Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Guðmundsson sýnir myndir um manninn í samtímanum. Jón Baldur Hlíðberg sýnir náttúrumyndir. TVÆR SÝNINGAR OPNAÐAR í HAFNARBORG MENN OG MÁLLEYSINGJAR SIGURÐUR Magnússon og Jón Baldur Hlíðberg listmálarar opna málverkasýningar í Hafnarborg í dag, laugardaginn 30. októ- ber. Sigurður sýnir u.þ.b. 20 olíumálverk sem öll eru máluð á sl. tveimur árum. Sýn- inguna kallar Sigurður „Fleiri þankastrik" og vísar til framhalds á fyrstu einkasýningu sinni hér á íslandi í Ásmundarsal 1997. Jón Baldur sýnir myndir af fuglum, fískum, hryggleysingjum og blómum og kynnt verða mismunandi vinnubrögð á bak við myndirnar með skissum og öðrum vinnugögnum ásamt stuttri myndbandsspólu. Maðurinn i samtímanum Myndir Sigurðar eru fígúratívar og frá- sagnarlegar og vísa allar til mannsins og stöðu hans í umbreytingum samtímans. Áhrif sækir Sigurður einkum á slóðir norð- ur-evrópskrar fantasíu með expressiónísk- um og rómantískum áhrifum. Myndmálið er sótt til hins innri raunveruleika frekar en ytri og myndgerð, litir, teikning og skali frjáls og óbundin, segir í fréttatilkynningu. Þetta er fjórða einkasýning Sigurðar á Is- landi en auk þess hefur hann sýnt í Englandi og Bandaríkjunum og verið þátt- takandi í nokkrum samsýningum heima og erlendis. Sigurður stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1985-1991, en hélt síð- an til framhaldsnáms til Englands 1993. Þar lauk hann prófí frá Goldsmith’s college, Uni- versity of London árið 1994 og árið 1996 prófí í málaralist frá Central St. Martins College of Art and Design, London Institut. Síðan hefur Sigurður búið og starfað hér heima og helgað tíma sinn málaralistinni. Sýningin í Hafnarborg stendur til 27. nóv- ember. Eftir opnunina verður sýningin opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12 til 18. Nóttúran Jón Baldur fæddist í Reykjavík 1957. Hann ólst upp í Garðabæ í náinni snertingu við fjölbreytta náttúru umhverfis æskuslóðir sínar og austur á héraði þar sem hann var nokkur sumur í sveit. Enda fór svo að fljótt fór að bera á miklum áhuga á náttúrufræði, þó einkum fuglum. Þessi áhugi á fuglum sameinaðist teikniáráttu, sem síðar varð til þess að hann fór að sækja námskeið í teikn- ingu við Myndlistaskólann í Reykjavík vet- urinn 1982-83. Þaðan lá leiðin í Myndlista- og handíðaskóla íslands, en þar var hann við nám 1983-85. Strax að skóla loknum hóf hann störf við myndlýsingar þótt oft væru verkefnin stopul á þeim vettvangi í upphafi. Fyrstu árin starf- aði hann jafnframt teiknivinnunni við Náttúr- fræðistofnun íslands og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Hin síðari ár hefur Jón þó helgað sig teiknarastarfínu ásamt því að gera út fjallabíl í ferðir með erlenda náttúruunnend- ur á sumrum. Ennfremur hefur Jón kennt lít- illega, flest hin síðari ár við MHI. Auk fuglabókarinnar hefur Jón málað myndir í aðrar bækur um fugla, fiska og hvali. Eftir Jón liggur líka fjöldi mynda í ýmsum kennsluritum, margvísleg veggspjöld fyrir námsgagnastofnun og sveitarfélög og fleira í þeim dúr. Jón vinnur nú að nokkrum stórum verkefnum á þessu sviði og er meðal annars væntanlegt stórt alþjóðlegt rit um líf- fræðilega fjölbreytni, en Jón var valinn sem einn helsti myndhöfundur þess úr stórum hópi teiknara. Sýningin stendur til 13. desember og er op- in alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12 til 18. