Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1998, Blaðsíða 2
ÖRLAGANÓTT í Getsemanegarðinum, eitt þeirra verka Benedikts Gunnarssonar sem sýnd eru í Hallgrímskirkju.
NÝJAR LENDUR GUÐDÓMSINS
„ÉG LÍT ekki á trú og vísindi sem andstæð-
ur. Vísindin víkka út skynjunarsvið manns-
ins og þar með alltaf nýjar lendur guðdóms-
ins,“ segir Benedikt Gunnarsson, en á morg-
un, sunnudag, verður opnuð sýning á verk-
um hans í anddyri Hallgrímskirkju. Bene-
dikt flytur fyrirlestur á fræðslumorgni í
Hailgrímskirkju klukkan 10 um Iistina og
trúna og málverkasýning hans verður opnuð
að lokinni guðsþjónustu klukkan 12.15.
Benedikt segir myndefnin sprottin úr
sköpun, lffi, trú og vísindum. „Ég vinn
stundum í svona myndaflokkum. Þannig eru
þarna hlutbundnar myndir, til dæmis með
Páli postula og Hallgrími Péturssyni. Svo
eru líka abstraksjónir, sem tengjast ferð
hins tæknivædda manns út í veröldina og
leiðir í víðáttunum miklu. Þannig skarast á
þessari sýningu vísindaleg þekking manns-
ins og trúarviðfangsefni. Ég reyni svo að
ljalla um þetta með mínum persónulega
hætti.“
Benedikt segist ekki hafa skírt mynda-
flokkana ennþá. En á næsta ári er fyrirhug-
uð sýning í Kópavogi á myndaflokkum, sem
hann hefur verið að vinna við að undan-
förnu.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1
Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta.
Gallerí Art Hún, Stangarhyl 7
Toshiko Takaezu. Leirlistaverk. Til 8. okt.
Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Gunnar Bjarnason. Til 4. október.
Gallerí Fold, Kringlan
Samsýningin Hvalir.
Gallerf Kambur, Holta- og Landsveit
Ólafur Elíasson. Til. 4. okt.
Gallerí Sævars Karls
Haraldar Jónssonar. Til 28. okt.
Gallerf Stöðlakot
Vatnslitamyndir eftir Nikulás Sigfússon. Til 11.
okt.
Gerðuberg: Sjónþing Kristins G. Harðarsonar. Til
24. okt.
Hafnarborg
Apótekið: Ljósmyndasýning Bernts Schlussel-
burg. Sverrissalur: Margrét Guðmundsdóttir, olíu-
myndir. Aðalsalur: Anna Sigríður Sigurjónsdótir,
skúlptúrar. Til 5. okt.
Ilallgrfmskirkja
Benedikt Gunnarsson.
Ingólfsstræti 8
Eloi Puig. Til 11. október.
Kjarvalsstaðir
-30 / 60+, samsýning tveggja kynslóða. Til 25. okt.
Listasafn ASÍ
Gryfjan: Jun Kawaguchi. Ásmundarsalur: Þóra
Sigurðardóttir. Til 4. okt.
Listasafn Einars Júnssonar, Skðlavörðuholti
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Kðpavogs, Gerðarsafn
Magdalena Margrét Kjartansdóttir. Ólöf Einars-
dóttir. Amælissýning Myndhstarskóla Kópavogs.
Til 25. okt.
Listasafn fslands
fslensk abstraktlist 1950-60. Til 25. okt.
Listaskálinn í Hveragerði: Erotíka: Bragi Ás-
geirsson, Einar Hákonarson, Eva Benjamínsdótt-
ir, Gunnar Örn Gunnarsson, Harpa Björnsdóttir,
Haukur Dór, Ragnhildur Stefánsdóttir og Stefán
Boulter.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Rannveig Anna Jónsdóttir og Þorvaldur Halldór
Gunnarsson. Til 29. okt.
Norræna húsið, Hringbraut
Erla B. Axelsdóttir. Til 18. okt.
Nýlistasafnið
Bjarti og svarti salur: Eygló Harðardóttir. Súm-
salur: Ásta Ólafsdóttir. Forsalur og gryfja: Þórdís
Alda Sigurðardóttir. Til 18. okt.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjóminjasafn fslands, Ilafnarfir'ði
Sumarsýning á Ijósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suður-
götu
Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14.
maí.
SPRON, Mjódd
Harpa Bjömsdóttir sýnir til 24. okt.
TONLIST
NQRRÆNA BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐIN
SINFÓNfAN LEIKUR UNDIR CHAPLIN
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands mun
leika á sýningu þöglu kvikmyndarinnar
Borgarljósin eftir Charlie Chaplin í stóra
sal Háskólabíós laugardaginn 24. október
n.k. Forráðamenn Kvikmyndasjóðs Islands
hafa rætt við Josephine Chaplin, dóttur
Chaplins, sem býr í París en hún helgar sig
sýningu þessara mynda við undirleik lifandi
tónlistar, og ætla að sögn Oddnýjar Sen að
bjóða henni og Geraldine Chaplin, sem er
einnig búsett í París, til landsins við tæki-
færi.
