Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1997, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1997, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Ásdís GESTIR Kammermúsíkklúbbsins að þessu sinni. KAMMERMÚSÍK- KLÚBBURINN MIKILL GESTA- GANGUR KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN gengst fyrii- tónleikum í Bústaðakirkju annað kvöld, sunnudag, kl. 20.30. Á efnisskrá verða verk eftir Prokofiev, Bartók og Beethoven en fram koma Einar Jóhannesson klarinettu- leikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó- leikari, fiðluleikararnir Sigrún og Sigurlaug Eðvaldsdætur, Helga Þórarinsdóttir víólu- leikari, Richard Talkowsky sellóleikari, Ric- hard Korn kontrabassaleikari, Jósef Ogni- bene hornleikari og Hafsteinn Guðmundsson fagottleikari. Tónleikarnir hefjast á forleik sem Sergei Prokofiev samdi um hebresk stef fyrir klar- ínettu, strengjakvartett og píanó. Sagan segir að tónskáldið hafi ekki orðið lítið hissa á við- tökunum sem verkið fékk, þegar var frum- flutt í New York árið 1920, en þær voru mjög góðar. Brátt komu í ljós margs konar umrit- anir á forleiknum, meðal annars fyrir hljóm- sveit. Tók Prokofiev sig þá til og samdi eigin umritun fyrir hljómsveit en hún þykir ekki eiga betur við efnið en frumútgáfan. Tríóið Contrasts samdi Béla Bartók árið 1938 fyrir klarínettu, fiðlu og píanó að beiðni tveggja af kunnustu virtúósum fyrri hluta ald- arinnar, Josephs Szigetis fiðluleikara og klar- ínettuleikarans Bennys Goodmans. Er verk- inu ætlað að vísa til gamallar ungverskrar hefðar um það, hvernig sveitapiltar voru lokk- aðir í riddaraliðið, áður en almenn herskylda var lögboðin. Lokaverk tónleikanna verður Septett í Es- dúr fyrir klarínettu, horn, fagott, fiðlu, víólu, selló og kontrabassa eftir Ludwig van Beet- hoven. Samið árið 1799, þegar byltingarmað- urinn Beethoven var kominn á fulla ferð að semja veigamikil tónverk í stórum formum. Septettinn er á hinn bóginn meiri skemmtimúsík í mörgum köflum, líkt og tíðk- aðist tíu til tuttugu árum fyrr, og varð við út- komuna í einum svip kunnast og vinsælasta verk höfundar síns. LÁTLAUST GUGGENHEIM- ÚTIBÚ í BERLÍN ENN eitt útibú Guggenheim-safnsins var opn- að í Berlín í gær og mörgum listunnendum að óvörum tilkynntu forstöðumenn þess að lát- leysi ætti að ráða ríkjum í rekstri safnsins. Hingað til hefur látleysi ekki verið tengt við Guggenheimsöfnin en í New York og Bilbao hafa Guggenheimsöfnin verið einstakar bygg- ingar sem hafa svo sannarlega sett svip sinn á umhverfið og ekkert hefur verið til sparað. Ástæður þess að forstöðumenn Guggen- heimsafnsins halda að sér höndum í Berlín eru ýmsar en þó fyrst og fremst þær að safnið hef- ur takmarkað rými til ráðstöfunar og í borg- inni eru fyrir fjölmörg gamalgróin listhús. Með látleysi er þó ekki átt við að menn hyggist halda að sér höndum og spara fé við safnið. Thomas Krens, forstöðumaður Guggenheim- safnsins, segir það eiga að taka virkan þátt í listalífi borgarinnar, að sýningar þess eigi að skipta máli og að þær eigi að vera skemmtileg- ar.Opnunarsýning hússins er Parísarmyndir Roberts Delauney, þrjár myndaraðir sem hann málaði á árunum 1908-1914. Safnið er í húsi Deutsche Bank við Unter den Linden og er lít- ið og látlaust borið saman við Guggenheim- safnið í Bilbao sem var opnað fyrir skemmstu. Gólfflötur Berlínarútibúsins er rúmir 1.200 m2 en til samanburðar er sýningarflötur Bilbao safnsins um 33.000 m2. Berlínarútibúið