Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1999, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1999, Blaðsíða 5
með var Skjala- og minjasafn Reykjavíkur- bæjar formlega stofnað. Skjala- og minjasafn Reykjavíkurbæjar Veturinn eftir hina formlegu stofnun safnsins afhenti Þjóðskjalasafnið hinu nýja skjalasafni bæjarins þann safnhluta sem til þessa hafði verið skilað samkvæmt reglu- gerðinni frá 1916. Söfnun skjala samkvæmt reglugerðinni frá 1951 fór hægt af stað enda húsnæði safnsins afar takmarkað. En það breyttist í febrúarlok árið 1957 er safn- ið fluttist í skrifstofuhús bæjarins að Skúla- voni þau skjöl sem hvað minnst varðveislu- gildi höfðu. Á fundi borgarráðs 4. ágúst 1967 var samþykkt að skipta embætti skjala- og minjavarðar frá og með 1. október sama ár í embætti skjalavarðar, sem átti að hafa með höndum daglega stjórn á skjalasafni borgarinnar, og embætti minjavarðar er fara átti með stjórn minjasafnsins að Skúlatúni 2 og Árbæjarsafns, svo og eftirlit með hvers konar minjum í Reykjavík. Var Lárus H. Blöndal ráðinn bæjarskjalavörð- ur en sérstök safnstjórn sá um Árbæjar- safnið, en hún hafði verið skipuð árið 1964. hirða og hvað væri ónýtt. Allt sem átti að hirða var borið niður og var þetta margra daga vinna. Við vorum síðan tveir að að- stoða Lárus í viku við að flokka þetta sund- ur og koma því á þurrkstaði. Skjölin voru lögð á bekki sem settir voni ofan á vikur- hellur og blés olíublástursofn milli bekkj- anna til þess að þurrka skjölin. Maður furð- aði sig á að það skyldi ekki kvikna í þessu þar sem um opinn eld var að ræða. En það var mikil vinna við þetta.“ Eftir brunann sáu menn að ekki mátti við svo búið standa í málum skjalasafnsins og á borgarstjórnarfundi hinn 6. febrúar Ljósmynd: Svanhildur Bogadóttir. í BORGARSKJALASAFNI Reykjavíkur að Skúlatúni 2 árið 1992. Ljósmynd: Borgarskjalasafn Reykjavíkur. ÞRÍR borgarskjalaverðir á 40 ára afmæli safnsins árið 1994. Talið frá vinstri: Lárus Blöndal, Svanhildur Bogadóttir og Jón E. Böðvarsson. 1 * « » * 1 L LjI ■ » ' Ljósmynd: Gunnar R. Ólafsson. í BORGARSKJALASAFNI Reykjavíkur í Skúlatúni 2 árið 1957. ÚR HUSAKYNNUM safnsins að Ingólfsstræti 5 árið 1954. túni 2. Þar fékk skjalasafnið neðstu hæð hússins til umráða. Var safninu skipt í tvær deildir, öðrum megin á hæðinni var komið fyrir geymsludeild með eldtraustum hurð- um og þannig gengið frá henni að hún var talin fullkomlega eldtraust. Innan hennar var byggður eldtraustur klefi fyrir verð- mætustu skjöl safnsins sem bar nafnið „Trausta". Hin safnadeildin var gerð að af- greiðsludeild. Þar var fyrir eldtraustur klefí sem fékk heitið „Forna“. Mönnum þótti vel séð fyrir húsakosti safnsins en í kringum 1968 fór að bera á þrengslum sérstaklega eftir að rýma þurfti geymslur sem safnið hafði til umráða í kjallara Höfða í Borgartúni, en um þær mundir voru uppi hugmyndir um að gera Höfða að risnubústað borgarinnar. Var þá tekið á það ráð að leita eftir öðru húsnæði sem nýst gæti sem geymslur fyrir safnið. Tillaga kom um að nýta hið mikla og ramm- byggða hús Thors Jensens að Korpúlfs- stöðum en þar var starfsemi mjólkurbús til margra ára eins og flestir vita. I eystri enda hússins, í íbúð á hlöðulofti, var gerð bráðabirgðageymsla sem nota átti þar til önnur fullkomnari og hentugri hefði verið útbúin. Til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig fluttu skjalaverðir aðeins þangað fylgi- skjöl, reikninga og