Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Blaðsíða 19
TILÞESSAÐÞAÐSÉLÍF VERÐUR AÐ VERA UÓS Á Kristnihátíð á aðal- sviðinu í dag klukkan 14 verður fluttur helgileikur eftir þá Hjálmar H. Ragn- arsson og Kristján Val Ingólfsson sem nefnist Sálmar um lífið og Ijósið. Flytjendur eru barnakór- ar víðsvegar að á land- inu, karlakór og Skóla- hljómsveit Kópavogs auk dansara úr Listdansskóla (slands. ÞORVARÐUR HJÁLMARSSON spjall- aði við Kristjón Vó 1 um verkið, tilurð þess og fi utning. ÞAÐ verður án nokkurs vafa til- komumikil sjón sem blasir við fólki á aðalsviði Kristnihátíðar klukkan 14 í dag. Þá stíga þrjúhundruð skartklædd ung- menni víðs vegar að á landinu á stokk og flytja helgileikinn „Sálmar Um lífið og ljósið“. Börnin munu syngja, leika og dansa af hjart- ans lyst ef að líkum lætur og setja glaðvær- an svip á hátíðarhöldin. Tónlistina við leikinn samdi Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld við texta úr Biblíunni og sálma eftir Kristján Val Ingólfsson. Leikurinn var frumfluttur á hátíð í Hallgrímskirkju sumarið 1995 en nú verður flutningur hans heldur stærri í snið- um en þá var. Lúðrasveit og upprennandi listdansarar koma við sögu og karlakór hef- ur upp raust sína. Það liggur því nánast í hlutarins eðli að forvitnast eilítið um upphaf alls þessa. „Upphafið má eiginlega rekja til Harðar Askelssonar,“ segir Kristján Valur Ingólfs- son, höfundur texta helgileiksins. „Segja má að verkið verði til að frumkvæði hans. Hann var búinn að stefna að þessu nokkuð lengi og það var síðan í febrúar 1995 sem hann kom að máli við okkur Hjálmar og bað okkur um að taka að okkur þetta verk- efni, sem við og gerðum. Verkið Sálmar um lífið og ljósið er hugsað sem ein samofin heild. Hver sálmur er þó sjálfstæður og því er hægt að flytja verkið ýmist sem heild eða syngja sálmana sér. Verkið er byggt upp með þeim hætti að ritningarstaðirnir mynda einhverskonar undirstöðu eða grind en sálmarnir á milli hugleiða efni ritningar- staðanna eða eru einskonar framhald af þeim. Sálmarnir eru þó einkum ætlaðir börnum. Meginhugsun verksins er einföld og skýr; Guð gefur líf og ljós. Verkið á að höfða til barna, það víkur að sköpuninni og birtir hugleiðingar um náttúruna og skapa- rann sjálfan. Okkur var líka hugstætt að kynna sveitina fyrir krökkum nútímans sem hafa kannski ekki haft tækifæri til að kynnast lífinu í sveitinni; lífinu og náttúr- unni sem við þekktum hér áður fyrr. Við vildum kynna börnunum forsenduna sem er þessi: til þess að það sé líf þarf að vera Ijós. Fyrsta hugsunin í verkinu er sú að Guð MorgunblaSið/Jim Smart „Verkið er byggt upp með þeim hætti að ritningarstaðirnir mynda einhverskonar undirstöðu eða grind, en sálmarnir á milli hugleiða efni ritningar- staðanna eða eru einskonar framhald af þeim,“ segir Kristján Valur Ingólfsson. skapar ljós til þess að það geti verið líf. “ „Ritningarstaðirnir eru sungnir af karla- röddum og þeir byggja nokkuð á fornum gregorískum stefjum og síðan eru sálmarnir á milli eins og úrvinnsla á þessum textum sem við byggjum á. Utfærslan sjálf er miklu meiri því það eru búningar og hreyfingar og höfðað til miklu fleiri skynfæra en bara heyrnarinnar. Listdansinum stjórnar Auður Bjarnadóttir og Messíana Tómasdóttir er hönnuður búninga og þær setja þetta upp í sameiningu. Þetta var auðvitað í upphafi ætlað til flutnings í Hallgrímskirkju og inni en þarna förum við út í náttúruna og þess vegna varð að útsetja tónlistina upp á nýtt fyrir lúðrasveit. Það má segja um efnið að á sínum tíma þegar við vorum að semja þetta vildum við vera með texta sem væru í ákveðnum tengslum við lífið. Margir af þess- um sálmum sem við syngjum nú eru eldri og þeir ganga út frá miklu einfaldari