Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 13
Á Völlum í Vallhólmi í Skagafirði, skammt frá Varmahlíð, er gamall bær sem enn stendur uppi og hjá honum ennþá eldri klömbruhnausveggur sem blessunarlega hefur fengið að standa og gæti enn átt langa lífdaga fyrir höndum. Það sérstæða við klömbruhnausvegginn á Vöilum er hæð hans, vart minna en tvær mannhæðir. ekki hefur það þó orðið til þes að hann snaraðist, en sjá má neðst að hnausinn hefur lítið eitt slitnað og eyðst. Vonandi er að menn beri gæfu til að láta þennan fallega vegg standa sem lengst. Á Akureyri, nánar tiltekið í porti við Listagilið, er veggur með hreinu svlpmóti nútímans, þ.e. þeirri tegund myndskreytlnga sem heita graffiti á erlendum málum, en hefur verið kallað veggja- krot á íslensku. Það kynni að vera óþarflega óvirðulegt heiti, því þessi tegund myndlistar getur verið háþróuð og þá alls ekki tjaldað tll einnar nætur. Svo er hér. Kaupfélag Eyfirðinga á portið, enda eru þarna hús frá árdögum kaupfélagsins. Frammámenn í KEA stóðu fyrir því að „vanir menn“ á Akureyri fengu þessa veggi til umráða og sést að þeir hafa kunnað sitt fag. Amarstap Bjamune Vestmannaeyjur ^ Veldi: 1 Eriendar Þorvarðssonar 2 Daöa Guðmundssonar 3 Skarðverja 4 Núpsmanna og Vatnsfirðinga Q Hólafeðga 5 Bjöms Jónssonar Œ8 Efnahagssvæðí konungs 6 Ara Jónssonar 4t Bessastaðir, stjómsýslusetur konungs 7 Sigurðar Jónssonar 4t Vestmannaeyjar, konungsútgerð 8 Eyjólfs Einarssonar, tengdasonar Jóns Arasonar 9 Páls Vigfússonar (fyrrum tengdur Jóni Arasyni) 10 Ásverja (tengdir Jóni Arasyni) © Póturs Einarssonar Veldisskipting á íslandi sumarið 1550. Á VÍÐ OG DREIF UM SIÐ- BREYTINGUNA EFTIR SIGLAUG BRYNLEIFSSON MEGINHLUTINN af íslenskum bókum er gefinn út síðla árs. Bókaflóðið hefst seint í október og því nær sem líður jólum eykst magnið. Aðalkauptíðin hefst síðan skömmu fyrir jól. Umsagnir um allt þetta bókamagn fyllir blöðin einkum síðari hluta vertíðarinnar. Ritdómarar fara í gegnum staflana, sem þeim er gert að skrifa um og verða að hafa snör handtök. Auglýsingar fylla blöð og aðra fjölmiðla og „sá ræður sem geltir hæst“. Pað fer ekki hjá því að mörg merkileg bókin hverfur í öllu þessu magni bókaflóðs og greinaflóðbylgju, einum ef útgefendur stunda ekki auglýsingar af miklum móð og þöfundar eru lítt þekktir. Á bókavertíðinni fyrir jólin 1997 komu út margar „stórmerkilegar bækur“ eins og vant er í öllum greinum, bókmenntum, sögu og raunvísindum, auk ljóðabóka og barnabóka, uppflettirita og ævisagna. Hið íslenska bókmenntafélag auglýsir hóflega bækur þær sem það gefur út. Pélagið á sér 200 ára sögu eftir rúman áratug. Það gefur út Skírni, elsta tímarit á Norðurlöndum. Utgáfubækur félagsins eru þáttur íslenskrar menningarsögu í upp undir tvær aldir og í dögun þriðju þúsundaldar á það sér tvöhundruð ára sögu - 2016. Meðal þeirra bóka sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út 1997 var „Sið- breytingin á íslandi 1537-1565“ eftir Vil- borgu Auði ísleifsdóttur. Siðbreytingin markar þáttaskil í íslenskri menningar-, stjórnarfars- og efnahagssögu auk nýbr- eytni í trúariðkun. Hin forna og rótgróna trúarhefð almennrar kaþólskrar kirkju, stjórnarform og kaþólsk listmenning hverfur og í stað þess er komið á með valdaboði Lútherstrúarkerfi undir yfir- stjórn veraldlegs ríkisvalds. Eignum kirkjunnar er rænt og aldagamlar „fé- lagsstofnanir“ svo sem klaustur og sælu- bú hverfa. Öll þau listaverk og menning- arverðmæti sem voru skipulega eyðilögð af öfgafullum mótmælendafrumkvöðlum eru eitthvert mesta tjón sem íslendingar hafa mátt þola. Söguritarar siðskiptanna hafa ekki haft hátt um þennan vaðandi barbarisma og sumir hverjir reynt að gera siðabreytinguna sem eðlilega fram- vindu íslenskrar menningar og kirkjusögu (Jón Helgason). Saga siðbreytingarinnar hefur verið skrifuð sem nærri því ein- angrað íslenskt fyrirbæri og lítt hugað að Kristján III. Málverk eftir Jost Verheidon. Lút- erskur kristindómur var Kristjáni III mikið hjartans mál. forsendum breytingarinnar sem áttu allar upphaf sitt í stefnu danskra stjórnenda og þeirra hagsmunahópa, aðals og borg- arastéttar sem hagnaðist á eignaupptöku kirkju- og klaustraeigna í ríkjum Dana- konungs. Rit Vilborgar Isleifsdóttur dregur upp nýja mynd af þeim grunnbreytingum sem verða á íslensku þjóðfélagi við siðbreyt- inguna og forsendur þeirra breytinga í Evrópu og ríkjum Danakonungs. En þar er að leita frumorsakanna. Höfundurinn gerir þessum efnum ágæt skil og for- sagan verður skýr og mun ítarlegri en tíðkast hefur í ritum um breytinguna. Sama er að segja um atburðarásina hér- lendis, m-vinnsla heimilda og heimilda- magn er mun viðameira og því verður saga hennar ný saga þessa tímabils, vand- aðri og skilmerkilegri en hingað til hefur tíðkast. Islendingar voru kúgaðir til sið- breytni á brútalan hátt og það tók ára- tugi, jafnvel aldir að móta hér á landi við- sættanleika við nýbreytnina, þá með frábærum sálmakveðskap og Vídalín- spostillu. Rit Vilborgar veldur þáttaskilum í sið- skiptasögunni og þar með íslandssögunni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999 1 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.