Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1997, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1997, Page 15
EINI fulltrúi íslands var söngkonan Björk en mynd af henni var hluti af sýn arkitekta í hönnun miðborgar Shenzhen í Kína. sem tveir endaveggirnir hafa verið klæddir brúnum pappír. Við fyrstu sýn virðist sem hér sé um naumhyggjulegt verk að ræða, þar sem form salarins og klæðning veggjanna sé það sem unnið er með, en þá koma tennisboltar skyndilega fljúgandi yfír endaveggina og gefa rýminu undarlegt hlutverk. Tíu boltavélar sjá um að varpa boltunum í óreglulegri hrynj- andi. „Verkið vona ég að veki forvitni áhorf- andans, ýti við honum,“ segir listamaðurinn um verk sitt. Nær öruggt er að honum takist ætlunarverk sitt enda máttu gestir stundum hafa sig alla við að forðast að fá boltana í höf- uðið. Parísarbúann Niele Toroni má þó á viss- an hátt kalla naumhyggjulistamann en hann vinnur með pensilför, gerð með pensli númer 50 beint á vegginn. Hann tengir allar sýning- arnar saman þar sem verk hans eru máluð í kringum ljóskastara á göngunum á milli sýn- ingarsalanna. Eitt verkanna í þessum hluta sýningarinnar sker sig eilítið úr en það er verk listamannsins Wolfgangs Laibs, „Plöntu- frjóduft úr fíflum“, viðkvæmt og fallegt verk, gult að lit og gert beint á gólfið, 60 x 80 cm að flatarmáli. Listamaðurinn hefur unnið með efnið um langt skeið en hann safnar duftinu saman sjálfur á stórum fíflaökrum. Verkið á kannski ekkert skylt við þann hraða sem ein- kenndi önnur verk á sýningunni heldur hægir á hugsuninni og manni verður hugsað til þess tíma sem tók að safna duftinu saman. Verk Nieles Toronis fylgdu manni á leið upp á næstu hæð auk þess sem skúringakon- urnar í tvíæringseinkennisbúningum sínum fluttu hæglátan gjörning sinn með sápu og vatni. Samferða mér upp ganginn varð kollegi minn, Cho II Joon, frá dagblaði borgarinnar, Kwangju Daily News, en hann er listunnandi og kvaðst í stuttu spjalli við blaðamann vera hrifínn af sýningunni. „Sýningin hefur helst verið gagnrýnd fyrir að sýna ekki nógu mikið af hefðbundinni kóreskri list,“ sagði Joon, „og mönnum finnst kóresku listamennirnir vera undir of miklum áhrifum frá vestrænni list,“ bætti hann við en sagðist sjálfur vera ánægð- ur með framkvæmdina enda hafði hann heim- sótt sýninguna oftar en einu sinni. Ekki við hæfi barna Á næstu hæð tók „Becoming/ Earth" við manni, stýrt af sýningarstjóranum Bernard Marcade. í formála segir að jörðin sé brunnur alls þess sem á eftir að koma, hvatinn að sköpun og breytingum. Þessari sýningu er ætlað að vekja viðbrögð hjá áhorfandanum og sýna margbreytileika hins nútímalega lífs. Til að undirstrika þessi orð þá tekur það á móti manni allsnakið, listamannatvíeykið Gilbert og George, á geysistóru veggverki þar sem orðin „spunk", „piss“, „tears“ og „blood" blasa við manni ásamt smásjármyndum af sömu lík- amsvessum. Gegnt því verki má sjá verk með lifandi snákum eftir Huang Yong-Ping og í sama sal verk Pauls McCharthys, Spaghetti Man og Bear and Rabbit, verk sem vöktu at- hygli ungu kynslóðarinnar, enda við fyrstu sýn stækkaðar útgáfur af leikföngum, en þeg- ar betur er að gáð eru verkin kannski ekki við hæfí ungra barna. í horninu er myndband listamannsins, „Painter“, frá árinu 1995, þar sem umfjöllunarefnið er samband listamanns, listhúseigenda og kaupenda og varan sem listamaðurinn hefur að bjóða er eigin saur. Verkið er gróft en fyndið og fáránlegt í leið- inni. í þessum hluta sýningarinnar var einnig boðið upp á verk nokkurra listamanna frá As- íu sem ekki eru mjög minnisstæð auk verka VERK Lim Young-sun, „Land Flowing Milk and Honey“, var áhrifamikið og fallegt þar sem mannshöfuð úr gúmmí hreyfðust inni ( glerbúrum og þrýstust út í glerið. EINHVER þessara barna gætu allt eins verið íslendingar. eftir Louise Bourgeois, Wim Delwoye, Peter Fischli og David Weiss, allt gömul verk auk ljósmyndaverka Cindy Sherman og nýlegs myndbandsverks Rosemarie Trockel, „Beauty“, myndir af fyrirsætum, varpað á vegg. I þriðja hluta sýningarinnar, Hybrid/Wood, sem stjórnað er af Richard Kolashek, aðal- ■ stjórnanda nútímalistasafnsins í Los Angeles, voru asískir listamenn í miklum meirihluta. Áherslan var aðallega á samvinnuverk auk þess