Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Blaðsíða 3
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS - MENNING USTIR 35.TÖLUBLAÐ - 72.ÁRGANGUR EFNI Tíöarandi í aldarlok er yfirskrift á greinaflokki eftir Kristján Kristjánsson, heimspeking og kennara á Akureyri, sem hefst hér og fjall- ar um fyrirbærið póstmódemisma, sem víða kemur við sögu. Upp er mnnin öld kjaftastéttanna, segir höfundurinn, og nú er póstmódernismi boðaður innan veggja háskóla af sömu áfergju og marxismi áður. ísjaki er heitið á menningarsamstarfi milli Is- lands og Jakútiu sem í dag mynda tengsl með þremur myndlistarsýningum í Reykjavík; í Ráðhúsinu, Nýlistasafninu og MÍR-salnum. Vesturfarasetur er risið á Hofsósi og er það nýjasta menn- ingarstofnun landsins. í gömlu húsi sem hefur verið gert glæsilega upp, er nú sam- an kominn margvíslegur fróðleikur í máli og myndum um þetta dapurlega tímabil þegar nær 16 þúsund Islendingar tóku þann kost að flýja land. Um sagnfræðilegu hliðina sér Byggðasafn Skagfirðinga og safnað hefur verið bókum og allskonar munum, sumum þeirra frá Vesturheimi. Blaðamaður Lesbókar leit á sýninguna og gluggar í sögu vesturferða af því tilefni. Sigurður arkitekt Guðmunds- _ son var annar í röð Islendinga sem nutu háskólamenntunar í byggingarlist og hús Olafs Thors í Garðastræti, sem Sigurður teiknaði 1929, var fyrsta ís- lenzka húsið eftir hugmyndum mód- ernismans. Um þennan merka arki- tekt, sem m.a. teiknaði Hallgrímskirkju í Saurbæ og Austurbæjarbarnaskólann, skrifar Pétur J. Armannsson, forstöðu- maður byggingarlistardeildar á Kjarvals- stöðum. Helsinki átti sína menningarnótt fyrir skemmstu. Þar tók þátt Þröstur Helgason, sem hafði samanburð frá síðustu menningarnótt í Reykjavík. Þröstur segir Finna nákvæma, skipulagða, stundvísa og tæknivædda og þessa eiginleika nýti þeir til hins ýtrasta við að skipuleggja hátíðarhöldin árið 2000 þegar Helsinki verður ein af níu menning- arborgum Evrópu eins og Reykjavík. Menningarnóttin kallaði aftur á móti fram ýmsa aðra eiginleika hjá Finnum og svip- aði að vissu leyti til systur sinnar hér. Forsíðumyndin: Islendingar ó leið til Vesturheims seint á 19. öld. Myndin er birti heild á bls. 12. FRANCISCO J. URIZ AUGA FYRIR HLUTFÖLLUM Til Juan, mörgum árum seinna JÓHANN HJÁLMARSSON ÞÝDDI Þetta var snjóþungt ár og byltingaár. Meðan útvarpið kunngerði: „í Portúgai hafa hundruð manna farið í kröfugöngu og krafist gagngerra þjóðféiagsbreytinga“ fyliti ég annars hugar baðkarið og þegar ég steig ofan í það aigjörlega úti á þekju gagntekinn þönkum um dirfskufullar kröfur rann vatnið út um allt góif. Yfirborð Lagarins var einnig óvenju hátt þetta ár. Dropi í viðbót hefði valdið fióði. Þegar ég synti í Leginum gerði ég það með skiljaniegri varúð svo að ég hleypti ekki af stað fióði í Stokkhólmi. ALLTAF Á sérhverju tré er alltaf lauf sem á undan systrum sínum bregst við sameiginlegum fölva eitt lauf sem deyr tímanlega af birtu læðist eins og á tá af tillitssemi kannski ást til að valda haustinu ekki vonbrigðum. Francisco J. Uriz er skáld frá Aragónfylki á Spáni, fæddur i Zaragoza 1932, en býr í nágrannaborginni Tarazona þar sem hann veitir forstöðu Þýðingostofn- un. Hann bjó lengi í Svtþjóð og hefur þýtt fjölda verka eftir norræna höfunda á spænsku. HVAÐER EL NINJO? RABB