Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1999, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1999, Síða 13
ISLAND TÆKIFÆRANNA VIÐ HÖFUM á þessari öld búið við óstjórn á borð við: gjaldeyrishöft, niðurgreiðslur, höft við fjárfestingu, tolla, víðtæka ríkiseinokun, ofveiði, sjóðasukk og síðast en ekki síst bankakerfi þar sem póiitísk tengsl vógu oft þyngra en álitlegar arðsemisáætlunir. EFTIR JÓN STEINSSON Samband ungra sjálfstæð- ismanna efndi til sam- keppni um ritgerðarefnið hvernig land ungt fólk vildi byggja og hvaða vænting- ar það hefði til framtíðar- innar. Dómnefnd, sem skipuð var 7 mönnum undir forsæti Friðriks Sophussonar, valdi ritgerð Jóns Steinssonar og hlaut hann 100 þúsund króna verðlaun. Verðlaunarit- gerðin fer hér á eítir. að er gott að vera íslendingur í dag. Raunar betra en það hefur nokkru sinni verið. A síðustu þremur aldarfjórðungum hefur okkur tekist að rísa frá því að vera fátæk nýlenda langt norður í hafi, einangruð frá framförum sem átt höfðu sér stað í Evrópu, í það að vera sjálfstæð þjóð sem býr við ein- hver mestu lífsgæði sem þekkjast í heiminum. En þrátt íýrir það eru hlutirnir langt frá því að vera eins og best verður á kosið hér á Islandi. Stærstur hluti af pólitískri orku þjóð- arinnar á þessari öld hefur farið í sjálfstæðis- baráttu og baráttu fyrir yfírráðum yfír hafínu í kringum landið. Þar að auki höfum við farið frá því að vera bændasamfélag í það að vera borgarsamfélag á skömmum tíma. I þessu eins og fiestu öðru vorum við eftirbátar ann- arra þjóða langt fram eftir öldinni. Það er því skiljanlegt að við höfum á stundum verið upp- tekin af því hversu lítið og brothætt þjóðfé- lagið okkar var. Þessi hræðsla endurspeglað- ist svo aftur í mikilli forsjárhyggju stjórn- valda. Við höfum litið á okkur sem litla þjóð í stórum heimi þar sem allir þurfa að passa hver upp á annan svo útlendingar valti ekki yfir okkur. En nú er tími til kominn að kasta þessari minnimáttarkennd fyrir borð. Það sem þarf að eiga sér stað til að ísland verði sannarlega land tækifæranna er víðtæk hug- arfarsbreyting hvað þetta varðar. Á síðustu áratugum hafa flestar nýjungar í löggjöf hér á landi skiljanlega verið að er- lendri fyrirmynd. Okkur hefur þegar á heild- ina er litið tekist vel til við að tileinka okkur það besta i löggjöf annarra landa með þeim árangri að við erum nú eins og fyrr segir ein ríkasta þjóð í heimi. En sá sem skarað hefur fram úr áttar sig fljótt á því að frá toppnum horfír heimurinn allt öðruvísi við honum. Þá er ekki lengur gagnlegt að bera sig saman við nági-annann heldur verður að hafa hugrekki til að stíga skref sem enginn hefur áður stigið. Það er þessi veruleiki sem við íslendingar munum standa frammi fyrir í auknum mæli í nánustu framtíð. I stað þess að horfa alltaf til nágrannalandanna er tími til kominn að við förum að setja okkar eigin staðla hvað lífs- gæði snertir. Sóknarfærin eru mörg því þó svo að löggjöf hafi tekið miklum stakkaskipt- um á síðustu áratugum hefur skilningur á því hvernig best er að skipuleggja þjóðfélag auk- ist enn hraðar. Unga kynslóðin á íslandi í dag erfir þjóðfé- lag sem enn er gegnsýrt af forsjárhyggju lið- innar aldar. Þetta er skiljanlega arfleifð tutt- ugustu aldarinnar. Aldar sem einkennst hefur af pólitískum trúarofsa á báða bóga. Vinstri- menn predikuðu lengst af einfaldar hugmynd- ir um þjóðnýtingu og miðstýringu á sem flest- um sviðum. Hægrimenn predikuðu af álíka eldmóði einfaldar