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn Yfírlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14 Erlingur Jón Valgarðsson (elli). Til 7. nóv. Gallerí Fold, Kringlunni Brian Pilkington og Gunnar Karlsson. GalleriÉhlemmur.is. Þverholti 5 Baldur J. Baldursson og Kristinn Pálmason. Til 21. nóv. Gallerí Stöðlakot Eirún Sigurðardóttir. Til 14. nóv. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti Jón Axel. Til 4. nóv. Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg 16 Bryndís Kondrup. Til 7. nóv. Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs Örn Ingi, Margrét Jónsdóttir, ljósmyndasýning, Ar- þúsunda arkitektúr. 31. okt. Gerðuberg Þetta vil ég sjá: Friðrik Þór Friðriksson. Til 14. nóv. Hafnarborg Sverrissalur: Sigurður Magnússon. Aðalsalur: Jón Baldur Hlíðberg. Til 13. des. Hallgrímskirkja Jón Axel Björnsson. Til 28. nóv. Hönnunarsafn íslands, Garðatorgi íslensk hönnun frá 1950-1970. Til 15. nóv. Byggðasafn Eyrarbakka, Húsið Klæðið fljúgandi. Til 31. okt. i8, Ingólfsstræti 8 Trash/Treasure - Ina T og Beu T. Til 31. okt. Kjarvalsstaðir Grafík í mynd: Innlendir og erlendir listamenn. Ragna Róbertsdóttir. Til 19. des. Listasafn ASÍ Ásmundarsalur og Gryfja: Elsa Dóróthea Gísladótt- ir, Guðrún Vera Hjartardóttir, Helgi Hjaltalín, Hreinn Friðriksson, Jón Bergmann Kjartansson, Pétur Örn Friðriksson og Sólveig Þorbergsdóttir. Til 14. nóv. Arinstofa: Verk úr eigu safnsins. Listasafn á Akureyri Stefán Jónsson og dauðahvötin, yfírlitssýning á vegum safnsins. Til 5. des. Listasafn Árnesinga Gísli Sigurðsson og Sigrid Valtingojer. Til 1. nóv. Listasafn Einars Jónssonar Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Högg- myndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn íslands Ásgrímur Jónsson í Skaftafellssýslum. Fimm Súmmarar. Til 28. nóv. Listasalurinn Man, Skólavörðustíg 14 Harpa Björnsdóttir. Til 7. nóv. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi Halla Haraldsdóttir. Til 7. nóv. Mokkakaffí Einhverfír - heyrnalausir: Sigurður Þór Elíasson, Gísli Steindór Þórðarson. Til 5. nóv. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson. Norræna húsið Prinsessudagar. Til 31. okt. Nýlistasafnið Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Cathrine Evelid, Helga G. Óskarsdóttir, Ingvill Gaarder, Ólöf Ragnheiður BJörnsdóttir og Stine Berger. Til 23. okt. One o one Gallerí, Laugavegi 48b Hljóðverk Páls Thayer. Til 9. nóv. Snegla listhús, Grettisgötu Samsýning 15 listamanna. Til 30. okt. Sparisjóðurinn í Garðabæ, Garðatorgi Freyja Önundardóttir, Guðný Jónsdóttir, Gunn- hildur Ólafsdóttir, Ingibjörg Hauksdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Kristín Blöndal og Sesselja Tómas- dóttir. Til 5. nóv. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v/ Suður- götu Handritasýning opin þriðjudaga-föstudaga kl. 14- 16. Til 15. maí. TONLIST Laugardagur Bústaðakirkja: Árnesingakórinn. Kl. 16. Sunnudagur Listasafn Islands: Guðrún S. Birgis- dóttir flautuleikari, Elín Guðmundsdóttir sembal- leikari og Olöf Sesselja Óskarsdóttir gömbuleikari. Fríkirkjan í Reykjavík: Skálholtskórinn. Kl. 20. Miðvikudagur íslenska óperan: Óperan Manns- röddin. Kl. 12.15. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Sjálfstætt fólk: Bjartur, lau. 30. okt. Fös. 5. nóv. Ásta Sóllilja, lau. 30. okt. Fim. 4. nóv. Fedra, sun. 31. okt. Abel Snorko býr einn, mið. 3. nóv. Glanni glæpur í Latabæ, sun. 31. okt. Borgarleikhúsið Vorið vaknar, fös. 5. nóv. Sex í sveit, mið. 3. nóv. Litla hryllingsbúðin, lau. 30. nóv. Fegurðardrottningin frá Línakri, lau. 30. okt. Pétur Pan, sun. 31. okt. Leitin að vísbendingu um vitsmunalíf í alheiminum, frums. fös. 5. nóv. íslenski dansflokkurinn: NPK, Maðurinn er alltaf einn, Æsa: Ljóð um stríð, sun. 31. okt. Fim. 4. nóv. Islenska óperan Baneitrað samband, lau. 30. okt. Hellisbúinn, sun. 31. okt. Fös. 5. nóv. Loftkastalinn Hattur og Fattur, sun. 31. okt. SOS Kabarett, lau. 30. okt. Bioleikhúsið, Bfóborginni við Snorrabr. Kossinn, lau. 30. okt. Iðnó Frankie & Johnny, lau. 30. okt. Mið. 3. nóv. 1000 eyja sósa, lau. 30. okt. Gleym-mér ei og Ljóni Kóngsson, lau. 30. okt. Þjónn í súpunni, sun. 31. okt. Fim. 4. nóv. Leikhússport, mán. 1. nóv. Kaffíleikhúsið Ævintýrið um ástina, sun. 31. okt. Tjarnarbíó Töfratívolí, sun. 31. okt. Mögulcikhúsið Langafí prakkari, lau. 30., sun. 31. okt. Mán. 1. nóv., fös. 5. nóv. Hafnarfjarðarleikhúsið Salka ástarsaga, eftir Halldór Laxness, lau. 31. okt. Fös. 5. nóv. Hugleikur Völin & kvölin & mölin, lau. 30., sun. 31. okt. Tjarnarbíó Töfratívolí, sun. 31.okt. Leikfólag Akureyrar Kdukkustrengir, lau. 30. okt. Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ Kötturinn fer sínar eigin leiðir, lau. 30., sun. 31. okt. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bróflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudög- um merktar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringl- unni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. TVEIR ÍSLENSKIR HÖNNUÐIR Á SÝNINGU í NEW YORK Morgunbladid/Donna Fumosa Hönnuðirnir (f.v.) Ólafur Þórðarson og Hjalti Karlsson. KYNNTU VERK SÍN OG TÖLUÐU New York. Morgunblaðið TVEIR íslenskir hönnuðir, þeir Hjalti Karlsson og Ólafur Þórðarson voru meðal þátttakeuda á sýningu sem samtök iðnhönnuða, The Municipal Art Soeiety, í New York gengust nýverið fyrir í Chelsea- hverfi. Sýning þessi stóð yfir eina helgi og var liður í árlegum hönnunardögum í borginni og var skipulögð af yfirmanni iðnhönnunar- og byggingarlistadeildar Nútímalistasafnsins, MoMa, Paolu Antonelli. Meðal þátttakenda í sýningunni voru mörg þekkt nöfn í heimi iðnhönnunar, bæði húsgagnahönnunar og innanhússarkitektúrs og grafískrar hönnunar. Samkoman var vel sótt og það ekki síst, af hönnuðum í borginni. Auk sýningarinnar héldu hönnuðirnir fyrirlestra þar sem þeir fjölluðu um verk sín. íslendingarnir tveir hafa báðir verið búsettir í New York um nokkurt skeið, fyrst við nám og síðar störf. Grafíski hönnuðurinn Hjalti Karlsson fjallaði um hönnun sína og samstarfsmanns síns, Stefáns Sagmeisters og Ólafur Þórðarson, hönnuður og arkitekt, sagði frá verkum sínum bæði hönnun og málverkum sem hann sýndi á einkasýningu sinni hér fyrr í sumar. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.