mun njóta góðs af nábýlinu við Deutsche bank þvi hann mun leggja fram um 1,3 millj. dala, um 93 millj. ísl. kr. árlega til að standa straum af sýn- ingarkostnaði í Guggenheimútibúinu. MEÐAL þeirra sem sýna verk sín á Nýlistasafninu eru Ralf Samens frá Sviss og BHK Gutmann frá Þýskalandi. Auk þess að sýna eigin verk hafa þeir unnið í sameiningu undir merkinu SAM & BEN. NÝJAR SÝNINGAR í NÝLISTASAFNINU GLEÐI, HLÝJA OG FERÐALÖG BIRGIR Andrésson, Ralf Samens, BHK Gut- mann, SAM & BEN, Ragna Hermannsdóttir og Hannes Lárusson opna sýningar sínar í Nýlistasafninu, laugardaginn 8. nóvember kl. 16. Sigríður Bjömsdóttir er gestur safnsins í Setustofu í þetta skipti. Birgir Andrésson sýnir partíljósmyndir og nefnist sýning hans „Raunveruleg íslensk gleði“. Myndunum hefur hann safnað saman gegnum árin. Birgir á að baki langan feril sem listamaður, ótal sýningar hér og erlendis og hefur verið fulltrúi íslands á sýningum er- lendis m.a. Feneyjatvíæringnum. Birgir hefur boðið tveimur erlendum listamönnum að sýna með sér, þeir eru Ralf Samens frá Sviss og BHK Gutmann frá Þýskalandi. Ralf og Gutmann eru hvor með sína sýn- ingu en að auki sýna þeir verk sem þeir, unn- in út frá könnun á íslenskum vettvangi. Ralf Samens sem búsettur er í Bern hefur áður sýnt í Nýlistasafninu en hann sýnir nú lífræna skúlptúra úr vaxi og postulíni, brjóstmyndir, teikningu og tvær blaðaljósmyndir. Viðfangs- efni hans er grunneigindir höggmyndarinnar. BHK Gutmann sýnir ljósmyndaverk. Gut- mann sem búsettur er í Berlín hefur sýnt víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Ljósmynda- verldn sem hann sýnir nú eru liður í ferli mynda sem hann hefur tekið af ýmsum stöð- um á ferðalögum sínum frá 1989. Ferlið nefn- ir hann „Sight-seat“. Ragna Hermannsdóttir sýnir tvær Ijós- myndaraðir í Forsal safnsins og litskyggnur í Svarta salnum. Litskyggnuröðina kallar hún „Ferðalag". Ragna stundaði nám í ljósmynd- un á árunum 1972-75 og myndlistamám á ís- landi, Hollandi og í Bandaríkjunum á árunum 1979-87. Hannes Lárusson sýnir rjóður í Súm-sal. Rjóðrið eða innsetningin ber yfirskriftina „Hlýja“. Vísar titillinn til meginverksins á sýningunni sem er ofn sem gestir geta ornað sér við. Hannes hefur verið virkur sem lista- maður, sýningarstjóri, gallerísti, kennari, gagnrýnandi, svo eitthvað sé nefnt, um árabil. Gestur í Setustofu úr röðum FÍM er Sigríð- ur Bjömsdóttir Sigríður hlaut myndlistar- menntun sína í Reykjavík og í London á árun- um uppúr 1950. Starf hennar í gegnum árin hefur aðallega verið á sviði listmeðferðar og telst hún frumkvöðull á því sviði hérlendis. Sýningamar era opnar daglega nema mánudaga frá kl. 14.00 - 18.00 og þeim lýkur 23. nóvember. MENNING/LISTIR ( NÆSTU VIKU MYNDLIST Þjóöminjasafn Islands Bogasalur: Sýning á ljósmyndum: „Finnskt búsetulandslag" til 9. nóv. Listasafn íslands I öllum sölum safnsins er sýning á verkum Gunnlaugs' Scheving og sýnd sjónvarpsmynd daglega um Scheving. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 - Ásmundarsalur Asmundarsalur og Gryfja: Samsýning 48 félaga í FÍM. Til 16. nóv. Arinstofa: Jóhannes S. Kjarval. Verk úr eigu safnsins. Til 7. des. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Jóhannes Kjarval í austursal, ljósmyndir 30 erlendara listamanna í vestursal og miðsal. Safn Ásgrims Jónssonar - Bergstaðastræti 74 Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sigurjóns Ólafssonar. Landsbókasafn Islands: Sýning á handritum, bókum og munum úr Prestaskólanum. Til 29. nóv. Dada, Art Gallei-y, Kirkjutorgi 4 Sölusýning á nútímalist. Einnig antikmunir frá Vestur-Afríku. Til 24. des. Gallerí Jörð Reykjavíkurvegi 66 Arni Elvar sýnir til 22. nóv. Engiaborg, Flókagötu 17 Sýning á teikningum og máiverkum eftir Jón Engilberts til 9. nóv. Norræna húsið - við Hringbraut í ljósaskiptum til 23. nóv. Skartgripasýning til 31. des. Tryggvi Ólafsson málverk til 30. nóv. Hafnarborg Rebekka Rán Samper sýnir til 24. nóv. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v/Suðurgötu Handritasýning til 19. des. Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b Birgir Andrésson, Ralf Samens, BHK Gutmann, SAM & BEN, Ragna Hermannsdóttir og Hannes Lárusson. Sigríður Björnsdóttir er gestur í Setustofu. Til 23. nóv. Gallerí List Florence Helga Guerin sýnir til 17. nóv. Gallerí Hornið Sigurveig Knútsdóttir sýnir til 12. nóvember. Gallerikeðjan Sýnirými Sýnibox: Birgir Andrésson. Gallerí Barmur: Jóhann L. Torfason. Gallerí Hlust: Arnfinnur Róbert Einarsson. Gallerí 20 m2: Jón Bergmann Kjartansson sýnir til 23. nóv. Ingólfsstræti 8 - Ingdlfsstræti 8 Daníel Þ. Magnússon sýnir tii 16. nóvember. Listasafn Kdpavogs - Gerðarsafn Guðný Magnúsdóttir og sýning á nýjum aðföngum til 21. des. Sjómiiyasafn íslands við Vesturgötu í Hf. Almenn sýning og sýning á olíumyndum Bjarna Jónssonar. Listaskálinn í Hveragerði Haustsýning til 23. nóvember. TONLIST Laugardagur 8. nóvember Hallgrímskirkja: Karlakórinn Fóstbræður halda tónl. kl. 17. Dómkirkjan: Dr. Orthulf Prunner heldur orgeltónl. kl. 17. Langholtskirkja: Kór Islensku óperunnar heldur tónl. kl. 15. Sunnudagur 9. nóvember Bústaðakirkja: Einar Jóhannesson, Signin Eðvaldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir halda tónl. kl. 20.30. Gerðuberg: Sigríður Gröndal, Daníel Þorsteinsson, Valgerður Andrésdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir halda tónl. kl. 17. Dómkirkjan: Marta Guðnín Halldórsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Sigurður Halldórsson og Marteinn H. Friðriksson halda barokktónl. kl. 17. Mánudagur 10. október Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Ljóðasöngvar Jóns Þórarinssonar. Listasafn Kópavogs: Þóra Einarsdóttir og Bjöm Jónsson halda tónl. kl. 20.30. Miðvikudagur 12. nóvember Listasafn íslands: Kolbeinn Bjarnason heldur tónl. kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Þrjár systur, sun. 9. nóv. Grandavegur 7, fim. 13. nóv. Listaverkið, lau. 8., fim. 13. nóv. Krabbasvalir, fös. 14. nóv. Fiðlarinn á þakinu, lau 8., fös. 14. nóv. Borgarleikhúsið Galdrakariinn í Oz, lau. 8., sun. 9. nóv. Hár og hitt, lau. 8., fim. 13. nóv. Astarsaga, lau. 8. nóv. Njála, sun. 9., fim. 13. nóv. Islenski dansflokkurinn: Trúlofun f St. Dómíngó, sun. 9., fös. 14. nóv. Hið Ijúfa líf, lau. 8. nóv. Loftkastalinn Listavei’kið, lau. 8., fim 13. nóv. Veðmálið, mið 19. nóv. Á sama tíma að ári, lau. 8., mið. 12^ nóv. íslenska óperan Cosi Fan Tutte, lau. 8., fös. 14. nóv. Hafnarfjarðarlcikhúsið Draumsólir vekja mig, sun 9. nóv. Skemmtihúsið Ástarsaga, lau. 8., sun. 9. nóv. Kaffileikhúsið Revían í den, lau. 8., fös. 14. nóv. Leikfólag Akureyrar Hart í bak, lau. 8., sun. 9. nóv. Möguleikhúsið Snillingar í Snotraskógi, sun 9. nóv. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsendir: 5691181. Netfang: menningþmbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. NÓVEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.