Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Síða 16
Andblær lióins tíma Margir kannast vió dægurflugurnar Malaguena og Siboney. ARNI MATTHIASSON segir frá höfundi þeirra, Kúbverjanum Eresto Lecuona, og segir að töluvert hafi verið í hann spunnið sem tónskáld. LECUONA í hópi yngiskvenna sem léku verk hans á tónleikum í Carnegie Hali 1945. AÐ GETUR komið tónskáldum í koll að verða vinsæl, að minnsta kosti eft- ir því sem tíminn líður og smekkur manna breytist. Þá vill það gerast að menn aðeins muna eftir þeim verkum sem mestrar hylli nutu og önnur verk og kannski veigameiri hverfa í skuggann. Þannig fór um kúbverska tónskáldið Emesto Lecuona, sem var einn vinsælasti tónlistarmaður og tón- skáld heims í upphafi aldarinnar, en öllum gleymdur nánast um leið og hann féll frá í upphafi sjöunda áratugarins þó að léttmetið lifi. Fyrir stuttu lauk Bis-útgáfan sænska við útgáfuröð sem helguð var einleiksverkum Lecuonas fyrir píanó og hófst á hundrað ára af- mæli tónskáldsins. Ernesto Sixto de la Asunción Lecuona y Casado fæddist í Gu- anabacoa á Kúbu 6. ágúst 1895, en kaus sjálfur fæðingardaginn 7. ágúst 1896 síðar af einhverjum orsökum. Þriggja og hálfs árs gamall var hann farinn að glamra á píanó og kom fyrst fram opinberlega fímm ára gam- all. Framan af lærði hann hjá systur sinni Ernestinu, en hélt síðan námi áfram hjá ýmsum píanóleikurum, þar á meðal Joaquín Nín. Sautján ára útskrifaðist Lecuona úr tón- listarskóla Havana með láði og hélt til New York að verða frægur, en fyrstu tónleikar hans þar voru 1916. Frægðin lét þó á sér standa og komið fram á annan áratug aldar- innar þegar hann hlaut loks frægð fyrir píanóleik sinn. Samhliða því að flakka um heiminn til tónleikahalds samdi Lecuona af kappi og menn segja að það hafi verið honum jafn auðvelt og öðrum að tala. Þannig átti hann til að hripa niður vals eða kvöldlokku á meðan hann hélt uppi samræðum, jafnvel á þann pappír sem hendi var næstur, til að mynda munnþurrkur og reikninga. Lecuona hljóðritaði mikið fyrir bandarísk stórfyrirtæki, til að mynda RCA og Columb- ia, og lék inn á píanórúllur hjá nokkrum fyrir- tækjum þess á milli. Hann þótti öðrum fremri í túlkun á nútímatónlist þess tíma og sagt að Gershwin hafi fundist hann leika Rhapsody in Blue betur en nokkur maður annar, hann sjálfur meðtalinn, en Gershwin þótti með fremstu píanóleikurum síns tíma. Heima í Havana hlotnaðist Lecuona marg- háttaður heiður, en honum er meðal annars talið til ágætis að hafa komið á fót Sinfóníu- hljómsveit Havana, en einnig á hann heiður- inn af tveim helstu skemmtisveitum Kúb- veija á fyrstu áratugum aldarinnar, La Orqu- esta de la Habana og Lecuona Cuban Boys, sem naut verulegrar hylli víða um heim, til að mynda í Frakklandi, á millistríðsárunum. Fyrir þessar sveitir samdi Lecuona m.a. þau verk sem helst hafa haldið nafni hans á lofti, Malagueiia og Siboney, en gríðarlegar vin- sældir þeirra í ýmsum myndum hafa orðið til þess að alvarlegri verk hans hafa fallið í gleymsku; segja má að velgengnin og hve auðvelt honum reyndist að semja hafi orðið til þess að hann hefur verið talinn einskonar jaðarfígúra, frekar poppari en