Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.2000, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.2000, Qupperneq 3
LliSBOK MORGLNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 8. TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUIR. Skúli Helgason fræðimaður og smiður byggði Árbæjar- kirkju á sínum tíma, hlóð veggina og smíð- aði janvel lamir og kirkjulykilinn. Hann hafði áður unnið árum saman að söfnun gamalla muna fyrir Byggðasafn Árnesinga sem búið var að setja upp, en nú er stærsti hluti þess kominn i geymslu i kjallara. Gísli Sigurðsson ræddi við Skúla. Harmkvæla- maðurinn Job FRÁ honum segir í Gamla testamentinu, en sagan af Job hefur orðið listamönnum túlk- unarefni. Nú er Job á íjölunurn í Neskirkju og af því tilefni Ijalla Kristján Ólason, Ásta Kristjana Sveinsdóttir og Sigfinnur Þor- leifsson um Job og Jobsbók. Byggð og í Laugarnesi HIN forna Laugarneskirkja leið undir lok 1794, en önnur háreistari var siðar byggð í Kirkjubólstúni og er nú fagnað hálfrar ald- ar afmæli hennar. Guðfinna Ragnarsdóttir kennari skrifar greinina og rekur ýmsar markverðar breyt.ingar í Laugarnesi frá því Hallgerður langbrók bjó þar og þar til Laugarnesbærinn var rifínn. Blaðaljósmyndara- félag Islands ásamt Ljósmyndarafélagi Islands stendur þessa dagana fyrir árlegri sýningu í Gerð- arsafni í Kópavogi. Sérstaklega skipuð dómnefnd þriggja manna valdi bestu blaða- ljósmyndirnar í níu efnisfíokkum og birtast þær nú í Lesbók. FORSÍÐUMYNDIN , er af skrúðhúsi Árbæjarkirkju sem ásamt kirkjunni er handaverk Skúla Helgasonar. Sjá viðtal. Ljósmynd: Gisli Sigurðsson. r KRISTJANJONSSON Nón Blæju dökkva breiðir of blundandi drótt hin þýðlynda, þrúðhelga, þagmælska nótt. Allt er svo þögult og allt er svo hljótt, sofandi náttúran safnarnú þrótt. Veit ég einn, sem vakir og verður ei rótt um svartdimma, sái'langa, svefnlausa nótt. Veit ég sái', er svella og svíða dag og nótt og angurkvalið hjarta, sem aldrei verður rótt Hátt teygirAtlas ístinda blá, himin ber hann allan herðum sér á. Þyngri, hrellda hjarta, harmarþig þjá; von er, þó kveinstafir komi þérfrá. Því helst til heiftarþunga þú himins reiði ber, oghelvíti brennur í harmköldu þér. Þú vakir, veslings hjarta, þér verður aldrei rótt; þú hvílist ekld fyrr en á heljai'kaldri nótt. Kristján Jónsson, oft nefndur Kristján Fjallaskáld, 1842-1869, naut ungur vin- sælda og fjöldi (slendinga kann sum Ijóða hans, t.d. Þorraþræl og Tárið. Kri- stján þýddi einnig kvæði og samdi leikþætti, en átti við ofdrykkju að stríða og féll frá fyrir aldur fram. RABB ÞRJATIU BORG- ARASTYRJALDIR LEON Trotsky mun hafa komist svo að orði að kapítalisminn sameinaði heiminn en gerði það með stórkostlegum ójöfnuði og mismunun. Þegar við litumst um í heiminum í dag er ljóst að það er sannleikskorn í þessum I orðum. Hin margumtalaða heimsvæðing ekki aðeins sameinar heldur skilur líka að. Um leið og veröldin hefur orðið einsleitari, hefur hún um leið orðið margbrotnari. Á meðan landamæri opnast eða hverfa eykst staðbundin mismunun. Nýir múrar rísa þegar hinir gömlu falla, en í stað þess að vera bundnir ríkjum eða hugmyndakerfum eru tálmanirnar tengd- ar þjóðfélagslegri mismunun. Álþjóðavæðingin hefur veikt stöðu ríkis- stjórna, sem í dag verða í auknum mæli að taka tillit til alþjóðlegra stofnana og sátt- mála. Einkaréttur ríkisvaldsins til vald- beitingar, sem var grundvöllur hugmynd- arinnar um fullvalda ríki, er í raun fallinn úr gildi. Um leið hafa styrjaldir breyst í eðli sínu og stríð eru núháð innan ríkja en ekki milli ríkja og óbreyttir borgarar eru oftar fórnarlömb en hermenn. Þessi stríð einkennast af þjóðarmorðum og þjóðernis- hreinsunum. Um leið og heimsvæðingin eyðir skilum á milli ríkja brýst ofbeldið út milli hagsmunahópa. Hinar tvær heims- styrjaldir 20. aldarinnar voru háðar fyrst og fremst af landfræðilegum og hug- myndafræðilegum ástæðum. í dag eru styrjaldir háðar vegna þröngra sérhags- muna. Þar vega þyngst þjóðernishyggja og trúarbrögð. Þetta eru hin póstmódern- ísku stríð sem sumir nefna svo, frumstæð í eðli sínu og byggjast á eyðileggingu og út- rýmingu. Nokkur ríki hafa þegar skipst upp í yfirráðasvæði glæpaforingja. Ríkis- vald þessara ríkja hefur verið gert óvirkt. Þessi þróun minnir um margt á fall Róma- veldis. Þá hvarf hinn rómverski friður, sem tryggði hagsæld og öryggi um stóran hluta Evrópu, og við tóku myrkar aldir of- beldis, rána