Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1999, Síða 2
SCHOLA CANTORUM Á TÓNLEIKUM KIRKJULISTAHÁTÍDAR
FRUMFLUTT VERK EFTIR
OLIVER KENTISH
ISLENSKIR
LISTAMENN Á
SAMSÝNINGU
GRAFÍK-
LISTAMANNA
KAMMERKÓRINN Schola Cantorum syng-
ur undir stjórn Harðar Askelssonar á tónleik-
um Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju ann-
að kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20.30 og eru
tónleikarnir tileinkaðir flutningi Davíðssálma
gegnum aldirnar.
A tónleikunum verða eingöngu fluttir bibl-
íulegir sálmar í ólíkum tónsetningum, allt frá
gregorsku sálmtóni til fjölradda tónsmíða 20.
aldar. „Tónsetning Davíðssálma hefur verið
fyrirferðarmikil hjá kirkjutónlistarsmiðum á
öllum tímum. A þessum tónleikum verður
flutt úrval af mótettum frá tveimur skeiðum í
kirkjutónlistarsögunni. Ur bókinni Brunnur
Israels eftir Johann Hermann Schein flytur
kórinn nokkrar mótettur, sem sjaldan eða
aldrei hafa heyrst hér. Þar er þýskur texti
Sálmanna túlkaður á mjög myndrænan hátt,
með svipuðum hætti og samtímamaður
Schein, Heinrich Schútz, gerði. Sem and-
stæða tónverka barokkhöfundarins verða
fluttar mótettur frá okkar dögum. Kórinn
frumflytur mótettu yfir Sálm 25 eftir Oliver
Kentish, sem var sérstaklega pöntuð fyrir
Kirkjulistahátíð. Meðal annarra verka á tón-
leikunum má nefna verk eftir Poulenc, Jón
Hlöðver Askelsson og Hörð Askelsson,
stjómanda kórsins," segir í fréttatilkynningu
frá Kirkjulistahátíð.
Oliver Kentish segir það mikinn heiður fyr-
Reuters
BEATRIX Hollandsdrottning virðir fyrir sér málverk á sérstakri hátíð sem haldin var á mið-
vikudag í Van Gogh-safninu í Amsterdam í tilefni þess að það var opnað á ný.
VAN GOGH-SAFNIÐ
OPNAÐ Á NÝ EFTIR
ENDURBÆTUR
Amsterdani. Reuters.
VAN Gogh-safnið í Amsterdam hefur verið
opnað formlega á nýjan leik og var Beatrix
Hollandsdrottning meðal gesta sem mættu til
opnunarhátíðarinnar. Safnið hefur verið lokað
í tíu mánuði á meðan kostnaðarsamar endur-
bætur fóru fram á híbýlum þess og jafnframt
var japanski arkitektinn Kisho Kurokawa
fenginn til að hanna nýbyggingu, sem byggð
var við safnið.
Upphaflega var einungis gert ráð fyrir að
um sex hundruð þúsund gestir heimsæktu
Van Gogh-safnið á ári hverju en undir það síð-
asta voru gestimir komnir vel yfir eina millj-
ón og var því gripið til þess að ráðs að stækka
safnið. Era salir þess nú, að aflokinni stækk-
uninni, rúmlega tvö þúsund fermetrar að
stærð.
í viðbyggingunni verður boðið upp á sýn-
ingar á nútímalistaverkum en í meginsal
safnsins - sem einnig vom gerðar gagngerar
endurbætur á - verður áfram að finna megin-
verk þess, m.a. hin ýmsu málverk Vincents
Van Goghs.
I tilefni opnunarinnar nú var efnt til sýning-
ar á listaverkasafni Theos Vans Goghs, bróður
Vincents, en hann starfaði sem listaverkasali í
París á öndverðri nítjándu öld. Er að finna
verk eftir Bemard, Gauguin og Toulouse-
Lautrec á sýningunni, sem stendur fram í
september en verður þá flutt til Parísar.
