Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.2000, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.2000, Síða 4
„HYGG EG AÐFÁIRMUNI SÉÐ HAFA RÖSKLIGRA MANN" EFTIR ADALGEIR KRISTJÁNSSON Sturla Sighvatsson er að sumu leyti persónugervingur Sturlungaaldar. Hann var g læsimenni, en valdagráð- ugur og yfirgangssamur við aðra höfðingja og hikaði ekki við að ganga á orð og eiða. Saga hans er fl létta hagsmunasamninga, vinslita og undirmála eftir því hvernig vindurinn b >lés. STURLA Sighvatsson hefir ver- ið dæmdur óvægilega í sögu vorri. Hann hefir verið kallað- ur „hinn mesti óhappamaður“ 13. aldar og þurfti nokkuð til að hljóta þann dóm þegar horft er yfir sögusviðið. Sú mynd sem varðveitt er af þessum „mesta óhappamanni" aldarinnar í ritum samtíma hans er mjög með öðru sniði. Engin af sögupersónum aldarinnar hefir hlotið þvílíka glæsimynd og Sturla Sighvats- son í íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar. Fræðimenn eru á einu máli um að Sturla Þórðarson hafi skrifað íslendinga sögu síðast verka sinna og jafn vel að hún sé ófullgerð. Sturla var fæddur 1214, 15 árum yngri en nafni hans Sighvatsson, og andaðist í Fagur- ey á Breiðafirði 1284. Sturla Sighvatsson hafði þá hvílt í gröf sinni í því nær hálfa öld. Svo að nafni hans Þórðarson hafði allar for- sendur til að meta þátt hans í þeirri atburðar- ás sem leiddi til hruns þjóðveldisins og að Is- land komst undir vald Noregskonungs. Við vitum einnig að Sturla Þórðarson var löngum í andófi gegn ásælni konungsvaldsins, og sú afstaða hans hefði átt að skerpa athygli hans á þeirri atburðarás sem hófst árið 1235 þegar Sturla Sighvatsson kom út með konungser- indi. Sturla Sighvatsson var fæddur 1199. For- eldrar hans voru Sighvatur Sturluson og Halldóra Tumadóttir. Þau bjuggu í Hjarðar- holti í Dölum um aldamótin 1200. Hún var af ætt Ásbirninga og Haukdæla því að móðir hennar var Þuríður Gissurardóttir. Sighvatur var albróðir Þórðar og Snorra Sturlusona, fæddur um 1170. Elsta barn þeirra var Tumi, heitinn eftir afa sínum Tuma Kolbeinssyni. Sturla Þórðarson sá ekki ástæðu til að greina frá draumförum ættmenna Tuma þegar hann var í heiminn borinn og sú mynd sem Sturla Þórðarson dregur upp af honum í íslendinga sögu er fremur neikvæð svo að ekki sé fastar að orði kveðið, enda e.t.v. lítil efni til annars. Öðru máli gegndi þegar kom að næsta barni Halldóru og Sighvats. Um það segir svo í íslendinga sögu: „þau Sighvatur og Hall- dóra áttu son, er Tumi hét. Hann var fæddur um sumarið, er þau höfðu einn vetur ásamt verið. En annan vetur eftir gekk Halldóra með barni, og laukst seint um hag hennar. Guðný Böðvarsdóttir bjó í Hvammi og leiddi mjög að fréttum um mátt Halldóru. Og eina nótt dreymdi hana, að maður kæmi úr Hjarðar- holti, og þóttist hún spyrja að mætti Hall- dóru. Hann kvað hana hafa barn fætt og kvað vera sveinbarn. Guðný spurði, hvað héti. „Hann heitir Vígsterkur," segir hann. En um morgininn eftir kom maður úr Hjarðarholti og segir, að Halldóra var léttari orðin. Guðný spurði, hvort væri. Hann kvað vera svein og heita Sturlu.“ Sturla Sighvatsson er eini mað- urinn í Islendinga sögu sem Sturla Þórðarson nefnir til sögunnar með þvílíkri viðhöfn, og hann setur sig ekki úr færi að hlaða lofköst undir nafna sinn og frænda þegar tilefni gefst. Fátt er greint frá uppvexti Sturlu, nema hann var í fóstri í Hítardal hjá Þorláki Ketils- syni, sem þar bjó „virðuligu búi og var göfug- menni mikið“, segir í Arons sögu. „Þorlákur og Sighvatur voru kærir vinir sín í millum, - var Sturla Sighvatsson því löngum á fóstri með Þorláki, bæði haldinn vel og ástsamliga. Sturla var inn vænligasti maður bæði á vöxt og allan vænleika. Þeir voru kallaðir jafnaldr- ar Aron og Sturla. Því voru þeir svo sem