Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Page 12
HAFNARFJÖRÐUR JARÐFRÆÐI sVidahlfð Selhraun \ ^ SKYRINCAR I 1] Hraun _____ runnin □ eftir ísöld. Elstu hraunin \] Ijósfjólublá REYKJAVÍK Hafnarfjöröi ^Grindavík Móberg Grágrýti Gígar og gossprungur 100 m hæoarlínur 2 km , Sprungnir hraunhólar ná út í fjöru og má sjá að hraunsprungur hafa stundum nýtzt sem hús. Þarna er hlaðinn veggur og hugsanlega eru þetta leifar af sjóbúð. flærnis heitir Almenningar og bendir til að þar hafí verið óskipt beitiland. Hin áreiðanlega vekjaraklukka gosvirkninn- ar vakti gosstöðvar að nýju fyrir um 2000 árum. Þá varð enn mikil goshrina og frá einni eldstöð- inni, Stórabolla í Grindaskörðum, rann mikið hraun í átt til Straumsvíkur og myndaði nýja strönd milli Straumsvíkur og Hvaleyrar. Dálítil óregla í þessari þúsund ára reglusemi kom upp fyrir 1800 árum þegar gaus nyrst í Krýsuvíkur- rein, þar sem heita Óbrinnishólar við Bláfjalla- veg. Hraunið, sem nefnt hefur verið Óbrinnis- hólabruni, rann í mjóum taumi niður undir Straumsvík. Þetta gos hafði þó ekki áhrif á land í Hraunum. Hin reglubundna dagskrá fór hinsvegar í gang fyrir um 1000 árum; ísland þá búið að vera numið á aðra öld og ef til vill enn lengur. Þá rann Hellnahraunið yngra, sem svo er nefnt, frá Tví- bollum í Grindaskörðum og náði einn hraun- straumurinn langleiðina til Straumsvíkur, en óvíst er að nokkur bær hafi þá verið í Hraunun- um; elztu heimOdir um byggð þar eru frá því um 1200. Hálfri öld áður rann Kapelluhraun tU sjávar í Straumsvík og hafði áhrif á landmótun þar; yngsta hraunið á þessu svæði. Þó líklegt sé og raunar fullvíst að sagan endurtaki sig létu menn þetta ekki á sig fá þegar álverinu var valinn staður einmitt þar sem Kapelluhraun rann, enda líklegast að margoft væri búið að afskrifa álverið, miðað við venjulega endingu, áður en hraun rennur þar að nýju.. Leiðin suður með sjó og leiðir suður yfir skagann Frá fomu fari hafði ábúendum og öðru fólki á Reykjanesskaga verið skipt í útnesjamenn, sem bjuggu utan við Kúagerði, og innnesjamenn sem tíl að mynda bjuggu í Hraunum og á Alfta- nesi. Fram á 20. öld var mUdl umferð ríðandi, en mun oftar þó gangandi manna suður með sjó og þaðan ,jnn“ í Hafnarfjörð og Reykjavík. Menn fóru í verið tU Suðumesja og svo þurfti að ná í blessaða þorskhausana og reiða þá austur í sveitir á baggahestum. Þorskhausalestir vom dagleg sjón á vorin. Enginn var vegurinn, að- eins götur sem fótspor hesta og manna höfðu markað og þær lágu í krókum og krákustígum eftir því hvar skást var að komast yfir hraunin. Alfaraleiðin suður með sjó lá ekki um hlöðin á Hraunabæjunum, heldur lítið eitt sunnar, raun- ar sunnan við Keflavíkurveginn eins og hann er nú. Þessar götur era nú löngu upp grónar, en samt sést vel móta fyrir þeim. Frá Lónakoti lá stígur suður í Lónakotssel og frá Óttarsstöðum lá Rauðamelsstígur, einnig nefndur Skógar- gata, suður í Óttarsstaðasel, en þaðan yfir Mosa og Eldborgarhraun um Höskuldarvelli að Trölladyngju. Eftir þessum götuslóðum var annarsvegar hægt að ganga til Krísuvíkur og hinsvegar til Grindavíkur. Frá Straumsvík lá Straumselsstígur nokkur- nveginn samhliða suður á bóginn, við túnfót Þorbjamarstaða, og um Selhraun að Straumseli suður í Almenningi. Stígurinn lá síðan áfram til suðurs og og heitir Ketilstígur þar sem hann liggur yfir Sveifluhálsinn; þetta var gönguleið til Krísuvíkur.