Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1998, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1998, Qupperneq 13
ferðasögunnar í Morgunblaðinu. Starfsbróðir þeirra, Hjalti Rögnvaldsson, hefur aftur á móti gaman af öllu saman og segir nýja íþróttagrein hafa litið dagsins ljós - leikara- hopp. Blaðamaður gerir ráð fyrir að hart verði barist um hlutverk Skippýjar rati hún ein- hvern tíma á fjalir Þjóðleikhússins. Þarna er einn! Leiðin liggur fram hjá fjölda pytta og alltaf er svar Agnars bónda á sömu leið: „Við erum alveg að koma!“ Ljósmyndari Morgunblaðsins og Þröstur Leó Gunnarsson, sem fara mun með hlutverk Odds í leikritinu, láta sér fátt um finnast og hefja óformlega rannsókn á fisk- gengd í Gegni. Tekur sá síðarnefndi hlutverk- ið alvarlega, eins og hans er von og vísa, og hleypir á skeið meðfram bakkanum. „Þarna er einn,“ hrópar hann. Sigurður Skúlason kemur auga á annan en Gretar leikmyndahönnuður verður ekki var, þótt hann sé allur af vilja gerður. Þá birtist hann loksins - Solkupyttur. Djúp- ur er hann! Loftbólur stíga bersýnilega upp á yfirborðið og vekja grunnsemdir. „Oddur minn, heyrðirðu til mín?“ spyr Vigdís Gunn- arsdóttir. Ekkert svar! Því næst tylla menn sér á bakkann, hvíla lú- in bein og draga djúpt andann. Sagan verður áþreifanleg. „Hérna gerðist þetta þá,“ heyrist sagt en Ragnar leikskáld gerist á ný talsmað- ur efans: „Það vitum við ekki fyrir víst!“ Mikið er myndað á þessum sögufræga stað, sem von er, og hefur ljósmyndari Morgunblaðsins vart undan að taka við myndavélum af öllum stærðum og gerðum. Agnar bóndi velur auðveldari leið til baka og senn er sveitin komin í bflana. Agnar og séra Daila eru kvödd með virktum og óska þau hópnum góðs gengis. Næsti áningarstaður er Silfrastaðir, þar sem séra Oddur söng sína síðustu messu. Þar er gerður stuttur stans enda farið að rigna og LEIKSKÁLDIÐ, Ragnar Arnalds, spjallar við Þjóðleikhúsmenn á hlaðinu á Miklabæ. Aðrir á myndinni eru leikararnir Þröstur Leó Gunnarsson, Sigurður Skúlason, Vigdís Gunnarsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson og Hjalti Rögnvaldsson, Þórhallur Sigurðsson leikstjóri, Gretar Reynisson leikmyndahönnuður og Pálmi Gestsson leikari. V' HUGLEIÐING við Solkupytt. Týndi séra Oddur lífi þarna? HÉR HVÍLIR Solveig frá Miklabæ. Látlaus en dulúðugur legstaður í Glaumbæjarkirkjugarði. Ekki þótti við hæfi að jarðsetja Solveigu í kirkjugarðinum á Mikiabæ. ÞRÖSTUR Leó, sem fara mun með hlutverk séra Odds, í Hóladómkirkju, þar sem fullvíst þyk- ir að klerkur hafi predikað um sína daga hjá föður sínum , Gísla biskupi Magnússyni. Að baki Þresti eru Sigurður Skúlason, Pálmi Gestsson, Hjalti Rögnvaldsson og Ásdís Þórhallsdóttir aðstoðarleikstjóri. kirkjan sem klerkur predikaði í löngu horfin af sjónarsviðinu. Nýja kirkjan, sem reyndar er orðin 102 ára gömui, vekur þó umtalsverða hrifningu. En ekki fyrir stærð. „Eg get mér þess til að hér hafi sjaldan verið íjölmennt í messu,“ segir Pálmi Gestsson leikari sem nán- ast getur teygt sig enda á milli. „Jæja, þá ríð- um við heim til Hóla,“ segir Þórhallur leik- stjóri og smalar sínu fólki inn í bíl. A Hólum í Hjaltadal bjó séra Oddur um tíma en faðir hans, Gísli Magnússon, var þar biskup. Lét hann reisa Hóladómkirkju og er hún eina mannvirkjð, sem verður á vegi ferðalanga, sem séra Oddur hefur komið í um sína daga. Þykir fullvíst að hann hafi predikað í kirkjunni. Jón Bjarnason skólastjóri tekur á móti mannskapnum á Hólum og býður í kaffi i mat- sal. Segir hann sögu staðarins í stuttu máli og margs er að spyrja. „Hvaða stíll er það, að hafa kirkjuturninn úti á hlaði,“ leikur Pálma Gestssyni forvitni á að vita. Fær hann þau svör að hann hafi verið reistur sem minnis- merki um Jón Arason árið 1950, á 400 ára dán- arafmæli biskups. Að öðru leyti kemur bygg- ing kirkjunnar ekki