Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1999, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1999, Qupperneq 2
BLÁSARASVEIT REYKJAVÍKUR t SELTJARNARNESKIRKJU FYRSTU TÓNLEIKAR NÝ- STOFNAÐRAR SVEITAR Morgunblaðið/Jón Svavarsson HIN splunkunýja Blásarasveit Reykjavíkur undir stjórn Kjartans Óskarssonar á æfingu í Seltjarnarneskirkju. NÝSTOFNUÐ Blásarasveit Reykjavíkur, skipuð tæplega 60 hljóðfæraleikurum, heldur sína fyrstu tónleika í Seltjamar- neskirkju í kvöld kl. 20:30, á Myrkum mósík- dögum. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Kjart- an Oskarsson og einleikari á tónleikunum er Magnea Árnadóttir flautuleikari. Að sögn Tryggva M. Baldvinssonar var það á síðastliðnu sumri sem sú hugmynd kviknaði á stjórnarfundi í Tónskáldafélaginu að gaman væri að bjóða upp á lúðrasveitartónleika á Myrkum músíkdögum 1999. Nú, aðeins hálfu ári síðar, er sveitin orðin að veruleika. „Tilgangur hennar er að kynna ný og eldri tónverk blásarabókmenntanna, jafnt innlend sem erlend, sem og að stuðla að nýsköpun tón- verka á þessu sviði tónsmíða. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar og verða flutt fjögur tónverk, þar af þrjú sem ekki hafa heyrst áður hér á landi,“ segir Tryggvi. Þetta eru verkin Víkingasvar eftir Jón Leifs og Oretheyia eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sem verða nú frumflutt á Islandi, og glænýtt verk eftir Tryggva sjálf- an, Köld sturta, sem verður frumflutt. „Konsert Páls P. Pálssonar er hins vegar orð- inn eitt af kennileitum íslenskra blásarabók- mennta,“ segir Tryggvi. Fyrst á efnisskránni er verk Tryggva, Köld sturta. „Þetta verk á sér dálítið skrýtna sögu. Það var nefnilega þannig að ég var staddur á Ung Nordisk Musik hátíðinni í Ósló síðasta haust og heyrði þar reiðinnar býsn af nýrri og athyglisverðri tónlist. Tónlist eftir ungt fólk sem eytt hefur stórum hluta ævi sinnar í að læra þá göfugu list að færa hugsan- ir sínar í tóna. Allar þessar pælingar um kerfi, tónmiðjur, raðir, hlutfóll, útreikninga og annað sem tilheyrir hátíð sem þessari gerði það að verkum að þegar á hátíðina leið var sem maður sæti í reykmettuðum sal fullum af ótrúlega þykkum mekki skynseminnar. Ekkert átti að láta frá sér fara sem ekki stæðist stranga og nákvæma skoðun. Það var þá að einn kollegi minn benti mér á geisladisk með þýsku þung- arokkshljómsveitinni Rammstein, sem ég keypti að bragði. Þó að tónlist þessara Þjóð- verja væri ekki par merkileg, þá innihélt hún það sem ég hafði saknað svo mjög, mikinn og óbeislaðan lífskraft, svo það var líkt og að skella sér undir kalda sturtu að hlusta á þá. Ég glaðvaknaði og hélt sæll og glaður á hverja tónleikana á fætur öðrum. Ennþá kemur það fyrir að ég staupa mig lítillega á Rammstein, en bara í hófi. Verkið var að mestu samið í jóla- fríinu og lokið á nýársdag 1999,“ segir tón- skáldið. Þorkell Sigurbjörnsson samdi verkið Oretheyia fyrir Manuelu Wiesler og Sinfónísku blásarasveitina í Stokkhólmi. Hann lýsir því þannig þegar þau höfðu samband við hann og vanhagaði um verk fyrir einleiksflautu og þessa risastóru sveit: „Þá féll mér allur ketill í eld; „hvað hefur svona lítil flauta að gera í fé- lagi við þessi 90 glansnúmer sænska flughers- ins með þotuhreyfla og flugskeyti?" hugsaði ég. Þá rifjaðist upp þessi gamla saga um Óreþeyju, kóngsdóttur frá Grikklandi. Hún var á sínum tíma á vappi á ströndinni, þegar Bore- as, norðanvindurinn, rændi henni og gerði að konu sinni í „ríki vindanna". Kalaís var einn sonur þeirra (sem ég þekki mæta vel). Hvers vegna ekki að gefa „mömmunni" tækifæri til að láta heyra til sín gegn um gnýinn?