Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1999, Side 16
MOZART HINN MIKLI
Sigurður Bragason syngur Mozart-aríur við undirleik
Baltnesku fílharmóníunnar á nýútkominni geislaplötu.
ORRI PÁLL ORMARSSON tók hús á barítonsöngvar-
anum sem hefur sitthvað fleira á sinni könnu , svo sem
undirbúning tónleika ásamtÓlafi Elíassyni í Bretlandi
og Carnegie 1 Hall í Bandaríkjunum á næsta ári, auk
þess sem h íann er að leggja upp í Vetrarferð.
„ÁSTÆÐAN fyrir því að ég geri þessa plötu
er einföld: Mozart er mesta óperutónskáld
sögunnar í mínum huga. Eg hef lengi haldið
upp á þessar aríur og langað að gera plötu
með þeim. Eg hef sungið margar þeirra á kon-
sertum og í öðrum upptökum, meðal annars
úr Cosi fan tutte í útvarpsupptöku með Sin-
fóníuhljómsveit Islands, en það er virkilega
ánægjulegt að hafa þær nú allar á einum stað í
nýjum upptökum,“ segir Sigurður Bragason
barítonsöngvari en út er komin geislaplatan
Forleikir og aríur, þar sem hann syngur
Mozart-aríur við undirleik Baltnesku íílharm-
óníunnar í Ríga. Hljómsveitarstjóri er Guð-
mundur Emilsson.
Tilurð plötunnar er sú að í júní á síðasta ári
hélt Sigurður til Rígu í boði Guðmundar til að
syngja á hátíðartónleikum Baltnesku fílharm-
óníunnar til heiðurs Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Islands, og Guntis Ulmanis, J)áverandi
forseta Lettlands. Með í för var Ámesinga-
kórinn í Reykjavík en Ríkislistakórinn í Rígu
kom einnig fram á tónleikunum sem Guð-
mundur stjórnaði. I framhaldi af tónleikunum
fóru fram hljóðritanir.
„Það var mjög gaman að gera þessar hljóð-
ritanir," segir Sigurður og lætur hugann reika
til baka. „Við vorum í kirkju í gömlu hverfi í
borginni og það var í einu orði sagt ævintýra-
legt að koma þarna, það svífur andi gamallar
menningar og lista yfir vötnum. Þetta var afar
eftirminnilegt."
Segir Sigurður upptökur hafa gengið vel
fyrir sig og ánægjulegt hafi verið að starfa
með Guðmundi og hljómsveit hans ytra.
„Guðmundur hefur verið listrænn stjórn-
andi Baltnesku fílharmóníunnar um skeið og
staðið sig frábærlega. Það er gaman að sjá
hversu vel hann er kominn inn í lettneskt tónl-
istarlíf. Hljómsveitin er líka alveg frábær eins
og dómar sem hún hefur fengið, nú síðast í
New York Times eftir tónleikaferð til Banda-
ríkjanna, gefa til kynna.“ Sigurður segir plöt-
una sérstaka fyrir þær sakir að þar gefi for-
leikirnir alltaf forsmekkinn að efni hverrar
ópeni.
„Ég syng þarna aríur úr fjórum óperum eft-
ir Mozart, Brúðkaupi Fígarós, Cosi fan tutte,
Töfraflautunni og Don Giovanni og á undan
hverri aríusyrpu flytur hljómsveitin forleikinn
að viðkomandi ópera. Ég man ekki til þess að
hafa séð þetta gert svona á geislaplötu áður.“
Samkvæmt klassíska stílnum
Segist söngvarinn afar ánægður með út-
komuna, forleikirnir skapi rétta andrúmsloft-
ið fyrir aríurnar.
Kveðst hann oft furða sig á því hvernig
söngvarar syngja Mozart. „Maður hefur oft
heyrt söngvara syngja Mozart strax á eftir til
dæmis Verdi eða Puccini án þess að breyta í
nokkra um stfl. Það á að mínu viti ekki við
enda samdi Mozart samkvæmt klassíska stfln-
um. Ég hef alltaf tengt hann þeirri hefð og kýs
því að flytja hann þannig. Það kemur skýrt
fram á plötunni."
Að dómi Sigurðar er það tvennt sem gerir
Mozart fremstan meðal jafningja á sviði
óperatónlistar.
„Fyrir það fyrsta er hann auðvitað stór-
kostlegt tónskáld, gæddur snilligáfu. Síðan er
það þetta næmi sem hann hefur fyrir leikrit-
Sigurður Bragason barítonsöngvari
inu og persónunum sem koma við sögu. Það er
einstakt.“
Sigurður segir Mozart erfiðastan af öllum
tónskáldum, það sé hin endanlega áskorun
söngvarans að glíma við tónsmíðar hans.
