Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Qupperneq 15
* ^ é é é é é é é é é é é é é m*
*j é é 41 é V é *í,I,I,I,UL.í< d d é é é J *i
ÍÍS’^Wfe Jipsp
lu»«muHin
HELSINKI verður ein af níu menningarborgum Evrópu árið 2000 eins og Reykjavík. Sumt það sem Finnar ætla sér að gera fyrir árið
2000 hljómar sannarlega eins og spennandi vísindaskáldskapur, til dæmis að gera Helsinki að fyrstu borg heims sem hægt er að
skoða f sýndarveruleika.
JÓHANN GUÐNI
REYNISSON
NAKIÐ
HJARTA
í farvegarfjötrí
flýr lítill lækur
undan eldvirku fjalli
í umrót hafsins.
En klettarnir kyrrir.
Kyrrstæður heimurinn bíður.
Er fiskur smár á móti flaumi
ferð sína býr.
Hann vill heldur
hjarta nöktu
halla heima undir
himintindum.
ÆTÍÐ
/ heljarbjarma af hniginni sól
hnípin vera fellir tár.
Það sígur hægt í gljúpan svörð
seytlar rótt í þúsund ár
en birtist aftur ofar jörð
í ungrar juitar hvarmastól.
ÍSLEND-
INGUR
Morgunblaðió/Þröstur Helgason
MENNINGARNÓTT í Helsinki. Unglingar sitja í hópum og kneyfa ölið af miklum móð,
sumir hafa sofnað undir vegg, aðrir slást með ópum og æjum. Þeir eldri og reynslu-
meiri drekka ölið á knæpum bæjarins.
í HELSINKI er verið að byggja nýtt nútfmalistasafn. Byggingin er teiknuð af bandarfska
arkitektinum Steven Hall og verður opnuð almenningi í maí á næsta ári. Byggingin er
glæsileg að ailri gerð og hefur arkitektinn valið henni heitið Kiasma sem merkir staður
þar sem tvær Ifnur skerast.
og búast má við er gengið skipulega til
verks við kynningu á landi og þjóð. Finnsk
menning og finnskt þjóðfélag hafa verið
kynnt fyrir erlendum blaðamönnum á skipu-
legan og markvissan hátt. Einnig hefur
fjölmiðlafræðistúdendum við erlenda há-
skóla árlega verið boðið til fimm vikna
námskeiðs í Finnlandi þar sem námsefnið
er allt að einhveiju leyti tengt Finnlandi,
sögu þess og menningu.
Finnar ætla að verða tilbúnir þegar há-
tíðarhöldin skella á. Ný öld á heldur ekki
að koma þeim á óvart á neinn hátt. Öll
söfn eru búin fullkomnum tölvubúnaði sem
gestir hafa aðgang að og auðveldar þeim
að afla upplýsinga. Og unnið er að því að
Helsinki verði fyrsta borg heims sem hægt
verði að skoða í sýndarveruleika. Með þeim
búnaði ætti erlendum gestum til dæmis
ekki að verða skotaskuld úr því að rata á
söfn borgarinnar; heimilisfangið er einung-
is slegið inn og tölvubúnaðurinn leiðir gest-
inn stystu leið um stræti borgarinnar í
sýndarveruleika. Sumt það sem Finnar
ætla sér að gera fyrir árið 2000 hljómar
sannarlega eins og spennandi vísindaskáld-
skajmr.
A vettvangi lista hafa Finnar auðvitað á
langri hefð að byggja. Eins og áður sagði
verður tónlistin höfð í hávegum árið 2000.
Að sögn Georg Dolivo er tónlistin sú list-
grein sem stendur hjarta Finna næst enda
lék hún stórt hlutverk í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar í byijun aldarinnar. En einnig
verður mikil áhersla lögð á aðrar greinar
sem Finnar standa framarlega í svo sem
eins og leiklist, nútímadans, fjölmiðlun og
kvikmyndir. Það vekur athygli að þrátt fyr-
ir að þetta séu flaggskip finnskrar menning-
ar eru þetta samt sem áður ekki þær list-
greinar sem njóta mestra opinberra styrkja
þar í landi; á síðasta ári var mest fé, eða
54% allra styrkja, lagt til eflingar mynd-
lista og bókmennta samkvæmt upplýsingum
frá Listráði Finnlands.
Hinir erlendu blaðamenn fengu smjörþef-
inn af því sem Helsinki hefur upp á að bjóða
í menningu og listum á menningarnótt borg-
arinnar því þótt drykkjusvolar og rassberar
hafi kannski stolið athyglinni um stund var
einnig ýmislegt annað um að vera sem
kveikti áhuga. Helsinki hefur það vitanlega
framyfir Reykjavík sem menningarnætur-
borg að vera ekki stödd á miðju ofviðra-
belti. Ýmsar uppákomur utandyra settu því
mikinn svip á menningarnóttina þar; hljóm-
sveitir og söngvarar af öllu tagi sýndu list-
ir sínar, finnskur tangó var stiginn af bestu
list og svo mætti lengi telja. Og ekki vant-
aði áhugasama áhorfendur sem fylltu garða
og torg borgarinnar - og það þrátt fyrir
að enginn flugeldur sæist á lofti.
Blámi himinsins.
Blámi hafsins.
Alheimur umlykur mig.
Ég,
litaður sem blóðrás
í krossfestum manni,
blakti
í ráðleysi tilverunnar,
sveipaður hvítum kyrtli.
Blakti
uns lognið
dregur allan mátt úr storminum.
Höfundurinn er kennari við framhalds-
skólann ó Laugum.
SIGRÚN
GUÐMUNDSDÓTTIR
EITT
ANDAR-
TAK
Ó ástin mín,
eitt andartak,
langt í lífi mínu.
Þú fylgist með mér,
ég fylgist með þér,
einu sinni býsna nálægt hvort
öðru,
nú úr fjarska.
Ljóðin eru úr væntanlegri Ijóðabók.
Höfundur er píanókennari.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997 15