HAFIÐ í VERKUM EYJASKÁLDA
í JÚLÍ í sumar gengst Norræna stofnunin á
Álandseyjum fyrir dagskrá um hafíð í ljóðum
og sögum norrænna eyjaskálda. „Hafið“ nefn-
ist dagskráin í flutningi leikara á sænsku og
em skáldin frá Alandi, Islandi, Færeyjum og
Grænlandi. Dagskráin er samvinnuverkefni
Norrænu stofnananna á Alandseyjum og
Grænlandi og norrænu húsanna í Færeyjum
og á Islandi.
Flytjendur ljóða og texta em Borgar Garð-
arsson, Rune Sandlund, Varste Bemdtsson
og Hans Tórgard. Píanóleikarinn Vladimir
Shafranov sér um tónlist. Stjómandi dag-
skrárinnar er Eyun Johannessen.
I ágúst verður dagskráin flutt í heimalönd-
um skáldanna og á næsta ári er fyrirhugað að
flytja hana í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Gefið verður út rit með ljóðum og textum þar
sem skáldin verða kynnt.
Fimm íslenskir höfundar
Meðal skálda sem lesið verður eftir em
Færeyingarnir William Heinesen, Christian
Matras, Rói Patursson og Gunnar Hoydal,
Karl-Erik Bergman frá Alandseyjum og
Grænlendingurinn Moses Olsen.
Flutt verða ljóð og textar eftir fimm íslensk
skáld: Halldór Laxness, Stein Steinarr, Gunn-
ar Gunnargson, Jóhann Hjálmarsson og
Snorra Hjartarson.
Dagskráin verður í Norræna húsinu í
Reykjavík 10. ágúst næstkomandi.
ir sig að hafa verið
beðinn að semja
fyrir Kirkjulista-
hátíð. Hann hafi
samið verkið, sem
er fimmraddað,
með kórinn og
kirkjuna í huga.
„Ég nota þögn til
að láta hljómana
njóta sín í kirkju-
rýminu. Og ég geri
kröfur til kórsins,
sem er besti kór-
inn á landinu. Ég
samdi verkið á
föstudaginn langa
og það ber keim af
því, maður var í
þungum þönkum,"
segir Oliver. Hann heyrði verkið fyrst flutt á
æfingu Schola Cantorum á dögunum og
kveðst mjög sáttur við útkomuna. „Petta er
alveg eins og ég hafði ímyndað mér það,
þannig að ég hef engar áhyggjur," segir
hann.
Hádegistíð í Hallgrímskirkju
Hádegistónleikarnir I Hallgrímskirkju í dag
verða með dálítið öðra sniði en venjulega. Þá
verður sungin hádegistíð í tengslum við Da-
víðssálmastefnu sem þá stendur í kirkjunni og
er hluti af dagskrá helgarinnar sem er helguð
Davíðssálmum. Þátttakendur stefnunnar
munu leiða tíðasönginn en einnig verður
spunnið á orgelið yfir Davíðssálmastef.
SAMSÝNING norrænna grafíklistamanna
stendur þessa dagana yfir í Óðinsvéum og em
fimm íslenskir grafíklistamenn meðal þátttak-
enda. Sýningin er liður í átaki Fjónska graf-
íkverkstæðisins í því að kynna grafíklist, list-
form sem hefur átt undir högg að sækja.
Islensku þátttakendurnir eru þau Benedikt
Kristþórsson, Birna Matthíasdóttir, Guðný
Björk Guðjónsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og
Sigrún Ögmundsdóttir. Birna Matthíasdóttir
segir verk þeirra mjög ólík, en þar megi finna
tölvugrafík, ljósmyndir, myndir unnar með
þurrnál og ætingar. íslensku þátttakendurnir
era allir frá félaginu íslensk grafík.
Að sögn Birnu hefur Fjónska grafíkverk-
stæðið staðið fyrir viðburðum frá því um ára-
mót. Meðal annars hafa verið haldnir fyrir-
lestrar, sýningar og boðið upp á vinnuhópa.
Einnig hefur verið vakin athygli á grafíklist-
inni með eftirprentunum af grafíkverkum í
strætisvögnum bæjarins. Vonast Fjónska graf-
íkverkstæðið með því að ná til nýrra áhorf-
enda.
Um 65 listamenn frá 13 löndum taka þátt í
sýningunni og koma listamennirnir m.a. frá
Eistlandi, Litháen og Englandi. Verkin ná yfir
vítt svið grafíklistarinnar og má sjá þar hefð-
bundnar grafíkmyndir í bland við tilraunir til
að víkka svið listformsins.