ANOKKURRA ára fresti íjalla fréttastofur um veðurfyrirbærið E1 Ninjo og kenna því um eða þakka ýmiss konar furð- ur, hita eða kulda, storma eða stillur2 votviðri eða ofþurrka. I sumar hefur þessi umræða verið sérstaklega hávær. Ein- dæma þurrkar í Norður-Kóreu valda hung- ursneyð. Sílebúar eru hræddir um að sardín- an bregðist en það getur einmitt valdið því að loðnuverðið hækki til hagsbóta fyrir ís- lendinga. Á vesturströnd Suður- og Norður- Ameríku er spáð miklu úrfelli og stormum en í Evrópu hafa verið óvenjuleg hlýindi og hitamóða sem meðal annars ógnaði andfær- um hins aldurhnigna páfa þegar hann heim- sótti Frakkland. Og svo hafa verið mikil hlýindi á hundadögunum íslensku, frá 13. júlí til 23. ágúst. Sumt af þessu má kallast að séu sjálfgefnir fylgifiskar E1 Ninjo, en annað ekki, enda eru fáar reglur um veðrátt- una algildar eins og veðurfræðingar þekkja af dapurlegri reynslu. Aðaleinkenni E1 Ninjo er að á mjóu belti sem liggur við miðbaug í Kyrrahafi verður yfirborðssjórinn óvenju hlýr, jafnvel alla leið frá Indónesíu austur að Perú, Ekvador og nyrstu svæðum Síle. Þetta belti getur orðið einar 15 milljónir ferkílómetra, helmingi stærra en Bandaríkin og hlýnunin getur numið 1-3 gráðum. Mest af árinu er ríkjandi suðaustan stað- vindur við vesturströnd Suður-Ameríku. Hann stendur því nokkuð af landi og hrekur sjóinn til vesturs. Afleiðingin er að við ströndina hlýtur að verða uppstreymi af köldum sjó. Það dælir næringarefnum upp á yfirborðið, þörungarnir blómstra og millj- arðar smádýranna þrífast á þeim. Þá er nú gaman að vera sardína með sífellda maga- fylli, en hennar vegna eru Sílebúar einhver mesta fiskveiðiþjóð heims. Þessi hagstæðu tímabil með tiltölulega svölum sjó við Suður-Ameríku eru oftast lengri en þau hlýju. En allt er í heiminum hverfult. Að því kemur að austanáttin gefur sig við ströndina og sjórinn hlýnar lítið eitt. Vegna hlýnunarinnar fer loftþrýstingurinn að lækka á þessu hafsvæði, rétt eins og hlýnun lands á sumardegi lækkar þrýsting- inn og fer að soga hafgoluna inn yfir landið. I framhaldinu sogast loft og sjór vestan af Kyrrahafi og uppstreymi sjávarins við ströndina minnkar. Það veldur enn meiri sjávarhlýnun. Svikamylla er komin í gang og herðir á framvindunni. Eftir hálft eða eitt ár hafa áhrifin náð hámarki. Þá er hit- inn vestar á Kyrrahafínu við miðbaug orðinn svo hár að þar hefur þrýstingurinn lækkað og austanvindarnir leita þangað á ný með eðlilegum hætti, sardínunni og Sílebúum til ómældrar gleði. Aflabresturinn líður hjá. Þessi skammvinnu hlýindaskeið við mið- baug í Kyrrahafi koma oft svo sem tvisvar eða ijórum sinnum á áratug. Það er mjög algengt að þau byiji um áramótin eða jólin og endi um næstu jól. Af því mun vera dreg- ið nafnið E1 Ninjo sem þýðir barnið, og er þá att við jólabarnið. Á sjöunda áratug aldarinnar varð það ljóst, einkum vegna rannsókna norsk-amer- iska veðurfræðingsins Jakobs Bjerknes, að þessar sjávarhitabreytingar í Kyrrahafi væru nátengdar sérstöku þrýstifyrirbæri sem Gil- bert Walker hafði uppgötvað á þriðja ára- tugnum. Hann fann að í hvert sinn sem þrýstingur var hár yfir Indlandshafi var hann tiltölulega lágur yfir austanverðu Kyrrahafi, eða öfugt. Um þessa kenningu Walkers heyrði ég fyrst fyrir fimmtíu árum þegar ég var farinn að nasa af