Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Blaðsíða 5
HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ (1954-57). Kirkjan er gott dæmi um þær áherslur sem einkenndu byggingarlist Sigurðar Guðmunds- sonar og Eiríks Einarssonar eftir stríð. I henni tekst þeim einkar vel að tvinna saman í eina heild hefðbundið form og nútímalegar áherslur f efnisvali. báru eigi að síður sterk höfundareinkenni. Að ýmsu leyti má líta á þau sem framhald af ýmsum þeim nýjungum sem Sigurður hafði innleitt með verkum sínum fyrir 1930, einkum á sviði jámbentrar steinsteypu. Þrátt fyrir nýj- an svip á ytra borði var innra skipulag hús- anna mótað af þeim meginreglum sem hann hafði stuðst við í fyrstu húsum sínum. Hið sama má segja um perluákast á útveggjum, gluggagrindur úr járni og steypt flöt þök. Sem dæmi má nefna húsin á Freyjugötu 41 og 46, Laufásvegi 77, Sóleyjargötu 11 og 29 og Smáragötu 16. Hús Sigurðar frá þessu tíma- bili vitna um eitt fijóasta og framsæknasta skeið í íslenskri sjónlistasögu á þessari öld. Illu heilli hafa þau sum hver glatað helstu stílein- kennum sínum með síðari breytingum og eru vart svipur hjá sjón. Fátt minnir lengur á upp- runalegt listgildi þeirra annað en teikningar og gamlar ljósmyndir. A fyrri hluta fjórða áratugarins teiknaði Sigurður nokkrar stærri byggingar í anda funksjónalismans. Má þar helst nefna stúd- entagarð (Gamla garð) við Hringbraut, ka- þólsku spítalana á Landakoti (vesturálmu) og í Stykkishólmi, Hafnarhúsið við Tryggvagötu og Ljósafossvirkjun. Á þessu tímabili var teiknistofa hans helsta miðstöð nútímaarki- tektúrs hér á landi og þangað réðust til starfa ungir arkitektar, innlendir og erlendir, sem tóku þátt í hönnun ýmissa verkefna og nutu jafnframt góðs af faglegri reynslu Sigurðar og innsæi. Sigurður átti mikinn þátt í að móta fagleg viðhorf þeirrar kynslóðar ís- lenskra arkitekta sem átti eftir að hafa hvað mest áhrif á framvindu íslenskrar húsagerðar um og eftir seinni heimsstyijöld. Um þetta leyti stóð hann í tíðum bréfaskiptum við arki- tekta í ýmsum löndum og ferðaðist auk þess til Evrópu til að kynna sér nýjungar í bygging- armálum. Hann gat sér jafnframt gott orð meðal starfsfélaga erlendis sem hönnuður steinsteyptra húsa og greinar um verk hans birtust í fagtímaritum. Um 1935 tók Sigurður Guðmundsson að endurvekja ýmsar lausnir sem sett höfðu svip á hús hans í upphafi. Flötu þökin hurfu og í þeirra stað kom ýmist valmi eða brött mænis- þök. Jafnframt var mótun rúmtaksins var- færnari en áður og minna um stalla og útbygg- ingar. Hér var ekki um stílfræðilegt aftur- hvarf að ræða heldur viðleitni til að ná fram bestu heildarlausn með tilliti til notagildis og einfaldleika. í seinni verkum sínum má segja að Sigurður hafi leitað hins sameiginlega kjarna í þeim tveim stefnum sem mótað höfðu viðhorf hans til byggingarlistar, norrænni klassík og funksjónalisma. Samstarf vid Eirík Einarsson Árið 1938 gerðist Eiríkur Einarsson arki- tekt (1907-1969) félagi Sigurðar Guðmunds- sonar um rekstur teiknistofunnar. Hann hafði þá skömmu áður lokið prófi í arkitektúr frá tækniháskólanum í Dresden í Þýskalandi með góðum vitnisburði. Samstarf þeirra varð eink- ar farsælt enda voru þeir nánir vinir og sam- heijar. Báðir voru þeir höfundar allra helstu verkefna frá stofunni á tuttugu ára tímabili, frá 1938 til 1958, og er undirskrift þeirra beggja á flestum teikningum. Saman unnu þeir uppdrætti að ýmsum opinberum bygging- FREYJUGATA 46 (1931). Eitt fárra íbúðarhúsa Sigurðar Guðmundssonar í anda funkis- stefnunnar sem varðveist hefur án verulegra