Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Qupperneq 20
BRUGÐIÐ á leik með hjálma mótaða úr gifsi og skreytta sandi og gróðri. Liósmynd/Sigrún Guðmundsdóttir
NORRÆN FARANDSÝNING Á LISTSKÖPUN BARNA
AÐ SKILJA OG TJÁ
NÁTTÚRUNA
AÐ SKAPA í og með náttúrunni er
yfirskrift norrænnar farandsýning-
ar sem opnuð verður í menningar-
miðstöðinni Gerðubergi í dag. Sýn-
ingin var fýrst opnuð í Noregi í október á
síðasta ári og ísland er síðasti áfangastaður-
inn. Það er norræna samstarfsnetið ESJA
sem stendur að verkefninu en í því eru kenn-
arar frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finn-
landi og íslandi sem hafa það að markmiði
að efla listkennslu barna. Listsköpun í náttúr-
unni er þema sýningarinnar og framlag ís-
lands er frá námskeiði í Listasmiðju barna í
Gerðubergi frá sumrinu 1996. Auk þess verða
sýndar myndir af verkum leikskólabarna í
Kátakoti á Kjalarnesi sem þau unnu í dags-
ferð í fjöru.
Listasmiðja barna hefur starfað síðan 1988
og er eitt af þeim sumarnámskeiðum sem
6-12 ára börn geta valið um á vegum Reykja-
vikurborgar. Aðalmarkmið námskeiðanna er
að gefa börnum tækifæri til að örva sköpun-
arhæfni sína og hvetja þau til sjálfstjáning-
ar. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur og í
fyrrasumar var ákveðið að vinna með náttúr-
una frá ýmsum hliðum og með fjölbreyttu
tjáningarformi.
Álfrún Guðrúnardóttir, umsjónarmaður
listasviðs Gerðubergs, segir að áhersla hafi
verið lögð á að börnin upplifðu náttúruna í
allri sinni fjölbreytni. „Þau unnu verk í fjör-
unni og í garðinum hér í Gerðubergi. í Elliða-
^ árdal lögðust þau í grasið og reyndu að átta
sig á hvaðan hljóðin kæmu og hvernig náttúr-
an tæki breytingum eftir veðri og vindurn,"
segir Álfrún. „Þó að leiðbeinendur hafi verið
börnunum innan handar vartjáningin á þeirra
forsendum og það hefur verið mjög gefandi
að fá að fylgjast með þeim sköpunarkrafti
sem býr í börnum."
Steinum var raðað, grasið mótað, njólinn
beygður og málað var með stráum. Börnin
teiknuðu í og með náttúrunni og mótuðu
ýmiskonar form. Hlutir öðluðust líf í hönd-
um þeirra, þeir fengu nafn og urðu síðan
að persónum. í lokin sömdu börnin texta
sem þau túlkuðu með upplestri, söng og
' leik.
í hverju landi hefur einn listamaður frá
einhverju öðru Norðurlandanna unnið um-
hverfisverk í tengslum við sýninguna. Þessi
verk hafa verið ljósmynduð og fylgja þær
myndir með sýningunni. Halldór Ásgeirsson
var fulltrúi íslands við opnun sýningarinnar
í Svíþjóð. Alfred Vaagsvold umhverfislista-
maður kemur hingað frá Noregi. Hann vinn-
ur með rauðar viðarstangir sem hann kemur
fyrir í umhverfinu og kýs að kalla skissur í
náttúrunni. I tilefni sýningarinnar dregur
Alfred upp skissu í Hólmanum í Reykjavíkurt-
jörn. Þá mun hann skapa verk með börnum
við opnun sýningarinnar í dag í umhverfi
Gerðubergs.
AFRAKSTUR dagsvinnu í
fjörunni á Stokkseyri.
BIBLÍAN Á
ALNETIÐ
BÓKMENNTIR og hvers kyns önnur rit
sem ekki eru háð takmörkunum varð-
andi höfundarrétt eru í sívaxandi mæli
gefin út á alnetinu. Oftast er öllum heim-
il notkun þessa efnis án nokkurs endur-
gjalds. Á ensku og fleiri málum er nú
hægt að nálgast flestar eða allar eldri
perlur heimsbókmenntanna og reyndar
mikið og fjölbreytt úrval bóka af öllu
hugsanlegu tagi.
Frumútgáfur og endurútgáfur verka
með virkan höfundarrétt þekkjast einnig
á netinu en í mjög litium mæli og segja
má að þar sé um tilraunastarfsemi að
ræða. Netútgáfan
(http://www.snerpa.is/net) er eini aðil-
inn á íslandi sem sinnt hefur bókaútgáfu
á alnetinu að einhveiju marki. Netútgáf-
an hóf starfsemi sína í janúar síðastliðn-
um og hefur síðan gefið út talsvert af
íslenskum fornbókmenntum og ýmislegt
annað efni. Efni þetta er öllum aðgengi-
legt sem tengst geta alnetinu og þarf
ekkert að greiða fyrir það.
Íslendingasögurnar og
stjórnarskráin
Meðal efnis sem Netútgáfan hefur
gefið út má nefna íslendingasögur, Forn-
aldarsögur Norðurlanda, fornkvæði og
þjóðsögur. Auk þess Gylfaginningu, ís-
lensku stjórnarskrána, nýjar smásögur
óbirtar annars staðar en á netinu, grein-
ar og fróðleik af ýmsu tagi og ýmislegt
annað efni.
Fyrsta september sl. urðu nokkur tíma-
mót í starfsemi Netútgáfunnar, því þá
kom Biblían út á íslensku sem er lang-
stærsta ritið sem útgáfan hefur gefið út
hingað til. Þetta verk er unnið í samvinnu
við Hið íslenska Biblíufélag. Um er að
ræða öll rit Biblíunnar, 66 talsins, bæði
Gamla og Nýja Testamentið.
Biblían hefur ekki áður verið aðgengi-
leg á netinu á íslensku en hægt hefur
verið að fletta upp á ákveðnum ritningar-
greinum. Búast má við frekari samvinnu
við Biblíufélagið um útgáfumál, t.d. er
[ undirbúningi að gefa út Apókrýfuritin.
Ýmislegt fleira er í undirbúningi hjá
Netútgáfunni, segir í kynningu:,, Fornrit
og fornkvæði munu halda áfram að koma
út og er mikið verk óunnið þar. Nýrri
bókmenntaverk munu einnig verða gefin
út eftir því sem unnt er og jafnvel kem-
ur til greina að hasla sér völl á nýjum
sviðum svo sem með útgáfu erlendra
þýðinga á íslenskum verkum."
* 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997