Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Blaðsíða 13
UR FILMIU I FJALAKOTTINN - 2. HLUTI AFTUR í ÁR- DAGA KVIK- MYNDANNA EFTIR ARNALD INDRIÐASON Kvikmyndaklúbbur MR og Litla Bíó héldu ófram aö draga fram sögu kvikmyndanna eftir að Filmía hætti starfseminni og sýndu klassískar, evrópskar myndir. FJALLA-EYVINDUR: Edith Erastoff og Viktor Sjöström, sem Kvikmyndaklúbbur MR sýndi 1965. ANDI Filmíu lifði í nokkurs- konar arftaka klúbbins, Kvikmyndaklúbbi Listafé- lags Menntaskólans í Reykjavík. Aðalhvatamað- urinn að stofnun hans var Þorsteinn Helgason sagn- fræðingur, sem þá var for- seti Listafélags M.R. en Jón Júlíusson formað- ur Filmíu kenndi latínu við skólann og „það spillti ekki fyrir“ segir Þorsteinn í samtali. Klúbburinn var stofnaður haustið 1965 þegar starfsemi Filmíu var lokið og fyllti að ein- hvetju leyti upp í tóm sem hafði skapast. Kvikmyndaklúbburinn heyrði undir Listafélag- ið er einnig rak önnnur menningarfélög. Þor- steinn segir að hann hafi fengið myndirnar frá Dönsku kvikmyndastofnuninni og einnig var hann í sambandi við þýskt dreifingarfyrir- tæki auk þess sem leitað var til sendiráðanna. Sérstakiega, segir Þorsteinn, voru Tékkar vilj- ugir að lána myndir sínar á þessum tíma en mikil uppsveifia var í tékkneskri kvikmynda- gerð á sjöunda áratugnum áður en sovéther réðist inn í Prag árið 1968. Þorsteinn man eftir mörgum sem sóttu myndir klúbbsins er síðar urðu kvikmynda- gerðarmenn sjálfír s.s. eins og Þráni Bertels- syni, Þorsteini Jónssyni, Kristínu Jóhannes- dóttur og Ágústi Guðmundssyni, sem starfaði fyrir klúbbinn en hann var gjaldkeri Lista- félagsins. „Klúbburinn hafði tvímælalaust áhrif á mig sem kvikmyndagerðarmann,“ seg- ir Ágúst og bendir á að þeir sem byijuðu hið svokaliaða kvikmyndavor voru allir á svipuðu reki og komu úr M.R. „svo það má vel vera að starfsemin hafi haft áhrif á fleiri en mig. Og ég bjó svolítið að því að hafa verið í klúbbn- um þegar ég hóf mitt kvikmyndanám í Lond- on vegna þess að ég hafði séð mun fleiri af meistaraverkum kvikmyndanna en aðrir sem voru með mér í skólanum." Myndimar voru sýndar ýmist í Laugarásbíói (oftast), Gamla Bíói eða Háskólabíói og jafnvel í kvikmyndasal Austurbæjar. „Við sýndum meira að segja á laugardagsmorgnum," segir Þorsteinn Helgason, „og ég man að Guðrún Helgadóttir rithöfundur kom mikið á sýningar klúbbsins og sagði að það þyrfti ekki að ör- vænta um íslenska menningu þegar sóttar væru kvikmyndasýningar á laugardagsmorgn- um.“ Líkt og í Filmíu var áhersla lögð á að draga fram sögu kvikmyndanna með sýningum klúbbsins. Gefnar voru út vandaðar sýningar- skrár þar sem kafað var ofan í verk kvikmynda- höfundanna og sagt frá þeim sjálfum og er þar mikinn fróðleik að finna. Fyrsta misserið voru sýndar myndir eins og Beitiskipið Potemk- in og Ivan grimmi eftir Eisenstein, Brauðlaust land og Ævintýri Róbinson Krúsós báðar eftir Bunuel, Fjalla - Eyvindur eftir Victor Sjöström og Rashomon eftir Kurosawa. Næsta misserið var áherslan öll á þýska expressjónismann með myndum Robert Wiene og Georg Pabst ofl. og síðan voru sýndar fimm myndir Carl Dreyers m.a. Heilög Jóhanna og Geirþrúður. Stutt- og heimildarmyndir voru áberandi. „Það var lögð mikil áhersla á að við næðum aftur í árdaga kvikmyndanna," segir Ágúst Guðmundsson. „Þetta tókst vonum framar," heldur hann áfram. „Fólk