Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Side 20
DAGSKRA
KRISTNIHÁTIÐAR
A ÞINGVÖLLUM
Fjölbreytt dagskrá verður á Þingvöllum dagana tvo
sem Kristnihátíð stendur yfir. Hér verður stiklað á stóru
um það sem verður á boðstólum í dag og á morgun.
Tónlist
Margir flytjendur flytja fornan kirkjulegan
söng og fara þau atriði flest fram í Þingvalla-
kirkju. Glúmur Gylfason og fleiri áhugamenn
um tónlist flytja Gregorstíðasönginn Príma
og Sext, miðmorgunstíð og miðdagstíð, kl. 9
og 12.15 í dag í Þingvallakirkju. Séra Þórhall-
ur Heimisson og sr. Þórir Jökull Þorsteinsson
stjórna athöfninni. Voces Thules flytja nátt-
^ söng kl. 21 og óttusöng kl. 24 í kirkjunni.
Söngvarnir eru úr Þorlákstíðum. Voces Thul-
es flytja einnig trúarjáningasöng, elsta varð-
veitta dæmi um íslenskan tvísöng kl. 174 há-
tíðarsviðinu á Efri-Völlum.
A morgun syngur unglingakór Selfoss-
kirkju Laudes eða óttusöng hinn efri kl. 9.05
undir stjórn Margrétar Bóasdóttur. Séra Jón
Dalbú Hróbjartsson stjórnar athöfninni. Kór-
inn syngur Sext eða miðdagstíð kl. 12 og
stjórnar þá sr. Valgeir Astráðsson athöfninni.
Sama dag kl. 18 flytur Kirkjukór Selfoss aft-
ansöng eða vesper í Þingvallakirkju. Stjóm-
andi er Glúmur Gylfason og athöfninni stjórn-
ar sr. Jón Helgi Þórarinsson. Síðasta
dagskráratriðið sem fram fer í Þingvalla-
kirkju er náttsöngur eða completorium sem
Glúmur Gylfason og fleiri áhugamenn um
Gregorsöng flytja. Náttsöngurinn hefst kl. 20
* og stjórnar sr. Ingólfur Guðmundsson athöfn-
inni.
Tónlist flutt alls staðar
ó svæðinu
Kórar, blásarar og orgel em meðal þeirra
hljóðfæra sem leikið verður á um allt svæðið
um helgina.
Fáninn verður hylltur kl. 11 báða dagana
við Lögberg og Þingvallakirkju. Við hylling-
una leikur Skólahljómsveit Kópavogs undir
stjórn Össurar Geirssonar. Sálmar lífsins,
sálmaspuni Gunnars Gunnarssonar og Sig-
urðar Flosasonar, er fyrsta tónlistaratriðið
sem fram fer á hátíðarsviðinu í dag og hefst
það kl. 13. Þar leika tónlistarmennirnir af
fingmm fram hugleiðingar um þekkta sálma.
Drengjakór Laugarneskirkju stígur á hátíð-
arsviðið í dag kl. 16, undir stjóm Friðriks S.
Kristinssonar. A morgun kl. 18 em svo tón-
leikar ætlaðir ungu kynslóðinni á hátíðarsvið-
inu. Flytjendur em orgelkvartettinn Apparat
og hljómsveitin Múm.
Lúðraþytur heyrist yíða á morgun. Málm-
blásarar undir stjórn Asgeirs H. Steingríms-
sonar leika á ýmsum stöðum og flytja þeir
meðal annars verkið Intrada eftir Tryggva M.
Baldursson. Lúðrarnir leika á gjábarminum
og á þingpalli, ásamt Hamrahlíðarkórnum
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, fyrir
hátíðargesti. Hamrahlíðarkórinn tekur einnig
á móti hátíðargestum með söng við Lögberg.
_ Dómkórinn undir stjórn Martins H. Friðriks-
- * sonar syngur við komu gesta í Aimannagjá.
Kærleikskrókur og Stekkjargjó
A laugardag og sunnudag koma margir
flytjendur fram á söngpallinum við Stekkjar-
gjá yfir daginn. Hóparnir flytja það lagaval
sem er á efnisskrá hvers og eins.