“ Verk Jóns Leifs, Víkingasvar, var samið árið 1962 og stendur aftast í raddskránni að verkið sé samið sem „mótmæli við ráðningu þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum og valdatöku kirkjunnar á staðnum“. „Jón ku hafa sótt um stöðu þjóðgarðsvarðar, en ekki fengið og brást þá svona harkalega við ráðningu sr. Eiríks J. Eiríkssonar í stöðuna. Verkið var frumflutt í Svíþjóð 1992, en hefur ekki heyrst hér fyrr,“ segir Tryggvi. Konsert fyrir blásara og slagverk samdi Páll Pamphichler Pálsson árið 1962 fyrir 40 ára af- mæli Lúðrasveitar Reykjavíkur og stjórnaði frumflutningi þess á tónleikum í Háskólabíói það sama ár á afmælistónleikum sveitarinnar. „I júlímánuði árið 1964 fór Lúðrasveit Reykja- víkur í sína fyrstu utanlandsferð og þá til Færeyja. Páll stjómaði og eitt þeima verka sem sveitin flutti í þessari ferð var þessi konsert. Síðan þá hefur konsertinn ekki heyrst hér sunnan heiða,“ segir Tryggvi. Páll segir um verkið að hann hafi haft í hyggju að semja glæsilegt verk fyrir lúðrasveit og segist hafa haft að leiðarljósi að verkið yrði bæði áheyri- legt og jafnframt krefjandi en þó einnig skemmtilegt fyrir flytjendur. Konsertinn er einskonar fantasía í þremur þáttum og eru fyrstu tveir þættirnir samtengdir. * lok tónleikanna verður verk Tryggva, Köld sturta, flutt aftur. „Akvörðunin um að flytja verkið mitt tvisvar á þessum tónleikum var tekin af stjórnandanum, Kjartani Óskarssyni. Þettu ku vera nokkuð algengur siður erlendis að gefa fólki kost á að heyra ný verk tvisvar, svo að áheyrendur eigi auðveldara með að leggja mat á þau, eða kannski er þetta bara eins og í sundlaugunum: Maður fer í sturtu á undan og eftir djúpu lauginni,“ segir Tryggvi. Aðaltenór Malmö- operunnar BJÖRN Jónsson, tenórsöngvari, hefur gert samning við óperuhúsið í Malmö í Svíþjóð sem aðaltenór í flmm verkefnum og er fyrsta frum- sýning, á Turandot eftir Puccini, 27. marz nk. Hinar óperumar eru I Pagcliaeei eftir Le- oncavallo, Dóttir hersveit- arinnar eftir Donizetti, Sal- ome eftir Strauss og La Boheme eftir Puccini. Björn og eiginkona hans, Þóra Einarsdóttir, sópran- söngkona, hafa verið búsett í Englandi síðan 1992. Bjöm sagði, að þau myndu nú flytjast búferlum til Malmö, en Þóru bíða ýms verkefni í Englandi og víð- ar og sagði Bjöm líkur á að hún myndi syngja á móti honum í Dóttur hersveitar- innar í Malmö. Einnig sagði Björn ýmis- _, _. legt á döfinni hiá sér, tón- leika og fleira, enda fær hann góð tækifæri til að sinna öðrum verkefn- um meðfram söngnum hjá Malmö-óperunni. Þórarinn B. Þorláksson Jóhannes S. Kjarval Ásgrímur Jónsson Jón Stefánsson Fjórir frum- herjar í Lista- safni Islands LISTASAFN íslands opnar á ný í dag með sýningu á verkum úr eigu safnsins eftir Þór- arinn B. Þorláksson, Asgrím Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes S. Kjarval. Sýningin heitir Fjórir frumherjar og stendur til sunnu- dagsins 18. apríl. Júlíana Gottskálksdóttir sýningarstjóri sagði, áð sýningin yrði opnuð í sal 3 og yrðu þar sýnd rösklega 20 verk, aðallega landslags- málverk, en einnig portrett, uppstillingar og skammdegismyndir. Sagðist hún telja þetta Listasafn íslands mjög áhugaverða sýningu, en sýningin verður svo flutt til í safninu eftir þrjár vikur og þá bætt við fleiri verkum.. Safnið er opið frá kl. 11 -17 alla daga nema mánudaga. