Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1998, Qupperneq 2
Kristján á
kórtónleikum
nyrðra í vor
KRISTJÁN Jóhannsson tenórsöngvari mun
koma fram á vortónleikum Karlakórs Akur-
eyrar-Geysis í maí á næsta ári. Staðfestir
Tryggvi Pálsson, formaður kórsins, þetta í
samtali við Morgunblaðið.
„Kristján hefnr gefið okkur
sitt orð og þar sem hann er
drengur góður má slá þvf
föstu að af þessu verði.“
Segir Tryggvi kórfélaga
á einu máli um að þetta
verði stærsti viðburðurinn
í sögu kóranna, bæði fyrir
og eftir að þeir sameinuð-
ust fyrir um áratug.
Upphaflega stóð til að
Karlakór Akureyrar-Geys-
ir syngi ásamt Kristjáni á minningartónleik-
um um fóður söngvarans, Jóhann Konráðs-
son, á Akureyri í október næstkomandi en
frá því var horfið vegna breytinga á efnis-
skrá.
Segir Tryggvi skiptin góð. „Kristján er al-
inn upp í báðum þessum kórum, áður en þeir
sameinuðust, og hans fólk allt, liggur mér við
að segja. Það er því við hæfi að hann syngi
með okkur eina stóra vortónleika. Við hlökk-
um óskaplega mikið til og munum leggja
mikinn metnað í þetta.“
Kristján
Jóhannsson
Ray Brown og
tríó á Jazzhátíð
Reykjavíkur
TUTTUGU tónleikar verða á Jazzhátíð
Reykjavíkur sem hefst miðvikudaginn 9.
september næstkomandi. Að hátíðinni
standa Jazzdeild FIH og Reykjavíkurborg
og stendur hún yfir í fimm daga. Tríó banda-
ríska kontrabassaleikarans Ray Brown er
skrautfjöður hátíðarinnar.
Ray Brown er lifandi goðsögn innan djass-
heimsins. Hann hefur leikið með helstu for-
kólfum djassins í um 50 ár, þar á meðal
Dizzy Gillespie, Charlie Parker, Oscar Pet-
erson og fleirum. Undanfarin ár hefur hann
verið með sitt eigið tríó og leikið inn á fjölda
hljómplatna fyrir Telarc útgáfuna. Tónleikar
tríós Ray Brown verða í Islensku óperunni
13. september.
Þá gefst tækifæri til að hlýða á Pétur
Östlund með kvartetti Putte Wickman á
Hótel Sögu 9. september og Kvintett Egils
B. Hreinssonar heldur útgáfutónleika á Sól-
oni íslandusi 10. september.
Dönsk mynd
fékk Amanda-
verðlaunin
DANSKA kvikmyndin Festen í leikstjóm
Thomas Vinterberg fékk Amandaverðlaunin
að þessu sinni. Verðlaunin eru veitt af Nor-
ræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum og
norska menntamálaráðumeytinu. Verðlaunin
eru Amandastytta og 50.000 norskar krónur.
Dómnefndin, en í henni situr Friðbert Páls-
son fyrir Islands hönd, kveðst hafa valið
„bestu myndina af þeim bestu“ og segir
myndina framúrskarandi.
Islenska myndin Stikkfrí í leikstjórn Ara
Kristinssonar var meðal tilnefndra kvik-
mynda.
Morgunblaöiö/Þorkell
RAGNHILDUR í hlutverki Guðríðar.
„FERÐIR GUÐRÍÐAR"
í FÆREYJUM
FRUMSÝNING á íslenskri útgáfu einleiksins
„Ferðir Guðríðar“ verður í Norðurlandahús-
inu í Færeyjum á morgun, sunnudaginn 30.
ágúst. Norræna húsið í Reykjavík sendir sýn-
inguna til Þórshafnar sem afmælisgjöf í tilefni
15 ára afmælis Norðuriandahússins í Færeyj-
um.
Höfundur og leikstjóri einieikjanna um
Guðríði Þorbjarnardóttur er Brynja Bene-
diktsdóttir. Leikkona íslensku útgáfunnar er
Ragnhildur Rúriksdóttir. Ingibjörg Þóris-
dóttir leikkona, aðstoðarmaður Brynju, verð-
ur með í Færeyjarfór, en þær Ragnhildur eru
báðar leiklistarmenntaðar í Bandaríkjunum.