fóst- bræður. Var og þann tíma harla vel með þeim og þó nokkuð kappdrægt í leikum. En þá er meir tók að greinast með þeim kumpánum, þá bauð Helgi, föðurbróðir Arons, honum til sín. Og það þá Aron“. Frásögn íslendinga sögu er styttri, en efnislega ber ekki á milli, nema hún kallar þá Aron og Sturlu fóstbræð- ur og segir að Sturla hafi verið fimmtán vetra þegar hann fór úr Hítardal til föður síns. Frá- sögn Arons sögu er á engan hátt í mótsögn við lýsingar Sturlu Þórðarsonar á Sturlu Sig- hvatssyni og eftirtektarvert er hvað Þorlákur Ketilsson fékk mikla ást á fóstursyni sínum. Arons saga fjallar að verulegu leyti um deilur Sturlu og Arons svo að þess er varla að vænta að höfundur hafi dregið fegraða mynd af Sturlu í sögunni. Hún er ung, talin frá 14. öld svo að þáttur Sturlu í endalokum þjóð- veldisins hefir verið alkunn söguleg stað- reynd. Frásögnin af því þegar Sturla hugðist ná sverðinu Brynjubít af Þorvarði Örn- ólfssyni í Miklagarði lýsir uppvöðslu- og yfirgangssömum unglingi: „Synir Sighvats, Tumi og Sturla, föluðu sverðið og náðu eigi að kaupa. En Þorvarður dróst á að ljá Sturlu sverðið, og fórst það fyrir“. Höfð- ingjasonurinn á Grund var átján vetra og lét þetta ekki yfir sig ganga, heldur reið til Mik- lagarðs og hugðist taka sverðið með ofríki, en þegar það tókst ekki veitti hann Þorvarði áverka með öxarhamri, heimamenn stumr- uðu yfir honum, en Sturla reið aftur til Grundar. Viðbrögð Sighvats lýsa vel sam- bandi föður og sonar. Sighvatur spurði, „hvort það væri satt, að hann hefði vegið eða særðan hinn besta bónda, er var í Eyjafirði. Sturla lést ætla, að því myndi verr, að hann myndi eigi dauður“. I tilsvari Sturlu er fólgin nokkur mannlýsing, hvort heldur það er rétt eftir haft eða höfundarsmíð. Það er dæmigert fyrir ungan oflátung sem ekki lætur nokkurn bilbug á sér finna. Sighvatur sviðsetti refsi- aðgerðir og lést vilja reka Sturlu að heiman. Tumi Sighvatsson blandaði sér einnig í málið og leið svo sá dagur. „Snemma um morgininn var Sturla á fótum og gekk eftir gólfi. Sig- hvatur spurði, hver þar væri. Sturla nefndi sig. Sighvatur bað hann ganga í lokrekkjuna til sín. Og er hann kom þar, tók Sighvatur til orða: „Ekki þykir mér þetta svo illa sem eg læt, og mun eg um klappa eftir. En þú lát sem þú vitir eigi.“ Síðan sendi Sighvatur eftir Þorvarði og sætti þá, „og voru gervir þrir tig- ir hundraða, og kom það fé seint fram“. Teimur árum síðar lenti Sturla í fyrsta skipti í bardaga á Helgastöðum í Reykjadal við sveina Guðmundar bisk- ups Arasonar, 29. ágúst 1220. Af fram- göngu hans þar er það eitt að segja að hann fékk steinshögg og faðir hans talar um hann eins hálfgildings krakka þegar hann segir: „Engu eira þeir nú biskupsmenn, - nú berja þeir sveininn Sturlu sem aðra menn.“ Ári síð- ar hafði Sturla tekið við búi á Sauðafelli og fengið umráð Snorrungagorðorðs í hendur frá föður sínum. Það segir nokkuð til um hvað Sighvatur hefir tekið Sturlu fram yfir Tuma að fá honum í hendur mannaforráð en Tuma ekki. Þeir bræður komu með flokka sína að sættargjörð Þorvalds Gissurarsonar og Hjalta biskupssonar að Skógum undir Eyja- fjöllum sumarið 1221 vegna vígs Bjarnar Þorvaldssonar: „ ... og lagðist sá orðrómur á, að engi flokkur hefði jafnóspakur verið sem sá, er fylgdi Tuma Sighvatssyni, og svo hann sjálfur, en engi flokkur þótti betur siðaður vera en sá, er Sturla hafði. Lagði hann vel til og allgegnliga þessa mála og fékk af því mikla vinsæld suður þar. Og hefir það mælt verið síðan, að hann hygði þá til mágsemda; þeirra er síðan komu fram, við Oddaverja. I þessi för sá Sturla Solveigu og talaði fátt við hana eða ekki“. Ekki verður annað sagt en Sturlu hafi vel til tekist í fyrsta sinn sem hann hafði afskipti af deilum höfðingja. Hann aflaði sér