(Sjá kort í næstu Lesbók). Sunnarlega í Almenningi vora gatnamót þar sem Hrauntungustígur liggur yfir stígana þrjá og stefnir á Hafnarfjörð. Enn sunnar er komið á Stórhöfðastíg; hann stefnir einnig til Hafnar- r fjarðar og sameinast Hrauntungustíg vestur undir Ásíjalli. Þetta samgöngukerfi fortíðarinn- ar er flestum týnt, grafið og gleymt, en Um- hverfis- og útivistarfélag Hafnarfjarðar hefur dustað af því rykið, ef svo mætti segja, og merkt stígana i Hraununum með skiltum. Vetur í Hraunum. Hér eru minjar um sauðfjárbúskapinn, steypt fjárhústóft, sem er að mestu nlður brotin, og bílhræ. Óttarsstaðabæirnir sjást í baksýn. í nánd við Óttarsstaðavör hefur þetta skip dagað uppi á malarkambínum og minnir á beinagrind af fornaldardýri. Álverið í Straumsvík í baksýn. Hvaðverður um Hraunin? Lengst af vora Hraunabæimir í Álftanes- hreppi, en þegar Álftaneshreppi var skipt í Bessastaða- og Garðahrepp 1878, var talið að Hraunin væra hluti Garðahrepps eins og Hafn- arfjörður. Eftir að Hafnarfjörður fékk kaup- staðarréttindi 1908 vora Hraunin áfram talin til- heyra Garðahreppi, en þau komu í hlut Hafnfirðinga árið 1967 þegar gerður var maka- skiptasamningur við Garðabæ. Nú má spyija hvers virði Hraunajarðimar séu þegar búskapur þar hefur lagzt niður. Án efa era Hraunin mikils virði, þó ekki væri vegna annars en þess að þau era rétt við þröskuldinn á höfuðborgarsvæðinu. Mörgum þætti ugglaust freistandi að byggja þar og má minna á, að í tímaritinu Arkitektúr verktækni ogskipuiag frá 1999, viðrar Gestur Ólafsson arkitekt hugmynd um samfellda borgarbyggð íirá Keflavík til Hafnarfjarðar. Með öðram orðum: Höfuðborg- arsvæðið verði í framtíðinni byggt á þann veg- inn í stað þess að teygja það upp á Kjalames. Með þessa hugmynd í huga eru Hraunin ná- kvæmlega í miðju byggðarinnar frá Mosfellsbæ til Keflavíkur. I næstu framtíð má telja víst að Hraunin verði útivistarsvæði. Eins og sakir standa era þó annmarkar á því. Enda þótt merktur göngustíg- ur liggi frá Eyðikoti til Lónakots er yfir girðing- ar að fara og einkalönd. Stundum eru hross þar í girðingum og þá er áríðandi að hliðum sé lokað, en ekki er víst að allir hirði um það. Æskilegast væri að friðlýsa Hraunin, sem yrðu þá útivistar- svæði í umsjá Hafnfirðinga. Til þess að svo geti orðið þyrfti að kaupa það sem eftir er í einkaeign og sumarbústaðir og girðingar ættu þá ekki að vera þar framar. í 2. hluta, sem birtist í næstu Lesbók verður litíð nánar á jarðirnar Lónakot og Straum. «12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 11. MARS 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.