Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1999, Page 2
Sýning helguð Halldóri
Laxness í Varsjá
SÝNING helguð Nóbelsskáldinu Halldóri
Laxness verður opnuð í Bókmenntasafninu
í Varsjá, Muzeum Literatui'y, á mánudag-
inn kemur. Á sýningunni, sem menntamála-
ráðuneytið gengst fyrir, er að finna marg-
víslegar upplýsingar um skáldið, líf þess og
störf. Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra mun opna sýninguna en ráðgert er að
hún standi fram yfir opinbera heimsókn for-
seta íslands til Póllands um miðjan næsta
mánuð.
Að sögn Laufeyjar Guðjónsdóttur í
menntamálaráðuneytinu er um farandsýn-
ingu að ræða, einfalda í sniðum. I Varsjá
munu einkum verða sýnd textar og ljós-
Ljósmynd-
arar á
TVEIR erlendir ljósmyndarar, Anton Cor-
bijn og Mark Seliger, flytja fyrirlestra og
sýna myndir á Fagstefnu Ljósmyndarafé-
lags íslands núna um helgina. Fyrirlestr-
arnir verða í Salnum í Kópavogi en ljós-
mynda- og tónlistarmyndbandasýningin á
neðri hæð Gerðarsafns.
Anton Corbijn heldur sinn fyrirlestur í
dag, laugardag, kl. 15. Corbijn er aðalljós-
myndari og leikstjóri tónlistarmyndbanda
fyrir U2, Depeche Mode og Metallica, og er
ljósmyndari í auglýsingaherferðum BMW
og Tag Heuer. Mark Seliger heldur fyrir-
lestur sinn á morgun, sunnudag, kl. 15. Seli-
ger er aðalljósmyndari Rolling Stone tíma-
ritsins, U2 Magazine og Mens Journal. Báð-
ir þessir ljósmyndarar hafa undanfarna ára-
tugi ljósmyndað þekkt tónlistarfólk og kvik-
myndastjörnur, s.s. Kurt Cobain, Brad Pitt,
Michelle Pfeiffer og Madonnu, Johnny Cash
og Luciano Pavarotti. Aðgangur að íyiir-
lestrunum er ókeypis.
Einnig verða haldnar 15 mínútna íjöl-
skyggnusýningar frá Hasselblad mynda-
vélaframleiðandanum, fyrirlestrar um staf-
ræna ljósmyndun og tækjasýning með öllu
því nýjasta sem er að gerast í ljósmyndun.
Nú stendur yfir ljósmyndasýning Ljós-
myndarafélagsins og Blaðaljósmyndarafé-
lags íslands í efri sölum Gerðarsafns.
Sjá bls. 6, 7 og 8.
--------------
Cookson
selur mest
London. Reuters.
CATHERINE Cookson, sem þekkt er fyrir
sögulegar skáldsögur sínar, var á fimmtudag
útnefnd söluhæsti rithöfundur áratugarins á
Bretlandseyjum. Öllum að óvörum reyndist
síðan lítið þekktur garðyrkjumaður í öðru
sæti.
Bækur Cookson hafa selst í meira en eitt
hundrað milljónum eintaka í þrjátíu löndum
en skáldkonan lést á síðasta ári, 91 árs að
aldri. Náði hún örugglega efsta sæti sölu-
lista samtakanna Bookwatch.
Dr. David Hessayon, sem íylgdi í kjölfar
Cookson, hefur skrifað átján „Vertu þinn
eigin sérfræðingur“-garðyrkjubækur og
hafa þær selst í tíu og hálfri milljón eintaka
á þessum áratug. „Bækur mínar hafa selst í
einni milljón eintaka alveg frá upphafi," seg-
ir Hessayon sem reyndist með meiri sölu en
víðfrægir höfundar eins og Danielle Steel,
Stephen King og Dick Francis. „Eg hef
meðvitað reynt að halda mér frá sviðsljós-
inu,“ sagði Hessayon.
myndir en að sögn Laufeyjar er einfalt að
spinna við hana síðar, bæta til dæmis við
hljóðefni og myndefni. Engin handrit eru á
sýningunni. Hönnuður sýningarinnar er
Björn G. Björnsson.
Ekki hefur verið ákveðið hvert sýningin
fer frá Varsjá en Laufey segir hægan leik
að setja hana upp með skömmum fyrirvara.
Segir hún einkum horft til hátíðarhalda í til-
efni af landafundaafmælinu og kynninga á
íslenskum bókmenntum erlendis sem fær-
ast stöðugt í vöxt. Sýningin verður í vörslu
Bókmenntakynningarsjóðs.