í Kærleikskróki, þar sem verður nestisað-
staða fyrir gesti, koma tónlistarmenn fram og
leika létta tónlist undir málsverði fólks.
Fyrirlestrar
I Þingvallakirkju verður haldin fjölbreytt
fyrirlestradagskrá í dag og á morgun. Fjöl-
margir fyrirlesarar og upplesarar koma fram
pg fjalla um ólík efni sem tengjast kristni á
íslandi. Gert er ráð fyrir að flestir fyrirlestr-
arnir séu um klukkustund hver í flutningi.
ídag
Meirihluti fyrirlestranna verður fluttur í
dag og stendur dagskráin frá því um morgun-
inn og þar til seint um kvöldið. Fyrsti fyrir-
lesturinn hefst kl. 10 og er það Gunnar Harð-
arson, dósent í heimspeki við Háskóla
íslands, sem heldur fyrirlestur um íslenska
hómilíubók. Marta Nordal er lesari með
Gunnari. Svanhildur Óskarsdóttir heldur fyr-
irlestur um Sólarljóð kl. 11, lesari með henni
er Edda Björg Eyjólfsdóttir.
Lilja, hið merka ljóð Eysteins munks, er
viðfangsefni dr. Einars Sigurbjörnssonar.
Einar hefur fengið til liðs við sig Gunnar Eyj-
ólfssson leikara, sem mun flytja valda kafla úr
ljóðinu. Fyrirlesturinn hefst kl. 13. Kristinn
Kristmundsson, skólameistari Menntaskól-
ans á Laugarvatni, heldur fyrirlestur kl. 14.
Fjallar hann um skáldið Jón Arason og les sr.
María Ágústsdóttir úr Ljómum.
Hallgrímur Pétursson er efni fyrirlestrar
eftir sr. Heimi Steinsson. Séra Þórhallur
Heimisson flytur fyrirlesturinn kl. 15 og
munu þau Silja Aðalsteinsdóttir og Arnar
Jónsson lesa úr Passíusálmunum. Dr. Gunnar
Kristjánsson heldur fyrirlestur kl. 16 sem
fjallar um Jón Vídalín og j>ostillu hans. Edda
Björg Eyjólfsdóttir les „Á vitjunardegi Mar-
íu“ og Friðrik Friðriksson „Um lagaréttinn“.
Seint í kvöld verða fluttir tveir fyrirlestrar.
Kl. 22 flytur sr. Þórhallur Heimisson fyrir-
lestur Matthíasar Johannessen um Mynsters-
hugvekjur og Fjölnismenn. „Sálmabókin 1886
og höfuðskáldin þrjú: Matthías Jochumsson,
Valdimar Briem og Bjöm Halldórsson“ er yf-
irskrift fyrirlestrar sr. Bolla Gústafssonar
vígslubiskups sem hefst kl. 23. Anna Kristín
Arngrímsdóttir og Ingvar Sigurðsson eru les-
arar með sr. Þórhalli og sr. Bolla.
Sunnudagur
Tveir fyrirlestrar og einn upplestur er á
dagskránni á morgun. Kl. 17.30 heldur sr.
Sigurður Jónsson fyrirlestur um Péturspost-
illu og fleiri predikanasöfn frá síðari hluta 19.
aldar. Þá verður lesið úr postillunni og hug-
vekjum Páls Sigurðssonar kl. 18.30 og er það
sr. Vigfús Ingþór Ingvarsson sem les.
Síðasti dagskrárliðurinn í fyrirlestraröð-
inni er erindi Bjarna Randvers Sigurvinsson-
ar guðfræðings um trúarlíf Islendinga á 20.
öld og hefst fyrirlesturinn kl. 19. Með honum
les Þórey Sigþórsdóttir.
Dagskrá
fyrir börn
Dagskrá verður haldin fyrir börn á öllum
aldri á svokölluðum Æskuvöllum á kristnihá-
tíð, en svo er nefnt svæðið á Völlunum austan
við Furulundinn.