Fimmtudaginn 3. september mun Ragn-
hildur svo leika fyrstu sýningu sína á íslandi í
Skemmtihúsinu, en sýningarnar verða ein-
ungis fjórar í september, þar sem enska út-
gáfan með Tristin Gribbin í hlutverki Guðríð-
ar er boðin í leikferð til Kanada um miðjan
mánuðinn. Enska útgáfan hefur verið á fjöl-
unum í Skemmtihúsinu í sumar og verður
aukasýning á henni laugardaginn 12. septem-
RAGNHILDUR Rúriksdóttir, Brynja Bene-
diktsdóttir og Tristin Gribbin, aftast
stendur Ingibjörg Þórisdóttir.
ber áður en lagt verður af stað í Kanadaför.
Sviðsmynd er miðaldakort af löndunum
sem Guðríður ferðaðist til málað af listakon-
unni Rebekku Rán Samper. Hljóðmynd og
tónlist er eftir Margréti Örnólfsdóttur og
tískuteiknarinn Filippía Elísdótir teiknaði
búning Guðríðar.
FYRSTA FÆREYSKA ORÐABÓKIN
Tórshavn. Morgunblaöið.
FÆREYINGAR hafa nú eignast fyrstu móð-
urmálsorðabókina og geta nú fengið upplýsing-
ar um tæplega 66.000 orð á eigin tungu. Jafn-
framt er tölvuforritið sem færeyski forritarinn
hefur búið til vegna orðabókarinnar svo víð-
tækt að Islendingar hafa nú fengið aðgang að
því og hyggjast nýta það við gerð þriðju Is-
lensku orðabókarinnar.
Unnið hefur verið að færeysku orðabókinni
frá því í lok níunda áratugar. I forystu fyrir því
starfi hefur verið málvísindamaðurinn Johan
Hendrik Winther Poulsen hjá Háskóla
Færeyja.
Hin um það bil 66.000 orð í færeysku móður-
málsorðabókinni eru m. a. sótt í hið umfangs-
mikla orðasafn Christians Matras, prófessors í
færeysku sem nú er látinn. Ennfremur hefur
Johan Hendrik Winther Poulsen að íslenskri
fyrirmynd auglýst eftir orðum í færeyska út-
varpinu þar sem hann hefur leitað til fólks í því
skyni að fá vitneskju um sjaldgæf orð.
„Bókin hefur það í för með sér að Færeying-
ar geta nú leitað til eigin máls í staðinn fyrir að
fræðast um það í erlendum bókum. Einnig eru
í bókinni samheitaorð sem geta haft þau áhrif
að gera færeyskuna fjölbreyttari“, segir Johan
Hendrik Winther Poulsen og bætir við að í
bókinni séu 230 teikningar eftir Bárð Jákups-
son, forstöðumann Listasafns Færeyja.
Með útgáfu færeysku orðabókarinnar eru
það aðeins tvær Norðurlandaþjóðir, Grænlend-
ingar og Samar, sem ekki eiga orðabók yfir
móðurmál sín.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir
Stiklað í straumnum. Úrval verka úr eigu
Listasafns Reykjavíkur. Til 30. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-16.
Listasafn Siguijóns Ólafssonai-
Þriðja gestasýning sumarsins: Vinafundur,
verk eftir Guðmundu Andrésdóttur, Jóhannes
Jóhannesson, Kristján Davíðsson og Þorvald
Skúlason. Safnið opið alla daga nema mánu-
daga kl. 14-17 til 30. ágúst.
Gallerí 20 fermetrar, Vcsturgata lOa
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson sýnir.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti
Einar Sebastian sýnir tii 9. sept.
Gallerí Fiskur, Skólavörðustíg 22c
Hreinn Friðfinnsson og Egill Sæbjörnsson
sýna til 10. sept.
Norræna húsið, Hringbraut
Roj Friberg sýnir til 27. sept.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Susanne Christensen sýnir til 13. sept.