við þessa sögu. Það er kominn gestur! í miðri tölu rýkur Jón skólastjóri skyndi- lega upp til handa og fóta og biður leikhús- menn að hafa sig afsakaðan. „Það er kominn gestur!" Gestur þessi reynist vera sjálfur for- sætisráðheiTann, Davíð Oddsson, sem kominn er að Hólum ásamt kanadísku fyrirmenni. Akveður hópurinn að troða þeim ekki um tær og heldur áleiðis niður í kirkju. Á leiðinni er kveðju kastað á forsætisráðherra og þeir Ragnar leikskáld taka tal saman enda vinnufé- lagar á hinu háa alþingi. Enginn heyrir hvað þeim fer á milli en Lilja Guðrún gerir því skóna að Davíð sé að biðja um hlutverk í leik- ritinu. Sá er þá fylginn sér - kominn alla leið norður í Hjaltadal til að sauma að höfundi! í kirkjunni tekur Jón skólastjóri upp þráð- inn og í máli hans kemur meðal annars fram að ákaflega lítið hafi breyst þar frá dögum Odds. Er hann spurður spjörunum úr og berst talið að di-ykkjusiðum þeirra feðga, Odds og Gísla, enda getgátur um að sá fyrrnefndi hafi verið við öl þegar hann fór frá Víðivöllum kvöldið ör- lagaríka. Segir Ragnar að heimildum beri sam- an um að Gísli hafi að minnsta kosti verið veik- ur fyi’ir víni. Þykir Jóni skólastjóra það heldur vægt að orði kveðið: „Það má eiginlega segja að hann hafi verið drykkjusjúkur!" Mikið var drukkið á Hólum í þá daga og segir sagan að Gísli biskup hafi þurf't að skenkja verkamönn- unum, sem reistu kirkjuna, vel af víni - bara til að koma þeim að verki. Frá Hólum liggur leiðin í Glaumbæ á Lang- holti, þar sem Solveig hvflir. Þar er einnig grafinn Gísli, sonur séra Odds og Guðrúnar. 1 sumum heimildum er þess getið að Gísli þessi, þá barn að aldri, hafí verið sendur af stað er móðir hans taldi séra Odd vera að knýja dyra hina afdrifaríku nótt. Snáðinn var aftur á móti myrkfælinn og sneri við. „Það var eins gott að hann fór ekki til dyra,“ segir Ólafía Hrönn, ný- búin að heyra að Gísli muni vera ættfaðir þús- und Skagfirðinga. Leiði Solveigar er látlaust en yfir því dulúð, sem erfitt er að lýsa með orðum. Fer vel á því enda mun þessi huldukona, örlög hennar og afdif, halda áfram að valda Skagfirðingum og Islendingum öllum heilabrotum um ókomna tíð! Nawðsynleg ferð Ragnar Arnalds er ánægður að degi lokn- um. Segir að nauðsynlegt hafi verið að fá leik- endur og aðstandendur sýningarinnar norður. Sjálfur þekkir hann söguslóðir eins og lófann á sér enda verið búsettur í Varmahlíð í áratugi. „Leiki-it er auðvitað aldrei sagnfræði og nauð- synlegt fyrir höfunda að lyfta sér upp yfir sagnfræðilegar staðreyndir. Eigi að síður er þýðingarmikið að fólk skynji hinar sögulegu kringumstæður og vonandi á hópurinn eftir að búa að þessari heimsókn meðan á æfingum stendur." Þórhallur Sigurðsson er að sama skapi sátt- ur við afrakstur dagsins. „Við koinumst yfir allt sem við ætluðum okkur í þessari ferð. Það er alltaf gott að hafa raunveruleikann í sér, þó nauðsynlegt sé líka að komast frá honum, og þess vegna kusum við að gera þetta svona snemma á æfíngaferlinu [á öðrum æfinga- degi]. Hafa ber í huga að leikrit eni hvorki sagnfræði né túlkun á þjóðháttum og þess vegna er þetta fyrst og fremst til gamans gert - og þetta var svo sannarlega skemmtilegur dagur.“ Aðalleikendurnir, Vigdís Gunnarsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson, eru á einu máli um að heimsóknin hafi verið vel heppnuð. Gaman hafi verið að skoða umhverfið sem var vett- vangur þeh-ra atburða sem frá er greint í verk- inu. Vigdís skoðaði sig reyndar um á þessum slóðum fyiT í sumar en Þröstur Leó kveðst alltaf hafa „brunað hérna í gegn“. „Fyi-st um- hverfið er til staðar væri fáranlegt að hafa ekki fært sér það í nyt,“ segir Vigdís. Afi’aksturinn kemur í Ijós í Þjóðleikhúsinu innan fárra vikna. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. ÁGÚST 1998 1 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.