og morða. Heilar þjóðir hrökt- ust á vergang. I dag er talið að um þrjátíu grimmilegar borgarastyrjaldir séu háðar í heiminum. Grimmdin og mannfyrirlitning- in sem fylgir þessum átökum er takmarka- laus. í Sierra Leone, þar sem styrjaldar- ástand ríkir, hafa hendur verið höggnar af fjölda barna í hefndarskyni. Sigmund Freud, sem þekkti öðrum bet- ur hina myrku heima mannshugans, taldi að mannkynið ætti aðeins um tvo kosti að velja, báða slæma. Heim sjálfstæðra ríkja, sem berðust sín á milli, eða alheimsríki, sem logaði í borgarastyrjöldum. Margt bendir til þess að við séum að upplifa fyrstu einkenni heimsríkisins. Við fall járntjaldsins árið 1989, sáu margir fyrir sér nýja heimsmynd. Sú heimsmynd hefur reynst flóknari en virt- ist við fyrstu sýn. Eðlilega trúðu margir því að gömlu hernaðarbandalögin yrðu leyst upp og nýtt skipulag öryggismála í Evrópu tæki við, þar sem fyrrum and- stæðingar mættust á jafnréttisgrundvelli. Fyrirsjáanlegur samdráttur í ríkisútgjöld- um vakti vonir um betra þjóðfélag. í stað þess að nota þetta stórkostlega tækifæri til sátta, höguðu forsvarsmenn vestrænna ríkja sér eins og sigurvegarar í styrjöld. Enn á ný féllu menn í þá gömlu gryfju að notfæra sér tímabundinn veikleika ríkja til þess að grafa undan áhrifum þeirra og auka sín eigin. Öllum átti að vera ljóst að Rússar myndu líta á stækkun NATO sem beina ógnun við sig og því róa þeir nú öll- um árum að því að tryggja stöðu sína í Kákasus, þar sem þeir telja Vesturlönd kynda undir aðskilnaðarhyggju. Þannig sé skipulega unnið að því að veikja stöðu Rússlands. Þrátt fyrir allar þær hörmungar sem nútímamaðurinn hefur kallað yfir sig er umræða um þær siðferðilegu spurningar sem vakna vegna þeirra mjög takmörkuð. Enginn áhugi virðist á því að kryfja til mergjar hinar hræðilegu afleiðingar þess þegar mannlegt eðli brýst fram í sinni verstu mynd líkt og við höfum orðið vitni að hvað eftir annað 20. öldinni. Hvers vegna eru slík voðaverk framin? Hin gamla trúarlega afstaða að hið illa sé að- eins frávik frá altæku siðalögmáli á tæpast lengur við. Meginhluti fólks hefur lagt trúna á hilluna til notkunar á tyllidögum og þar með gert kristna siðfræði að ónýtu plaggi. I stað þess að sinna boðun í anda Frelsarans og freista þess að beina sauð- unum inn á réttar brautir, hefur kirkjan víðast hvar gefist upp og dansað með í firringunni. Að benda á kristna siðfræði sem lausn á vandamálum samtímans hefur ruglað siðgæðisvitund fólks og alið á hræsni. Nietzsche hélt því fram að lúth- erstrú líkist helst sífelldu sjálfsmorði skynseminnar. Kristin kirkja hefur löng- um verið pólitískt valdatæki og réttlætt styrjaldir. Kirkjan, sérstaklega sú ríkis- rekna, hefur í gegnum aldirnar haft til- hneigingu til þess að laga kenninguna að veraldlegum þörfum spilltrar valdastéttar. Það er staðreynd að fólk sem fengið hef- ur frjálslegt uppeldi, þar sem því er kennt að hafa samúð með þeim sem minna mega sín og vanist því að rökræða í stað þess að hlýða umyrðalaust, er umburðarlyndara en þeir sem aldir eru upp við strangan aga, hreintrú og ósveigjanleika gagnvart skoðunum annarra. Ef til vill er kominn tími til þess að taka upp kennslu í heim- spekilegi’i siðfræði sem skyldunám í skól- um og kenna þannig börnum okkar að hugsa, rökræða og takast á við siðferðileg úrlausnarefni. Maðurinn er enn hið óskil- greinda dýr sem Nietzsche talaði um. Þrátt fyrir mikla sigra á sviði vísinda og velmegunar er saga 20. aldarinnar saga stríðs og þjáningja. Hinn vestræni heimur hefur notað tæknina til þess að þróa vopn sem beita má úr slíkri fjarlægð að sá sem þeim stjórnar hefur enga vitund um eða tilfinningu fyrir þeim hörmungum sem hann veldur. 20. öldin var öld skepnuskap- ar og ekkert bendir til þess að sú 21. verði betri. Aldrei hafa önnur eins stríð verið háð, aldrei jafnmörg og aldrei háð af því- líkri grimmd. Harmleikurinn sem hófst 1914 stendur í raun enn. Kalda stríðið, sem var beint framhald seinni heims- styrjaldar, hélt heiminum í helgreipum kjarnorkuógnar. Lok kalda stríðsins urðu til þess að stórveldin misstu þau tök sem þau höfðu á leppríkjum sínum. Það var því eðlilegt að fall Berlínarmúrsins árið 1989 vekti vonir um nýja heimsmynd. En sú heimsmynd reyndistlitlu bjartari en sú sem við höfðum. ÁRNIARNARSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 26. FEBRÚAR 2000 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.