Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1998, Side 2
SONG-LEIKIR
í IÐNÓ
SONG-LEIKIR nefnast tónleikar sem Ing-
veldur Ýr Jónsdóttir mezzósópransöngkona
og píanóleikarinn Gerrit Schuil gangast fyrir
í Iðnó annað kvöld, sunnudagskvöldið 23.
júní, kl. 20.30. Eru þetta þeir fyrstu í röð
léttra tónleika ýmissra listamanna sem
haldnir verða í Iðnó í sumar. Dagskráin er
hressileg með lögum úr sívinsælum söng-
leikjum, kvikmyndum og leikritum.
Meðal laga sem hljóma munu í Iðnó að
kvöldi sunnudags má nefna lög úr söngleikj-
unum Showboat, Söngvaseiði, My Fair Lady,
Chorus Line og Galdrakarlinn í Oz ásamt
syrpu af lögum eftir George Gershwin og
Kurt Weill. I tilefni þess að dagskráin verður
flutt í Iðnó hafa þau Ingveldur Ýr og Gerrit
einnig sett saman lög úr leikritum sem nutu
mikilla vinsælda á sviði Iðnó í eina tíð, s.s. lög
úr Ofvitanum sem Atli Heimir Sveinsson hef-
ur nú endurútsett fyrir söng og píanó og lög
úr fleiri leikritum.
„Það er sérstök stemmning og góður andi
sem fylgir því að standa á sviði Iðnós,“ segir
Ingveldur Ýr. „Ég kannast vel við mig í hús-
EINAR MÁR
KOMNIR
TVÆR fyrstu bækurnar í nýjum bókaklúbbi
útgáfunnar Bjarts, Neon, eru komnar út en
þær eru greinasafnið Launsynir orðanna eftir
Einar Má Guðmundsson og skáldsagan
Hending eftir bandaríska rithöfundinn Paul
Auster sem er þekktastur fyrir hinn svokall-
aða New York-þríleik sem Bjartur hefur
einnig gefið út. Um frumútgáfu á bók Au-
sters er að ræða en Bjartur hefur gert samn-
inga við hann og fleiri erlenda höfunda, svo
sem Kazuo Ishiguro og Ian McEwan, um að
frumbirta verk þeirra hér á landi.
í bókinni Launsynir orðanna hugleiðir
Einar Már Guðmundsson skáldskapinn í líf-
inu og lífið í skáldskapnum. í káputexta seg-
ir að þessar hugleiðingar hafi orðið til á liðn-
um árum í glímunni við orðin. „Þetta eru
engar niðurstöður, heldur vangaveltur, sem
stöðugt knýja dyra og dæma menn til að
hugsa málin á ný ..."
mu þvi pabbi vann þar og seg]a ma að eg
alin upp í Iðnó.“ Hún segir að þau Gerrit
muni leitast við að endurvekja gömlu Iðnó-
stemmninguna, „þennan gamla kabarett og
ballhúsaanda sem áður var og ekki ætti að
vera erfitt að minnast nú þegar húsið allt hef-
ur verið gert upp.“ Ingveldur Ýr hefur ætíð
verið fjölbreytileg í verkefnavali en segir að
þetta sé í fyrsta sinn sem hún syngi heila
dagskrá með söngleikja- og kabarettverkum
þó að hún hafi margoft áður flutt verk eftir
Kurt Weill. „í upphafi ferilsins í Austurríki
tók ég stundum að mér einstaka söngleikja-
og kabarettverkefni og ég hef stundum
blandað léttari lögum saman við klassíska
efnisskrá á einsöngstónleikum," segir Ing-
veldur Ýr. Hún stundaði söng- og leiklistar-
nám í Tónlistarskóla Vínarborgar og í Man-
hattan School of Music í New York þar sem
hún vakti fljótt athygli fyrir óvenjulega
frjálsa sviðsframkomu og leikhæfileika. Ing-
veldur Ýr hefur bæði sungið á óperusviði og í
tónleikahúsum víða um heim, með hljóm-
sveitarstjórum eins og Seiji Ozawa og Sir
OG AUSTER
í NEON
Einar Már Paul
Guðmundsson Auster
í skáldsögunni Hendingu fjallar Paul Au-
ster um um tvo menn á þeysireið um Banda-
ríkin. Báðir eru þeir féþurfi og reyna að
bjarga fjárhagnum með því að spila póker
við tvo sérvitra milljarðamæringa en leið-
angurinn verður á endanum háskaför þar
sem líf þeirra er í veði.