„Tökum bara þessar fjórar óperar, þar kemur
glöggt fram að hann er jafnvígur á grín og
glens og dramatík. Cosi og Fígaró eru í þess-
ari ítölsku gleði hefð, Töfraflautan er þýskt
„singspiel" og Don Giovanni er hádramatísk
ópera. Persónurnar sem ég túlka era líka jafn
misjafnar og þær era margar. Ég veit ekki
hvað er skemmtilegast að draga fram, glettn-
ina, grínið og kostulegheitin í Papagenó,
kvensemina og illskuna í Don Giovanni eða
undirlægjuhátt Leporellós."
Reynir Axelsson hefur þýtt óperutextana á
plötunni.
Við sama tækifæri var tekin upp í Rígu
geislaplata Árnesingakórsins í Reykjavík,
Náttmál, sem kom út nú í haust en sem kunn-
ugt er stjórnar Sigurður kórnum.
ALLTAF EITTHVAÐ
ISLENZKT MEÐ
Amoldur Amorson gítarleikari heldur tónleika í ís-
lensku óperunni í dag kl. 1ó. HÓLMFRÍÐUR MATT-
HÍASDÓTTIR hitti Arnald að máli.
Turner-verðlaunin
Steve McQueen: Deadpan, 1997.
Ekkert rúm
fyrirTracey
KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN
Steve McQueen hlýtur Turner-verðlaun-
in, þekktustu listaverðlaun Bretlands, í ár.
Var þetta gert heyrinkunnugt í vikunni en
McQueen skaut þar með Tracey Emin,
sem spáð hafði verið sigri, ref íyrir rass en
hún tefldi rúminu sínu og fylgifiskum
þess, svo sem smokki, tómri áfengisflösku
og óhreinum nærfatnaði, fram í keppninni.
Verk McQueens samanstendur af
þremur stuttmyndum, þar á meðal
Deadpan, þar sem hann endurgerir gamla
Buster Keaton-mynd,en í henni fellur hús-
gafl yfir listamanninn án þess að hann
depli auga. Glugginn verður honum nefni-
lega til bjargar.
McQueen, sem stendur á þrítugu, las
sín fræði í Lundúnum og New York en
starfar nú í Amsterdam og Berlín.
Var það mál manna að keppnin hefði
verið með daufara móti að þessu sinni og
athygli vakti að enginn listamaður lagði til
málverk.
Á TÓNLEIKUNUM mun Arnaldur flytja
verk af nýútkominni geislaplötu, sem gefin var
út af Merlin Records á Englandi. Á plötunni era
meðal annars 10 íslensk þjóðlög í útsetningu
Jóns Ásgeirssonar, partíta í e-dúr eftir J.S.
Bach og 6 Bagatellur eftir Femando Sor.
Amaldur hefur um árabil búið í Barcelona,
þar sem hann hefur getið sér góðan orðstír fyrir
gítarleik, og kennslu við Luthier tónlistarskól-
ann, en þar er hann er aðstoðarskólastjóri. Auk
skólans rekur Amaldur einnig gítarverslun
ásamt konu sinni Alicia Alealay. Aðspurður
kveður Amaldur nemendahóp sinn nokkuð fjöl-
breytilegan, hann er með nemendur frá, Spáni,
Danmörku, Frakklandi, Japan, Kólumbíu, og
einn Islending, en meirihluti nemenda hans hef-
ur haldið til Spánar gagngert til þess að sækja
tíma hjá Amaldi.
„Það er nóg að gera hjá mér við kennslu,
skólarekstur og tónleikahald , svo ekki sé
minnst á búðina, sem ég hef heldur lítil afskipti
af. Ég var reyndar búinn að vera með það bak
við eyrað í nokkur ár að taka upp disk, en mér
fannst aldrei vera kominn rétti tíminn, það er
alltaf svo mikið að gera. Það eru margir búnir að
vera að reka á eftir mér með þetta dálítið lengi.
Síðan gafst mér svo kostur á að fara út í þetta
síðastliðið sumar og ég ákvað þá bara að drífa í
því og gefa þetta út. Þetta hefur verið að geijast
í mér í lengri tíma og svo bara gerðist það.
Ég tók diskinn upp í Englandi hjá honum
Tryggva Tryggvasyni, en hann rekur eigið fyr-
irtæki, Merlin Records, og gaf diskinn út undir
því merki. Tryggvi er mikill fagmaður, fyrrver-
andi upptökumaður hjá Decca og sérhæfður í
klassískri tónlist. Hann hefur mikla reynslu af
gítartónlist og er mjög næmur á hljómgæði,
þannig að það var mjög gott að vinna með hon-
um, enda er ég ánægður með útkomuna."
Hvernig valdir þú verkin á plötuna?
