Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Page 2
Fyrstg óperusýninqin í Ými
Operuslettur úr Söngskólanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá æfingu Nemendaóperu Söngskólans í Reykjavík á Rauða tjaldinu.
NEMENDAÓPERA Söngskólans í Reykjavík
verður fyrst til að flytja óperutónlist í hinu
nývígða tónlistarhúsi Ými við Skógarhlíð - á
morgun, sunnudag, kl. 16. Rauða tjaldið - óp-
eruslettur úr ýmsum áttum er yfirskrift upp-
færslunnar en leikgerðin er eftir Ásu Hlín
Svavarsdóttur, sem jafnframt er leikstjóri.
Sýningin var sett upp og flutt þrisvar sinn-
um við góðar undirtektir í Smára, tónleikasal
Söngskólans, í janúar sl. en nú hefur verið
bætt við hana nokkrum atriðum.
Sungið á íslensku og á frummálinu
Um leikgerðina segir Ása Hlín að hún hafi
fengið í hendurnar óperuaríumar sem hún
hafi síðan tengt saman í eina heild. Þar sem
hinir erlendu textar vilja oft fara fyrir ofan
garð og neðan hjá hinum almenna hlustanda
brá hún á það ráð að þýða alla söngtextana á
íslensku. „Margir af þessum söngtextum eru
létt absúrd og fyndnir og það er svolítið gaman
að snúa þeim og skoða þá,“ segir hún. Fyrst
eru atriðin sungin og leikin á íslensku og
seinna eru þau einnig sungin á frummálinu, þó
ekki endilega í réttri röð.
Valkyrjur úr óperudeildinni
Sýningin er sett saman úr óperunum Basti-
ana og Bastiano, Töfraflautunni og Brúðkaupi
Fígarós eftir Mozart, Leynibrúðkaupinu eftir
Cimarosa, Sögum af Falstaff eftir Verdi og
Nicolai, Bóhemunum eftir Puccini og Valkyrj-
um Wagners.
„Við tökum Valkyrjureiðina, sem er mjög
tilþrifamikil. Það eru ofboðslega kröftugar
stelpur í óperudeildinni sem eru gífurlega
duglegar og miklar valkyrjur og það hæfir
þeim ákaflega vel að syngja þetta,“ segir Ása
Hlín.
í einsöngshlutverkum eru þau Auður Guð-
johnsen, Áslaug H. Hálfdánardóttir, Bryndís
Jónsdóttir, Guðríður Nanna Helgadóttir, Guð-
ríður Þ. Gísladóttir, Hafsteinn Þórólfsson,
Hjálmar P. Pétursson, Ingibjörg Aldís Ólafs-
dóttir, ívar Helgason, Jónas Guðmundsson,
Kristveig Sigurðardóttir, Kristín R. Sigurðar-
dóttir, Linda P. Sigurðardóttir, Magnea Gunn-
arsdóttir, Nanna María Cortes, Ragnheiður
Hafstein, Sigurlaug Jóna Hannesdóttir og
Þóra Guðmannsdóttir. Æfingastjóri og píanó-
leikari sýningarinnar er Claudio Rizzi.
Aðgöngumiðasala er við innganginn.
Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir sópransöngkona.
Vínarvor með
Vox Feminae
og Diddú
KVENNAKÓRINN Vox Feminae heldur vor-
tónleika í tónlistarhúsinu Ými v/Skógarhlíð í
dag, laugardag, kl. 16.00. Einsöngvari með
kómum er Sigrún Hjálmtýsdóttir. Á efnisskrá
eru Vínarljóð og kunn lög úr óperum og óper-
ettum, m.a. eftir Brahms, Lehár, Tsjajkovskíj,
Mozart, Borodin, Schubert og Lehner.
Hljóðfæraleikarar á tónleikunum eru Sig-
rún Eðvaldsdóttir ásamt Veislutríóinu, en það
skipa: Anna Guðný Guðmundsdóttir, Páll Ein-
arsson og Sigurður I. Snorrason. Einnig mun
Amhildur Valgarðsdóttir leika á píanó.
Aðalstjómandi frá upphafi hefur verið Mar-
grét J. Pálmadóttir, og einnig hafa Rut Magn-
ússon, Svana Víkingsdóttir og Sibyl Urbancic
unnið með hópnum. I kómum starfa nú um 40
konur.
Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari.
Dagskrá um Þór-
berg Þórðarson
I TILEFNI afmælis-
dags Þórbergs Þórð-
arsonar verður dag-
skrá í Esperanto-
húsinu á Skóla-
vörðustíg 6b á morg-
un, sunnudag, kl. 15.
Fjallað verður um
rit Þórbergs um esp-
ei'anto og á esperanto.
Þá verður lesið upp úr
óbirtum bréfum
meistarans.
Dagskráin fer fram
opin.
Þórbergur Þórðarson
á íslensku og er öllum
íris Elfa Friðriksdótt-
irsýnir hjá Sævari
í TENGSLUM við Reykjavík menningar-
borg 2000 verður opnuð sýning á verkum
írisar Elfu Friðriksdóttur í Gallerí Sævars
Karls í dag, laugardag, kl. 14. íris Elfa Frið-
riksdóttir er fædd 1960. Hún útskrifaðist
frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 84,
stundaði framhaldsnám við Jan Van Eyck
Akademíuna í Hollandi árin 84 til 86.
Hún sýndi í Galleríi Sævars Karls árið
1996, lágmyndir, steyptar í jámrömmum og
átti verk á Aldamótasýningunni í janúar sl.
íris hefur unnið með andstæð efni, heitt -
kalt, mjúkt - hart, skínandi - matt.
Hún hefur búið í Danmörku sl. 2 ár og
hlaut listamannalaun árið 1999.
Sýningunni lýkur 5. april.
Verk eftir Írisí Elfu Friðriksdóttur.
Halaleikhópurinn
frumflytur Jónatan
HALALEIKHÓPURINN, leikhópur fatlaðra
og ófatlaðra, frumsýnir nýtt íslenskt leikrit í
kvöld, laugardagskvöld, kl. 20 í Halanum, Há-
túni 12. Leikritið heitir Jónatan og hefur und-
irtitilinni: Reyndu að hysja þig upp og bíta
báðum gómum í borð lífsins og hanga þar! Það
er eftir Eddu V. Guðmundsdóttir sem jafn-
framt er leikstjóri.
Leikritið fjallar um Jónatan sem býr í Há-
túni en hann er á leið þaðan og ætlar að fara að
búa sjálfstætt. Hann er lamaður upp að mitti
eftir bílslys en er orðinn nokkuð hress.
Leikritið fjallar um hvernig hann eina
kvöldstund reynir að taka þátt í Iífinu fyrir ut-
an, hvemig hann kemur sér á milli staða og
hvað verður á vegi hans, hvað hann sér og hvað
hann upplifir.
Persónur leiksins em húsandar sem mynda
kór sem í raun segja söguna eða syngja hana,
fara í hin ýmsn hlutverk og mynda leikhljóð.
Kórinn heldur með sínum manni og reynir oft
að hafa vit fyrir honum, en við óvæntum upp-
ákomum ruglast kórinn stundum í ríminu.
Ásdís Úlfarsdóttir, Árni Salomonsson, Guðný
A. Einarsdóttir og Sigríður Geirsdóttir eru
meðal þátttakenda í uppfærslu Halaleikhóps-
Ins á leikritinu Jónatan.
Halaleikhópurinn hefur sett upp sýningu á
hveiju ári írá stofnun eða sjö 'sýningar.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Steinunn Þórarinsdóttir
ogÁsmundur Sveinsson. Til 14. maí.
Englaborg, Flókagötu 17: Sigtryggur B.
Baldvins.. Til 19. mars.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Sara Vilbergsdóttir. Til 19. mars.
Galleri@hlemmur.is: Eirún Sigurðar-
dóttir. Til 26. mars.
Gallerí On o One, Laugavegi
Ásmundur Ásm.son. Til 12. mars.
Gallerí Smíðar og skart: Hjörtur Hjart-
arson. Til 25. mars
Gallerí Stöðlakot: Grímur Marinó
Steindórsson. Til 19. mars.
Gallerí Sævars Karls:
íris Elfa Friðriksd. Til 5. apríl.
