Tíminn - 19.01.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.01.1967, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 19. janúar 1967 TÍMINN Heill og sæll Landfari góðu1-! Mig langar til að biðja þig að ljá rúm hjá þér smápistli sem hér fer á eftir. Ég hripaði hann upp í gær eftir að hafa hlustað á „ein- vígi“ þeirra Gylfa ráðherra og Einars Ágústssonar alþm. í útvarp inu. Eg hugsa að þetta spjall þeirra hafi vakið athygli manna, bæði sjálft ræðuefnið og ekki síður hitt hverni^ þeim fórst málflutningur inn. En þar var á mikill munur, Einar prúðmannlegur og algerlega málefnalegur í framsetningu sinni og orðbragði, en ráðherrann hins vegar með sífelldar pólitisk- ar slettur og -fullyrðingar, sem enduðu í gróusögustíl. Það Var öm urlegt að hlusta á slíkt, enda var málsstaðurinn að sjálfsögðu hon- um mjög erfiður. Það er bágt að þurfa að hlusta á valdsmann berja höfðinu við steininn, fara með tölur út í ioft- ið og telja það hárrétt og sjálf- sagt sem reynslan hefir sýnt ó- fært, telja alla aðra hafa rangt fyrir sér sem benda á þessa aug- ljósu staðreynd, að alltaf sígur á ógæfuhlið og framundan viröist hrunið óumflýjanlegt sé ekki snú- ið við. Og þetta gerist í eindæma góðæri. Og til hvers er allt þetta brólt fyrir almenning? Er rétt að draga saman þennan síumtalaða gjald- eyrissjóð, kannski með tánum, til þess að hægt sé að hrúga inn í landið hinum fáránlegasta óþarfa, eins og nú er gert? Eða þeim vamingi sem við getum sjálfir framleitt? Á að gera okkur ósjálf- bjarga heima fyrir þegar kynni að kreppa að með aflabrögðin? Ekki verða alltaf metár .ifla og útflutnings. Og hvað blasir pá annað við en höft, þegar ekki er lengur hægt að leika sér með gjaldeyrinn? Þá koma þau sem bein afleiðing óstjórnarinnar. Þannig var þetta 1946, þegar eytt hafði verið Öllum stríðsgróðanum. Og þannig mun þetta verða nú ef svo verður haldið sem horfir. Eða er ekki þegar aðvörunin í Ijós komin, — 1000 milj. króna hallarekstur á s.l. ári? Heill milj- arður! Og þótt eitthvað sé tíl af vörum í landinu upp í þessa skuld þá er fullyrt að hallinn muni verða mikill. Og hvað boðar það? Annars mættu þessir ráðamenn minnast þess, ef þeir vilja hafa það sem rétt er, að því betur hefir landinu verið stjórnað sem Framsóknarflokkurinn hefir haft sterkari aðst^ðu á þingi og í sijöm. Og þeíta er ekki fullyrð- ing út í loftið, hana er auðvelt að sanna. ,,Viðreisnin“ svo nefnda hefir ekki orðið neitt púður, nema þa* til þess að sundra og veikja efna- hagslíf þjóðarinnar, og komið harðast niður þar sem sízt skyldi. Þess vegna horfir nú mæðulega á i mörgum sviðum. En af öllu sem gert hefir verið^ af þingi og stjórn hin síðustu arj held ég að eitt sé einna átakan- legustu fásinna, — ef ekki i að velja því miklu verra nafn. En' það er sparifjárbindingin úr dreif- býlinu Hún er furðulegt fyrir- bæri, hvernig sem á er litið Allir vita um fólksstraummn ntan af landsbvggðinni til ^axa- flóasvæðisins undanfarið. Hann hefur verið gífurlegur Og þetta fólk hefir ekki komið allslaust þangað. Það hefir flutt með sér mikið fjármagn. Sá mikli fólks- og fjármagnsstraumur hefir að sjálfsögðu skilið eftir mörg ,,sár“ og gert þeim á ýmsan hátt örð- ugra fyrir sem eftir sátu- En þetta I þykir þeim vísu stjórnendum ekki j nóg, heldur skal líka heimta „suður“ hluta þess sparifjár, sem þeir öngla saman er þar búa. Þeim má ekkj haldast á því og nota það sér tíl hagsbóta. Því að slikt fjármagn gat lyft undir marga framkvæmd og bætt úr margri þörf og átti hvergi meiri I rétt á sér en þar. Það hefði vissu lega verið réttari stefna, og raun- ar sú eina og sjálfsagða, að reyna fremur að draga úr þessum óheilla straum fólks og fjármagns utan af landsbyggðinni með því m.a. að bæta atvinnuskilyrðin þar og efla