LISTAHÁTÍÐ Á SEYÐISFIRÐI
Sýning til heið-
urs Dieter Roth
Morgunblaðíð. Seyðisfirði.
LISTAHÁTÍÐ Seyðfirðinga hefst í dag á opn-
un myndlistarsýningar í menningarhúsi Seyð-
fírðinga, Skaftfelli. Sú breyting hefur orðið á
sýningarhaldi að sýningu Björns Roth hefur
verið frestað og í staðinn er haldin sýning sem
ber yfirskriftina „Sýning fyrir allt“ til heiðurs
og í minningu Dieters Roth, sem lést 5. júm'
síðastliðinn. Öllum er boðið að senda eitt verk
á þessa sýningu og eru nú þegar komin yfir 50
verk. Eggert Einarsson listamaður er kominn
á staðinn til þess að hafa umsjón með uppsetn-
ingu sýningarinnar. Vitað er um mörg verk
sem eru á leiðinni og verður haldið áfram að
hengja upp myndir í allt sumar eftir því sem
þær berast. í Skaftfelli verða tvær sýningar
að auki; Magnús Reynir Jónsson verður með
sýningu á hæðinni, en Pétur Kristjánsson á
efri hæð. Á Vesturvegi 8, upplýsingamiðstöð
ferðamála, verða sýnd verk eftir Stefán V.J.
Stórval frá Möðrudal og í Seyðisfjarðarskóla
sýna þau Hallgrímur Helgason, Húbert Nói,
Osk Vilhjálmsdóttir, Garðar Eymundsspn, Sig-
urður K. Ámason og Inga Jónsdóttir. Á Hótel
Snæfelli verður sýning Maríu Gaskell.
Menningardagur bama, „Karlinn í tunglinu-
hátíðin ‘98“, verður síðan haldinn 21. júní. Þar
verða sýnd myndverk (þrívíð) leikskólabama á
Austurlandi. Verkin eru í þremur flokkum og
verða veitt verðlaun fyrir skemmtilegustu verk-
in að mati dómnefndar. Ofurtrúðurinn Úlfar
(Bergur Þór Ingólfsson) skemmtir, skólahljóm-
sveit spilar og ýmislegt fleira verður á dagskrá.
Margt fleira verður á hátíðinni þannig að bæjar-
búar og gestir þeirra haíi nóg við að vera í allt
sumar, en hátíðinni lýkur 161 ágúst.
SUZUKINEMARNtR íslensku í París.