Laufey segir ástæðuna fyrir því að Var-
sjá varð fyrir valinu sem fyrsti sýningar-
Nútímalistasafnið í New York, MoMA,
hyggst auka fyrirferð samtímamyndlist-
ar í starfsemi sinni með samruna við lít-
ið en alþjóðlega þekkt samtímalistasafn,
P.S. 1, sem er í Long Island City í Qu-
eens skammt austur af Manhattan-eyju.
HIÐ 70 ára gamla Nútímalistasafn hef-
ur legið undir ámæli fyrir að vera um of
bundið við sitt fasta safn um 100 þúsund
meistaraverka nútímamyndlistar og
sinna lítt því sem hæst ber í myndlist
dagsins í dag. Hefur safnið borið fyrir
sig aðstöðuleysi sem það hyggst nú
bæta úr en auk sýningarsala P.S. 1 hef-
ur MoMA fest kaup á vörugeymslum og
skrifstofuhúsnæði í næsta nágrenni nýja
útibúsins. „Framtíðarmöguleikar safns-
ins byggjast á stuðningi okkar við það
sem hæst ber í myndlistinni í dag,“ seg-
ir framkvæmdastjóri MoMA, Glenn
Lowry, í umfjöllun The New York
Times um samrunann í vikunni. „Mögu-
leikarnir sem þessi viðbót færir okkur
eru óviðjafnanlegir."
P.S. 1 er gömul skólabygging sem
hefur verið nýtt nndir sýningarstarf-
semi frá 1976. Byggingin hefur verið í
eigu borgarinnar sem hefur styrkt
rekstur safnsins með árlegum fjárfram-
lögum og mun áfram gera svo eftir sam-
runann. Sýningar í P.S. 1 voru 68 á síð-
asta ári en árlegur fjöldi sýningagesta
er rétt yfir 100 þúsund.
staður þá að Lech Sokol, fyrrverandi sendi-
herra Póllands á Islandi og núverandi pró-
fessor í bókmenntum í Varsjá, hæfi fært
þennan möguleika í tal við menntamálaráð-
herra. „Ráðherra leist strax vel á hugmynd-
ina og nú er sýningin að verða að veru-
leika.“
Laufey segir ráðuneytið og Bókmennta-
kynningarsjóð binda vonir við sýninguna,
hún verði til þess fallin að að auka áhuga á
Halldóri Laxness og íslenskum bókmennt-
um almennt á þessum slóðum og vonandi
víðar þegar fram líða stundir.
Margar bækur Halldórs hafa verið þýdd-
ar og gefnar út á pólsku.
Listaverkaeign safnsins er ekki telj-
anleg. Til samanburðar má nefna að ár-
legt rekstrarfé MoMA nemur um 300
milljónum dollara, rúmum 2 milljörðum
ísl. króna, og um 1,6 milljónir gesta
sækja safnið á hveiju ári. I nóvember-
mánuði sl. efndi MoMA til mikillar fjár-
öflunarherferðar þar sem stefnt er að
því að safna 650 milljónum Bandaríkja-
dollara. Þetta er stærsta fjáröflunarher-
ferð sem listasafn í Bandaríkjunum hef-
ur gengist fyrir og fregnir herma að
þegar hafi tekist að safna fyrir um
helmingi upphæðarinnar. Kaup safnsins
nú eru aðeins einn liður í útþenslu þess
á næstu árum en fyrir þremur árum
festi MoMA kaup á hótelbyggingu sem
liggur að safninu á 53. stræti á Manhatt-
an. Framkvæmdir við að samræma
byggingarnar tvær hefjast árið 2001 og
verður þá hluta núverandi safns tíma-
bundið lokað.
Með þessu útspili sínu má segja að
Nútímalistasafnið sé að svara einum
helsta keppinaut sínum í borginni, Gug-
genheim-listasafninu, sem fyrir 7 árum
jók við safn sitt á ofanverðri Manhattan
með útibúi í galleríhverfinu SoHo. Gug-
genheim ku nú hafa uppi áætlanir um
byggingu nýs safnhúss meðfram Hud-
son-ánni á vestanverðri eyjunni, ekki
langt frá nýjasta galleríhverfi borgar-
innar í Chelseá.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
mmammmmmtm
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yflrlitss. á verkum Asmundar Sveinssonar.
Gallerí Horn
Sveinbjörn Halldórsson. Til 10. febr.
Gallerí Bílar & list
Gunnar Þjóðbjörn Jóhsson.
