Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 11
Kardínálinn Bentevoglio, 1623, olía á léreft, 196 x 145 sm. Palatina galleríið í Flórens. Hinn fimmtán ára gamli Vilhjálmur II, prins af Óraníu, og brúður hans, hin tæplega tíu ára gamla prinsessa Henrietta Maria, elsta dóttir Karls I, 1641, olía á léreft, 182,5 x 142 sm. Ríkislistasafnið Amsterdam. Samningarnir um þetta hjónaband höfðu þá staðið yfir í tvö ár. Isdrottningar. Nítján ára gamall málaði van Dýck þetta meistaraverk af velunnara sínum, Cornelis van der Geest, olía á léreft, 37,5 x 32,5. Sjálfsmynd, 1613- 14, olía á panel 1619-20, 25 x 19,5 sm. Málverkasafn myndlistarakade- míunnar í Vínarborg. Vel að merkja að málarinn var einung- is 14-15 ára! merkjanlegt í seinni tíma málverkum hans. Ár- ið 1627 snýr hann aftur á heimaslóðir og er af Isabellu stórhertogaynju og landstjóra út- nefndur hirðmálari af Briissel, heldur þó til í húsi sínu í Antwergen, og vinnur einnig fyrir hollenzku hirðina. Arið 1632 verða þáttaskil í lífi málarans þá hann heldur öðru sinni til Lundúna, er þar útnefndur hirðmálari Karls I, og sleginn til riddara. Málaði þá nær eingöngu myndir af konungsfjölskyldunni og nánasta liði kringum hana. Varla voru tvö ár liðin fyrr en hann yfirgefur Lundúni og heldur til Parísar, Antwerpen og Brussel, en 1635 er hann aftur í Lundúnum og næstu fimm árin heldur hann þar stórt verkstæði með mörgum hjálpar- mönnum, en sjálfur snýr hann sér alfarið að gerð mannamynda sem skipa honum í fremstu röð allra tíma á því sviði. Á sjö ára tímabili mun hann hafa málað um 400 slíkar myndir, þar af margar af börnum, en hann kunni sannarlega til verka í þeirri grein ekki síður er Rubens. Stjómmálalegur órói í Englandi 1640 gerði að verkum að van Dyck tekur sig upp og heldur enn á ný til Antwerpen, einnig til að taka við verkstæði Rubens sem þá var nýlátinn, en fréttir þá að Loðvíg þrettándi hefði í hyggju að láta mála myndaröð í aðalsali Louvre. Heldur til Parísar í útmánuðuml641, og vonast til að fá verkefnið, en það féll í hlut Nicolas Poussins og hins minna þekkta Simons Vouet, og urðu það honum sár vonbrigði. I mai sama ár er hann aftur í Lundúnum, trúlega til að vera viðstadd- ur brúðkaup hins fimmtan ára gamla Vilhjálms II af Óraníu og prinsessu Maríu Henriette, tæplega tíu ára og elstu dóttur Karls I, og mála þau barnungu hjón. Sama ár deyr hann og var jarðsettur í gömlu St. Pauls dómkirkjunni. Ýmsir hafa getið sér til að veikindi hans hafi fylgt í kjölfar vonbrigðanna yfir að fá ekki verkefnið í Louvre, sem var hinum metnaðar- gjama snillingi mikið áfall, en slíkum geta fylgt miklar sálarflækjur og eru lítt brynjaðir fyrir mótlæti. Fleira kom þó til sem kann að hafa átt þátt í að brjóta hann niður, tímarnir vom við- sjárverðir og líf hans var ekki alltaf dans á rós- um, ungur missti hann móður sína og faðirinn lenti í úlfakreppu í fjármálum, sem hafði áhrif á uppvaxtarár hans. Þá var samband hans við konur ekki gæfulegt, en hann hafði ungur lent í því slysi að barna stúlkukind nokkra í Ant- werpen, en var sá sómamaður að gleymda ekki afkvæminu í erfðaskrá sinni. Þá átti hann í stormafullu ástarsambandi við einhverja fem- me fatale, Margaret Lemon að nafni, sem var haldin djöfulóðri afrbrýðsemi og þoldi ekki að aðrar konur sætu til borðs með honum í þeim fjölmörgu veislum sem hann sat í Lundúnum, átti til að gera hræðileg uppsteit í slíkum tilvik- um. Sagan hermir jafnvel að afbrýðin út í snill- inginn hafi gengið svo langt, að eitt sinn er þeim lenti saman reyndi hún að bíta af honum þumalinn til að hann gæti ekki málað meira! Það var fyrst 1639, tveim árum fyrir and- látið, að van Dyck festi ráð sitt, hin útvalda var skosk, kaþólsk hirdama drottningarinnar, og málarinn náði rétt að lifa það að eignast fyrsta löglegt fædda erfingjann, dótturina Justinu. Fæðinguna bar að 1. desember 1641 og þrem dögum seinna semur hann erfðaskrá, þar sem hann arfleiðir fjölskylduna og ólöglegu dóttur- ina í Antwerpen að eigum sínum. Og þrátt fyrir að kóngurinn sendi sinn eigin líflækni á vett- vang og héti honum heilum 300 pundum ef hann gæti fært málaranum heilsuna á ný, sem var mikil fúlga á þeim tímum, skildi van Dyck við/jórum dögum seinna. Á minnismerki í St. Pauls dómkirkjunni stendur þetta letrað: „Antonius van Dyck, qui, dum viveretý multis immortalitaem donaverit vitam. Functus est Carolus Primus, Magnae Britanniae, Franciae et Hibemiae Rex, Anton- io Van Dyck, Equiti Aurato“ (Anthony van Dyck, gerði meðan hann lifði marga ódauðlega. Karl I, konungur Stóra Bretlands, Frakklands og Irlands, lét reisa þetta minnismerki fyrir Sir Anthony van Dyck). LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.