„Mig langaði mjög til að leika eitthvað ís-
lenskt, þó að það væri ekki í sjálfu sér höfuð-
atriði, en ég hef haft það fyrir sið að hafa alltaf
eitthvert íslenskt verk með á tónleikum mínum
erlendis og mig langaði til að hafa eitthvað ís-
lenskt á diskinum. Ég hugleiddi fyrst að leika ís-
lenska nútímatónlist eins og ég hafði flutt á
Myrkum Músíkdögum í janúar, en fékk svo
þessi þjóðlög upp í hendumar. Þá ákvað ég að
byija á því að gera disk sem að kannski væri að-
gengilegri almenningi. Svo er þetta allt verk á
mjög hefðbundinu tónmáli, þannig að pró-
grammið passar vel saman. Það eru þijár stórar
heildir á diskinum sem fara allar vel saman. Og
þó að á diski geti menn valið hvað þeir vilja
hlusta á hverju sinni, þá finnst mér heildin mik-
ilvæg. Það er nauðsynlegt að mínu mati að hægt
sé að setja diskinn á og hlusta á hann allan. En
annað aðalatriðið fyrir mér var að spila tónlist
sem ég hef gaman af að spila og að hlusta á.“
Það er því ekki ofsögum sagt að mikið hafi
mætt á Sigurði í ferðinni. „Ekki nóg með að ég
syngi á tónleikum og tæki þátt í upptökum
fyrir tvær geislaplötur í Rígu, heldur hélt ég
beinustu leið til Bonn að því loknu, þar sem ég
söng við undirleik Vovka Ashkenazys á lista-
hátíð borgarinnar. Þetta var því heilmikil ferð
og ég léttist um tíu kíló í átökunum og var
óþekkjanlegur við heimkomuna.“
Tónleikar í Carnegie Hall
Sitthvað er í undirbúningi hjá Sigurði um
þessar mundir. Ber þar hæst tónleika í ein-
leikssal Carnegie Hall í New York, einu kunn-
asta tónleikahúsi heims, næsta haust. „Ég
söng í Carnegie Hall fyrir þremur árum. Þeir
tónleikar gengu vel og síðan hefur stjórn
hússins verið í sambandi við mig um það hve-
nær ég vilji halda aðra tónleika þar. Ráðgert
er að ég syngi þarna í nóvember á næsta ári
og með í för verður ungur virtúós, Ólafur El-
íasson píanóleikari."
Samstarf Sigurðar og Ólafs er nýtt af nál-
inni og munu þeir koma í fyrsta sinn fram
saman opinberlega á 17 tónleikum í röðinni
„Tónlist fyrir alla“ sem menntamálaráðuneyt-
ið stendur fyrir í skólum landsins.
Síðan stendur til að fara í tónleikaferð til
Lundúna næsta haust.
Félagarnir verða með sömu efnisskrá á öll-
um þessum stöðum. Ber hún yfirskriftina
From Romanticism to Rebellion, eða Frá
rómantík til uppreisnar.
Tefla þeir þar fram fjórum tónskáldum, ís-
lendingunum Páli Isólfssyni og Jóni Leifs og
Rússunum Modest Músorgskíj og Piotr
Tsjajkovskíj.
„Állt era þetta frábær tónskáld, hvert á
sinn hátt. Tsjajkovskíj og Músorgskíj vora
samtímamenn en þróuðust hvor í sína áttina,
sama má segja um Pál og Jón. Við leikum okk-
ur svolítið með þessar andstæður. Það verður
mjög spennandi að takast á við þessa efnis-
skrá.“
Og ekki hlakkar Sigurður minna til annars
verkefnis sem er í bígerð. „Ég ætla að fara að
hella mér út í Vetrarferðina eftir Schubert. Þó
svo ég hafi sungið marga af stærstu ljóða-
flokkum tónbókmenntanna hef ég aldrei sung-
ið hana í heild opinberlega, bara fyrir sjálfan
mig. En nú finnst mér vera rétti tíminn og ég
ætla að gefa mér góðan tíma til að undirbúa
mig. Það verður í fyrsta lagi árið 2001 að ég
syng Vetrarferðina opinberlega."
Arnaldur Arnarson
Þetta era mjög skemmtileg verk og óvenju-
legar útsetningar.
„Já, ég hafði mjög gaman af að flytja þessi
þjóðlög. Mig hefur langað til þess í mörg ár. Við
Jón Ásgeirsson töluðum fyrst um þetta 1992 og
ég held að hann hafi líka haft þetta bak við eyr-
að fyrir mig. Hann útsetti þessi þjóðlög iyrir ári
síðan og ég framflutti fyrstu lögin um það leyti.“
Ertu ánægður með útkomuna?
„Ég á svolítið erfitt með að fá næga fjarlægð
til þess að njóta tónlistarinnar. Þegar ég hlusta
á diskinn þá heyri ég náttúralega aðallega hljóð-
færaleikinn. Það er alltaf svolítið sérkennilegt
að hlusta á sjálfan sig og mér finnst ég alltaf
heyra eitthvað sem gæti farið betur, eða sem ég
hefði getað gert á annan hátt. En í heild þá er ég
mjög ánægður með útkomuna."
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. DESEMBER 1999