Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Page 7
SKOÐANAKONNUN OG GREINARSKRIF UM DYGGÐIR AÐ FORNU OG NYJU
BREYTINGAR A
SIÐFERÐISGILDUM
Líkt og flest annað í samfélaginu er hugtakið dyggð
breytingum undirorpið. Flöfuðdyggðirnar sjö úr krist-
indómnum, sem skotið var í bringu flestra íslenskra
barna ó síðustu öld, virðast við upphaf þeirrar nýju
ekki vera jafn ráðandi og áður. í rannsókn sem Gall-
up gerði á ís landi í árslok 1999 kom margt forvitni-
legt fram unr \ þær sjö dyggðir sem i íslendingar meta
mest. Nýjasta tölublað Tímarits Móls og menningar
var enn fremur helgað þessu umræðuefni.
HUGMYNDIR þjóðarinnar
um dyggðir og kristilegt
siðferði eru orðnar órjúfan-
legur þáttur í afstöðu okkar
til lífsins. Margt bendir
samt til að þau miklu um-
skipti sem orðið hafa á sam-
félagi okkar undanfama
áratugi hafi leitt til breytinga á þeim siðferðis-
gildum sem ráða ferðinni.
Skoðanakönnun á vegum Gallup bendir til
að aðrar dyggðir séu í hávegum hafðar en höf-
uðdyggðimar sjö; viska, hugrekki, hófstilling,
réttlæti, trú, von og kærleikur.
Hugmynd að könnuninni átti Hannes Sig-
urðsson listfræðingur sem jafnframt hefur
haft umsjón með verkefninu. Hann fór þess á
leit við Gallup á íslandi að gerð yrði skoðana-
könnun til að meta siðferði samtímans. Nið-
urstaða rannsóknarinnar var í framhaldi af því
notuð sem hugmyndafræðilegur rammi fyrir
listamennina sem sýna í Stekkjargjá um þess-
ar mundir. A sýningunni er þessum sjö nú-
tímadyggðum teflt saman við höfuðdyggðimar
úr kristinni siðfræði.
í tengslum við niðurstöður rannsóknarinnar
hafa ýmsir kennimenn ritað greinar í Tímarit
Máls og menningar og var síðasta tölublað
mestmegnis helgað þessu umfjöllunarefni. Par
er dyggð metin út frá fornum og nýjum við-
miðum - og sýnist sitt hverjum.
Furðu lítil áhersla á
menntun og starfsframa
Skoðanakönnun Gallup fór fram haustið
1999 og samanstóð úrtakið af 1200 íslending-
um á aldrinum 16-75 ára sem valdir voru með
tilviljun úr þjóðskrá. Könnunin var tvískipt. I
fyrri hluta hennar var fólk spurt hvað það
mæti mest í fari annarra, væri ánægðast með í
eigin fari eða hvaða eiginleikum það vildi helst
vera búið. Meginniðurstaðan var sú að hinar
sjö nútímadyggðir eru heiðarleiki, hreinskilni,
jákvæðni, traust, dugnaður, fjölskyldu- og vin-
áttutengsl og heilsa. Sérstaka athygli rann-
sóknarmanna vöktu yfirburðir heiðarleika.
„Þegar fólk var spurt hvað það mæti mest í
fari annarra var svarið heiðarleiki í 59,3% til-
fella,“ segir Þorlákur Karlsson frá Gallup.
„Okkur þótti það athyglisvert og ekki síst
vegna þess að óvanalegt er að eitt atriði komi
svona sterkt fram þegar spurt er með opinni
spurningu.“ Hann útskýrir að opin spurning sé
þegar þátttakendum er frjálst að nefna það
sem þeim kemur til hugar. Heiðarleiki var líka
algengasta svarið þegar spurt var hvaða eigin-
leikum fólk vildi sjálft vera búið og hann er sú
dyggð sem fólk metur meira eftir því sem það
eldist.
Svipaðar niðurstöður voru í síðari hluta
rannsóknarinnar en þar var fólk beðið um að
forgangsraða fimm hugtökum eftir því hvað
þeir teldu mikilvægast í lífínu eða skipti mestu
máli í hamingjusömu lífi. Þar kom í ljós að fjöl-
skylda, vinir og góð heilsa virtist skipta flesta
mestu máli.