mikilla vinsælda og hafði hina bestu stjórn á mönn- um sínum öfugt við Tuma bróður sinn. í sam- ræmi við þessa lýsingu getur varla talist goð- gá að ætla að Oddaverjum hafi litist svo sem hér væri glæsilegt höfðingaefni komið fram. Sturla Sighvatsson var ekki sá eini sem renndi hýru auga tíl Solveigar Sæmundar- dóttur í Odda. Hún var frilluborin. Móðir hennar var Valgerður Jónsdóttir á Keldum. Hún og Sæmundur áttu bæði ættir að rekja til Sæmundar fróða. Sæmundur Jónsson and- aðist haustið 1222 og Snorri Sturluson var fenginn til að skipta arfi með börnum hans. Hann sá sér hér leik á borði að verða sér úti um girnilegt kvonfang og mikinn arf því að Sæmundur hafði mælt svo fyrir að Solveig skyldi hljóta jafnan arf og hver sona hans. Snorri gisti á Keldum og fór með Solveigu til Odda og þótti „allskemmtiligt að tala við hana“. Meira var ekki að gert í þeirri ferð, en þennan vetur fóru orðsendingar milli Sig- hvats á Grund og Þorvalds Gissurarsonar, sem var í ráðum með þeim mæðgum á Keld- um. Um vorið eftir páska 1223 reið Sighvatur suður að Hruna ásamt Sturlu syni sínum og fylgdarliði. Þar voru þær Valgerður og Sol- veig fyrir og var þá talað bónorð Sturlu. Lauk því svo að Þorvaldur „hafði inni brúðkaup þeirra Solveigar". Annar atburður var öllu sögulegri. Þor- valdur sýndi Sighvati börn sín, þar sem Giss- ur er einn nafngreindur og þótti allmiklu skipta að Sighvati litist giftusamlega á hann. „Sighvatur var um fár og horfði á hann langa stund. En Gissur stóð kyrr og horfði eina- rðlega á móti Sighvati. Sighvatur tók þá til orða og heldur stutt: „Ekki er mér um yggli- brún þá.““ Veislan fór allvel fram og „var veitt með miklum kostnaði." „Það er sagt, að Þorvaldur reið á leið með þeim við nokkra menn. Og áður þeir Sighvatur skildu, stigu þeir af baki. Ræddu þeir þá margt um vináttu sína. Þá mælti Sighvatur: „Þess vil eg biðja þig, Þorvaldur, að við gætum svo til með sonum okkrum, að þeir haldi vel vináttu með frænd- semi.“ Þorvaldur leit niður fyrir sig - og heldur áhyggjusamliga - og mælti: „Gætt mun, meðan við lifum báðir.““ Sá galli er á frásögninni af börnum Þorvalds, að þau voru mun eldri en hér er látið í veðri vaka, t.a.m. var Gissur þá 14 ára og hafði sótt mann til sektar á alþingi tveimur árum áður. Það er hald manna að Sturla Þórðarson hafi ekki haldið hér á penna, heldur að hér sé síðari tíma innskot á ferðinni. Engu að síður er sag- an góð. Líkt og aðrir höfðingjar á Sturlung- aöld hafði Sturla tekið sér frillu, Vigdísi að nafni, og átt með henni eina dóttur er Þuríð- ur hét. „En er Solveig kom til Sauðafells, tók hún þar við búi. En Halldóra lét fylgja Vig- dísi Gíslsdóttur til Miðfjarðar, er áður hafði verið frilla Sturlu. Þuríður hét dóttir þeirra“. Hún átti síðar eftir að brenna banamönnum Sturlu svarta díla í hefndarskyni. Sturla Sighvatsson sat skamma stund á friðarstóli eftir að hann tók við mannaforráð- um í Dölum. Því olli Tumi bróðir hans þegar hann réðst vestur til Skagafjarðar og hugðist gerast höfðingi þeirra við fráfall Arnórs Tumasonar móðurbróður sins. Tumi flutti mál sitt við föður sinn og „sagðist eigi verr til manns kominn en Sturla, bróðir hans, er þá hafði tekið bú að Sauðafelli og mannaforráð í Dölum.