byggðirnar til sjálfsbjargar, en að reita af þeim þeirra eigið sparifé á þennan hátt og gera þeim , með því erfiðara fyrir. Þetta er svo furðulegt að undr 1 um sætir. Og það kvað vera gert með atkvæðum sumra þeirra sem dreifbýlið hefir kosið og truað fyrir málefnum sínum á Albingi! Þeim vesalingum hefir ijáifsagt verið talin trú um að þetta væri „viðreisn" og alveg nauðs.vnleg ráðstöfun. Þeim þarna úti á lands-* byggðinni væri alls ekki trúanui til að ráðstafa þessu fé sínu á skynsamlegan hátt- Og einræðinu kæmi líka miklu betur að það ráði því hver sé í náðinni og fái að njóta þess! Og svo tala þessir sömu menn um að „jafnvægi í byggð tands- ins“ sé þeirra hjartans mál! Hvi- lík undur og skelfing. En skyldi dreifbýlið trúa þetsu fólki lengur fyrir málefnum sín- um? Skyldu þeir verða kosnir næst? Hallvarður. Landfara hefur borizt eftirfarandi bréf: „Margir útvarpshlustendur munu hafa brosað þegar Gylfi Þ. Gísla- son lauk útvarpsþættínum, „Á rökstólum" mánudaginn 8. janúar, með gamansögu um það að ,,fram- sóknarmenn væru farnir að hugsa“. Kátína útvarpshlustenda orsakað ist ekki af því að sagan hans Gylfa væri svo smellin, eða vel sögð, heldur gátu þeir ekki varist brosi vegna þess að sjálfur viðskipta- og menntamálaráðherra íslands, hr. Gylfi Þ. Gíslason hafði aðeins eina gamla grínsögu að segja hlust endum, þegar honum var boðið að segja lokaorðin við landsmenn í Útvarpsþætti þar sem vandamál íslenzkra banka og peningamála, voru til umræðu! Sagan hans Gylfa minnir á aðra sögu sem þessi sami Gylfi sagði eitt sinn, á stjórnmálafundi sem haldinn var i þorpi einu á Suð- urlandi. Þetta var þegar kosningabanda lag Framsóknarflokksins og Al- þýðuflokksins var ákveðið og Al- þýðuflokkurinn var Alþýðuflokkur en ekki „íhaldshækja" eins og nú. „Gylfi sagði m. a. á fundinum: „ . • ég vil ljúka máli mínu með stuttri sögu af gamalli Alþýðu- flokkskonu í Reykjavík. Þessi gamla kona hefur ávallt fylgzt vel með gangi þjóðmálanna, les blöð in og telur miklu skipta að Al- þýðuflokkurinn sé góður málsvari alþýðunnar, en ánetjist ekki íhaldi og auðvaldsöflum. Eg imet þessa ágætu Alþýðuflokkskonu mikils og ræði oft við hana. Stundum segir hún: Meðan Morgunblaðið skammar Al- þýðuflokkinn er ég róleg, þá veit ég að Alþýðuflokkurinn er á réttri leig og foringjar hans eiga traust alþýðunnar skilið . . . síðan bættí Gylfi við: „Þessi spaklegu orð gömlu Alþýðuflokkskonunnar i Reykjavík vil ég gera að mínum orðum“. Fróðlegt væri að vita hvort dr. Glfi hefur rætt nýlega við „gömlu Alþýðuflokkskonuna í Reykjavík“. Skyldi hún vera jafn „róleg" nú og fyrr á áruml Hún skyldi þó ekki hafa komið auga á það, sú gamla — að Mogg- inn er hættur að „skamma“ Al- þýðuflokkinn, — og „Framsóknar rnenn eru farnir að hugsa". Hlustandi á Suðurlandi“. ISLANDSSAGA eftir Jónas Jónsson Nýlega er komin út í njrri útgáfu hjá Ríkisútgáfu námsbóka íslandssaga, 1. hefti eftír Jónas Jónsson. Kristján J. Gunnarsson sá um þessa útgáfu og breytti m.a. efnisröðun bókarinnar. Halldór Pétursson hefur myndskreytt hana með 70 teikningum úr efni íslandsögunnar, en auk þess eru í bókinni teikningar eftir W.G. Collingwood og E. Dayes auk margra ljósmynda. Setningu annaðist Ríkisprent- smiðjan Gutenberg, en Litbrá h.f. prentaði. Höfundur bókarinnar fylgir þessari útgáfu úr hlaði með nokkr um orðum, þar sem hann segir m.a.: „Þessi bók á sína sögu . Ég hafði, þegar hún var orðfærð um sjón með kennsluæfingum í Kenn araskólanum, þar voru 20 börn piltar og stúlkur 10 til 14 ára. Þau voru ósamstæð um aldur, þroska og undirbúning og var kennt í lítilli kjallarastofu. Sam- búðin var góð, en vandh að bæta úr þörft\m ósamstæðra nem- enda. fslándssagan var erfið aáms grein Þar var notuð kennslubók, sem miðuð var við próflestur. Börnin