Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1998, Blaðsíða 9
MICHAEL Young, tréstólar my 096, framl. af
Sawaya & Moroni, Mílanó.
PHILIPPE Starck, Dr No, söluhæsti stóll í
Frakklandi 1997. (Mynd: Ph. Starck)
ROSS Lovegrove var valinn hönnuður ársins 1997. Hann er hér með stóla sína Bluebell og
Spider. (Mynd: Salon du meuble de Paris 98)
VIA-bás, „Verndandi hægindi", hönnuðir S. Larger, M. Guédin, F. Ruyant.
(Mynd: D. Feintrenie, VIA)
efnis- og litanotkun. Það ríkir því eins konar tog-
steita milli gamals og nýs, léttleika og öryggis,
eftirsjár og framtiðareftirvæntingar sem er ef-
laust dæmigerð fyrir andrúmsloft aldamóta.
Sum þessara húsgagna minna á leikmyndir kvik-
mynda og sjónvarpsþátta fyrr á tímum sem áttu
að gerast í ókominni framtáð, eða um árið 2000.
Við erum því komin í eins konar hring, leikum
okkur með þessi form en erum um leið meðvituð
um að framtáðin er yfirleitt önnur en það sem
haldið er.
Michael Young, fró London til
Reykiavikur með viðkomu i Tókýó
Á Húsgagnasýningunni í París var rúmlega
þrítugur Englendingur nefndur „forsprakki
nýju, bresku hönnunarbylgjunnar". í sunnu-
dagsblaði The Independent í upphafi árs birtist
mynd af honum á forsíðu og hann sagður einn
af hæfileikaríkustu hönnuðum ungu kynslóðar-
innar sem ætti eftir að láta mikið til sín taka á
árinu. Michael Young útskrifaðist í húsgagna-
og iðnhönnun frá Kingston University árið
1992. Með náminu starfaði hann hjá Tom Dixon
og hóf jafnframt að hanna sín eigin húsgögn
sem vöktu strax mikla athygli. Leið hans hefur
legið til Parísar, Japan, Þýskalands (þar sem
hann fékk „Talente“-verðlaunin 1995), Italíu og
meira að segja til íslands. Hann hélt fyrirlestur
í Myndlista- og handíðaskóla Islands í fyrra og
ráðgerir að setjast hér að innan skamms, en
hann er verðandi eiginmaður Katrínar Péturs-
dóttur iðnhönnuðar. Auk þess að hafa vakið
óskipta athygli bæði á alþjóðlegum sýningum
og einkasýningum er verk hans að finna í eigu
stofnana eins og Pompidou-safnsins í París og
Design Museum í London. Greinarhöfundur
átti þess kost að hitta þennan hægláta og alúð-
lega mann þegar hann átti leið um París fyrir
skömmu.
Eg byrja á að spyrja hann út í innsetninguna
Contents of Aliens og hann segir að sér finnist
mjög áhugavert að hönnuðir og listamenn sem
nota mismunandi miðla leggi saman krafta sína.
„Ég hef starfað talsvert með Japana að nafni
Kenjiro, en hann semur tölvutónlist, grafískum
hönnuðum sem kalla sig Fly, Jeremy Lord sem
er snillingur í Ijósa- og rafbúnaði, og vinum
mínum sem nefna sig Inflate og hafa slegið í
gegn með hönnun á uppblásnum húsbúnaði.
Súlan er upphaflega hugsuð sem nútímaleg
útfærsla á tré og er í raun víxlverkandi skúlp-
túr þar sem utanaðkomandi þættir eins og hljóð
og mannleg hreyfing hafa bein áhrif á verkið.
Japanska jámbrautafélagið styrkti verkefnið
sem var fyrst sýnt í Fukuoka í fyrrasumar, en
hefur síðan verið sett upp í London, París, Köln
og fer næst til Mílanó".
- Ferill þinn hefur frá upphafi verið mjög al-
þjóðlegur.
„Já, þetta byrjaði með sýningu sem ég hélt í
París 1994, þar sem ég sýndi smartísin mín,
húsgögn ofin úr stálvír ofl. Japanskur hús-
gagnaframleiðandi sem sá sýninguna bauð mer
að vinna með fyrirtæki sínu E&Y í Tókýó. Ég
bjó um tíma í Tókýó og hannaði þar m.a. hvítu
seríuna fyrir Japansmarkað. Síðan stofnaði ég
fyrirtæki mitt my 022 og sá um framleiðslu á
húsgögnum mínum um tíma fyrir Evrópumark-
að. Síðan þá hefur framleiðslurétturinn verið
keyptur af fyrirtækjum eins og Cappellini á
Ítalíu, en þeir ætla nú í apríl að hefja fram-
leiðslu og dreifingu á mörgum af mínum eldri
húsgögnum. Ég er sem sagt hættur að sjá um
framleiðsluna sjálfur og er kominn í þá óska-
stöðu að geta valið úr fyrirtækjum sem vilja
ólm framleiða hönnun mína. Eins er talsvert
um sérpantanir“.
- Þú nefnir fyrirtækið þitt my 022. Eins bera
húsgögn þín flest upphafsstafi þína og tölu-
staf . . .
„Það byrjaði í Japan. Það var nauðsynlegt að
einkenna hlutina mína á einhvem hátt og því lá
beinast við að hafa þetta svona. Þegar ég var að
vinna að 22. hlutnum stofnaði ég fyrirtækið
mitt og nefndi það því my 022“.
Miehael Hefur valdð athygli fýrir frum-
lega notkun á efnum og formum, ég inni
hann eftir viðhorfi hans í því sambandi.