sem pólitískur undirtónn var mestur hér af öllum sýningunum. Samvinnuverk voru til dæmis verk ArtCamp hópsins, listhreyfingar- innar Absolutno og verk Navins Rawqanchæikuo frá Tælandi, sem vann sitt verk meðal annars í samvinnu við böm frá Kwangju, Chiang Mai og Atlanta. Verkið er pappahús, skreytt með barnateikningum og textum og minnir á litríkan leikskóla. Barinn i Melrose Place Af þeim listhópum sem sýna í þessum hluta sýningarinnar vakti listhópurinn The GALA Committee mikla athygli, ekki einungis vegna þess að hann bauð reglulega upp á ókeypis bjór á Skotbarnum, endurgerð Shooters Bar í bandarísku sjónvai-psþáttunum Melrose Place, heldur vegna þess að aðalstarfsemi og áhugamál hópsins er að búa til og hanna muni og listaverk sem notuð eru sem leikmunir í þáttunum. I hópnum eru tugir meðlima, vís- indamenn, gagnrýnendur, listamenn og síðast en ekki síst handritshöfundar og framleiðend- ur þáttanna Melrose Place. í hópnum voru upphaflega nemendur og starfslið háskólans í Georgíu, Athens, og Califomia Institute of the Arts og nafn sitt dregur hópurinn annars vegar af GA eða Georgía og hins vegar LA eða Los Angeles. „In the Name of the Place 1995-1997“, * sem er titill innsetningarinnar, er alls sýnd í þremur herbergjum. Endurgerðar hafa verið sviðsmyndir úr þáttunum, sýndir .eru þættir á sjónvarpsskjám og leikmunirnir eru sýndir auk fyrrgreindra listaverka sem skreytt hafa veggi hjá persónum þáttanna. Hópurinn segist í sýningarskrá, telja að með því að vinna í bakgrunni sjónvarpsþátt- anna þá geti það haft áhrif á áhorfendur og komið inn skilaboðum og fróðleik, rétt eins og draumur flestra listamanna er um að hafa eitthvað að segja sem stuðlað gæti að betri heimi. Fyrrnefndur Skotbar var til dæmis endurhannaður með það að markmiði að gefa fólki hugmynd um notkun, misnotkun, neyslu og sögu alkóhóls í Ameríku frá árinu 1700 allt til dagsins í dag. Af þeim sem sýndu verk sín má nefna lista- konuna Georginu Starr með verkið „Visit to a Small Planet" og verk kínverska listamanns- ins Chens Zhens, „Daily Incantations", verk frá 1996, „Hinar daglegu særingarþulur". Verkið er gert úr fjölda kínverskra trékló- setta, fundnum nútímahlutum, sem var hrúg- að saman í eins konar búr í miðri innsetning- unni, og hljóðupptökum af því þegar verið er að hreinsa klósettin. Fyrir þetta verk fékk Zhen sérstök verðlaun sýningarinnar. Þá tók næsti salur við, Power/Metal. Þar var meiri reiði á ferðinni, firring, ógn og of- beldi. Nokkur áhugaverð verk mátti sjá eins og til dæmis „Patent Application" þar sem listamaðurinn Luis Camnetzer frá Ungverja- landi fjallar um uppfinningu Þjóðverjans Sanders, líkbrennsluofn sem síðar var notað- ur í Auschwitz, útrýmingarbúðum nasista. Camnetzer veltir fyrir sér hvernig menn geta verið stoltir og ánægðir með eitthvert hug- verk sem síðar er notað í illum tilgangi en Sanders var, vel að merkja, mjög stoltur af uppfinningu sinni eins og kemur fram í texta Camnetzers. Önnur dæmi um verk sem gátu vakið skelfingu eða ógn var verk Bruce Naumans, Get Out of My Mind, Get Out of This Room, en verkið er hljóðverk, tveir há- talarar í litlu herbergi spila hljóðritun af rödd listamannsins hrópa fyrrgreind orð í sífellu. Sem dæmi um ofbeldisfull verk má minnast á verk Nigels Rolfes þar sem hann sýnir mynd-. bandsverkið „Hand on Face“. Verkið er myndlíking fyrir ástandið í Suður-Afríku og er byggt á gjörningi sem Rolfe flutti á Wembley leikvanginum á tónleikum sem haldnir voru til stuðnings lausn Nelsons Mandela úr fangelsi árið 1988, en eins og flestir vita er hann nú forseti Suður-Afríku. Að slátra, salta og sjóða Af öðrum verkum, af nokkuð öðru tagi, má nefna verk Joeps Van Lieshout, þar sem sýndur er í smáatriðum ferill pylsu, allt frá því að svíninu er slátrað, og upplýsingum um hvemig á að slátra svíni í heimaslátrun, að vinnslu kjötsins og geymslu. Hann hefur í * verkum sínum á síðustu árum verið mikið að fjalla um hvernig er hægt að lifa af úti í nátt- úrunni, og til dæmis í verldnu „Survival Trailer", bíl sem hann gerði árið 1995-96, eru tæki til að veiða og inni í bílnum eru efni og LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. NÓVEMBER 1997 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.