Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Blaðsíða 17
Leikhópur úr Þjóðleikhúsinu með dagskrá af tvennu tagi á Kristnihátíð á Þingvöllum pll|tef8tÉStl . msm Morgunblaðið/ Arnaldur Þau taka þátt í dagskránni á Þingvöllum: Jóhann Siguróarson, Valdimar Örn Flygenring, Edda Heiðrún Backman, Edda Arnljótsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Stefán Jónsson og Rúnar Freyr Gíslason. FELDSKOÐUN OG KENNIMENN ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ gengst fyrir dagskrá af tvennum toga á Kristnihátíð á Þingvöllum. I dag kl. 16.15 verður sýnt leikritið Höfuð undir feldi og á morgun kl. 11.30 og 15 mun leikhópur húss- ins bregða sér í gervi valin- kunnra persóna frá ýmsum tím- um sem tengjast kristnisögu þjóðarinnar með einum eða öðrum hætti. Umsjón hefur Þórhall- ur Sigurðsson leikstjóri. Höfuð undir feldi er leiksýning sem Jón Öm Marínósson samdi sérstaklega fyrir Kristnihá- tíð. Verður hún sýnd á aðalsviði hátíðarinnar. Eins og nafnið gefur til kynna veltir höfundur þar fyrir sér því sem gerðist meðan Þorgeir Ljósvetningagoði var undir feldinum. „Hann dembir yfir Þorgeir röksemdum úr báðum átt- um og fer í gegnum ákveðið ferli áður en dómur er upp kveðinn. Þetta er ekki bara helgisögnin heldur eru þama dregin saman helstu sjón- armið í málinu," segir Þórhallur Sigurðsson en meðal gesta goðans undir feldinum em persónur sem hafa sitthvað til málanna að leggja. Má þar nefna Ólaf Noregskonung, Síðu- Hall, Gissur hvíta og Hjalta Skeggjason. Þórhallur segir höfund nálgast efnið með nú- tímalegum hætti. „Þetta var auðvitað pólitísk ákvörðun hjá Þorgeiri enda þurfti hann að höggva á hnútinn áður en allt fór í bál og brand. Hann varð að beita stjórnkænsku sem við köll- um í dag pólitík." Kristnir kennimenn Á morgun, sunnudag, býður Þjóðleikhúsið upp á dagskrá í tvennu lagi. Kl. 11.30-13 mun leikhópurinn sýna myndbrot úr kristnisögu þjóðarinnar. Birtast þar persónur á borð við Guðmund góða, Brynjólf Sveinsson biskup og JónVídalín. „Hópurinn verður á ferð í Almannagjá og mun flytja prédikanir eða ræður eftir góða kennimenn fyrri tíma. Þama tekur hver við af öðmm og að sjálfsögðu verða leikaramir í gerv- um viðkomandi persóna. Þama er á ferð frábær texti og skora ég á fólk að hlusta á þá á göngu sinni gegnum gjána.“ Kl. 15-16 verður leikhópurinn aftur á ferð á Þórhallur Sigurðsson leikstjóri aðstoðar Rúnar Frey Gíslason við að komast i „karakter". sama stað en þá verða trú og efasemdir í bók- menntum á tuttugustu öld í brennidepli. Leikar- amir fara með texta úr umræddum bókmennt- um og skjóta ýmsar kunnar persónur upp kollinum. „Þarna koma líka heitir kennimenn við sögu og þrama yfir liðinu - margir hverjir býsna skrautlegir," segir Þórhallur. Hann segir skemmtilegt að taka þátt í verk- efni af þessu tagi þótt leikið verði við aðrar að- stæður en þekkist í Þjóðleikhúsinu. „Við eram öllu vön, til dæmis margreynd í dagskrá í tilefni af þjóðhátíð. Auðvitað er þetta mjög sérstök há- tíð og stærri í sniðum. Eins og alltaf með úti- hátíðir leikur veðrið líka stórt hlutverk. Ef rign- ir eram við ágætlega sett á stóra sviðinu sem er yfirbyggt og það verður þá bara að halda regn- hlíf yfir liðinu í gjánni svo það rigni ekki niður. Annars hugsum við ekkert um það. Spáin er ágæt og það verður gott veður. Ég veit það.“ Leikai'amfr sem taka þátt í verkefnunum tveimur era Baldur Ti-austi Hreinsson, Edda Amljótsdóttir, Edda Heiðrún Backman, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhann Sigurðarson, Ólafur Darri Ólafsson, Pálmi Gestsson, Rúnar Freyr Gíslason, Stefán Jónsson og Valdimar Öm Flygenring. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. JÚLÍ 2000 1 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.