Norræna samsýningin er þó ekki eina graf-
íksýningin sem haldin er í Óðinsvéum þessa
dagana, því að sögn Birnu standa þar einnig
yfir fieiri sýningar og er þeim dreift um borg-
ina. Þá segir Birna hugmyndir uppi um að gera
grafíksýninguna að reglulegum viðburði þar
sem nýtt land haldi sýninguna hverju sinni.
Oliver
Kentish
MENNING/
LISTIft
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Yfirlitssýning á verkum Asmundar Sveinsson-
ar.
Gallerí Fold, Kringlunni
Guðrún Öyahals. Til 14. júlí.
Gallerí Stöðlakot
Rannveig Jónsdóttir. Til 11. júlí.
Gallerí Sævars Karls
Gylfí Gíslason. Til 7. júlí.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Út úr kortinu: Islensk/frönsk sýning. Til 8.
ágúst.
Hallgrímskirkja
Georg Guðni Hauksson. Til 1. sept.
Hafnarborg
Sverrissalur: Ljósmyndasýning Johns R.
Johnsen. Til 28. júní.
Ingólfsstræti 8
Hreinn Friðfinnsson. Til 18. júlí.
Kjarvalsstaðir
Vestursalur: Karel Appel. Austursalur: Verk
úr eigu safnsins. Til 29. ágúst.
Listasafn ASÍ
Samsýningin Cellulose: Jane Balsgaard, Ga-
briella Göransson, Gjertrud Hals og Hilde
Hauan Johnsen. I öllum sölum. Til 27. júní.
Listasafn Árnesinga
Ættarmunstrið: Steinunn H. Sigurðardóttir og
Inga Jónsdóttir. Til 27. júní.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudaga 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands
Yfirlitssýning á völdum sýnishornum af ís-
lenskri myndlist. Sumarsýning.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýning á verkum listamannsins. Til 29. ágúst.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sumarsýningin Spor í sandinn.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi
Sýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar. Til 11.
júlí.
Mokkakaffi
Friðrik Örn, ljósmyndasýning. Til 9. júlí.
Nýlistasafnið
16 listamenn frá París: Polylogue 163. Til 27.
júlí.
Norræna húsið
Ljósmyndir af listafólki og menningarfrömuð-
um frá menningarborgum Evrópu árið 2000.
Anddyri: Norræni ljósmyndaháskólinn. Til 15.
ág.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Ragnar Bjarnason, Gunnar Árnason, Svava
Skúladóttir, Þór Vigfússon, Óskar Beck.
Handverk í Húnaþingi, 8 sýnendur. Til 29.
ágúst.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarf.
Sýning á hafrænum málverkum.
Sparisjóður Garðabæjar
Pétur Gautur. Til 1. ágúst.
SPRON, Álfabakka
Sigurður Örlygsson. Til 9. júlí.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning opin kl. 13-17 daglega til 31.
ágúst.
Þjóðarbókhlaðan
Undir bláum sólarsali - Eggert Ólafsson. Til
31. ágúst.
TÓNLIST
Sunnudagur .
Hallgrímskirkja: Schola Cantorum. Kl. 20.30.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Sigurbjörn Bernharðsson
fiðluleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari. Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Selfosskirkja: Musica Colorature: Auður Haf-
steinsdóttir, Peter Tompkins og Guðríður St.
Sigurðardóttir. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Maður í mislitum sokkum, lau., 26. júní.
Borgarleikhúsið
Litla hryllingsbúðin, lau. 26., fós. 2. júlí.
Þjóðleikhúsið
Hellisbúinn, fós. 2. júlí.
Loftkastalinn
Söngleikurinn Rent, lau. 26. júní.
Hattur og Fattur, sun. 27. júní.
Iðnó
Hádegisleikhúsið: 1000-eyja sósa, fös. 25., lau.
26., mið. 30. júní, fim. 1., fös. 2. júlí.
Norræna húsið
Jo Stromgren „Maskuline Mysterier". Kl. 20.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á
miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
6691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 26. JÚNÍ 1999