almennilegt tónskáld. Heildarútgáfa pianóverka Lecuonas Bis-utgáfan sænska, sem er íslendingum að góðu kunn, hóf á 100 ára afmæli Lecuon- as að gefa út röð píanóverka hans í flutningi bandaríska píanóleikarans Thomas Tirinos. Tirino segir að sér hafi ekki þótt verkefnið vænlegt þegar félagi hans gaukaði að honum upptökum þar sem Lecuona lék eigin verk; hann þekkti til dægurflugnanna og fannst ekki líklegt að nokkuð væri til af verkum höfundar þeirra sem vænlegt væri að skoða nánar. Eftir að hafa haft upptökurnar undir höndum alllengi án þess að hlusta segist hann hafa loks sett þær á fóninn og fallið í stafi. Eftir að hafa sannfærst um gildi tónsmíða Lecuonas tók Tirino til við að grafa upp allt það sem finna mátti um tónskáldið, sem lést 1963, en segist furðu lítið hafa fundið sé tekið tillit til þess hve vinsæll Lecuona var. Ekki var auðveldara að átta sig á því hvaða verk hann hefði látið eftir sig eða komast yfir almennilegar útgáfur þeirra, því bæði var Lecuona var hirðulaus um tónsmíðar sín- ar og síðan var hann frægur fyrir að leika þær aldrei eins; Tirino þurfti að pæla í gegn- um handrit verkanna og bera saman við upptökur tónskáldsins af þeim sem oft voru harla frábrugðnar upprunalegri útgáfu. Á Lecuona-diskunum sem Bis hefur gefið út, en sá þriðji kom út fyrir skemmstu, má heyra að Lecuona er lagið að flétta saman yfirborðskenndri tónlist og allt að því smekk- leysu með veigamiklum innblásnum tónflétt- um. Kannski stendur hann ekki undir lýsing- unni kúbverskur Gershwin, en hefur þó margt fram að færa, ekki síst andblæ liðins tíma. Lecuona samdi 406 sönglög, 176 píanóverk, 53 leikhúsverk, þar á meðal zarzúelur, ópe- rettur, söngleiki og eina óperu, 31 hljómsveit- arverk, sex verk fyrir píanó og hljómsveit, þijú fiðluverk, strengjatríó, fimm balletta, ellefu kvikmyndaverk og útsetti grúa laga. Maurice Ravel var aðdáandi Lecuonas og sagði eftir að hafa heyrt Malaguena að verk- ið væri mun fegurra og betra en Bolero hans. Sé litið fram hjá því að Ravel þótti aldrei mikið til Bolero koma, sagði reyndar grátlegt að sín skyldi vera minnst sem tónskálds fyr- ir verk sem varla teldist tónlist, er óhætt að mæla með verkum Lecuonas og vonandi verð- ur brautryðjendaverk Tirinos til þess að stærri verk tónskáldsins verða endurvakin. Thomas Tirinos TVEIR PÓLSKIR SNILLINGAR PÍANÓSINS TÖNLIST Sígildir diskar CHOPIN Fryderyk Franciszek Chopin: Píanókonsertar nr. 1 og 2 - kammerútfærsla. Einleikari: Fum- iko Shiraga. Meðleikarar: Yggdrasil strengja- kvartettínn og Jan-Inge Haukás kontrabassa- leikari. Útgáfa: BIS CD-847. Verð: kr. 1.490 - Japis. CHOPIN-konsert- amir í kammer- útfærslu? Hvað hefur mönnum nú tekist að grafa upp? Eru engin takmörk fyrir því sem hljómdiskafyrirtækin láta sér detta í hug að gefa út til þess að kitla forvitni tónlistarfíkla og seilast í buddur þeirra? Forvitni undir- ritaðs vaknaði og það verður að segjast eins og er að væntingamar voru ekki miklar. Chopin-konsertarnir em yndisleg tónlist og hafa ávallt verið í miklu uppáhaldi hjá mér og vafalaust flestum öðmm tónlistamnnn- endum svo ég var tortrygginn í meira lagi. En skemmst er frá því að segja