Gerðarsafn: Ljósm.fél. ogBlaðaljósmfél.
ísl. Vigfús Sigurgeirs. 19. mars.
Gerðuberg: Anna Líndal. 19. ap.
Hafnarborg: Kristín Loftsdóttir. Pétur
Gautur. Til 20. mars.
Hallgrímskirkja: Sigm-ður Örlygsson.
Till.júní.
i8, Ingólfsstræti 8: Ólöf Bjömsdóttir. Til
2. api-fl.
íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Alistair
Maclntyre. Til. 12. mars.
Kjarvalssstaðir (austurs.): Jóh. S. Kjar-
val. Myndir úr Kjarvalssafni. Katrín Sig-
urðardóttir. Til 16. mars. Carnegie verðl.
Til 2. aprfl.
Listasafn ASÍ: Norrit: Guðrún Gunnar-
sdóttir, Agneta Hobin, Ulla-Maija Vik-
man og og Inger-Johanne Brautaset. Til
12. mars.
Listasafn Ámesinga: Kristur - Mynda-
saga. Til 19. mars.
Listasafn ís.: Jón Gunnar Ámason. Til 9.
ap. Svavar Guðnason og Nína Tryggvad.
Til 26. mars. Svava Bjömsd. Til 2. ap.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið lau. og
sun. kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn op-
inn alla daga.
Listasaín Siguijóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listh. Laugard.: Sissú. 16. mars.
Mokkak.: Láms H. List. 8. aprfl.
Norræna húsið: Gisle Frpysland. Til 12.
mars. Anddyri: Elsku Helsinki: Ljósm.
og fatah. Til 26. mars.
Nýlistasafnið: Kvikar myndir. Til 12.
mars.
Ófeigur, Skólavörðustíg 5: Framhópur-
in Zvefn. Til 28. mars.
Safnahús Reykjavíkur: Ungt fólk í
Reykjvaík á 20. öld. Til 15. maí.
Stofnun Áma Magnússonar: Handrita-
sýning opin þriðjudag-fostudaga kl. 14-
16. Til 15. maí.
Þjóðarbhl.: Isl. sagnah. 30. apríl.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir „Fréttir".
TONLIST
Laugardagur
Ýmir, Skógarhlíð: Vox Femine, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir og
Veislutríóið. KI. 16.
Hallgrímskirlqa: Kammerkór Tónlist-
arh. í Piteá í Svíþjóð. Kl. 17.
Vídalínskirkja og Kirkjuhvolur, Garða-
bæ: Hljómkórinn, Gerrit Schuil og
Richard Simm. Kl. 17.
Þriðjudagur
Salurinn: Tónlistarhópurinn Contrasti.
Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Landkrabbinn, írums. 17.
mars. Glanni glæpur í Latabæ, 12. mars.
Gullna hliðið, 11., 15. mars. Abel Snorko,
. 12., 16. mars. Hægan Elektra, 17. mars.
Vér morðingjar, 11., 12., 17. mars.
Borgarleikh.: Afaspil 12. mars. Sex í
sveit, 12. mars. Djöflamir, 11. mars.
Leitin að vísb. 11., 17. mars.
íslenski dansflokkurinn: Goðsagnimar,
17. mars.
Islenska óperan: Baneitrað samband,
11. mars. Hellisbúinn, 11. mars, 12. mars.
Iðnó: Stjömur á morgunhimni, 12., . 16.
mars. Sjeikspír... 11., 15., 17. mars. Leik-
ir, 15., 17. mars.
Hafnarfjarðarleikhúsiö: Salka, ástar-
saga, 17. mars.
Loftk.: Panodil, 17. mars. Jón Gnarr, 11.
mars. Grettiss., 15. mars.
Kaffileikhúsið: Ó-þessi þjóð, 11., 17.
mars.
Leikfélag Akureyrar: Skækjan Rósa,
11. mars. Gosi, 11., 12. mars.
Fél. eldri borg. Ásgarður Glæsibær:
Rauða klemman, 12., 15. mars.
Möguleikhúsiö við Hlemm: Langafi
prakkai-i, 11., 12. mai's.
Bæjarleikhúsið, Mosfellsbæ: Stríð í friði,
12., 17. mars.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 11. AÁARS 2000