Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1999, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1999, Qupperneq 8
KORNGEYMSLUR þorpsbúa í Tellý í Dogonlandi. Geymslurnar eru aðeins utan við þorpið, þar sem byggðin var áður. FRAMANDI LAND. Horft yfir Tellý í Dogonlandi frá gamla bæjarstæðinu. Þar sem trén standa í fjarska rennur á þegar ekki er þurrkatími. DAGBÓK FRÁ LÖNDUM f VESTUR-AFRÍKU - SÍÐARI HLUTI DOGONLAND - PARADÍS ÞJÓÐHÁTTAFRÆÐINGA EFTIR SILJU SALÉ Madaní á engan kofa. Hann sefur tvær nætur til skiptis hjá konum sínum. Sú sem hann gistir \ íjá hverju sinni á að elda fyrir alla fjölskylduna. Hún situr heima meðan hinar konurnar fara á markaðinn til að selja reykelsi og framleiðslu þeirra á „ henne' ', sem er notaður til að lita hár og skreyta út imi. STÚLKUBARN af ætt Baríba í litríkum búningi eins og þar tíðkast. Ljósmyndir: Greinarhöf. Fimmtudagur, 19. febrúar, Sofara, Malí: Skyldugir betlarar og umskornar konur ABDULAYE, sonur húsvarðarins í gistiskál- anum, vekur okkur kl. 7.30. Við fáum okkur morgunkaffi hjá Sídíkí, ungum manni frá Bur- kínu Fasó sem selur „kaffi“ á götuhomi: Mikið af sætri dósamjólk og eina litla teskeið af Nescafé. Móðir hans situr á jörðinni og bakar hirsikökur á heljarstórri pönnu fullri af olíu. Smástrákar hópast að okkur og horfa á okk- ur borða. Flestir þeirra sækja Kóranskóla, þ.e. trúarskóla Múhameðstrúarmanna. Þeir eru á aldrinum 7 til 15 ára, með rakað höfuð og klæð- ast druslum. Þeir eru ekkert nema skinnið og beinin. Þeir eiga að betla til að komast af. Þeir lesa upphátt og skrifa upp úr Kóraninum, sem þeir eiga að kunna utan að - á arabísku sem þeir skilja ekki. Þjáningar, kvalir og hungur er hluti af lærdómi þeirra. Þeir bíða þess rólegir að við ijúkum við að borða, til að sleikja diskinn, eða í von um að við gefum þeim smáafgang, sem þeir setja í skál- ina sína, dós undan niðursoðnum tómötum með vírhöldu, sem gerir þá strax auðþekkjanlega. Algeng sjón í Múhameðstrúarlöndum en við getum ekki vanist henni. Gönguferð með Abdúlaye í gömlu þorpi, Sof- ara, á bakka Baní-ár. Við förum um þröngar götur, framhjá moskvum í dúkkustærð, falleg- um kofaþyrpingum úr bankó, í gulbrúnum lit og með ávölum línum. Meðfram fljótinu hafa Bózóar, vatnameistarar, sem líka eru báts- menn Níger-fljóts og kvísla þess, sett út fiskinet sín. Við tökum okkur hvíld á bakkan- um. Hópur lítiila, broshýrra stúlkna kemur til okkar; þær eru yndislegar, allar eins klæddar í dökkbláan striga, band um hárið, töfragripur um hálsinn. Þetta er búningur stúlkna sem ný- búið er að umskera. Umskurðurinn felst í að skera burt snípinn. Ungar vestrænar konur eiga erfitt með að skilja slíkan sið. Við gátum stundum rætt um þetta við N’Fa Djelí, en dæt- ur hans voru umskomar. Hann sagði að annars yrðu þær „of tilfinningaríkar“. Þetta þýðir að karlmenn geta leyft sér að eiga sér vinkonur utan hjónabands, eða a.m.k. fyrir hjónaband, en öðru máli gegnir um konur. Umú, ung Bambarakona, sem við hittum seinna með dóttur sinni, talaði góða frönsku, sem er sjald- gæft meðal kvenna. Hún sagði okkur að sam- kvæmt lögum er þessi siður bannaður í Malí nú til dags, en hefðin er sterkari en lögin. Hún er sjálf umskorin og dætur hennar verða það líka: „Þetta er bara svona.