að ómakið gaf ríkulega af sér og sannast sagna er langt síðan ég hef notið hljóðritunar í eins ríkum mæli og þessarar. En hvað er hér á ferðinni? Á 18. og 19. öld mun það hafa verið algengt að tónskáld- in - og útsetjarar þeirra - hafi útbúið viða- minni útgáfur af konsertverkum sem þá voru ætluð til æfinga eða heimilisnota. Um kon- serta Chopins er það að segja að þeir voru upprunalega gefnir út í útgáfum fyrir stóra hljómsveit, fyrir kammerhóp og einnig í ein- leiksútgáfu. Ýmislegt virðist vera óljóst um uppmna þessara mismunandi gerða verkanna (m.a.s. hvort Chopin hafi sjálfur gert hljóm- sveitarútsetninguna). Vandaður og ítarlegur bæklingur þeirra BlS-manna veltir þesssum atriðum fyrir sér og styður ályktanir með mörgum tilvísunum í heimildir en gefur þó engin afgerandi svör. Hvernig skyldi tónlistin nú hljóma? Við fyrstu taktana brá undirrituðum hálfgert í brún. Helst minnti hljómurinn á tónlist kaffi- húsahljómsveitarinnar I Salonisti (með allri virðingu fyrir þeim ágæta hópi) og við frek- ari hlustun var einkennilega erfitt að stað- setja þessa alkunnu og yndislegu tónlist Chopins. Var þetta píanókvintett eða píanó- konsert eða eitthvað allt annað? Niðurstaðan er að þetta eru píanókonsertar en bara svolít- ið sérkennilegir í þessari útfærslu. Menn hafa gjarnan talað svolítið niðrandi um þessi verk Chopins vegna þess að hljómsveitarút- setningin hefur þótt heldur slöpp og í ósam- ræmi við glæsilegan píanóeinleikinn. I þess- ari kammerútgáfu virðist miklu betra jafn- vægi ríkja milli þessara tveggja aðila og er það ekki síst að þakka þessu feiknarlega fína tónlistarfólki sem hér spilar: stækkuðum Yggdrasil-kvartett (þeim er gerðu Jóni Leifs svo góð skil í nýlegri hljóðritun á strengja- kvartettum hans) og japanska píanóleikaran- um Fumiko Shiraga. Þau fara með mikilli nærgætni að fínlegri tónlist Chopins, hafa vakandi eyra með smáatriðunum og samspil- ið er ekki minna en fullkomið. Þau leyfa sér samt líka að láta hið dramatíska njóta sín og gleyma sér ekki í tilfínningaseminni þann- ig að aldrei svo mikið sem örlar á væmni sem svo hætt er við í þessum mjög svo róman- tísku verkum. Hljóðritunin er sérkapítuli, skýr og hefur mikla dýnamík og jafnvægið milli píanóleikarans og meðleikara hennar er hið ákjósanlegasta. Hér er á ferðinni afar fersk og áhugaverð útgáfa sem gefur hlustandanum tækifæri til að skoða alþekkta tónlist frá alveg nýju sjón- arhomi. SZYMANOWSKI Karol Szymanowski: Píanóverk, Vol. 1 og 2 - Mazurkar op 50 nr. 1-12, Píanósónata nr. 2,4 Etýður op. 4, Tilbrigði um pólskt stef op. 10, Metopes op. 29, Masques op. 34 o.fl. Flytjandi: Martin Roscoe (pianó). Útgáfa: Naxos 8.553016/ 8.553300. Verð: kr. 1.380 (2 diskar, fáanlegir hver í sínu lagi) - Japis. FYRIR nokkrum árum skaut upp kollinum hljómdiskaútgáfa sem nefndist Naxos sem átti eftir að skekja hljómdiskaiðnaðinn all- rækilega vegna mjög lágs verðs. Á daginn kom að hér var um mjög vandaðar upptökur að ræða og hvað varðar listrænt gildi og upptökugæði fyllilega sambærilegar við það dýrasta á markaðnum. í fyrstu var aðallega um að ræða hljóðritanir á þekktustu tónverk- um en fljótlega var sviðið breikkað