Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.2000, Page 7
Tómasarkirkjan í leyndardómsfullu Ijósi að kvöldl opnunardags
hátíðarinnar.
■íQ?
<4 »
. JL" JL'* á
Bach-glugginn á suðurhlið Tómasarkirkjunnar. Þar má einnig
m.a. sjá glugga til minnlngar um Gústav II. Adolf Svíakonung,
Lúter og Mendelssohn.
Skírnarfonturinn (frá 1614-15) í Tómasarkirkjunni þar sem
ellefu af börnum Bachs voru skírð.
hafði ekki gefíst mikill tími til hvíldar. Við
Ragnheiður höfðum verið á fótum í hálfan
annan sólarhring. Það skipti þó engu máli
þegar á hólminn var komið. Þegar Bachað-
dáandi stígur í fyrsta sinn inn í Tómasar-
kirkjuna er hann í vissum skilningi kominn
heim. Kirkjan hefur að vísu tekið miklum
breytingum frá dögum Bachs. Hann hefði
sennilega ekki kannast við sig í nýgotnesk-
um innviðum byggingarinnar og þaðan af
síður þekkt hljómburð kirkjunnar, sem einn-
ig hefur breyst mikið, þar eð viðarstúkur,
sem var að finna allt upp undir loft, hafa ver-
ið fjarlægðar. Engu að síður er kirkjan
miðpunktur Bachheimsins. Hér stjórnaði
Bach tónlistarflutningi við guðsþjónustur í
27 ár. Hér voru ótalmörg af meistaraverkum
hans frumflutt. Hér starfar enn kórinn sem
hann leiddi öll þessi ár, Tómasarkórinn, sem
einn kóra í heiminum hefur sungið tónlist
Bachs án hlés allar götur frá því hann var og
hét. Hér er skírnarfonturinn þar sem ellefu
af þrettán börnum þeirra Önnu Magdalenu
voru skírð. En síðast og ekki síst; í kór
kirkjunnar, þar sem Bach gekk reglulega til
altaris, er gröf hans að finna. „Johann Seb-
astian Bach“ stendur skrifað á stórri en lát-
lausri koparplötu, sem var blómum skrýdd
alla hátíðardagana.
Bach - endir og upphaf
Ég ætla ekki að reyna að lýsa í orðum
hvernig mér varð innanbrjósts þegar Tóm-
asardrengirnir hófu upp raddir sínar í mót-
ettunni frægu Singet dem Herrn. Mozart
heyrði kórinn syngja þessa tónlist árið 1789
og varð fyrir djúpstæðum áhrifum. Ég þekki
verkið ágætlega og hef heyrt marga góða
kóra syngja það. En aldrei hefur þessi söng-
ur verið nýrri og ferskari en þetta kvöld í
Tómasarkirkjunni. Ég kveið því dálítið að
heyra strákana syngja, því gamlar upptökur
sem ég hafði heyrt með kórnum vöktu litla
hrifningu. 16. Tómasarkantorinn frá því
Bach skildi við, Georg Christoph Biller, hef-
ur hinsvegar látið til sín taka á þeim átta ár-
um sem hann hefur gegnt þessari sögufrægu
stöðu. Söngur drengjanna var skýr og
hreinn og vel mótaður. Við áttum eftir að
heyra kórinn syngja oft næstu dagana og
venjulega stóð hann undir væntingunum
sem maður gerði til hans eftir glæsilega
byrjun. Það voru þó fyrstu tónarnir í Singet
sem komust allra næst mínum hjartarótum.
Hátíðin var byrjuð!
Opnunartónleikarnir tókust í alla staði
Ein af „Tómasardúllunum". Það er ekki nóg með að þeir syngi eins og englar.
mjög vel. Nauðsynlegum ræðuhöldum var
haldið í lágmarki og tónlistin látin eiga flest
orð. Efnisskráin var vel saumuð saman og
lýsti einkunnarorð hátíðarinnar upp á
skemmtilegan hátt. „Bach er upphaf og end-
ir allrar tónlistar," sagði Max Reger. Biller
sneri þessu við: „Bach - endir og upphaf."
Tilefni hátíðarinnar var andlát meistarans
fyrir 250 árum og sérstök áhersla var lögð á
að flytja síðustu verk hans. En önnur megin-
hugsun á bak við hátíðina var að gera grein
fyrir áhrifum Bachs á eftirkomandi kynslóð-
ir tónlistarmanna. Þess vegna mátti meðal
annars heyra nýja útsetningu á fyrsta
kontrapunktinum úr Fúgulistinni á opnunar-
tónleikunum og einnig tónlist eftir Carl Phil-
ipp Emanuel Bach og Felix Mendelssohn við
sömu texta og sungnir voru í verkunum eftir
Bach sjálfan.
Þegar við gengum út í kvöldkyrrðina um
áttaleytið vorum við þreytt en ánægð. Þessi
langi dagur var þó ekki allur, því klukku-
stund síðar hófust svokallaðir göngutónleik-
ar, sem stóðu til miðnættis. Tónlistarmenn
Leipzigborgar buðu hátíðargestum upp á
fjölbreytta dagskrá víðs vegar um miðborg-
ina. Meðal annars mátti heyra Gottfried
Preller spila á útiorgelið sitt (1.830 pípur á
hjólum) og salonshljómsveitina Cappuccino
leika pakkasúpu soðna á frægustu stefjum
Bachs. Ekki má gleyma dr. Karlheinz Klimt
sem stjórnaði lýrukassanum sínum
(Konzertdrehorgel!) af stakri snilld. Pening-
arnir sem hann aflar með starfsemi sinni
koma í góðar þarfir. Þeir renna til varðveislu
og viðgerða á handritum Bachs.
Hetjuborgin Leipzig
Annar dagur hátíðarinnar byrjaði kl. hálf-
tíu á óttusöng í Nikulásarkirkjunni.
Bach bar ábyrgð á tónlistarflutningi í fjór-
um kirkjum í Leipzig. Eftir standa aðeins
Tómasarkirkjan og Nikulásarkirkjan. Sú
síðarnefnda var í raun aðalkirkja borgar-
innar á dögum Bachs og þar voru stórvirki á
borð við Jóhannesarpassíuna og Jólaóratór-
íuna frumflutt. En saga kirkjunnar á okkar
dögum er ekki síður merkileg. Vikulegar
friðarstundir í kirkjunni á mánudögum
breyttust árið 1989 smám saman í friðsam-
lega mótmælafundi gegn kommúnistastjórn-
inni. Eftir því sem á leið fjölgaði þátttakend-
um og kröfur, sem fengu hljómgrunn á
fundunum, breiddust út um allt Austur-
Þýskaland eins og hringir á vatni. Þetta ►
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. ÁGÚST 2000 T