veðurfræði. Þá hæddust margir að þessu en nú er mönn- um ljóst að þarna var verið að leggja grund- völlinn að þeim árstíðaspám sem helst er nú treyst á. - Ekki get ég stillt mig um að nefna að þegar ég setti fram þá kenningu um 1970 að sjávarhita við Jan Mayen mætti nota til að spá um hafls við Island hálfu ári síðar hleyptu margir brúnum af hneykslun. Þegar ég skýrði Jakob Bjerknes frá þessum hugmyndum nokkrum árum síðar tók hann þeim aftur á móti með góðum skilningi. En þetta var nú útúrdúr. Hvaða áhrif hefur svo E1 Ninjo? Þessi mikla hækkun sjávarhitans vestur undan Suður-Ameríku veldur bæði mikilli uppgufun úr hafinu og uppstreymi lofts. Það leiðir til lægðamyndunar, hvassviðra og rigningar, en hlýnun sjávarins við Síle veldur þar að auki aflabresti. Þar við bætist að hlýja loft- ið við miðbaug sem minnkar að vísu þiýst- inginn við sjávarmál eykur hann í efri loftlög- um vegna þenslu loftsins. Af því leiðir að vestanáttin sem ber lægðirnar austur eftir harðnar og beinir úrkomusvæðunum til strandanna norðar og sunnar. En við Suðaustur-Asíu verða áhrifin öfug. Þar hækkar loftþrýstingurinn eins og Gil- bert Walker komst að raun um. Af því leið- ir aukið niðurstreymi loftsins og þurrkun þess. Þá dregur máttinn úr lægðunum sem beina rökum misseravindum inn yfir Asíu á sumrin og þar verður hætta á ofþurrkum eins og nú hefur sýnt sig í Norður-Kóreu. En ofþurrkarnir ná líka oftast yfir norðan- verða Ástralíu. Þetta eru þá helstu afleiðingar E1 Ninjo, hlýja sjávarins sem gætir í Kyrrahafi á svo sem þriggja ára fresti. En varla fer hjá því að áhrifin berast víðar þó að þau dreifist óreglulega. Mikil hlýindi sem hafa verið í Evrópu í sumar vilja sumir rekja til E1 Ninjo, en varlega skyldi þó sú ályktun dregin. Heldur er líklegra að ísland eigi nokkra samleið með Suður-Ameríku um hlýindi og kulda þó að hitans færi ekki að gæta hér fyrr en á miðju sumri að þessu sinni. Árin 1972, 1987 og 1991 voru þau hlýjustu í Reykjavík á tveggja áratuga bili, og öll voru þau E1 Ninjo-ár. Það er varla tilviljun. En hafa þessi miklu hitabrigði í Kyrra- hafi þá ekki áhrif á loftslagið þegar til lengd- ar lætur? Getur verið að þau hafí til dæmis truflað og dulið verulega hlýnun af gróður- húsaáhrifum síðustu 100 ár? Ég held ekki. Þessar hitasveiflur eru svo skammvinnar að þær jafna sig svo að segja alveg upp á ára- tug. Allt öðru máli gegnir um þær langvinnu hitabylgjur í íshafssjónum sem ég lýsti í rabbgrein 25. janúar s.i. Þær geta staðið í 10-50 ár, frá einu hlýindaskeiði til þess næsta. Það er sjö milljón ferkílómetra haf- svæði milli Barentshafs og Kanada sem tek- ur þessum feikna breytingum. Vindarnir sem yfir þessi höf blása taka svo upp þennan kulda eða hita og bera hann smátt og smátt um alla jörð, en svo rólega að hægt er að gera 7 ára spár um meðalhita jarðar hveiju sinni. Ef E1 Ninjo gerir mögulegt að spá um 1-2 ár getur hitinn á Spitzbergen gefið hug- mynd um tíu sinnum lengra tímabil og um alla jörð. Nú stendur sæmilega á um hitann í þessum norrænu höfum. Þegar við það bætast gróðurhúsaáhrifin og svo ylurinn frá E1 Ninjo á þessu ári þarf engan að undra þótt blessuðum páfanum verði þungt um andardrátt og þorskurinn syndi feitur og fagur um íslandsmið. PÁLL BERGÞÓRSSON. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.