sýndi klúbbnum heilmikinn áhuga í upphafi. Kvikmyndaúrvalið í bíóunum var takmarkað að þessu leyti og sjónvarpið var ekki komið. Einnig voru skilin á milli venju- legra bíómynda og listrænna mynda mjög hrein og klár í þá daga en hafa síðan orðið óljósari." Lítla Bié Sjónvarpið var komið þegar Þorgeir Þorgeirson rithöfundur stofnaði sinn kvikmyndaklúbb og vera að það hafi haft einhver áhrif á hversu stuttur hans líftími var. „Við stofnuðum okkar kvikmyndaklúbb, Litla Bíó, vori 1968,“ segir Þorgeir. Hann hafð kynnst kvikmyndaklúbbum fyrst og fremst þegar hann var í Frakklandi vorið 1954 og aftur á árunum 1955 og 1956 þegar hann sótti Kvikmyndasafnið í París. „Þá voru þar þijár sýningar á dag á klassískum verkurn," segir Þor- geir. „Kvikmyndasafnið hafði mest áhrifin á menn. Það hafði feikna glor- íu á þessum tíma. Það hafði verndað þýska expressjónis- mann, sem menn Hitlers vildu útrýma. Kvikmynda- klúbbarnir í París voru ýmist með fast aðsetur í litlum bíó- um eða þeir störfuðu hér og þar um borgina en voru ekki með sérstakt heimilisfang; ég sótti mikið klúbb á Monmar- tre sem hét Stúdíó 28.“ Sýningarnar gátu haft mikil áhrif eins og Þorgeir lýsir: „Ég sat einu sinni á safninu í París og sýnd var mynd eftir Kurosawa sem hann gerði eftir Fávita Dostojevskís. Myndin var með jap- önsku tali og indverskum texta og var sex eða átta tíma löng. Ég sat við hliðina á Ameríkana og við gátum ekki skilið hvor við annan fyrr en tveimur sólarhringum eftir að myndinni lauk. Við töluðum ekkert mikið saman og þögðum kannski því meira en slík áhrif hafði þessi sýning." Litla Bíó var til húsa að Hverfisgötu 44 og tók 73 í sæti en klúbburinn keypti bekki úr Iðnó, sem ekki voru not fyrir lengur. Seld voru kort á fimm sýningar í senn og skipt var um mynd vikulega. Kosin var stjórn og sátu í henni Magnús Skúlason, Ragnar Aðal- steinsson og Þorsteinn Blöndal ásamt Þorgeiri og eiginkonu hans, Vilborgu Dagbjartsdóttur, skáldkonu. „Við sýndum alla daga vikunnar klukkan fimm og níu á kvöldin nema á fimmtu- dögum, sem var ögrun við sjónvarpið. Klúb- burinn gekk í hálft ár á Hverfísgötunni með því móti að við Vilborg unnum þarna allt ókeypis." Þorgeir segir að klúbburinn hafi litlu ráðið hvaða myndir voru sýndar. Hann stjórn- aði sjálfur 16 mm sýningarvél ættaðri frá Rússlandi, „ægilegu fjalli sem þurfti stöðugt viðgerðar við.“ Þorgeir segir: „Í fyrsta lagi gátum við ekkert sýnt nema 16 mm myndir. Það útilokaði okkur frá öllu sem hugsanlega gæti legið hjá bíóunum; þau stóðu ekkert allt- af við það að brenna eintökin sín. Og í öðru lagi höfðum við enga peninga nema rétt fyrir húsaleigu. Við áttum góða að í sendiráðunum, því franska og rússneska og sérstaklega því tékkneska sem útveguðu okkur nýjar myndir. Tékknesku myndirnar voru stolt klúbbsins og þær fengu góða aðsókn. Þá var feikilegur kraftur í tékkneskri kvikmyndagerð og við fengum margar myndir þaðan splunkunýjar. Klúbburinn hafði aðeins eitt prinsipp: Sýningu var ekki aflýst nema ef mættu færri en einn. Það var algengt að við sýndum fyrir einn og þegar ekkert var farið að lifna yfír aðsókninni um haustið hættum við.