Gallerí Fold, Kringlan
Samsýningin Hvalir.
Hafnarborg
Sýning á verkum Jóns Óskars, Guðjóns
Bjamasonar og Bjarna Sigurbjörnssonar.
Hanna Kristín Gunnarsdóttir sýnir í kaffistof-
unni til 14. sept.
Galierí Hár og list, Hafnarfirði
Brynja Árnadóttir sýnir til 17. sept.
Listasafn Kópavogs, Gcrðarsafn
Kristín Guðjónsdóttii' sýnir til 30. ágúst.
Mokkakaffi, Skólavörðustig
Valgerður Guðlaugsdóttir sýnir til 9. sept.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjóminjasafn Islands, Ilafnarfirði
Sumarsýning á ljósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýningin Þorlákstíðir og önnur Skál-
holtshandrit. Til 31. ágúst.
Gallerí Sævars Karls við Bankastræti
Kristján Steingrímur sýnir til 2. sept.
Listhús Ófeigs, Skölavörðustíg 5
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir sýnir til 12. sept.
Ingólfsstræti 8, Ingólfsstræti 8
Hægt að skoða verk Rögnu Róbertsdóttur,
Bryndísar Snæbjömsdóttur og Sólveigar Að-
alsteinsdóttur í gegnum gluggann til 17. sept.
Listasafn ASI
Helena Guttonnsdóttir sýnir í Gryfjunni. Sig-
ríður Ólafsdóttir sýnir í Ásmundarsal, lýkur
13. sept.
Gallerí Stöðlakot við Bókhlöðustfg
Ásdís Guðjónsdóttir sýnir til 30. ágúst.
SPRON, Mjódd
Harpa Björnsdóttir sýnir til 24. okt.
Listasafn Árnesinga, Selfossi
,Ágústþrenna“ til 30. ágúst.
Eden, Hveragerði
Markús Sigurðsson sýnir til 6. sept.
Listaskálinn, Hveragerði
Projekthópurinn sýnir til 30. ágúst.
Safnasafnið Svalbarðsströnd
Málverk eftir Ingimar Friðgeirsson til 20.
sept.
TONLIST
Laugardagur
Hádegistónleikar í Hallrímskirkju: Neithard
Bethke. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari á
tónleikum í Skjólbrekku, Mývatnssveit ki. 14.
L jóðatónleikar í Hveragerðiskirkju; Sigrún
Valgerður Gestsdóttir og Sigursveinn Magn-
ússon kl. 16. Lokatónleikar á Jómfrúnni Lækj-
argötu 11.16-18; Sigurður Flosason saxófón-
leikari, Bjöm Thoroddsen gítarleikari og
Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari, ásamt
söngkonunni Hólmfríði Jóhannsdóttur.
Sunnudagur
Neithard Bethke leikur á orgelið í Hallgríms-
kirkju kl. 20.30. Hallveig Rúnarsdóttir söng-
nemi og Steingrímur Þórhallsson orgelnemi
með tónleika í Kristskirkju kl. 20.30. Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari á tónleikum í Akur-
eyrarkirkju kl. 20.30.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar; Hlíf Sigur-
jónsdóttir fiðla, Junah Chung lágfiðla og Sig-
urður Halldórsson selló kl. 20.30.
Miðvikudagur
Haukur Gröndal saxófónleikari ásamt Árna H.
Karlssyni píanól., Gunnlaugi Guðmundssyni
kontrabassal. og Matthíasi M.D. Hemstock
trommul. kl. 21.
LEIKHUS
Borgarlcikhúsið
Grease, lau. 29. ágúst, sun., fim.
Iðnó
Þjónn í súpunni lau. 29. ágúst, lau.
Le Grand Tango, sun. 30. ágúst.
Islcnska óperan
Hellisbúinn lau. 29. ágúst, fim.
Tjarnarbíó, leikhúsið
Light Nights, leiknir þættir úr íslendinga sög-
um og þjóðsögum á ensku lau. 29. ágúst kl. 21.
Kaffileikhúsið
„Líf manns“ laug. 29. ágúst.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist brófiega eða á netfangi fyrir kl. 16 á
miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. ÁGÚST 1998