Lesbók Morgunblaðsins - 23.10.1999, Side 12
en undir lok seinni heimsstyrjaldar. Þess í
stað leitaði hann fróunar í fjárhættuspilum
og gerðist tíður gestur í spilavítum.
Þeirri fíkn viðhélt hann um ævi og aldur,
ásamt dálæti á kampavíni, veisluhöldum og
hnyttnum tilsvörum. Mörg urðu fleyg. Þegar
Bacon var orðinn einn virtasti listamaður
Englands á hann að hafa svarað því til, þegar
ómannglöggur meðlimur konungsfjölskyld-
unnar spurði í veislu hvað hann gerði: „Eg er
gömul drottning.“
Málari í eldi og rústum
Bacon hélt þó hinn langa og sjálfskipaða
hvíldardag sinn ekki alveg heilagan, því árið
1937 tók hann þátt í samsýningu sem vinur
hans Eric Hall kom á koppinn og var hugsuð
til að vekja athygli á ungum breskum málur-
um. Sýningin var haldin í Thomas Agnew
Gallery og var meðal annars prýdd verkum
eftir Roy de Maistre, Graham Sutherland,
Pasmore og Hitchens, auk Bacons, þannig að
sjá má að talsverðar vonir voru bundnar við
Bacon, þótt vinátta þeirra Hall hafi vafalaust
ekki torveldað aðgang hans að sýningunni.
Seinni heimsstyrjöld hófst 1939 að undan-
gengnum skrípaleik við landamæri Þýska-
lands og Póllands og áður en Bretar gátu svo
mikið sem klárað úr tebollunum sínum voru
þeir komnir á kaf í blóðbaðið. Þó ekki Bacon,
því hann var úrskurðaður óhæfur til að
gegna herþjónustu vegna þráláts asma, sem
lagaðist tæpast í skonsum þeim og kytrum
sem hann leigði til að stara ekki á auðan
strigann úti í Lundúnaþokunni.
Bacon var samt sem áður ekki algjör hom-
reka í stríðsbröltinu öllu. Hann skráði sig í
Björgunarsveitir borgara, eða eitthvað sam-
bærilegt, og réðst ótrauður á rústirnar sem
sprengjur nasista skildu eftir. Menn telja af-
ar sennilegt að þetta óhugnanlega starf, sem
fólst ekki síst í að grafa skaðbrunnin lík eða
líkamshluta upp úr logandi og rjúkandi gijót-
hrúgum sem áður töldust til bygginga, hafi
haft sterk og varanleg áhrif á myndsýn
Bacons.
Þarna birtist sláturhúsið í skelfilegustu
mynd sinni. Og sláturdýr voru Bacon að
skapi, hann heillaðist af litnum, nályktinni og
ávölum en torkennilegum formum sem
héngu á krókum yfir blóðpollum, líflaus með
öllu en um leið áleitin og ögrandi ábending
um líf. Honum þótti kjötið fagurt, hið lífræna
form í búningi dauðans. En hann minnti á að
hann vildi ekki túlka verk sín sjálfur. „Þegar
öllu er á botninn hvolft er ég ekki að reyna að
segja neitt, ég er að reyna að gera eitthvað.
Og þegar ég byrjaði að mála átti ég ekki von
á að nokkur myndi kaupa verkin mín. Eg
málaði til að örva sjálfan mig... Og því er það
svo, að þótt ég hafi með tíð og tíma orðið svo
lánsamur að geta selt verk mín og lifað á mál-
aralistinni held ég að ég láti mér enn í léttu
rúmi liggja hvað öðrum finnst um verkin,"
sagði Bacon.
Stríðsárin mörkuðu önnur þáttaskil í lífi
listamannsins, því hann tók upp á þeim
óskunda að eyðileggja eldri verk sín og af
þeim sökum eru aðeins til tíu til fimmtán
verk eftir hann frá árunum 1929 til 1944.
Blóðbaðið byrjar
A þessum árum dvaldi hann einnig um
tíma úti á landsbyggðinni og rjátlaði lítillega
við málverkið, sem lét hann ekki í friði. Með
áframhaldandi listsköpun í huga festi hann
kaup á vinnustofu árið 1942 í Cromwell Place
númer sjö í South Kensington og stöðugum
búferlaflutningum linnti um níu ára skeið.
Þeir Sutherland voru mikið samvistum, auk
þess sem Bacon kynntist málaranum Lucien
Freud, sem átti eftir að verða einn af bestu
vinum hans, jafnframt því að sitja síðar meir
fyrir hjá Bacon.