„Ég hef enga ákveðna stefnu í þessum mál-
um, enga sérstaka „línu“. Ég hef mikið not-
að gerviefni, vegna þeirra tæknilegu mögu-
leika sem þau bjóða upp á, en þetta fer líka
einfaldlega eftir því með hvaða fyrirtækjum
maður vinnur hverju sinni. Ég hef tilhneig-
ingu til að ganga fyrst út frá forminu, það er
oft kveikjan. Hvíta serían er til dæmis unnin
út frá blaða-kaffiborðinu (my 07), það form
þróaðist síðan í sófa, borð á hjólum, lampa
osfrv. Eins held ég upp á smartísin, því form
þeirra er mjúkt og opið og það má nota þau
á ýmsa vegu. Fólki finnst stundum formin
mín vera „seventies" eða poppuð, en ég held
að það sé ekki það sem skiptir máh. Form
—
HÖNNUÐURINN Michael Young.
MICHAEL Young, Fly sófi (my 27),
gerður í 3 lengdum.
MICHAEL Young, My slit sofa, framl. af
Domeau & Pér'es, París.
MICHAEL Young, Magazine kaffiborð (my 07).
MICHAEL Young, barstóll,
framl. af Cappellini, Arosio.
JEAN-MARIE Masseaud, Right stuff
sófi, framl. af Domeau og Pér'es.
(Mynd: Olivier Cadouin)
eru vissulega spm-ning um kynslóðir og háð
minningum, en ég kýs fremur að líta á rmn
form sem mannleg og vísandi fram á við. Ég
hef aðallega fengist við húsgagnahönnun fram
til þessa. Hún er aðgengilegri en iðnhönnun að
því leyti að þú getur sjálfur smíðað þínar frum-
gerðir og náð þannig til framleiðenda. Iðnhönn-
unarferlið er flóknara, sérstaklega þegar fram-
leiða á úr plastefnum, en með auknum sam-
skiptum við iðnaðinn er ég að fara meira og
meira út í hönnun hluta. Nú síðast teiknaði ég
m.a. salt- og piparstauka fyrir Inflate þar sem
ég nota svokallaða dýfimótunaraðferð („dip-
molding“) sem er notuð til framleiðslu reið-
hjólahandfanga. Svo er ég að vinna með keram-
ik-línu og ljósasúluna á að fara að framleiða í
smækkaðri mynd, hún verður mun einfaldari að
gerð og ætluð fyrir stóran markað".
- Og nú stendur til að þú flytjir til Islands, er
það ekki mikið stökk?
(Michael hlær strákslega.) „Fólk heldur ann-
að hvort að ég sé genginn af göflunum eða
finnst þetta rosalega frumlegt. Það er vissulega
heilmikið stökk frá London til Reykjavíkur, en
satt best að segja er það mjög kærkomið að
losna úr streitunni í London og skipta um um-
hverfi. Ég get í rauninni unnið hvar sem er, svo
framarlega sem ég hef síma, fax, tölvu og nokk-
uð reglulegar flugsamgöngur. Það getur líka
verið spennandi að sjá hvort möguleiki er á
samstarfi við íslensk fyrirtæki“.
Aðspurður út í helstu framtíðaráformin seg-
ist Michael fara næst á húsgagnasýninguna í
Mflanó í aprfl. „Ég verð með sýningu hjá Capp-
ellini, en þeir eru án efa virtasta húsgagnafram-
leiðslufyrirtæki í heiminum í dag og það er mik-
ill heiður fyrir mig að vera tekinn inn hjá þeim.
Þeir hafa verið að þróa aðferðir síðustu þrjú ár
til að framleiða smartísin mín og verða líka með
hvítu syrpuna, vasa, barstól ofl. Sawaya &
Moroni er einnig þekkt, ítalskt lúxusfyrirtæki
og hefur aðallega fengið til liðs við sig fræga
arkitekta. Ég hannaði fyrir þá borðstofuborð
og stóla en einnig silfurvasa. Með samvinnunni
við mig ætla þeir að yngja upp hjá sér og
hyggjast ná til víðari markaðshóps. Svo verð ég
með sófa, lítinn hægindastól og kaffiborð fyrir
enska fyrirtækið Englander, en þeir sérhæfa
sig í húsgögnum fyrir hótel og opinberar stofn-
anir (mörg stærstu hótelin á Islandi eru víst bú-
in húsgögnum frá þeim).
Ég kem einnig til með að kenna við hönnun-
ardeild Listaháskólans í Yín. Þar langar mig að
nálgast hönnun og hönnunarkennslu á annan
hátt en gert hefur verið síðan á 9. áratugnum,
þegar aðaláherslan virðist hafa verið sú að
hjúpa fagið leyndardómsblæ og allir voru að
kafna í kenningum og skilgreiningum póst-
módernismans. Það er mikilvægt að ungir
hönnuðir geri sér grein fyrir hvernig þeir
standi gagnvart framleiðendum og geti komið
hugmyndum sínum á framfæri.
Og svo hlakka ég auðvitað til að flytja til
Reykjavflmr. Það stendur til að ég haldi sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum, trúlega vorið 1999, og
þá myndi mig langa til að fá góða, erlenda
hönnuði í lið með mér. Ég vonast til með
uf ... slíkri kynningu að geta lagt mitt af mörkum
MICHAEL Young, til hönnunarmála á íslandi“.
vasi, framl. af Sawaya &_________________________________________
Moroni, Ml an Höfundur er listfræðingur og býr! París.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 20. JÚNÍ 1998 9