“ Föstudagur, 20. febrúar, Bamakokúra-hverfið, Sevare: Fjögurra kvenna maki Klukkan 7 um morguninn rís Maríne upp í flýti, heldur um magann og hleypur á klósettið. Það er hola bak við vegg í einu homi kofaþyrp- ingarinnar sem fjölskyldan býr í (það er viss- ara að hafa kúst eða eitthvað annað til að ýta burt stærstu pöddunum). Við emm komnar heim til Amínötu, ungu stúlkunnar sem við hittum í sömu rútu og N’Fa Djelí. Hún færir okkur vatnsfötu til að við getum farið í sturtu. Hún hitaði vatnið í stærðar potti, því að hér í Norður-Malí er heitara á daginn en kaldara á nóttunni. Þegar við komum aftur í kofann, sem Mahamadú, elsti sonurinn, hefur gengið úr fyrir okkur, finnum við á bakka vest- rænan morgunmat: kaffi, te, mjólk, brauð. Við förum hjá okkur vegna þessa dekurs. Maríne er veik. Niðurgangur, flökurleiki, svimi, hún er náfól og hætt að borða. Á meðan hún hvílir sig, fömm við Amí í gönguferð. Hún er bróðurdóttir Madaní, íjölskyldufóð- urins. Hann er um fimmtugt, á íjórar konur, fleiri em ekki leyíilegar samkvæmt Mú- hameðstrú, og tuttugu og tvö börn, enn sem komið er. Hér býr líka aldraður fóðurbróðir hans, með þriðju konu sinni og yngstu börnum þeirra. Alls um 35 manns en öllum virðist koma vel saman. Fjölskyldan býr í stórri u-laga kofaþyrpingu með um 12 kofum, sem allir snúa að húsagarð- inum. Hver eiginkona á sinn kofa, þar sem hún sefur með yngsta bami sínu. Einn kofi er ætl- aður bömum, Amí sefur hjá þeim, annar kofi er ætlaður ungum stúlkum, enn einn ungum piltum. Mahamadú, sem er um tvítugt, er sá eini, sem býr einn í kofa. Hann les undir stúd- entspróf. Madaní á engan kofa. Hann sefur tvær næt- ur til skiptis hjá konum sínum. Sú sem hann gistir hjá hverju sinni, á að elda fyrir alla fjöl- skylduna. Hún situr heima meðan hinar kon- urnar fara á markaðinn til að selja reykelsi og framleiðslu þeirra á „henne“, sem er notaður til að lita hár og skreyta útlimi. Þær selja vör- urnar með hjálp elstu dætranna. Sum yngri börnin fylgja þeim, önnur fara í skólann. Ma- daní selur varahluti og skrúfur, hann á „búð“ á markaðinum. Maríne er virkilega veik. Ég hef áhyggjur af henni. Mér tekst að sannfæra hana um nauð- syn þess að fara til læknis. Á heilsugæslustöðinni í Sevare sinnir okkur enginn. Loks stöðva ég hjúkrunarkonu. Hún segir okkur að koma aftur daginn eftir. Uti á götu hittum við mann, sem ráðleggur okkur að fara á heilsugæslustöð hersins. Hann spyr um hvað sé að Marínu og í ljós kemur að hann er dýralæknir! Herhjúkrunarmaðurinn hverfur í burtu í smástund vegna sólsetursbænarinnar en kem- ur síðan aftur til að hlusta Marínu. Hann spyr margs um ferðalag okkur og er mjög áhuga- samur um hana og einnig um fæðuna sem við leggjum okkur til munns, hvar við búum, o.s.frv. Þegar við segjumst vilja kynnast lífi 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. JANÚAR 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.