heims- mynd en okkar, skulum við segja. Þess vegna er allt í himnalagi í þessum eldri sálmum en við viljum koma því inn þarna að það er ekki alltaf allt í lagi. Einn sálmurinn tekur á þeim vanda sem fólk býr við vegna þunglyndis eða erfiðleika og hann heitir „Það skín ekkert ljós“. Þar er fjallað um það þegar maður er bjargarlaus og kemst ekki að með það sem maður myndi vilja gera fyr- ir sína nánustu." - Má ef til vill líta á helgileikinn sem til- raun til að færa sálmasöng nær tímunum sem við lifum á og nær nútímafólki? „Já, það má segja það. Orðalag sálmatext- anna hjá okkur er þannig að við notum mik- ið „vér“ og „oss“ og það er einfaldlega vegna þess að það er svo gott að ríma á móti vér og oss. Þannig er sálmamálið. A nokkrum stöðum gerði ég tilraun til að breyta þessu og notaði „okkur“ í staðinn fyi'ir „oss“, til dæmis í sálminum „Kristur er ljós heims- ins“. Mér finnst það þó reyndar hljóma eins og færeyska að segja „okkur“, þannig að ég verð sjálfur að venja mig við þessa ný- breytni. Verkið er í rauninni hugsað sem ákveðið ferli sem minnir á ferlið í messunni. Það byrjar á lofgjörð og endar á blessun. Lokakaflinn er bæn um blessun og innri frið og heitir „Guð sem skapar líf og ljós“: Guð sem skapar líf og ljós, lætur vakna hverja rós. Hann er Guð sem gefur þér góðan dag og einnig mér. Myrkrið hrekur hann á braut, hjálpar vel í sorg og þraut. Hvert sem leiðin liggur þín lýsir hann þér heim til sín. Láttu Drottinn lýsa enn ljósið þitt, svo allir menn hér á jörðu, hvar sem er, heiðri þig og fylgi þér. Ég vil hafa þetta öðruvísi „Það skemmtilegasta við að vinna með Hjálmari var að ég er ekki vanur því þegar ég er að yrkja að hafa við hlið mér einhvern sem segir: „Heyrðu, ég vil hafa þetta öðru- vísi. Nú vantar mig viðlag og fleiri vers.“ Þetta var ákaflega ánægjulegt og gefandi samstarf. Við unnum verkið í mikilli skorpu, mest í kringum páskana 1995. Verkið var síðan frumflutt á Kirkjulistahátíð í Hall- grímskirkju í júní þá um sumarið. Þótt verk- ið sé hugsað fyrir krakka og sumt hugsað meira fyrir krakka en annað kemur í ljós að þetta er auðvitað samt sem áður fyrir full- orðna líka. Þarna eru tilvísanir í ákveðna at- burði á kirkjuárinu. Sálmurinn „Lífið gefur Guð“ er í sjálfu sér jólasálmur og Hjálmar hugsar hann í rauninni þannig.“ - En íjalla sálmarnir beint um borgina og borgarlífið og þá skuggahliðar þess sem því miður eru veruleiki alltof margra barna sem alast upp í dag? „Af því að við höfum verið svo mikið í sveitinni eru til ákaflega fáir sálmar sem gerast í borginni. Borgarveruleikinn sem að sumu leyti er mjög firrtur er samt sem áður í dag hinn eðlilegi veruleiki. Auðvitað reynd- um við að koma eilítið nær þessum veruleika sem við erum að fást við dagsdaglega. Þó ekki nema væri út frá því eðli kristindóms- ins að koma að aðstæðum hverju sinni og byrja á því að viðurkenna þær. Það sem breytist gerir það þá út frá þeim boðskap sem kemur inn í þessar nýju aðstæður, ef fólkið tileinkar sér hann. Ekki það að við ætlum fyrirfram að breyta aðstæðunum út á við og segja: „Þetta á ekki að vera svona!“ Hjálmar H. Ragnarsson Krafturinn til að breyta aðstæðunum verður y* að koma innan frá. Þá verðum við líka að hafa séð við hvað er að glíma. Um þetta efni fjalla ég í sálminum „Hvers leitið þér menn“: í iðandi straum um stræti og torg sér auga vort enn þitt andlit í sorg. Hins vonlausa vein, hið vesæla skar það hrópar á hjálp. Ó, heyr, þú ert þar. Vér höldum þú sért með honum sem flýr. Hann frelsið ei fann j á fjöllum því býr. Svo líður vort líf í leit og í neyð uns illskunnar ok má enda sitt skeið. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. JÚLÍ 2000 19"

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.