Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.2000, Side 2
Málverk eftir Siqurð Örlyqs
á sýningu í HallgrímskirKj
sson
iu
BIBLÍUDAGURINN er á morgun
og mun af því tilefni verða opnuð
sýning í forkirkju Hallgríms-
kirkju kl. 12.15 á fjórum stórum
olíumálverkum eftir Sigurð Ör-
lygsson.
Myndefnið byggir Sigurður á
hugleiðingum sínum um píslar-
sögu Krists, einkum siðustu kvöld-
máltíðina, krossfestinguna og
upprisuna, en það efni hefur verið
honum hugleikið sfðan hann tók
þátt í myndlistarsýningu á
Kirkjulistahátíð 1997 íHalI-
grímskirkju.
Sigurður Örlygsson er fæddur
1946. Hann lauk námi við Mynd-
lista- og handíðaskólann 1971 og
stundaði sfðan nám í Kaupmanna-
höfn og New York.
Hann hefur haldið fjölmargar
sýningar bæði einn og með öðr-
um, hérlendis og erlendis, og á
verk á öllum helstu söfnum á Is-
landi.
Sýningin verður í kirkjunni frá
föstubyrjun til uppstigningar-
dags, 1. júní.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Örlygsson vid eitt verka sinna við uppsetningu sýningar sinnar í Hallgrímskirkju.
Tryggvi Ólafsson
Dönsk við-
urkenning
til Tiyggva
Old ssonar
TRYGGVA Ólafssyni, listmálara og graf-
íklistamanni í Kaupmannahöfn, var á
dögunum afhentur styrkur úr sjóði hjón-
anna Aage og Yelva Nimb, að upphæð
100.000 danskar krónur eða sem svarar
um einni milljón íslenskra króna.
I umsögn sjóðsstjórnar segir að ákveð-
ið hafi verið að veita Tryggva styrkinn, án
umsóknar, í viðurkenningarskyni fyrir
vinnu hans með steinþrykk og er þar sér-
staklega minnst á hinn Matisse-lega stíl
sem verk hans einkennist af.
Sjóðurinn var stofnaður eftir andlát frú
Yelvu Nimb, en hún og eiginmaður henn-
ar, stórkaupmaðurinn Aage Nimb, höfðu
mælt svo fyrir í erfðaskrá að allt sem þau
létu eftir sig skyldi renna í sjóð, sem með-
al annars skyldi veita styrki til listastarf-
semi, sér í lagi teikni- og málaralistar.
Salurinn, Tónlistarhús Kópavogs
Ævintýri úr kistu
brúðuleikara
BRÚÐULEIKARINN Bemd
Ogrodnik kemur fram á
Tíbrár-tónleikum Salarins í
dag, laugardag, kl. 16. Hann
setur á fjalir sýningu sem hann
nefnir Brúður, tónlist og hið
óvænta.
Bernd kemur með sýninguna
í einni stórri kistu, en í henni
leynast margskonar brúður út-
skornar úr viði og persónur
sem hann Ijær líf með höndum,
trjábútum og silkislæðum.
Hann opnar töfraheim smá-
sagna, þar sem persónurnar
kynna sig í stuttu leikatriði. í
kistunni eru einnig dýr og ýmis
hljóðfæri sem Bemd leikur á.
Bemd Ogrodnik hefur ferð-
ast vítt og breitt um ísland með
sýninguna sína, en hann bjó á
Islandi í fimm ár. Hann skapaði
strengjabrúðuna Pappírs-Pésa
og stjórnaði henni í samnefndri
kvikmynd, auk þess sem hann
myndskreytti bókina um Papp-
írs-Pésa.
Síðastliðin ár hefur Bernd
starfrækt eigið brúðuleikhús í
Bandaríkjunum. Hann hefur
ferðast með sýningar sínar víða
um heim, m.a. til Norðurlanda,
Litháens, Kóreu, Kanada, og
um öll Bandaríkin. Sýningin fer
fram á íslensku.
Miðaverð á tónleikana er
1.000 krónur og ókeypis er fyrir
12 ára og yngri í fylgd með ful-
lorðnum.
„ m Morgunblaðið/Golli
Ur kistu sinni töfrar brúðuleikarinn Bernd Ogrodnik
m.a. fram brúður, dýr og tónlist.
um íslandsklukkuna
Málþing
MÁLÞING um íslandsklukkuna eftir Halldór
Laxness verður í Skálholtsskóla laugardaginn
4. mars kl. 13.30 og sunnudaginn 5. mars. Fyr-
irlestrar og umræður verða í ráðstefnusal skól-
ans.
Erindi flytja Hjalti Hugason, Klukka ís-
lands í kirkjusögulegu Ijósi; Erlingur Sigurð-
arson, Séð heim að Skálholti undir hönd Hall-
dóri Laxness; Gunnar Kristjánsson, Þjónn
þeirra svarlausu; Heimir Steinsson, íslands-
klukkan á Þingvöllum; Helga Kress, ,Á hverju
liggja ekki vorar göfugu kerlingar11? Halldór
Laxness og Torfhildur Hólm; Þórunn Valdi-
marsdóttir, íslandsklukkan sem ástarsaga;
Óhreina barnið hans Arna: Kári Bjarnason og
Eggert Pálsson, íslenskur tónlistararfur. KI.
18.15 flytja Voces Thules verk af nýfundnum
skinnhandritum í Skálholtskirkju. Þá hefst
kvöldvaka kl. 21 með yfirskriftinni: Leikhúsið í
kirkjunni: Senur og samræður úr íslan-
dsklukkunni í leikstjóm Guðrúnar Ásmunds-
dóttur. Flytjendur ásamt henni Marta Nordal
og Árni Pétur Guðjónsson.