Borgarljósin verða sýnd á tólftu Nor-
rænu bamakvikmyndahátíðinni, sem verð-
ur haldin á Islandi dagana 20.-25. október
nk. og er þetta í fyrsta skipti sem hátíðin er
haldin hér á landi. Hápunktur hátíðarinnar
er sýning Kvikmyndasjóðs íslands og Sin-
ÁSTARGYÐJAN
í HVERAGERÐI
EROTÍKA nefnist myndlistarsýning með
verkum Braga Ásgeirssonar, Einars Hákon-
arsonar, Evu Benjamínsdóttur, Gunnars Arn-
ar Gunnarssonar, Hörpu Bjömsdóttur,
Hauks Dór, Ragnhildar Stefánsdóttur og
Stefáns Boulter, sem opnuð verður í Lista-
skálanum í Hveragerði í dag kl. 15. Heiti sýn-
ingarinnar er í samræmi við viðfangsefni
listamannanna sem sýnd verða.
Ástarljóð heitir dagskrá með ljóðum og
djassi, sem hefst í veitingasal Listaskálans
klukkan 16. Matthías Johannessen les úr Ijóð-
um sínum og Karl Guðmundsson leikari les
ljóð eftir Jóhann Hjálmarsson. Djasstríó
Carls Möller píanóleikara, Guðmundur Stein-
grímsson trommuleikari og Birgir Bragason
bassaleikari leikur.
fóníuhljómsveitar íslands á þöglu kvik-
myndinni Borgarljósin eftir Charlie
Chaplin í stóra sal Háskólabíós laugardag-
inn 24. október kl. 17. Stjórnandi hljóm-
sveitarinner er Þjóðverjinn Gunter A.
Buchwald. Hann hefur áður komið við sögu
hér á landi, í janúar í fyrra lék hann á píanó
og fiðlu þegar kvikmynd Chaplins, Gullæð-
ið, „The Gold Rush“, var sýnd í Háskólabíói.
Þetta er í tólfta sinn sem Norræna bama-
kvikmyndahátíðin er haldin, en hún var
fyrst haldin í Stokkhólmi árið 1978.
Á hátíðinni verða sýndar leiknar myndir,
stuttmyndir, heimildamyndir og teikni-
myndir, alls 30 myndir, þar af tvær íslensk-
ar, Stikkfrí eftir Ara Kristinsson og Palli
einn í heiminum, eftir Ásthildi Kjartans-
dóttur.
Morgunblaðið/Aldís
HAUKUR Dór og Einar Hákonarson hengja upp verk í Listaskálanum.
Laugardagur
Menningarmiðstöð Gerðubcrgs: Tatu Kantomaa
harmonikkuleikari. Kl. 17.
Sunnudagur
Norræna húsið: Elísabet Waage hörpuleikari og
Peter Verduyn Lunel, flautuleikari. Kl. 17.
Hveragerðiskirkja: Ljóðatónleikar: Sigrún Val-
gerður Gestsd. og Sigursveinn Magnúss. Kl. 16.
Mánudagur
Listasafn Kópavogs: Sigurður Ingvi Snorrason,
klarinettuleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanóleikari. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Háskólabfó: SÍ. Grænir tónleikar. Stefan og
Dmitri Ashkenazy. Stjórnandi Michael Christie.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Bróðir minn Ijónshjarta, sun. 4. okt.
Óskastjarnan, lau. 3. okt.
Gamansami harmleikurinn, lau. 3., fös. 9. okt.
Borgarleikhúsið
Grease, lau. 3., sun. 4. okt. Sex í sveit, fös. 9. okt.
íslenski dansfiokkurinn
Night, Jorma Uotinen; Stoolgame, Kiri Kylián; La
cabina 26, Jochen Ulrich, lau. 3. okt.
Iðnú
Dimmalimm, sun. 4. okt.
Þjónn í súpunni, lau. 3., sun. 4. okt.
Rommí, fim. 8., fös. 9. okt.
(slenska óperan
Ávaxtakarfan, sun. 4. okt.
Hellisbúinn lau. 3., sun. 4. okt.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, sun. 4. okt.
Fjögur hjörtu, sun. 4. okt.
Listaverkið, lau. 3., fös. 9. okt.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Við feðgamir, fös. 9. okt.
Sfðasti bærinn í dalnum, sun. 4. okt.
Kafflleikhúsið
Svikamylla, fös. 9. okt.
Mögulcikhúsið við Hlemm
Snuðra og tuðra, frums. lau. 3. okt.
Einar Áskell, sun. 4. okt.
Leikfólag Akureyrar
Rummungur ræningi, frums. lau. 3. okt. Sun. 4.
okt.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist
bréflcga eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, Menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222.
Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 3. OKTÓBER 1998