Bacon sagði að hann hefði í raun ekki byrj-
að að mála af fullri alvöru fyrr en 1943-1944
og það stóð heima, í stríðslok hafði hann lokið
við Three Studies for Figures at the Base of
a Crucifixion, og var reiðubúinn til að setja
verkið á samsýningu í apríl 1945, í Lefevre
Gallery. Ahrifin létu ekki á sér standa.
Málverkin þijú sýna ókennilegar verur
sitjandi á borði eða stólkolli, sambræðing
dýra og manna, með bundið fyrir augu,
hvassar tennur og sköpulag sitt teygt fram
eins og slanga sem hefur komið auga á bráð.
Dökkappelsínugulur bakgrunnurinn er
þykkmálaður og minnir á blóð. Grunlausir
sýningargestir, jafn umhugað að gleyma við-
bjóði stríðs og slátrunar og öðrum löndum
þeirra, hrökkluðust út við þá sjón sem mætti
þeim við inngang sýningarsalarins, eða stóðu
eins og negldir við gólfið. Nokkrum árum síð-
ar, eða 1954, keypti Tate Gallery þetta verk
málarans. En ögn fyrr, eða strax eftir stríð,
fór að blása byrlegar fyrir Bacon.
Hann tók þátt í ýmsum samsýningum og
vakti talsverð viðbrögð, þar á meðal keypti
Erica Brausen, forstjóri Hanover Gallery,
árið 1946 verkið Painting eftir hann, sem
Museum of Modern Art eignaðist tveimur ár-
um síðar. Sala þýddi tekjur og Bacon var tíð-
Stúdía fyrir sjálfsmynd, hluti af þrískiptu verki eftir Bacon, frá 1985-86.
Portrett af George Dyer á hjóli, sem Bacon máladi árið 1966, fimm árum áður en þessi ástmaður
hans og vinur framdi sjálfsmorð.
ur gestur í Monte Carlo næstu árin, þar sem
hann dvaldi á lúxushótelum eða leiguíbúðum,
sólundaði fé í spilavítum og málaði þegar og
ef tími gafst til. Hann dvaldist líka um hríð í
Tangiers á árunum 1956 til 1962, þar sem
sagt er að hann hafi leigt íbúð við hlið banda-
ríska rithöfundarins Williams Buiroughs, en
þeir héldu kunningsskap um langa hríð.
Honum fannst birtan við Miðjarðarhafið
þó of skær til að mála og sinnti list sinni frek-
ar í Lundúnum, sem hann sneri alltaf aftur til
þegar veskið tæmdist. í Monte Carlo gerði
hann þó mikilsverða uppgötvun þegar hann
málaði á bakhlið annars verks vegna þess að
hann átti ekki aur aflögu fyrir striga, og fann
að honum féll betur í geð sú hlið efnisins.
Hann málaði á bakhliðar uppfrá því. „Ég er
gagntekinn af því að mála eins og Velasquez,
en með áferð flóðhestaskráps," sagði Bacon.
Kynni þeirra Brausen urðu langvinn og
giftusamleg um margt, því hún skipulagði
einkasýningu hans í galleríinu í nóvember ár-
ið 1949 og annaðist sölu verka hans næstu tíu
ár. Bacon lauk við myndröðina Heads fyrir
sýninguna og í sjöttu mynd þeirrar raðar
getur að líta æpandi páfann í fyrsta skipti, en
kauði átti eins og fyrr var getið eftir að vera
þaulsætinn í myndheimi Bacons um langa
hríð.
I málverkinu „Heads Surrounded by Sides
of Beef ‘ frá árinu 1954 birtist vera sem gæti
verið afturganga úr kvikmynd Eisensteins
Alexander Nevsky, en kjötstykkin voru hins
vegar fengin að láni úr verki eftir Rem-
brandt. Kvikmyndir og verk annarra mynd-
listarmanna voru uppspretta sem Bacon sótti
óspart í og auk áðumefndrar myndar má
nefna að honum var einkar hugleikið öskr-
andi konuandlit úr annarri kvikmynd Eisen-
steins, Beitiskipinu Potemkin. Önnur upp-
spretta innblásturs var rannsókn á
hreyfingum líkamans sem birtist í verkum
Muybridge, sem var frumkvöðull í ljós-
myndalistinni fyrir og um síðustu aldamót.
„Um leið og ég kom inn vissi ég að þarna
gæti ég unnið,“ sagði Bacon um íbúðina og
vinnustofuna sem hann flutti inn í í upphafi
sjöunda áratugarins. Um var að ræða litla
íbúð yfir bílskúr í Reece Mews í suðurhluta
Kensington-hverfis í London, eitt herbergi
með vinnuaðstöðu og eitt herbergi til íveru.
