Zeller og Þór Ludwig Stief-
el sýna til 26. jan. Veggspjaldasýning í and-
dyrinu til 29. jan.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Svava Björnsdóttir sýnir til 26. jan.
Listþjónustan - Hverfisgötu 105
Hafsteinn Austmann sýnir til 2. febr.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Halldór Ásgeirsson sýnir til 16. febr.
Gallerí Fold - við Rauðarárstíg
Sýn. á nokkrum af síðustu myndum Hrings
Jóhannessonar í baksal gallerísins til 2. febr.
Gallerí Stöðlakot - Bókhlöðustíg 6
Sigurður Haukur Lúðvígsson sýnir til 28. jan.
Myndás - Laugarásvegi 1
Kristján E. Einarsson sýnir ljósmyndir.
Hallgrímskirkja - Skólavörðuholti
Sýn. á myndum Helga Þorgils Friðjónssonar
í anddyrinu.
Skruggusteinn - Hamraborg 20a, Kóp.
Sibba, Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sýnir smá-
myndir til 27. jan.
Slunkaríki - Isafirði
Haraldur Jónsson sýnir til 2. febr.
Laugardagur 18. janúar
Schubert tónleikar kl. 17 í félagsheimili Víd-
alínskirkju; Rannveig Fríða Bragadóttir og
Gerrit Schuil.
Sunnudagur 19. janúar
Félag ísl. organleikara með tónleika til
styrktar íslenskri kirkjutónlist í Hallgríms-
kirkju kl. 17. Annika Hultman og Ami Aspe-
lund verða með kabarett dagskrá sem þær
nefna „Skvaller" í Norræna húsinu kl. 16.
Mánudagur 20. janúar
A Capelta sönghópurinn Emil og Anna Sigga
í Listaklúbbi Leikhúskjallarans kl. 21.
LEIKLIST
Þjóðlcikhúsið
Litli Kláus og stóri Kláus frums. fim. 23. jan.
Villiöndin lau. 25. jan.
Leitt hún skyldi vera skækja fös. 24. jan., lau.
Þrek og tár lau. 18. jan.
Kennarar óskast. sun. 19. jan., fös.
Borgarleikhúsið
Trúðaskólinn lau. 18. jan.
Svanurinn lau. 18. jan., mið.
BarPar lau. 18. jan., fös., lau.
Domino sun. 19. jan., fim., lau.
Fagra veröld lau. 18. jan., fim., lau.
Stone Free fös. 24. jan.
Krókar & kimar, ævintýraferð um leikhús-
geymsluna frá 13-18 alla daga og til kl.
22 sýningardaga.
Skemmtihúsið
Ormstunga lau. 18. jan., fös.
Loftkastalinn
Áfram Latibær sun. 19. jan.
Á sama tíma að ári lau. 18. jan.
Sirkus Skara skrípó fös. 24. jan.
Hermóður og Háðvör
Birtingur lau. 18. jan.
Nemcndalcikhúsið
Hátíð lau. 18. jan., sun.
Kaffileikhúsið
Einleikir Völu Þórs lau. 18. jan., fös.
Leikfélag Akureyrar
Undir berum himni lau. 18. jan., fös., lau.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsend-
ir: 5691181.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 1997