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Asmundar Sveinssonar. Gallerí Fold, Rauðarárstig 14 Samsýning 15 listamanna í baksal. Til 31. jan. Gallerí Horn Dæsus. Til 21. jan. Gallerí Stöðlakot Margi-ét Guðnadóttir. Til 24. jan. Gallerí Sævars Karls Hlynur VS Hlynur. Til 28. jan. Ljósmyndasýning kaffiframleiðandans La- vazza. Til 1. febr. Gerðarsafn Vestursalur: Nobuyasu Yamagata. Austursal- ur: Haukur Hai'ðarson. Neðri hæð: Sigríður Rut Hreinsdóttir. Til 24. jan. Menningarmiðstöð Gerðuberg Alan James. Til 31. jan. Hallgrfmskirkja Þorbjörg Höskuldsdóttir. Til 18. febr. Hafnarborg Kaffe Fasett. Til 8. febr. Kjarvalsstaðir Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Til 24. maí. Vestursalur: Britt Smelvær. Til 7. mars. Mið- rými: Einar Garibaldi Einarsson. Til 14. mars. Listasafn ASÍ Gryfjan: Einar Már Guðvarðarson. Asmundar- salur: Helga Egilsdóttir. Arinstofa: Ný aðföng. Til 24. jan. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn Islands Fjórir frumherjar; Þórarinn B. Þorláksson, Ás- grímur Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes S. Kjarval. Til 18. apríl. Norræna húsið „Geadit“ - Sjónhverfingar: Maj Lis Skaltje, Marja Helander, Britta Marakatt Labba, Merja-Aletta Ranttila og Ingunn Utsi. I and- dyri: ljósmyndasýning: Forboðnar myndir eftir Maj Lis Skaltje. Nýlistasafnið Norðurieið - Suðurleið: Ulrich Diirrenfeld, Ul- rike Geitel, Ralf Werner, Erwin Herbst, Joachim Fleischer og Dominique Evrard. Til 31.jan. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suðurgötu Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí. Ráðhús Reykjavikur Tjarnarsalur: Edda Björgvinsdóttir. Til 25. jan. SPRON, Mjódd Jón Axel. Til 19. feb. TONLIST Laugardagur Vídalínskirkja, Garðabæ: Ljóðatónleikar Alinu Dubiks og Gerrits Schuii. Kl. 17. Seltjarnai'iicskirkja: Myi'kir músíkdagar. Blásarasveit Reykjavíkur. Kl. 20.30. Sunnudagur Salurinn, Kúpavogi: Myrkir músíkdagar. Kammersveit Reykjavíkur. Kl. 20.30. Mánudagur Listasafn ísiands: Myrkir músíkdagar. Hamra- hlíðarkórinn. Ki. 20.30. Þriðjudagur Iðnó: Poulenc-hátíð. Kl. 20.30. Miðvikudagur Hallgrímskirkja: Kammertónleikar með verk- um Mozarts. Kl. 20.30. Fimmtudagur Háskúlabiú: Sinfóníuhljómsveit íslands og Tónlistaskólinn í Reykjavík. Ki. 20. Fösludagur Bústaðakirkja: Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík. Kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Brúðuheimili, sun. 24., fim. 28. jan. Tveir tvöfaldir, lau. 23., fös. 29. jan. Bróðir minn ijónshjarta, sun. 24. jan. Solveig, mið. 27. jan. Abel Snorko býr einn, lau. 23., fós. 29. jan. Maður í mislitum sokkum, lau. 23., sun. 24., fim. 28., fös. 29. jan. Borgarleikhúsið Pétur Pan, lau. 23., sun. 24. jan. Sex í sveit lau. 23. jan. Islenska Operan Ávaxtakarfan, sun. 24. jan. Hellisbúinn, lau. 23., sun. 24., fim. 28. jan. Hinn fullkomni jafningi, lau. 23., fim. 26., fös. 29. jan. Loftkastalinn Mýs og menn, sun. 24. jan. Iðnó Frú Klein, frums. sun. 24. jan. Rommí, lau. 23., fim. 28. jan. Þjónn í súpunni, fös. 29. jan. Dimmalimm, sun. 24. jan. Tjarnarluö Svartklædda konan, lau. 23. jan. Bak við cyrað Menningarmiðstöðin Gcrðubcrg Málþing hþóðnandi radda, lau. 23. jan. Hafnarfjarðarlcikhúsið Vírus tölvuleikur, lau. 23., fos. 29. jan. Möguleikhúsið v. Hlemm Hafrún, sun. 24. jan. Snuðra og Tuðra, sun. 24. jan. Leikfélag Akureyrar Pétur Gautur, lau. 23., fós. 29. jan. 2 LESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. JANÚAR 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.