„Það vekur furðu hve lítils Islendingar meta
starfsframa og menntun," segir Jón Proppé
sem kom að gerð spumingalistans ásamt Þor-
láki. „Það er á skjön við þá mynd sem margir
vilja draga upp af hinu hraða tæknisamfélagi
þar sem viðskipti og upplýsingar eru driffjöð-
ur alls.“
I einni spumingu svöraðu tæplega 70% því
til að fjölskyldu- og vináttusambönd væra mik-
ilvægari en frami og menntun í starfi. „Það
kemur líklega fáum á óvart að fjölskyldutengsl
skuli varða íslendinga miklu enda er samfé-
lagið lítið og íslendingar rómaðir fyrir ætt-
rækni,“ skrifar Jón Proppé í greininni Dyggð-
irnar og íslendingar í Tímariti Máls og
menningar. „Hitt er þó áhugaverðara að þeir
virðast meta þessi bönd framar öllu öðra -
framar menntun, heilsu og starfsframa."
Því fer fjarri að niðurstöður rannsóknarinn-
ar nýtist eingöngu fyrir sýninguna og bendir
Þorlákin- á að þær geti í mörgum tilvikum ver-
ið hagnýtar og fýsileg vitneskja fyrir ýmis fyr-
irtæki. Hannes bendir á að nýrri auglýsingar
beri keim af þessum nýju dyggðum. „Auglýs-
ingabransinn virðist hafa verið aðeins á undan
okkur að þefa uppi hinar nýju dyggðir," segir
Hannes kíminn. „Traust fyrirtæki, hljóða
skilaboðin. Og hver kannast ekki við sam-
heldnu fyrirmyndarfjölskylduna í íslenskum
auglýsingum."
Jón Proppé bendir á að margir hafi átt erfitt
með að sjá hvernig telja mætti fjölskyldu- og
vinatengsl til dyggða. Hann vísar því til út-
skýringar til grunnintaks dyggðafræðanna
sem er að fólk skuli rækta með sér dyggðir en
bæla niður lesti. „Ef maður nýtur stuðnings
fjölskyldu og góðra vina er það dyggð að
rækta hann og nýta til góðra verka en löstur
að gera það ekki.“
Hvernig koma dyggðirnar
undan nýliðinni öld?
Gömlu dyggðimar hafa oft verið kenndar
við kristni enda mjög markaðar af boðskap
kirkjunnar. Sumar höfuðdyggðana hafa jafn-
vel enn lengri forsögu og eiga rætur að rekja
til forngrískrar menningar. Jón Proppé kveð-
ur dyggðir hafa verið grandvöll að allri sið-
ferðisumræðu í fornöld og á miðöldum.
„Dyggðir era grandvöllur þess að maður geti
verið góður,“ útskýrir hann og bætir við að síð-
ustu 30 ár hafi dyggðir verið mikið í umræð-
unni hjá siðfræðingum.
í nýjasta tölublaði Tímarits Máls og menn-
ingar velta fjórir fræðimenn fyrir sér dyggðar-
hugtakinu og þróun þess í gegnum tíðina. Það
era auk Jóns Proppé þau Þórann Valdimars-
dóttir sagnfræðingur, Salvör Nordal heim-
spekingur og Gottskálk Þór Jensson fornfræð-
ingur.
„Hvernig koma dyggðimar sjö undan nýlið-
inni öld?“ spyr Þórann Valdimarsdóttir í sam-
antekt sinni um stöðu fomu dyggðana á 20.öld-
inni. „Þær hafa sýnist mér allar breyst og
flestar látið mikið á sjá. Viskan er búin að vera,
hugrekkið ekki boðað sem dyggð og er því
alveg falið og sálrænt, hófstilling er orðin
dyggð heilsunnar vegna, réttlætið ekki lengur
baráttumál, trúin ekki svipur hjá sjón, vonin
séríslenskt íyrirbæri vegna uppgangs á öld-
inni, kærleikur fellur aldrei, en gáfulegast orð-
ið að tala sem minnst um hann nema bókstaf-
lega í augnaráði, brosi og snertingu. Við höfum
misst trúna á upphafin og háleit markmið. Það
er ágætt, mannapinn þekkir betur takmörk sín
en áður, og það er vel...“
Eina vitið að segja hug sinn
I greininni Dyggðirnar sjö að fornu og nýju
bendir Þórunn á að nýjar og gamlar dyggðir
beri allar að sama branni þrátt fyrir miklar
breytingar í gegnum tíðina, þær séu til að efla
vellíðunarþátt lífsins á varanlegan hátt. Ræt-
urnar séu djúpar í menningarlíkamanum og
dyggðirnar eigi sér langa sögu.