kvittanahefti en það Þá var sama ár gerðar nokkrar endurbæt- ur á húsakynnum safnsins að Skúlatúni. I tengslum við þessar breytingar var sýning- arsal minjasafnsins lokað og minjasafninu síðar komið fyrir á Korpúlfsstöðum og á Árbæjarsafni. Hinn 18. janúar 1969 braust eldur út í bæjarhúsunum á Korpúlfsstöðum og urðu miklar skemmdir á þeim. Talið var að kviknað hefði í út frá rafmagni. Lárus H. Blöndal bæjarskjalavörður óttaðist að stór- fellt tjón hefði orðið á þeim skjölum sem húsin geymdu frá skjalasafninu. Því var ákveðið að hefja strax viðgerð á húsunum og björgun á þeim skjölum sem ekki höfðu orðið eldinum að bráð. Tjón skjalasafnsins var þó minna en óttast var í fyrstu og var því þakkað þeirri forsjálni skjalavarða að geyma þar einkum fylgiskjöl eins og fyrr sagði. Þó glataðist því miður nokkurt magn ýmissa skjala nokkurra bæjarfyrirtækja. Látum Diðrik Jónssson hafa orðið, en hann vann við björgunarstarfið á skjölunum: „Það urðu miklar skemmdir á skjölunum bæði af bruna og vatni. Þó nokkuð brann af skjölum. Þarna voru heil herbergi með stöflum af nótum, blöðum og kössum sem þurfti að fara í gegnum. Hvert einasta blað var tekið í sundur og skoðað. Lárus Blön- dal [bæjarskjalavörður] ákvað hvað ætti að 1969 var samþykkt tillaga Birgis ísleifs Gunnarssonar þar sem „Borgarstjórn ósk- ar eftir að borgarráð láti gera greinargerð um framkvæmdir við skjala- og minjasöfn borgarinnar, sem send verði borgarfulltrú- um.“ í framhaldi af þeirri umræðu, og greinagerðinni sem fylgdi á eftir, var ákveðið að koma upp nýrri og varanlegri geymsluaðstöðu á Korpúlfsstöðum í stað brunarústanna á háaloftinu. Það var svo ár- ið 1970 að lokið var við nýju geymsluna en hún var staðsett í fyrrum fjósi hússins. Er hún 290 fermetrar að flatarmáli og var allt gert til þess að hún yrði sem best úr garði gerð. Settar voru upp eldtraustar hurðir og gluggar klæddir blikki og hlaðið upp í þá suma. Þá voru settir upp 45 fullkomnir hjólaskápar frá Ofnasmiðjunni. Þangað voru svo fluttur meginhluti skráðra skjala, bögglar og munir safnsins svo og Kjarvals- safnið. Það tók aðeins nokkur ár að fylla þessa geymslu svo tekið var til þess ráðs að útbúa aðra jafnstóra geymslu en með venjulegum hillum. Safnahúsið að Tryggvagötu 1 5 Þótt geymslur á Korpúlfsstöðum hafi verið vandaðar í upphafi var ljóst að ákveðnir erfiðleikar voru við staðsetningu þeirra. 15 kílómetrar skildu að skrifsstofur safnsins, lesstofu og aðalskjalageymslur. Olli það oft óþægindum sérstaklega um vetrartímann og hægði augljóslega á allri afgreiðslu fyrirspurna. Skjalasafnið, sem í dag heitir Borgarskjalasafn Reykjavíkur samkvæmt samþykkt borgarstjórnar um Borgarskjalasafn 10. nóvember 1983, hefur síðustu árin verið að vinna að undirbúningi þess að flytja geymslur sínar frá Korpúlfs- stöðum í fyrirhugað safnahús að Tryggva- götu 15 ásamt allri starfsemi sinni. I því húsi, sem áður hýsti geymslur SIS sáluga og síðar búslóðageymslu Félagsmálastofn- unar, hefur verið markvisst unnið frá árinu 1996 að gera það sem hentugast er fyrir söfnin 3 sem þar eiga að vera um ókomna framtíð. Ásamt Borgarskjalasafni Reykja- víkur verða þar einnig aðalsafn Borgar- bókasafns Islands og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. I Tryggvagötu fær safnið til umráða þriðju hæð og helming þeirrar fjórðu eða um 1.400 fermetra alls. Áðalgeymsla safns- ins er öll hin fullkomnasta; með rafdrifnum renniskápum, stöðugu