Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Page 12
ÍSLANDSBÆRINN
VIÐ HRAFNAGIL
OG NORÐLENZKIR VEGGIR ÚR FORTÍÐ OG NÚTÍÐ
Þegar ekið er að vestanverðu inn í
Eyjafjarðarsveit taka vegfar-
endur eftir fallegum blóma- og
veitingaskáia skammt frá
Hrafnagili; hann heitir Vín og
minnir að sumu leyti á annan
þekktan áningarstað, Eden í
Hveragerði. Á sama stað hefur
risið nýr torfbær sem vekur athygli vegna þess
að þar er bersýnilega verið að halda til haga
gamalli hefð, en einnig vekm’ athygli að hvert
smáatriði er fallega unnið. Bærinn ber engan
veginn með sér að þar sé veitíngaskáli innan
dyra; ekkert skiltí utan á honum og yfirhöfuð
ekki neitt sem tengist nútímanum, enda væri
það stflbrot
Islandsbær heitir hann og er verk Hreiðars
Hreiðarssonar, veitingamanns og húsasmíða-
meistara sem rekur blómaskálann og Island-
sbæinn, sem vígður var 17. júní, 1997.
Hreiðar kvaðst í samtali við Lesbók ekki hafa
tekið neinn sérstakan bæ til fyrirmvndar, held-
ur sitt lítið af hverju úr nokkrum þeirra. Ekki
hafði hann sér til aðstoðar neina sérfræðinga
eða ráðgjafa, heldur skoðaði hann ýmsa bæi og
gamlar myndir af bæjum, t.d. af bænum á
Munkaþverá. Hann gerði síðan teikningu,
tæknifræðingur reiknaði út burðarþol og
Hreiðar byggði bæinn ásamt sonum sínum,
Hreiðari og Sindra, sem báðir eru smiðir. Það
voru sumsé hæg heimatökin, enda sagði Hreið-
ar að þetta hefði naumast verið gerlegt öðruvísi.
Eins og myndimar bera með sér eru vegg-
imir hlaðnir úr grjóti neðantíl, en að öðru leyti
eru þeir hlaðnir úr klömbruhnaus og streng,
sem var hefðbundin norðlenzk aðferð við vegg-
hleðslur. Ekki er langt síðan þetta verklag var
við að deyja út. Þó vom tfl menn austur á Hér-
aði sem kunnu það, svo og aldraðir menn norð-
ur í Höfðahverfi í Eyjafirði. En á síðustu árum
hafa ungir menn tileinkað sér þessa torfhleðslu-
tækni og þar á meðal feðgamir sem byggðu Isl-
andsbæinn.
Efnið var sótt í Staðarbyggðarmýrar hjá
Laugalandi. Þar er úrvals torfskurður; sum-
staðar reiðingstorf, en allt er það á kafi í vatni
og ekki fyrir neinar liðleskjur að vinna við þær
aðstæður. Klömbruhnaus er skorinn með spaða
með sérstökum hætti og síðan notaður annar
undirristuspaði. Það er efsta lagið sem tekið er;
grasrótin og grasið fylgir með og veldur því að
veggir vilja rýma örlítið þegar grasið rotnar. I
Islandsbæinn þurfti að skera nokkur tonn af
klömbruhnaus.
Til þess að tréveridð yrði með réttu svipmóti
þurftí að fá yfírstærð af borðviði, 9x1,5 tommu.
Sú borðbreidd var notuð utan á stafnana, í súð
og veggjaklæðningar. Yfirgerðin stendur að
sjálfsögðu á trégrind, en að utanverðu er þakið
klætt krossviði og á hann settur sökkuldúkur
sem tryggir að loftar á milli. Utan á hann var
sett ögn af mold, svo og var þakið tyrft.
Gluggar em smíðaðir eftír gömlum fyrir-
myndum, einnig klæðningar að innan og
skarsúðin. Á gólfum era fumborð, en anddyrið
lagt hellum sem sóttar vom upp á hálendið ofan
Eyjafjarðar. Bærinn er lýstur með lágspennt-
um rafljósum, en sú lýsing sést ekki því henni
er komið fyrir í skammbitum. Hægt er að
kveikja á oh'ulömpum og kerti em við hendina.
Hitalögn er líka ósýnileg í gólfinu, en þar að
auki er hægt að kveikja upp í kamínu. Innan á
hinum hlöðnu vegjum er og falin venjuleg ein-
angrun, svo bærinn þarf ekki mikla upphitun.
I Islandsbænum er ekki baðstofa með rúm-
um meðfram veggjum svo sem tíðkaðist, heldur
er þar 80 fermetra salur sem tekur 70 manns í
sætí og þar að auki gestastofa, einskonar
koníaksstofa, sem er afþiljuð og tekur 10-12
manns í sæti En alls er Islandsbærinn 140 fer-
metrar. Hann er leigður út fyrir samkvæmi, af-
mælisveizlur og brúðkaup til dæmis.
Eftirspumin hefur verið ágæt, segir Hreiðar
gestgjafi, og það þótt ekki sé nokkur leið að
finna símanúmerið. Islandsbærinn er ekki til í
símaskránni. Reksturinn er í tengslum við
blómaskálann sem fyrr var nefndur, svo og
Hótel Vin í Hrafnagilsskóla.
Ljósmyndir: Gísli Sigurðsson.
íslandsbærinn hjá Hrafnagili. Norðienzkur bær endurgerður og ekki ber hann með sér að þarna sé veitingahús.
Séð á hlið íslandsbæjarins.
Sú verkkunnátta að
hlaða veggi úr
klömbruhnaus og
streng var að deyja
út, ennú hafa menn
tileinkað sér hana að
nýju.
1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999