Hún stillir fornu og nýju dyggðunum upp
sem tvenndum svo sem visku og hreinskilni,
hugrekki og dugnaði, hófsemi og heilsu. „Visk-
an varð endanlega ragluð síðustu öldina við of-
framboð upplýsinga og spekirita ýmislegra frá
ýmsum heimshomum. Hreinskilnin hefur tek-
ið við af viskunni eftir að viskan viðurkenndi
hvað hún var afstæð og heilarannsóknir sýndu
fram á kaos hugsunarinnar. Eftir það varð
viskan einfeldningsleg. Eina vitið í samtíman-
um er að segja hug sinn.“
Gottskálk Jensson segir hug sinn í greininni
Dygðir íslendinga - Frá Gesta Adams frá
Bremen til deCODE genetics og kýs að nota
eitt g í orðinu. Þar ræðir hann ítarlega um
dyggðir íslendinga og veltir einnig fyrir sér
forsendum skoðanakannana af því tagi sem
framkvæmd var af Gallup. „Þótt markmið
könnunarinnar hafi verið það að finna hverjar
væru sjö helstu dygðir nútíma íslendinga era
það strangt til tekið hvorki dygðir né dygðir
Islendinga sem fengust út úr könnunninni
heldur þeir eiginleikar sem einstakir íslend-
ingar telja mikilsverða í sínu eigin fari og til
dæmis þeirri manneskju sem þeir bera mesta
virðingu fyrir.“ Gottskálk bendir á að grísku
höfuðdyggðirnar fjórar séu ekki dyggðir ein-
staklinga heldur dyggðir fyrirmyndarríkis
Platóns og að kristnu höfuðdyggðimar hafi
strangt til tekið enga merkingu utan sinnar
bóklegu guðstrúar. „Spurningin um dygðir ís-
lendinga fjallar því, samkvæmt hinni upphaf-
legu skilgreiningu á dygðinni, um hvort Is-
lendingar eigi sér og hafi í gegnum tíðina átt
sér eitthvert hlutverk eða eiginverk sem þeir
sinni einir eða sinni af meiri dugnaði en aðrir,
aðrir hópar manna, aðrar þjóðir. Ef svara á
þessari spumingu þarf því að skoða söguna,“
segir Gottskálk.
Það er jú þess vegna
sem þetta eru dyggðir
Líkt og Gottskálk gerir í grein sinni í Tíma-
riti Máls og menningar er saga dyggða skoðuð
á sýningunni í Stekkjargjá. Við þá skoðun hafa
menn rýnt í hugtakið með ólíkum aðferðum
raunvísinda, sagnfræði, bókmennta og lista.
Afraksturinn er fyrirliggjandi greinar, rann-
sóknarniðurstöður Gallup og sýningin í
Stekkjargjá sem og í Listasafni Akureyrar.
Ekki er allir á einu máli um hvaða rannsókn-
artæki henti best til að meta dyggðina eða
hvernig hún er best skilgreind. „Ef stóumaður
væri spurður þess sem væri eftirsóknarverð-
ast í lífinu og lykillinn að hamingjusömu lífi
stæði ekki á svari,“ era upphafsorð í grein
Salvarar Nordal Dyggðir að fornu og nýju.
„Hamingjan felst í því að uppræta ástríðumar
úr sálinni og öðlast stóíska ró, apatheia."
Afstaða stóumanna virðist ekki endurspegl-
ast í hugum Islendinga samkvæmt skoðana-
könnun Gallup. Flestir geta hins vegar verið
sammála um eftirfarandi hugleiðingu Þórann-
ar um samtímadyggðina: „Mér sýnist ástund-
un samtímadyggða koma í veg fyrir vandræði
á vegi lífsins og auka vellíðan. Tvær nýju
dyggðanna era trúarlegar eða tilfinningalegar,
jákvæði og traust, hinar tengjast atferli. At-
ferlisdyggðirnar mynda öraggan ramma um
lífið, veita heilbrigð skilyrði, koma í veg fyrir
árekstra og veita því vellíðan, því er ekki hægt
að neita þegar venjulegt samtímafólk á í hlut.
Það er jú þess vegna sem þetta eru dyggðir!"
Dyggðlrnar sjö að fornu og ný|u
Myndlistarsýnlng á Wngvöllum
Holda Hákon
Guð|ón BÞmason
HalWór Asgelrsson
Helgl Þorglls Frlðjónsson
Gabrfela Frlðrlksdótttr
ÓskVllhþlmsdöttir
Ólöf Nordal
Bjaml Slgurb|ömsson
Ragnhlldur Stefónsdóttlr
Flnna Blrria Sfelnsson
Hannes Urosson
RUrf
Slgurður ArntSlgurðsson
Mugntts Tómasson
þlNGVAU^VEGUR
^VANNAGJl
1 Hrelnskilnl
I Hellsa
3 Keetlelkur
4 Tró
5 Vlska
6 F|ölskylda / vlnítta
7 Traust
8 Hugrekkl
9 pkvæðl
10 Heiðarlelkl
II Dugnaður
U Hófetllllng
13 Von
14 Réttlætl
KRlSIKl
Thjkjndas
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. JÚLÍ 2000 7