hugmyndir um að eignar- réttur og frjáls samkeppni gætu leyst allan vanda. Á sama tíma sá hver sá sem horfði gagn- rýnum augum á samfélagið í kringum sig að alls konar vankantar voru á þessum eins og öllum öðrum ofureinfölduðum hugmyndum. Reynsla austantjaldslandanna sýndi glöggt að of mikil miðstýring er af hinu illa. Þar kom einnig bersýnilega í ljós að menn leggja einkum hart að sér þegar þeir eiga sjálfir hagsmuna að gæta. En það var aftur á móti jafn ljóst að einföldustu kenningar um full- komna markaði engurspegluðu ekki marga mikilvæga þætti í hinum raunverulega heimi. Haft var á orði á fremstu hagfræðideildum heims að þó svo að allir kenndu kenningarn- ar um hinn fullkomna markað þá væru það aðeins hagfræðingar við Chicago-háskóla sem raunverulega tryðu því að þær kenning- ar væru góð nálgun við raunveruleikann. Á síðustu áratugum hafa hins vegar kenningar um ófullkomna markaði, fákeppni og sveiflu- jöfnun svo eitthvað sé nefnt ráðið bót á mörgum vanköntum sem áður voru þyrnir í augum þeirra sem ekki trúðu blint á mark- aðsöflin. Eitt af því sem orðið hefur æ ljósara á þess- um tíma er að ríkisvaldið gegnir lykilhlut- verki í því að ráða bót á ófullkomleika frjálsr- ar samkeppni. Jafnframt er ljóst að ríkisvald- ið sinnir þessu hlutverki hvorki með gamal- dags forsjárhyggju sósíalista né með gamal- dags afskiptaleysi auðvaldssinna. Grunnhugsunin í allri löggjöf um efnahags- mál verður að vera að skapa skilyrði fyrir eins mikilli hagkvæmni og arðsemi og mögulegt er samhliða því að tryggja jafnræði þegnanna í hvívetna. I þessu felst að markaðslausnir séu nýttar þar sem skilyrðin fyrir því að þær leiði til hagkvícmni eni uppfylltar. Við löggjöf um þau málefni þar sem sýnt þykir að frjáls sam- keppni myndi leiða til óhagkvæmni skulu stjórnvöld ávallt hafa það hugfast að far- sælasta leiðin til að ná fram hagkvæmni í efnahagsmálum er að laga hagsmuni einstak- linganna að hagsmunum heildarinnar og þannig gera það eftirsóknarvert fyrir einstak- linga þjóðfélagsins að þjóna hagsmunum sam- félagsins. Þó svo að mikið hafí áunnist í þessum efn- um á síðustu árum og áratugum er enn víða pottur brotinn. Það virðist enn ekki vera stjórnmálamönnum tamt að líta á efnahags- mál frá þessu sjónarhorni. Enn eru það oftar en ekki annarleg sjónarmið sem ráða ferðinni. Það sem oft liggur að baki þessum annarlegu sjónarmiðum er hræðslan við þau tíma- bundnu óþægindi sem breytingum óhjá- kvæmilega fylgir. Við búum í heimi örrar þró- unar. Þessari þróun fylgir það að ákveðnar einingar hagkei'fisins úreldast. Eina leiðin til að þjóðfélag færi sér þróunina í nyt er að það búi við arðsemisaga sem sér til þess að úrelt- ar einingar séu teknar úr umferð svo hægt sé að nýta það fjármagn og vinnuafl sem bundið er í þeim til nytsamlegri hluta. Þessum aga fylgja óneitanlega tímabundin óþægindi fyrir þá sem ekki tekst að halda í við þróunina. En ef við á annað borð sækjumst eftir velmegun verðum við að búa við þennan aga. Annars köllum við yfir okkur óhagkvæmni sem til lengri tíma leiðir til hnignunar. Það er hlutverk okkar sem erfum landið að tileinka okkur þetta hugarfar og taka til á þeim svæðum í íslenskri löggjöf sem enn end- urspegla forsjárhyggju liðinnar aldar og þannig búa til hér á Islandi þá þjóðfélagsgerð sem best tryggir þegnunum tækifæri til að láta ljós sitt skína. En það er ekki aðeins í stjórnmálum sem hugarfarsbreytingar er þörf. Flest fyrirtæki ráða fólk og veita stöðuhækkanir enn á grundvelli