“ Tumi beitti sér fyrir því að hrekja Guðmund biskup Arason burt frá Hólum og settist þar sjálfur að. Biskup hafði leitað sér hælis í Málmey, en 3. febrúar 1222 fór sveit biskupsmanna að Hólum. Þar var Tumi veg- inn í óþökk biskups. Biskup fór með menn sína til Grímseyjar að loknum páskum og var það allfjölmenn sveit. Sighvatur og Sturla söfnuðu liði á vor- dögum og sigldu til Grímseyjar með nær þrjú hundruð manna. Sjö tigir vopnfærra manna voru í liði biskups sem bjuggust til varnar. Aron Hjörleifsson var annar foringinn í aðförinni að Tuma og tók vopn hans og verjur, þar á meðal biturt sax og brynju góða. Hann tók saxið og klæddist brynjunni er hann bjóst til bardaga. Sturla lagði þar að sem Aron var fyrir. í Ar- ons sögu er svo frá greint: „Nú fara sjö skip að landi, þar er Aron var fyrir, og stýrir Sturla því liði. Var hann og auðkenndur, því að hann stóð upp, var hann mikið afbragð annarra manna bæði að vexti og afli, svo að ekki máttu aðrir menn við hann jafnast um flesta hluti hér á landi. En er þeir voru mjög landfastir orðnir, þá skynjar Sturla á landið hvar fyrirmenn væri, og vildi þar helst að sækja. Nú tekur Sturla til orða: „þar stendur Ar- on djöfullinn, sækið.nú að honum sköruliga, og drepum hann skjótt." Aron svarar og hristi saxið Tumanaut brugðið í hendi sér: „Hér máttu sjá, ragur fjandinn, mækinn Tumanaut, bróður þíns.... Nú æsist Sturla og steðjar af skipinu upp á þarabrúkið. Honum varð hált á þarabrúkinu, en Aron snarar í móti honum og leggur saxinu Tumanaut af því öllu afli, sem hann hafði til. Lagið kom á Sturlu miðjan. En með því sólinn var stökk- ur, en brúkið var hált og fast var til lagið, þá rasar Sturla og fellur. ... þá höggur Aron til Sturlu tveim höndum svo sterkliga, [að] að fullu hefði unnið, ef þeir hefðu átt tveir við að leikast. Maður er nefndur Sigmundur snagi. Hann kastaði skildi yfir Sturlu með miklum skyndingi, og kom högg það í skjöldinn. En Sturla stóð þá skjótt á fætur og var þá ekki að frýja aðsóknar að Aroni og öllum þeim, sem fyrir voru.... Aron barðist þá nokkru lengur en aðrir menn, þeir er hjá honum höfðu staðið.“ / slendinga saga greinir í meginatríðum líkt frá þessum vopnaviðskiptum, en frásögn hennar er miklum mun ágripskenndari og styttri. Helsta frávikið er í upphafi bardagans: „Aron lagði til Sturlu og bað hann þar að sækja, kvað þar vera merkið, vopn Tuma, bróður hans. Sturla lagði á móti til Ár- ons í kinnina og um þveran munninn og út um aðra kinnina. Aron lagði þá og í mót Sturlu, svo að hann féll á hliðina á brúkinu og bar brynjuna af lærinu. Vildi Aron þá til leggja, en Sigmundur snagi kastaði yfir hann skildi, og kom þar í lagið. Eftir það hljóp Sturla upp, og var þá sótt að Aroni, og stóðu spjót svo þykkt á honum, að hann fékk trautt fallið, og varð víða sár og þó miður en þeir ætluðu. Runnu þá biskupsmenn upp úr fjör- unni, en þeir Sturla eftir þeim. En Aron lá þar eftir.“ í Arons sögu segir, „að svo er sagt, að Sturla sjálfur þykist að honum hafa unnið, og sóttu hann og fleiri menn aðrir, þeir sem hjá honum höfðu verið. En svo stóðu þykkt spjót á Aroni um hríð, að þá studdu hann aðr- ir spjótsoddar, er öðrum var að lagið. En brynjan var svo örugg, að ekki gekk á, og því mátti hann eigi falla svo skjótt sem elligar myndi hann. Aron fékk þar þrjú sár stór og eigi banvænlig. Eitt lag kom í kinnina A:-ons og nam staðar öðrum megin í góminn, og var sú kefling heldur óhæg.“ Lýsingum á vopna- viðskiptum Arons og Sturlu ber ekki saman í einu veigamiklu atriði. Samkvæmt íslendinga sögu særir Sturla Aron með spjóti í kinnina í upphafi vopnaviðskipta þeirra og áverkinn þar meiri en samkvæmt frásögn Arons sögu. Þar er þess ekki getið hver veitti honum sárið á kinninni og helst að skilja að það hafi orðið síðar þegar Sturla sótti að honum með mönn- um sínum. Af fundi þeirra er það frekar að greina að Aron komst lífs á braut fyrir atbeina Eyjólfs Kárssonar. Sturla lét sækja Aron til sektar og gerði ítrekaðar tilraunir til að ráða hann af dögum, en Aron fór huldu höfði og bar jafnan undan Sturlu og mönnum hans uns hann fór af landi brott til Noregs. Frásagnir af þess- um eltingaleik lýsa fremur hreysti og harð- 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. ÁGÚST 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.