Fyrirléstrar hefjast kl. 9.30 á sunnudag.
- Matthías Viðar Sæmundsson dósent: Böðlar
og skálkar; Már Jónsson, Bæli kerlingar og
brókin hans Jóns: Handritasafnararnir Arnas
Arnæus og Árni Magnússon; Guðrún Ása
Grímsdóttir, Lærður íslendingur á Turni: Af
Jóni Ólafssyni Grunnvíkingi; Gísli Gunnarsson
prófessor: Hagspeki gálgafuglsins Jóns Mar-
teinssonar. íslandsklukkan, einokunarverslun
og stéttaskipting. Kl. 16 verða umræður og lok
málþings
I skólanum verða handrit Halldórs Laxness
að Islandsklukkunni til sýnis ásamt myndum
af nótnahandritum frá Skálholti
Upplýsingar um verð og pantanir í Skál-
holtsskóla.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinss.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Sara Vilbergsdóttir. Til 19. mars.
Galleri@hlemmur.is: Helgi H.Eyjólfs-
son og Pétur Ö. Friðriksson. Til 27. feb.
Galjerí On o One, Laugavegi: Ásmund-
ur Ásmundsson. Til 12. mars.
Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg: Níu
grafíklistamenn. Til 4. mars
Gallerí Stöðlakot: Vytautas Narbutas.
Til. 27. febrúar. Grímur Marinó Stein-
dórsson. Til 19. mars.
Gallerí Sævars Karls:
Georg Guðni. Til 8. mars.
Gerðarsafn: Ljósmyndarafél. ísl.
Blaðaljósmyndarafélag íslands og Vig-
fús Sigurgeirsson. Til 19. mars.
Gerðuberg: Sjónþing Önnu Líndal. Til
19. api'íl.
Hafnarborg: Ljósmyndasýning. Sigríð-
ur Zoega. Til 28. febrúar
Hallgrímsk.:Sigurður Örl. Til 1. júní.
i8: Birgir Andrésson. Til 27. febrúar.
Islensk grafík, Hafnarhúsinu: Alistair
Maclntyre. Til. 27. feb.
Kjarvalssstaðir (austursalur): Jóhann-
es Sveinsson Kjarval. Myndir úr Kjar-
valssafni. Katrín Sigurðardóttir málar á
vegg miðrýmis til 16. mars.
Listasafn ASÍ: Norrit til 12. mars.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug.
og sun. kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn
opinn alla daga.
Listasafn Islands: Claudio Parmiggiani.
Til 28. febrúar. Roni Horn. Til 5. mars.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listhúsið Laugardal: Sissú. Til 16.
mars.
Mokkakaffi: Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir. Til. 11. mars.
Norræna húsið: Gisle Froysland. Til 12.
mars. Anddyri: Elsku Helsinki: Ljós-
myndir og fatahönnun. Til 26. mars.
Nýlistas: Kvikar myndir. Til 12. mars.
Stofnun Árna Magnússonar: Handrita-
sýning opin þri-fös kl. 14-16. Til 15.
maí.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir „Fréttir".
TÓNLIST
Laugardagur
Salurinn: Brúður tónlist og hið óvænta.
Bernd Ogrodnik, brúðuleikari. Kl. 16.
Digranesk.: Samkór Kópavogs. Kl. 17.
Sunnudagur
Hveragerðiskirkja: Diddú og Anna
Guðný Guðmundsdóttir. Kl. 16.
Hallgrímskirkja: Orgeltónleikar
Björns Steinars Sólbergssonar. Kl. 17.
Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur og Auð-
ur Hafsteinsdóttir. Kl. 20.
Bústaðakirkja: Camerarctica. Kl. 20.30.
Þriðjudagur
Langholtskirkja: Karlakórinn Fóst-
bræður. Kl. 20.
Fimmtudagur
Langholtsk.: Fóstbræður. Kl. 20.
Laugardagur
Langholtsk.: Fóstbræður. Kl. 15.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Glanni glæpur í Latabæ,
sun. 27. feb. Krítarhringurinn í Kákas-
us, lau. 26. febr. Fös. 3. mars. Komdu
nær, sun. 27. feb. Fim. 2. mars. Hægan
Elektra, fös. 3. mars. Vér morðingjar,
sun. 27. feb. Fim. 2. mars.
Borgarleikhúsið: Djöflarnir, lau. 26.
feb. Sun. 5. mars. Afaspil sun. 27. feb.
Leitin að vísbendingu..., lau. 26. feb.
Fös. 3. mars. Fegurðardrottningin frá
Línakri, fim. 2. mars.
íslcnski dansflokkurinn: Goðsagnirn-
ar: Sun. 27. feb. Fim. 2. mars.
Iðnó: Stjömur á morgunhimni, mið. 1.,
fös. 3. mars. Frankie & Johnny, lau. 26.
febr. Stjeikspír eins og hann leggur sig,
frums. 1. mars. Fös. 3. mars.
Hafnaríjarðarleikhúsiö: Salka, ástar-
saga, laug. 26. feb. Fös. 3. mars.
Loftkastalinn: Panodil, laug. 26. feb. Ég
var einu sinni nörd: fös. 3. mars.
Neskirkja: Job, frums. sun. 27. febr.
Þrið. 29. feb. Fim. 2. mars.
Kaffileikhúsið: Ó-þessi þjóð, lau. 26.
feb. Nornaveiðar, sun. 27. feb.
íslenska óperan: Lúkretía svívirt, lau.
26. feb. Baneitrað samb.: sun. 27. feb.
Fös. 3. mars. Hellisb.: lau. 4. mars.
LA: Skækjan Rósa, lau. 26. febr.
Félag eldri borgara: Rauða klemman.
lau. 26. feb. Mið. 1. mars.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 26. FEBRÚAR 2000