íslenskir Suzuki-
nemar í París
UNGIR íslenskir fiðlunemar, sem lært hafa á
hljóðfæri sín með Suzukiaðferðinni, léku á
fiölmennum tónleikum í París, sem haldnir
voru f sumarbyrjun til að heiðra 100 ára
minningu Dr. Shinichi Suzuki. Alls komu um
eitt þúsund nemar frá 17 löndum fram á tón-
leikunum, þar af 37 frá íslandi. Flutt voru
verk fyrir fiðlu, gítar, selló og pianó eftir
Mozart, Vivaldi, Bach og fleiri auk hljóm-
sveitaratriða og kóratriða. Tónleikarnir fóru
fram í Palais de Congrés og báru yfirskrift;
ina Að iifa er að elska (Vivre c’est Aimer). ís-
lensku nemarnir léku í 500 manna hljómsveit
og meðal annarra atriða var pianóleikur
nokkurra barna sem léku átthent á píanó og
þátttaka yngsta nemandans á tónleikunum,
sem var þriggja ára. íslensku nemarnir hafa
verið í námi í Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar og Tónlistarskóla fslenska Suzuki-
sambandsins f Reykjavfk. Helstu einkenni
Suzukiaðferðarinnar eru þau að nemendur
heQa nám sitt mjög ungir og að þeim er búið
hvetjandi umhverfi frá upphafi. Kennslan
byggist á móðurmálsaðferðinni, þ.e. að rétt
eins og þau geti lært móðurmál sitt án sýni-
legrar fyrirhafnar geti þau lært að leika á
hljóðfæri fyrst og fremst með því að hlusta
og fá tilfinningu fyrir tónlistinni.
iiiljliilfi’TTTtTrtT HDTD
Morgunblaðið/Þorkell
INGVELDUR Ýr Jónsdóttir og Gerrit Schuil halda opnunartónleika í röð léttra sumar-
tónleika f Iðnó á sunnudagskvöld.
Neville Marriner. í vetur sem leið söng hún
hlutverk Dorabellu í uppfærslu Islensku óp-
erunnar á Cosi fan Tutte.
Gerrit Schuil er fæddur í Hollandi og lauk
námi frá Tónlistarháskólanum í Rotterdam.
Hann hlaut styrk frá hollenska ríkinu til
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Gallerí Fold, Kringlunni
Gunnella, Guðrún Elín Ólafsdóttir. Til 22.
júní.
Gallerf Gangur, Rekagranda 8
Robert Devriendt. Út júní.
Gallerf Hornið, Hafnarstræti
Ólöf Sigríður Davíðsdóttir og Páll Heimir
Pálsson sýna til 8. júlí.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70
María Valsdóttir sýnir til 28. júní.
Gallerí 20 fm, Vesturgötu 10
Birgir Andrésson sýnir.
Handverk & hönnun, Amtmannsstfg 1
Sigrún Lára Shanko sýnir silkislæður. Til 27.
júni.
Álafosskvos, Álafoss-verksmiðjusölunni
Samsýning; Ásdís Sigurþórsdóttir, Björg Ör-
var, Björn Roth, Hildur Margrétardóttir,
Inga Elín, Magnús Kjartansson, Óli Már,
Ólöf Oddgeirsdóttir, Tolli og Þóra Sigurþórs-
dóttir.
Gallerí Smfðar & skart, Skólav.stíg 16a
Halla Ásgeirsdóttir. Til 25. júní.
Gallerí Stöðlakot
Guðmundur W. Vilhelmsson. Til 28. júní.
Kvennasögusafn, Þjóðarbókhlöðu
Ragnheiður Jónsdóttir sýnir. Til. 1. júlí.
Gallerí Sævars Karls
Gjörningaklúbburinn: Dóra Isleifsdóttir,
Eyrún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og
Sigrún Hrólfsdóttir sýna til 8. júlí.
Hallgrfmskirkja
Málverk eftir Eirík Smith.
Háteigskirkja, safnaheimili á tengigangi
Sýning á textflmyndverkum eftir Heidi
Kristiansen. Út júní.
Ingólfsstræti 8, Ingólfsstræti 8
Grænmetisleikur: Inga Svala Þórsdóttir og
Wu Shan Zhuan. Til 21. júní.
Kjarvalsstaðir
Stiklað í straumnum. Úrval verka úr eigu
Listasafns Reykjavíkur. Til 30. ágúst.
Landsbókasafn Islands, Háskólabókasafn
TVú og tónlist í íslenskum handritum fyrri
alda. Til 31. ágúst.
Listasafn ASI
Ásmundarsalur og Arinstofa: Mannamyndir
Ágústs Petersen. Gryfja: Portrett bama. Til
5. júlí.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið laug. og sun. kl. 13.30-16. Höggmynda-
garðurinn _er opinn alla daga.