“ Eftir að sýningum var hætt á Hverfisgöt- unni hélst starfsemi Litla Bíós áfram í Nor- ræna húsinu í skamman tíma áður en hann leystist alveg upp. Þorgeir segir að sumir hafi verið fullir fyrirlitningar í garð klúbbsins og „aðrir voru voða hræddir um að við ætluð- um að fara að græða á þessii. Þetta var ekki komið inn í kúltúrmyndina. Ég sé ekkert eftir því að standa í þessu þó ekki væri nema bara fyrir það að maður missti af sjónvarpsdag- skránni, þá borgaði það sig. Bekkirnir úr Iðnó voru eftirsótt- ir og ég gat selt þá og þeir gerðu á endanum reksturinn halla- lausan.“ Myndirnar sem sýndar voru í Litla Bíói samanstóðu af rússneskri og franskri klassík. Franska utanríkisráðuneytið dreifði mikið af 16 mm filmum að sögn Þorgeirs „og Rússarnir voru áfjáðir í að láta mann nota allt. Maður tók nýju sós- íalrealísku myndirnar og geymdi um tíma og þá fékk maður Eisenstein og hina með. Og svo sýndum við nýju tékk- nesku myndirnar. Ég sé alltaf eftir því að hafa ekki stolið nema einni þeirra því eftir 21. ágúst þetta ár voru Tékkarnir ekkert áfjáðir í að fá myndirnar til baka því þær voru flestar fallnar í ónáð.“ Fjalarkötturinn Klúbbstarfsemin á sjöunda áratugnum virt- ist hafa áhrif á kvikmyndahúsin að einhveiju leyti sem sést m.a. á því að Háskólabíó hóf um 1970 að sýna svokallaðar „mánudags- myndir“, listrænar myndir sem höfða áttu til þeirra er gerðu kröfu um vandaðri bíómyndir í kvikmyndahúsunum. Næst dró til tíðinda í kvikmyndaklúbbsmálum um haustið 1973 þegar Kvikmyndaklúbbur menntaskólanna var ,t stofnaður og voru sýningar haldnar í Lauga- rásbíói og í Borgarbíói á Akureyri. Tveimur árum síðar, haustið 1975, varð Fjalarkötturinn til, kvikmyndaklúbbur framhaldsskólanna, þegar Stúdentaráð Háskólans og Félagsstofn- un stúdenta tóku upp samstarf við Kvik- myndaklúbb menntaskólanna og hófst þar með starfsemi stærsta kvikmyndaklúbbs sem starfræktur hefur verið í landinu. Hann hóf starfsemina á þeim tíma er hyllti undir kvik- myndavorið. Blómatími hans var á þeim tíma þegar vorið varð að veruleika og hann fylgdi því fyrstu árin. „Klúbburinn var mikill skóli fyrir mig og marga aðra,“ segir Friðrik Þór Friðriksson en hann var framkvæmdastjóri og primus motor í starfsemi hans fyrstu árin. Sýndar voru ár hvert allt upp i fímmtíu mynd- ir, langar og stuttar, og segir Friðrik Þór að, meðlimir hafí verið um 2000 en klúbburinn starfaði í sjö ár frá 1975 til 1982. í stjórn sátu fulltrúar menntaskólanna í Reykjavík og Kópavogi, og Háskóla íslands og Verslunar- skóla íslands ásamt fulltrúa frá Félagsstofnun stúdenta. Fjalarkötturinn gaf út kvikmynda- blað er kynnti myndirnar sem klúbburinn sýndi og var fullgilt kvikmyndatímarit en slík rit voru fátíð á íslensku og eru það enn. Tímarit- inu var fylgt úr hlaði ár hvert með inngangs- orðum ritstjóra og má rekja nokkuð starfsemi kvikmyndaklúbbsins og hug félagsmanna til hans með því að glugga í þau. Sést að starf- semin hófst á miklum bjartsýnisnótum. Þegar leið nær endalokunum kom annar og svart-' sýnni tónn í skrifin eins og Fjalarkötturinn væri orðinn „gamall og geðillur fressköttur og hlaupinn í spikið" en þá hafði aðsóknin minnkað mikið og hófust m.a. ritdeilur um LISBETH Movin í Dagur reiði, sem Kvik- myndaklúbbur MR sýndi 1966. „Klúbburinn hafii ad- eins eittprinsipp: sýn- ingu var ekki aflýst nema ef mættu færri en einn. “ ÞORGEIR ÞORGEIRSON. FELLINI: Fjalakötturinn sýndi fjölda mynda eftir Frederico Fellini. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997 13'

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.