Á svæðinu verða leikskólakennarar sem
annast börn sem hafa orðið vilskila við for-
eldra sína, sem og fjölbreytt skemmti- og
leikjadagskrá. Dagskráin hefst að morgni og
stendur fram til kl. 19 í dag og á morgun. Á
svæðinu eru þrjár stöðvar sem nefnast
Hjartastöðin, Orkustöðin og Sagnastöðin og
eru ætlaðar börnum á ólíkum aldri. Einnig er
þar leikhústjaldið, þar sem verða leiksýning-
ar og sérstakar uppákomur.
Morgunblaðið/RAX
Hjartastöðin er ætluð börnum á aldrinum
2-5 ára. Þar verða börnunum sagðar sögur,
unnin myndlistarverkefni, gerður tón- og
leiklistarspuni með börnunum, leiklistarsýn-
ing og sungin lög.
Sagnastöðin er ætluð börnum á aldrinum
6-9 ára. Þar verða börnunum sagðar sögur,
myndlistarverkefni unnin og gerður tón- og
leiklistarspuni með börnunum.
I Orkustöðinni, sem er ætluð börnum á
aldrinum 10-12 ára, verður ratleikur, mynd-
listarverkefni unnin, leynistund, tón- og leik-
listarspuni og töfrabrögð sýnd og kennd.
Tón- og leiklistarspuni með börnunum er í
höndum Elvu Lilju Gísladóttur og Ólafs Guð-
mundssonar.
Leiklistardagskrá
fyrir börn
Dagskrá Leikhústjaldsins hefst báða dag-
ana á morguníhugun og munu börn þar í sam-
einingu skreyta trékross. Börnin bera kross-
inn yfir í Þingvallakirkju á morgun kl. 16.30 í
fylgd sr. Sigurðar Grétars Sigurðssonar, þar
sem fram fer barnastund.
Auk þess eru á dagskrá leikhústjaldsins
margvíslegar leiksýningar. Leikhópar frá
Möguleikhúsinu, Furðuleikhúsinu, Ævintýra-
leikhúsinu, Stopp-leikhúsinu og brúðuleik-
húsinu 10 fingur sýna atriði. Halldóra Geir-
harðsdóttir skemmtir í hlutverki trúðsins
Barböru og Hörður Torfason flytur söngdag-
skrá fyrir börn og foreldra.
Leikhópar
Leikhópurinn Æsir flytur leikgerð sína á
hinu sígilda Eddukvæði Þrymskviðu á hátíð-
arsviðinu við Efri-Velli í dag kl. 15. Leikhóp-
urinn sýnir þessa sýningu í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu í sumar og er sýningin ætluð allri
fjölskyldunni. Sýningin er undir handleiðslu
Gunnars Helgasonar leikara.
Leikfélagið Sýnir er leikhópur skipaður
áhugamönnum úr öllum landshlutum. Hópur-
inn sýnir Nýja tíma eftir Böðvar Guðmunds-
son kl. 11.30 og 17 í dag í Hvannagjá og er
leikstjóri sýningarinnar Hörður Sigurðarson.
Trúfélög
í Hestagjá á Þingvöllum munu koma sam-
an kristileg trúfélög og kristnir áhugamenn
um trú til helgihalds. Boðið verður upp á tón-
listarflutning, ljóðaupplestur og leiksýningar
á vegum hinna ýmsu safnaða. Einnig verða
þar ýmsar trúarlegar uppákomur. Kirkja
Jesú Krists - hinna síðari daga heilögu heldur
samkomu, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir
messar og sr. Jakob Hjálmarsson Dómkirkju-
prestur framkvæmir hjónavígslu í gjánni.
Sögugöngur
Fjórar sögugöngur verða farnar um Þing-
velli í fylgd fræðimanna. Göngurnar hafa hver
um sig ólíkan blæ og viðfangsefni og verður
lagt af stað frá brúnni yfir Flosagjá. Gunnar
Karlsson, Inga Huld Hákonardóttir og
Hilmar Malmquist stjórna göngunum.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. JÚLÍ 2000