staifsreynslu í stað verðleika. Þó svo að slíkt kerfí hafí marga kosti í þjóðfélagi þar sem menntun einstaklingsins er ekki sér- lega hátt skrifuð er það alls ekki viðeigandi í framsæknu nútímaþjóðfélagi. Ungt fólk sem hefur fjárfest í löngu og dýru háskólanámi er oft vel í stakk búið til að takast á við mikla ábyrgð í starfi. Slíkt fólk veit líka að erlendis eru fyrirtæki löngu búin að átta sig á þessu og eru tilbúin að veita ungu fólki með góða menntun tækifæri til að ná skjótum frama. Ekki er ólíklegt að þetta viðhorf íslenskra íyr- irtækja sé hluti af skýringunni á því af hverju ungt fólk sér ísland ekki fyrir sér sem land tækifæranna í meira mæli en raun ber vitni. Ef íslensk fyrirtæki bregðast ekki við þessu er hætt við að við missum fleira og fleira af okkar hæfileikaríkasta fólki af landi brott. Háskóli íslands er sú stofnun í íslensku þjóðfélagi þar sem hugarfarsbreyting er hvað mest aðkallandi. Er eðlilegt að fólki sem ákveðið hefur að ráðast í háskólanám sé ekki treyst til að hafa meiri áhrif á það hvernig nám þess mótast en raunin er í Há- skóla Islands? I fremstu háskólum heims er valfrelsi nemenda miklu meira sem gerir það aftur að verkum að nánast engir tveir út- skrifast með sama bakgrunn. Hver og einn hefur sína sérstöðu sem gerir menntun hans meira virði en ef allir væru eins. I Háskóla Islands er enn verið að reyna að steypa alla í sama mótið. Þetta er reyndar dæmigert íyrir það hug- arfar sem er ríkjandi á allt of mörgum sviðum í íslensku þjóðfélagi. Þetta á við um grunn- og framhaldskólakerfið sem enn býr við mikla miðstýringu að ofan og þetta á líka við um heilbrigðiskerfið þar sem stefna stjórnvalda um að fækka og stækka mun í nánustu fram- tíð enn auka á miðstýringuna. Á öllum þess- um sviðum á miðstýringin rót sína að rekja til þess hugarfars að einstaklingum sé ekki eins vel treystandi og stjómvöldum til að taka ákvarðanir um sína eigin framtíð og framtíð þeirra stofnana sem þeir reka. Það hefur löngum sýnt sig að það fyrir- komulag sem leiðir til mestrar hagkvæmni er það sem dreifir valdi og ábyrgð á ákveðnum ákvörðunum niður til þeirra sem hafa mestar upplýsingar um þann þátt kerfísins. Ábyrgð- inni fylgir áhætta en jafnframt tækifæri til að standa sig vel. Það em þessi tækifæri til að standa okkur vel og hafa jákvæð áhrif á þjóð- félagið sem við unga fólkið á íslandi sækjumst eftir. íslenskt þjóðfélag er að mörgu leyti betur á sig komið en önnur þjóðfélög. Þi'átt fyrir for- sjárhyggju þessarar aldar erum við á meðal ríkustu þjóða í heimi og stöndum okkur ef eitthvað er enn betur ef horft er á lífsgæði í víðara samhengi. Þetta hefur okkur tekist þrátt fyrir að búa til lengri eða skemmri tíma við óstjórn á borð við: gjaldeyrishöft, niður- greiðslur, höft við fjárfestingu, tolla, víðtæka ríkiseinokun, ofveiði, sjóðasukk og síðast en ekki síst bankakerfi þar sem pólitísk tengsl vógu oft þyngra en álitlegar arðsemisáætlun- ir. Þessi listi virðist vera uppskrift að algerum óföram. Það er þvi erfitt að ímynda sér þá gríðarlegu velmegun sem við eigum í vændum þegar okkur hefur endanlega tekist að losa okkur við það forneskjulega hugarfar sem leitt hefur til slíkrar óstjórnar. Það er í þess- ari velmegun sem tækifæri ungu kynslóðar- innar á íslandi felast. Höfundur er stúdent og nemur hagfræði við Princeton-hóskóla í Bandaríkjunum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 16. JANÚAR 1999 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.