Listasafn Islands, Frfkirkjuvegi 7
Kaffistofa: Grafíkmyndir Jóns Engilberts. Út
júlí. Sýning á höggmyndum Max Ernst. Til
28. júní.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
Norskar konur sýna textíl og skart. Til 13.
júh.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugar-
nestanga
Úr málmi. Örn Þorsteinsson myndhöggvari.
Til l.júh.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu
Konur, úrval úr Errósafni Reykjavíkurborg-
ar. Til 23. ágúst.
framhaldsnáms hjá mörgum þekktum kenn-
urum eins og Gerald Moore og Vlado Per-
lemuter. Gerrit hefur haldið tónleika í Evrópu
og Bandaríkjunum og komið fram á alþjóðleg-
um tónlistarhátíðum auk þess að hafa áunnið
sér virðingarsess sem hljómsveitarstjóri.
Mokkakaffi, Skólavörðustfg
Jón Gunnar Ámason. Sumarsýning.
Norræna húsið
Fígúratíf list frá Norðurl. og Þýskalandi.
Nýlistsafnið, Vatnsstíg 3b
Einar Falur Ingólfsson, Erla Þórarinsdóttir
og Harpa Árnadóttir, auk sýningar á bók-
verkum Dieters Roth.
Gerðuberg, Gerðubergi
Ljósmyndasýningar í samstarfi við Listahá-
tíð. Síðasta sýningarhelgi.
Safn Ásgrfms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjóminjasafn íslands, Hafnarfirði
Sumarsýning á Ijósmyndum Helga Arason-
ar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýningin Þorlákstíðir og önnur
Skálholtshandrit. Til 31. ágúst.
SPRON Mjódd
Harpa Björnsdóttir sýnir til 24. okt.
Gallerf Sölva Helgasonar, Lónkoti Skaga-
firði
Ragnar Lár sýnir til 19. júlí.
Selið Skútustöðum
Sólveig Illugadóttir sýnir.
Kirkjuhvoll, Akranesi
Bjarni Þór sýnir til 5. júh.
Ketilshúsið, Grófargili Akureyri
Guðný Þórunn Kristmannsdóttir sýnir til 5.
júh.
Listasafn Árnesinga, Selfossi
Inga Margrét Róbertsdóttir sýnir til 28. júm'.
TONLIST
Laugardagur
Rökkurkórinn verður með síðdegistónleika í
Egilsbúð í Neskaupstað og um kvöldið með
tónleika í Egilsstaðakirkju. Kvartett
Eðvarðs Lárussonar á Jómfrúnni kl. 16-18.
Sunnudagur
Gjallarhorn, Finnlands-sænskur þjóðlaga-
hópur verður með tónleika í Norræna húsinu
kl. 20.
Miðvikudagur
Hauknes Blandakor og Söngsveitin Drangey
í Kópavogskirkju kl. 20.30.
Fimmtudagur
Hauknes Blandakor og Söngsveitin Drangey
kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjdðleikhúsið
Listaverkið, sýnt í Loftkastalanum lau. 20.
júní.
Borgarleikhúsið
Forsalan er hafin á Grease. Frums. 3. júlí.
Loftkastalinn
Listaverkið, lau. 20. júní.
Islenska óperan
Carmen negra. Rokk-, salza-, poppsöngleik-
ur, lau. 20. júní, fim., fós., lau.
Kaffileikhúsið
Annað fólk lau. 20. júní.
Iðnó
Leikhússport mán. 22. júní.
Söngleikir, leikrit og kabarettar. Ingveldur
Ýr og Gerrit Schuil þri. 23. júní.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega eða á netfangi fyrir kl.
16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið,
Menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík.
Myndsendir: 5691222. Netfang: menn-
ing@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 20.JÚNÍ1998