Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1998, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1998, Síða 16
ABSTRAKT eftir Nínu Tryggvadóttur frá 1961. OLÍUMÁLVERKIÐ Gul eftir Louisu Matthíasdóttur frá 1990. ÞÆR LÖGÐU GRUNNINN ÞEIRRA mál ei talar tunga“ - íslandsdætur í myndlist, er yf- irskrift sumarsýningar Nor- ræna hússins. Sýningin er unn- in í samvinnu Norræna hússins og Kvennasögusafns íslands. Við opnunina flytur frú Vigdís Finnbogadóttir ávarp og Ás- hildur Haraldsdóttir flautuleikari leikur verk eftir Mist Þorkelsdóttur og Báru Grímsdóttur en fjölbreytt dagskrá verður í Norræna húsinu næstu tvo mánuði sem til- einkuð er konum í listum. Má þar nefna tón- list, leiklist, kvikmyndir, ljóðaupplestur og skrif eftir konur í flutningi norrænna lista- kvenna. í bókinni Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna sem kemur út nú í júlí er fjallað um konur sem hafa rutt brautina á margvísleg- um sviðum þjóðlífsins; í námi, starfí, listum og íþróttum. Þá er fjallað um samtök, félög, blöð og tímarit sem konur stofnuðu auk þess sem þar er að fínna samantekt á lögum og reglugerðum allt frá Grágás til okkar tíma, er varða rétt og stöðu kvenna. Bókin er heimildarrit í kvennasögu. Ritstjórar eru Erla Hulda Halldórsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir, sem segir að í bókinni sé dregið fram í dagsljósið ýmislegt sem lengi hefur legið gleymt og grafið. „Það var í lagi íyrir þessar konur að vinna að myndlist svo lengi sem þær tóku hana ekki of alvarlega," segir Hrafnhildur Sehram, listfræðingur og sýningarstjóri, um þær Þóru Pétursdóttur Thoroddsen (f. 1848), Kristínu Vídalín Jacobson (f. 1864) og Krist- ínu Þorvaldsdóttur (f. 1870) sem urðu fyrstar íslenskra kvenna til að sækja sér menntun á sviði myndlistar í lok síðustu aldar. Þessir frumkvöðlar lögðu þó myndlistina fljótt á hilluna að námi loknu þegar við tók hjúskap- ur og heimilishald og Kristín Þorvaldsdóttir hætti að mála og snéri heim til að taka við búi og bömum systur sinnar sem hafði dáið í bamsfórum. Emilía M. Sigmarsdóttir hefur umsjón með útliti sýningarinnar þar sem m.a. verður sett upp sérstakt söguhorn með munum úr eigu elstu listakvennanna; dag- í dag, laugardaginn 4. júlí kl. 16, verður opnuð í Nor- ræna húsinu sýning á verkum íslenskra kvenna sem voru brautryðjendur í myndlist hver á sínu sviði. Sýningin er liður í viðamikilli dagskrá sem er tileinkuð konum í list- um í tilefni útkomu bókarinnar Artöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna á vegum Kvennasögusafns Islands. Morgunblaðið/Amaldur GUÐRUN Dís Jónatansdóttir og Hrafnhildur Schram við málverk Kristínar Jónsdóttur Við Þvottalaugarnar frá 1931. bækur og bréf, trönur, penslar og annað úr vörslu Þjóðminjasafnsins sem veitir innsýn í líf kvennanna. Myndverkin á sýningunni em ýmist fengin að láni úr einkaeign eða hjá listasöfnum. „Þrátt fyrir að þessar fyrstu myndlistar- menntuðu konur hafí ekki gert listina að sínu ævistarfi þá lögðu þær eigi að síður grunninn fyrir þá listamenn sem á eftir komu,“ segir Guðrún Dís. „Þóra stofnaði fyrsta teikniskólann hér á landi þar sem kennd vora undirstöðuatriði