Gallerí Stöðlakot
Guðmundur Oddur Magnússon. Til 14. febr.
Gallerí Sævars Karls
Gabríela Friðriksdóttir. Til 19. febr.
Gerðarsafn
Ljósmyndasýning: Blaðaijósmyndara og Ljós-
myndarafélag Islands. Til 14. febr.
Menningarmiðstöðin Gerðut)erg
Þetta vii ég sjá: Kristján Davíðsson, Magnús
Kjartansson og Sigtryggur Bjami Baldvins-
son. Tii 28. febr.
Hallgrímskirkja
Þorbjörg Höskuldsdóttir. Til 18. febr.
Hafnarborg
Kaffe Fasett. Tii 8. febr.
Ingólfsstræti 8
Ásgerður Búadóttir. Til 14. febr.
Kjarvalsstaðir
Austursalur: Jóhannes S. Kjarvai. Til 24. maí.
Vestursalur: Britt Smelvær. Til 7. mars. Mið-
rými: Einar Garibaldi Einarsson. Til 14. mars.
Listasafn ASI
Asmundarsalur og Gryfja: Guðbjörg Lind
Jónsdóttir. Til 14. febr. Arinstofa: Ný aðföng.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið iaugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn fslands
Carnegie Art Awaúd - Nordic Painting/Nor-
ræn málaralist í sölum 1 og 3. Til 21. febr.
Fjórir frumherjar; Þórarinn B. Þorláksson, Ás-
grímur Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes
S. Kjaiwai. Til 18. apríl.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns.
Norræna húsið
Samískar listakonur: Maj Lis Skaltje, Marja
Helander, Britta Marakatt Labba, Merja-
Aietta Ranttila og Ingunn Utsi. I anddyri: ljós-
myndasýning: Forboðnar myndir eftir Maj Lis
Skaltje. Til 14. febr.
Nýlistasafnið
Kristján Steingrímur, Helga Þórsdóttir, Gunn-
ar Straumland og Jón Sæmundur Auðarson.
Súmsalur: Safnsýning. Til 28. feb.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14.
maí.
Ráðhús Reykjavíkur
Tjarnarsalur: Ljósmyndasýningin Indland-Tí-
bet. Til 14. febr.
SPRON, Mjódd
Jón Axel. Til 19. feb.
LEIKUST
Þjóðleikhúsið
Brúðuheimili, fös. 12. febr.
Tveir tvöfaldir, lau. 6. febr.
Bróðir minn Ijónshjarta, sun. 7. febr.
Solveig, sun. 7. febr.
Abel Snorko býr einn, lau. 6. febr.
Maður í mislitum sokkum, lau. 6., sun. 7., fös.
12. febr.
Borgarleikhúsið
Pétur Pan, lau. 6., sun. 7. febr.
Horft frá brúnni, lau. 6. febr.
Búa saga, lau. 6. febr.
Mávahlátur, sun. 7. febr.
Islenski dansflokkurinn
Diving og Flat Space Moving eftir Rui Horta.
Kæra Lóló eftir Hlíf Svavarsdóttur, fim. 11.
febr.
íslenska Óperan
Ávaxtakarfan, lau. 6., sun. 7. febr.
Hellisbúinn, lau. 6., mið. 10., fös. 12. febr.
Hinn fullkomni jafningi, þrið. 9., föst. 12. fcbr.
Iðnó
Frú Klein, sun. 7. febr.
Þjónn í súpunni, lau. 6., fim. 11., fös. 12. febr.
Dimmalimm, sun. 7. febr.
Hafnarfjarðarlcikhúsiö
Vírus, tölvuskoplcikur, lau. 6. febr.
Hugleikur: Nóbelsdraumur, lau. 6., fös. 12.
febr.
Kaffileikhúsið
Hótel Hekla, frums. 7. febr. Fös. 12. febr.
Tjarnarbíó
Svartklædda konan, lau. 6. febr.
Mögulcikhúsið v. Hlemm
Hafrún, sun. 7. febr.
Snuðra og Tuðra, sun. 7. febr..
Góðan dag Einar Áskell, lau. 6. febr.
Leikfólag Akureyrar
Pétur Gautur, lau. 6., fös. 12. febr.
Bing Dao-Renniverkstæðið á Akurcyri
Rommí, frum. 12. febr.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist brcflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á
miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringíunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
, Morgunblaðiö/Einar Falur
UR húsakynnum MoMA.
MoMA eykur
umsvif sin
Morgrinblaðið. New York.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. FEBRÚAR 1999