þannig að nú er svo komið að útgáfan gefur út mikið af sjaldheyrðri tónlist sem fengur er í að kynnast - og hún selst og það meira að segja mjög vel. Hveijum hefði t.d. dottið í hug fyrir nokkrum árum að hægt væri að selja píanósónötur Pierre Bouiez í þúsundum eintaka? Diskar þeir sem hér eru til umfjöllun- ar eru einmitt dæmigerðir fyrir þessa út- gáfu. Um er að ræða tvo fyrstu diskana í heildarútgáfu Naxos á píanóverkum Szy- manowskis með breska píanóleikaranum Martin Roscoe. Hér fer saman mjög áhuga- verð tónlist, vandaður flutningur, fyrirtaks hljóðupptaka og hlægilega lágt verð. Er hægt að fara fram á meira? Karol Szymanowski (1882 - 1937) var Pólveiji eins og Chopin og mönnum hefur jafnan þótt þeir hafa átt meira en þjóðernið sameiginlegt. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að telja Szymanowski einasta arftaka Chopins í píanótónlistinni og jafnan er því bætt við að svona hefði Chopin samið tónlist hefði hann fæðst undir lok rómantíkurinnar. Ekki verður dæmt um þá staðhæfingu á þessum vettvangi en þegar hlustað er á þessa diska heyrir maður glöggt að eitthvað er til í þessu. Annars er tónlist Szymanowskis ekki einlit: ljóst er að hann hefur gengið í gegnum ýmis þróunarskeið, allt frá háróman- tík með sterkum Chopin/Liszt - áhrifum (t.d. Fjórar etýður op. 4 og Tilbrigði um pólskt stef op. 10 frá 1904) til dulúðar Scriabins og að lokum til stíleinkenna sem eru hans eigin og mjög auðþekkjanleg og minna stund- um á eins konar dulúðugan, „þróaðan" im- pressíónisma sem þó er mjög erfitt að stað- setja. Já, Szymanowski er í raun engum líkur í þessum seinni fasa sínum. Þótt Mazurkarnir op. 50 séu sannarlega mazurkar, og hvað takt viðvíkur mjög í anda Chopins, erum við hér í allt annarri hljómaveröld. Roscoe spilar þessa einkennilegu og hugvitsamlegu dansa ákaflega vel og tekst að sýna þá miklu breidd sem er í þessari tónlist, þá hljóðlátari spilar hann með miklum næmleika en lætur svo gamminn geisa í þeim kraftmeiri og sýnir af sér mikla tæknilega snilld. Og fyrst talað er um snilld má nefna Sérénade de Don Juan úr Masques op. 34 (nr. 23 á vol. 2). Svona spilamennsku heyrir maður sjaldan - glitrandi tónaregnið er hreint ótrúlegt - og hvílík tónlist! Upphaf- skafli Metopes, L’Ile des Sirénes (nr. 5 á vol. 1) er einnig merki um þennan glitrandi Szymanowski-hljóm, og væntanlega um snilld Roscoes fyrst að hann kemst svo vel til skila. Szymanowski taldi sjálfur Aðra píanósónötuna op. 21 „djöfullega erfiða" og í meðförum Roscoes er ekkert dregið undan og þetta flókna en þó fallega verk spilar Roscoe af miklum næmleika og „bravúr" (hlustið t.d. á upphaf tilbrigðakaflans, nr. 13 á vol.l). Ég vil að lokum nefna hina há- rómantísku Etýðu op. 4 nr. 3 (nr. 10 á vol 1). Þetta litla verk er hreint ótrúlega fallegt og er hér leikið tilgerðarlaust og af mikilli nærfæmi. í stuttu máli: frábær tónlist, framúrskar- andi flutningur, ótrúlega góð kaup. Tveggja og hálfs tíma tónlist á verði tveggja pylsu- pakka (afsakið samlíkinguna!). Valdemar Pálsson Chopins 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. APRÍL1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.