Hann bjó þar og vann til dauðadags. Ári eftir
að hann bjó sér þar hreiður lauk hann við
fyrsta umfangsmikla þrískipta verk sitt,
Þrjár stúdíur fyrir krossfestingu. Hann var
ölvaður að eigin sögn á meðan hann málaði
verkið, í fyrsta skipti. Hann nefndi hins veg-
ar ekki um hvers konar ölvun var að ræða,
kannski var hann eingöngu ölvaður af hug-
myndum.
Nær óslitin sigurganga
Tate Gallery hélt yfirlitssýningu á verkum
Bacons í maí 1962 og bauð upp á 90 verk
listamannsins. Breskur blaðamaður sem
skoðaði sýninguna kvartaði yfir að finna
hvorki „andlega upplyftingu" né „sálræna
huggun“ í verkum listamannsins. „Hvaða
áhrif mun sýning eins og sú sem Bacon hefur
sett upp hafa á ungar sálir - og raunar hvaða
sál sem er - fyrir utan þær sem eru örugg-
lega nú þegar spilltar og hrjúfar?"
Sýningin naut að vonum mikilla vinsælda
og var sett upp víða í Evrópu í kjölfarið.
Bacon hélt einkasýningu ári síðar og
Guggenheim-safnið í New York setti upp
yfirlitssýningu. Sama ár, 1963, kynntist hann
George Dyer, sem sat næstu árin margsinnis
fyrir hjá Bacon, auk þess að vera ástmaður
hans. Dyer átti þess kost að samgleðjast oft-
lega með Bacon næstu árin, enda sigurganga
hans á sviði málaralistarinnar nær óslitin,
ekki síst í Frakklandi þar sem hann var í sí-
fellt meiri metum. Adam var þó ekki lengi í
Paradís. Daginn áður en gríðarstór yfirlits-
sýning á verkum Bacons hófst í Grand Palais
í París árið 1971 framdi Dyer sjálfsmorð í
hótelherbergi þeirra félaga.
Samband þeirra hafði verið stormasamt en
Bacon varð mikið um þetta óvænta fráfall
kærastans og málaði minna næstu ár en hann
hafði gert um áratuga skeið og þau verk sem
hann málaði báru því vitni að hann var langt
niðri. Heldur hýrnaði þó geð hans árið 1974,
þegar hann kynntist John nokkrum
Edwards, en þeir viðhéldu vináttu til dauða-
dags Bacons, auk þess sem Edwards sat fyrir
hjá listamanninum.
Þremur árum síðar voru sýnd í Claude
Bernard-sýningarsalnum í París nýleg verk
Bacons og voru verkin hengd upp í litlum
herbergjum, sem gladdi listamanninn ósegj-
anlega. Hann áleit sýninguna vera þá bestu
sem sett hefði verið upp í galleríi. Sýningin
var lofuð í bak og fyrir og svo mikil var ásókn
gesta að lögreglan varð að loka götum um-
hverfis sýningarsalinn fyrir umferð.
Frakkar hafa um langa hríð verið duglegri
en flestar þjóðir aðrar, þar á meðal Bretar,
að vegsama Bacon, þótt þeir síðarnefndu við-
urkenni hann í dag sem einn áhrifamesta og
athyglisverðasta myndlistarmann þessarar
aldar í Englandi og víðar. Bacon keypti sér
íbúð í París um miðjan níunda áratuginn og
varð tíðfórult þangað, m.a. var hann við-
staddur opnun sýningar á verkum sínum í
Maeght-Lelong-sýningarsalnum 1984 og á
sama stað þremur árum síðar. Á sýningunni
1987 gat enginn velkst í vafa um að íbúar höf-
uðborgar Frakklands höfðu Bacon í háveg-
um, gríðarlegt fjölmenni sótti sýninguna og
svo mikil var aðsóknin raunar að umferðar-
teppur mynduðust í næsta nágrenni Lelong.
„Við eyðum lífi okkar nær alltaf bakvið
tjöld og þegar fólk segir að því finnist verkin
mín ofsafengin held ég stundum að mér hafi
öðru hvoru tekist að draga frá eitt eða tvö
þessara tjalda eða blæja,“ sagði Bacon í við-
tali sem tekið var við hann á efri árum. Ári
síðar, 1988, sýndi Bacon í Moskvu og varð
einn fyrsti, ef ekki sá fyrsti, vestræni mynd-
listarmaðurinn til að halda sýningu í lifanda
lífi í Sovétríkjunum sálugu.
Árið 1992 lést Francis Bacon úr hjartas-
lagi í Madrid á Spáni, eftir að hafa veikst af
lungnabólgu. Hann var einsemdin uppmáluð
þegar hann dó, eða eigum við að segja; hvarf
á vit þess afls sem afmyndar okkur öll.
1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. OKTÓBER 1999