útlitsbreytinga. Það var í upphafi múrað með granítmulningi en hefur nýlega verið endurhúðað með Ijósum marmarasalla. FREYJUGATA 41 (1933). Teiknað og byggt sem íbúðarhús og vinnustofa Asmundar Sveinssonar myndhöggvara. Sigurður fékk Ásmund til þess að vinna myndir í nokkrar byggingar sínar. Má þar nefna lágmyndir yfir inngöngum Austurbæjarskólans og á fram- hlið Ljósafossvirkjunar. um, t.d. Þjóðminjasafninu, Sjómannaskól- anum, hluta Sogsvirkjana (írafossvirkjun og Steingrímsstöð), bálstofu og kapellu í Foss- vogi og Hallgrímskirkju í Saurbæ, auk fjölda smærri verkefna. Af athyglisverðum verkefn- um þeirra sem ekki voru byggð má nefna ýmsar tillögur að mannvirkjum Hitaveitunnar á Öskjuhlíð, m.a. útsýnisturni og hringlaga veitingahúsi. Sem faglegur leiðtogi og brautryðjandi í byggingarmálum til margra ára naut Sigurður Guðmundsson óskoraðrar virðingar stétt- arbræðra sinna þegar hann féll frá síðla árs 1958, á 74. aldursári. Hann var brautryðjandi í skrifum um byggingarlist og naut þar m.a. reynslu sinnar sem blaðamaður. Áhugi hans á íslensku máli varð til þess að hann fórnaði öllum tómstundum sínum seinni árin til að semja tækniorðabók, sem kom út að honum látnum. Auk félagsstarfa á vegum arkitekta sat hann í stjórn Bandalags íslenskra lista- manna og var formaður þeirra samtaka um skeið. Sem arkitekt átti Sigurður frumkvæði að því að fá myndlistarmenn til þess að skapa myndverk í byggingar sínar. Má þar nefna samstarf hans við Ásmund Sveinsson mynd- höggvara m.a. við Austurbæjarskóla og Sogs- virkjanir. Auk þess teiknaði Sigurður hús og vinnustofur fyrir ýmsa listamenn, svo sem Ásgrím Jónsson og Jón Stefánsson, Ásmund Sveinsson, Harald Björnsson, Júlíönu Sveins- dóttur og Kristínu Jónsdóttur. 1) Hörður Agústsson. Inngangur í skrá sýningar um Gunnlaug Halldórsson arkitekt, bls. 6. Arkitektafélag Islands, Reykjavík 1989. 2) Júlíana Gottskálksdóttir. í deiglunni 1930-1944, bls. 159. Listasafn íslands, Reykjavík 1994. Byggt á texta rits um Sigurð Guðmundsson arkitekt sem kem- ur út í tilefni sýningarinnar á Kjarvalsstöðum. í ritinu er að finna skrá yfir heimildir og helstu verk. Höfundur er arkitekt og deildarstjóri Bygginga- listardeildar ó Kjarvalsstöóum. JÓHANN ÁRELÍUZ AUKA- NÆTUR í UPPLANDI Sál mín vængjuð skýjadúni og sólskinsljóma himinbláma Vandfundin fiís í auga und spanskgrænni eikarkrónu: þijátíu gráður í skugganum Vatnið svart blik í spegli augans silfurhnepptum dreglum slegið Á minnið leikur straumi stríðum strengur glertærrar bergvatns- ár: íslenska uppsprettulindin! Bellmanskir tónar bljúgrar lútu um sólgisin sumarsegl: berjablár eikarskugginn ilmsmyrsl augnaloka Stundum þyngri en sorgin Stundum þyngri en blý Eiturgult slý á botni vatnsins. ÍSLANDS- MINNI 1994 Hrímkaldir draumar Mjóslegin strá Kal í túnum og holtum Hæðir og sund Halur og sprund Sérðu ekki hvítan blett í hnakka mínum Gróa? Höfundurinn er frá Akureyri en hefur um árabil búið i Sviþjóó. Ljóðið er úr fjórðu Ijóðabók hans, sem væntanleg er út hjó forlaginu Ormstungu og heit- ir Par avion. Gísli Ingvarsson Fokker friend- ship Flugvöllur Öltubæjar tómlát snyrtimennska viðmótsþýðan að storkna enn ein tilkynning um seinkun samtal á samísku og rússneska blandast norskunni þægilega framandi loka fyrir veitingar peningarnir nógir langar heim alla hérna langar svo eitthvað annað. Höfundurinn er búsettur í Noregi. Ljóð- ið er tileinkað Timó Karlssyni fyrrver- andi sendikennara Finna við Háskóla Islands nú á förum frá N-Noregi til starfa í Múnchen. LESBÓK MORGUNBLAOSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.