hita- og rakastigi og er fullkomlega eldtraust. Þar með eru að- stæður undir skjalavörslu orðnar hinar fullkomnustu sem völ er á og standast þær ýtrustu reglur um geymslur skjalasafna. Arkitektar á Teiknistofunni Oðinstorgi hafa unnið að tilhögun og teikningum af nýja húsnæðinu. Við hönnunina hafa þeir sérstaklega horft til þess að nýta sem best þann hluta húsnæðisins sem hefur burðar- þol, fyrir geymslur skjalasafnsins og að húsakynnin verði aðlaðandi bæði fyrir gesti og starfsmenn safnsins. Komið hefur verið upp sérstakri aðstöðu fyrir fræðimenn sem vinna að langtímarannsóknum og einnig er lesstofan aðskilin frá almennri afgreiðslu þannig að meira næði skapast fyrir gesti safnsins. Með flutningi safnins niður á Tryggvagötu 15 er Borgarskjalasafn Reykjavíkur orðið eitt hið fullkomnasta á Islandi sem stenst allar gæðakröfur. I Borgarskjalasafninu er skjölum raðað, þau skráð og gerð sem aðgengilegust. Leit- ast er við að geyma skjalasafn hvers ein- staklings, stofnunar eða fyrirtækis sem sérstaka einingu. Ekki er stokkað saman skjölum sem hafa orðið til hjá tveimur eða fleiri aðskildum aðilum. Þetta gildir jafnt þótt skjölin kunni að vera efnislega skyld eða fjalli um sömu mál. Skjalasafn stofnun- ar verður til í tengslum við störf hennar og geymist um ókomna tíð sem einstök heim- ild um starfsemi viðkomandi stofnunarinn- ar. Skjöl eru varðveitt til þess að hafa að þeim not. Borgarskjalasafn Reykjavíkur er opið hverjum þeim sem vill leita upplýsinga í skjölum safnsins og er aðgangur ókeypis. Athuga skal þó að skjöl borgarstofnana lúta reglum undir 4.-6. greina upplýsinga- laga þar sem kveður á um friðhelgi einka- lífs og hagsmuna fyrirtækja og annarra lögaðila. Einkaaðilar geta einnig áskilið sér rétt til þess að heimila aðgang að skjölum sem þeir hafa afhent Borgarskjalasafni. I Borgarskjalasafni eru varðveitt skjöl frá öllum stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkurborgar og mynda þau megin- stofn safnkosts safnsins. I þeim er að finna hinar ýmsu heimildir um sögu og íbúa Reykjavíkur s.s. fundagerðh- nefnda og stjórna, umræður borgarstjórnar, málasafn borgarstjóra, manntöl og íbúaskrár, skjöl frá skólum, s.s. einkunnir og bekkjarskrár, afrit af kirkjubókum, o.m.fl. Þar er einnig að finna heimildir um allar lóðir og hús í Reykjavík sem og skipulagsupplýsingar frá ýmsum tímum, fasteignaskrár, skattskrár og margt fleira sem of langt mál yrði að telja upp hér. Einnig eru á safninu einka- skjalasöfn sem Borgarskjalasafnið hefur tekið við og eru bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum. Þau skjöl gefa okkur aðra mynd af sögu og mannlífi Reykjavíkur held- ur en opinberu skjölin. Að lokum má geta þess að safnið hefur að geyma gott úrval helstu bóka sem fjalla á einn eða annan hátt um Reykjavík. Það er því einlæg von starfsfólk safnsins, nú þegar við fögnum þessum merku tíma- mótum í starfi Borgarskjalasafns Reykja- víkur, að sem flestir nýti sér starfsemi þess, hvort sem um er að ræða fræðimenn eða al- menning, sér til fróðleiks eða upplýsinga. Skjala- og minjavörður: Lárus Sigurbjörns- son 1954-1967 borgarskjalaverðir: Lárus H. Blöndal 1967-1971 Geir Jónasson 1971-1976 Jón E. Böðvarsson 1976-1987 Svanhildur Bogadóttir 1987-. Höfundurinn starfar sem skjalavörður ó Borgarskjala- safni Reykjavlkur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. MAÍ 1999 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.