teiknunar og útsaums." Og þó að námið þar hafi einkum miðað að því að gera ungar stúlkur ákjósan- legra kvonfang þá varð einn nemandi Þóru síðar atvinnulistmálari og það var Þórarinn B. Þorláksson. Frá tómstundaiðju til atvinnu Fyrstu íslensku konumar til að leggja fyr- ir sig myndlist vora Júlíana Sveinsdóttir (f. 1889) og Kristín Jónsdóttir (f. 1888) og líkt og fyrirrennarar þeirra voru þær menntaðar í myndlist frá Kaupmannahöfn. „Kristín verður fyrst til að sameina fjölskyldulíf sitt listferlinum en Júlíana giftist aftur á móti aldrei,“ bendir Hrafnhildur á. „Það segir raunar mjög mikið að Júlíana og margar myndlistarkonur sem á eftir henni koma skuli allar hafa búið erlendis, og geri sumar enn, eins og Louisa Matthíasdóttir.“ Þannig kusu þær Nína Sæmundson (f. 1892), Nína Tryggvadóttir (f. 1913) og Gerður Helga- dóttir (f. 1928) að helga líf sitt listinni og störfuðu allar erlendis. Enn eru ónefndar þrjár af þeim 12 mynd- listarkonum sem verk eiga á sýningunni. Barbara Ámason (f. 1911) sem þótti fjölhæf listakona og vann m.a. mikið af bókaskreyt- um og myndum með vatnslitaþrykki. Vigdís Kristjánsdóttir (f. 1904) varð þekkt fyrir myndvefnað sinn en yngsta listakonan sem verk eru eftir á sýningunni er Ásgerður Búa- dóttir (f. 1920), framkvöðull nútíma listvefn- aðar hér á landi. Sýningin verður opin alla daga nema mánudaga kl. 13-18 og stendur til 16. ágúst. TÓNLEIKAR verða í fundarsal Nor- ræna hússins á morgun, sunnudag, klukkan 16 og marka þeir upphaf að Sumardagskrá Norræna hússins, sem verður helguð þemanu Konur í listum. Þar koma fram Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Unnur Vilhelmsdóttir pí- anóleikari. Áshildur leikur þrjú verk eftir Mist Þor- kelsdóttur; Rún, Við stokkinn og Kramrna- vísu, Hvítur júní eftir Bára Grímsdóttur og Flautuspil eftir Karólínu Eiríksdóttur. Ás- hildur segir frá tónskáldunum og verkum KONUR í þeirra. Eftir hlé leikur Unnur Vilhelms- dóttir á píanó þrjú verk eftir Báru Gríms- dóttur; Einsemd Eriks Johansonar, Köttur og mús og Ein í skúta. Unnur heldur fyrir- lestur um tónskáldið og tónsmíðar Karólínu Eiríksdóttur og síðan leikur Áshildur Rap- sódíu eftir tónskáldið. Á Sumardagskránni í Norræna húsinu, TÓNLIST verða auk tónleika með tónsmíðum eftir kventónskáld í flutningi tónlistarkvenna, m.a. fyrirlestur um konur og kvikmyndir og sýndar verða stuttmyndir, hreyfimyndir og tvær kvikmyndir í fullri lengd eftir Kristínu Jóhannesdóttur og Ásdísi Thoroddsen. Margi-ét Helga Jóhannsdóttir leikkona les dagbókarbrot Elku Björns- dóttur (1881-1924), en hún var verkakona í Reykjavík. Margrét Guðmundsdóttir sagn- fræðingur valdi efnið. Kórar frá Danmörku og Finnlandi halda tónleika og Kpbenhavns Kammerensemble leikur gömul og ný verk, m.a. verk eftir Mist Þorkelsdóttur, sem samið var sérstak- lega fyrir kammersveitina. Kvennakórinn Vox Feminae syngur undir stjórn Margrét- ar Pálmadóttur. Stuttur leikþáttur, Undir brúðarslörinu, verður fluttur af sænskri leikkonu, Lisa Brand, og Kerstin Backlin sem leikur á fiðlu. 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 4. JÚLÍ1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.