sögðust ekki ráða við efnið og báðu mig að segja sér sögu um efnið. Ég sá. að börnin höfðu rétt að mæla En ég var ekki sagn fræðingur heldur ænnari. Ég las bækur um menn og málefnj og breytti efninu í söguform. Það líkaði börnunum betur en bókin. Síðan rjtaði ég kaflana og gaf þá út. Á nokkrum árum urðu sógu- þættirnir vinsælir i barngskólum um allt !and. Ýmsir voru óánægðir einkum eftir að landspróf kom til Jónas Jónsson sögunnar, en börnin stóðu með sinni bók og þóttust hafa nóg orófefni í öðrum greinum. Sumir erlendir kennarar töldu bókina of íslenzka, allur andi frásagnar- JÖN AGNARS FRIMERKJftVERZLUN SíMl 17.5-61 kl /.30- í e.h.- Jar Jónsson lögg endurskoðandi Holtagerði 2% Kópavogi Simi 15209 innar væri eggjandi í skilnaðarátt. En þessu varð ekki breytt. Aldamótakynslóðin var bjart- sýn. Kunni bæði að meta frelsi og óttast erlenda yfirdrottnun. Forfeður og formæður sögðu\ sína sögu. Fram undan var frelsi í fögru landi og auðugu. Þessi litla bók hafði orðið til vegna tilmæla skólabarna. Þau hafa sýnt henni tryggð á langri vegferð. Nú kemur bókin skrúð- búin til sinna raunverulegu höf- unda og verndara. Fram undan eru tímamót í uppeldi íslendinga. Munu þá ekki íslenzk skólabörn biðja valda- menn þjóðarinnar um leiðarljós sögunnar frá þúsund ára reynslu fólksins, sem byggt hefur landið?" v/Miklatorg Sími 2 3136 Á VÍÐAVANGI Afstaða bankanna f kappræðum við Gylfa Þ. Þ. Gíslason um peninga- og bankamál í útvarpinu um dag- i"n, ságði Einar Ágústsson með al annars eitthvað á þessa leið um aðstöðu viðskiptabankanna til að rækja hlutverk sitt: Ríkisvaldið hefur mjög dregið úr möguleikum viðskiptabank- anna til að rækja hlutverk sitt. Atvinnuvegirnir búa nú vlð mjög mikinn rekstrarfjárskort. Þær ráðstafanir ríkisvaldsins, sem ég hef hér sérstaklega í huga eru þessar; f fyrsta lagi sparifjárbindingin. Bundnar inn stæður banka og sparisjóða ncma nú um 1800 milljónum króna, eða um fjórSungi af öli\ um spariinnlánum í landinu. Út lánageta viðskipfabankanna er auðvitað skert að sama skapl. f öðru lagi vil ég nefna þá kvöð, sem lögð hefur verið á bankana að leggja fram 10% af sparifjáraukningunni tH fjár festingarlána á vegum hins op Inbera. í þriðja lagi nefni ég útboð og sölu ríkisskuldabréfa, sem fram hefur farið í stórum stíl undanfarin 2—3 ár. Skuida bréf þessi hafa ver'ið verð- tryggð, og að öllu leyti með liag stæðum kjörum, enda hafa þau selzt upp á örskammri stund. Óhætt er að fullyrða að það fé, sem bréfln eru keypt fyrir er að iangmestu leyti tekið út úr bönkum og sparisjóðum. Að síðustu vil ég svo nefná það, hversu ntíkið hefur dregið úr endurkaupum Seðlabankans á afurðavíxlum. Af skýrslum kem ur fram, að árið 1958 t- d. nam heildarverðmætj útflutnings þjóðarinnar 1.070 millj. kr. Þá voru endurkeyptir víxlar fyrir 556 millj. kr. að meðaltali á mánuði. Nú er útflutningsvcrð- mætlð til októberloka s-1. 4.546 millj. kr. en meðalendurkaupin 1.075 millj. kr. á mánuði. Sam kvæmt þessum tölum hafa end urkaupin aðeins tvöfaldazt á sama tímabill og útflutningsverð mætið hefur fjórfaldazt. Afurða lánin hafa eins c allir vita ver ið lækkuð úr 67% i 55%, en auk þess virðast aðrar ástæður virka tH enn frekarl lækkunar þeirra. Afleiðing alls þessa er stór- felldur fjármagnsskortur. Gjaldeyrisvara* sjóðurinn Um gjaldeyrissjóðinn sagði Ein®r: Eg vil j fyrsta lagi segja að gjaldeyrissjóðir minnka eða vaxa af mörgum fleiri ástæðum en þessari. Eða telur ráðherr ann þá að hægt sé að eignast eins stóran gjaldeyrisvarasjóð og mönnum sýnist með því einu að lána ekki út sparifjáraukn Inguna? Útflutningsframleiðslan hlýt- ur alltaf að vera grundvöllur- inn undir gjaldeyrisstöðunni. Þess vegna sklptir að mínum dómi megin máli í þessu sam bandi, hvernig búið er að at- vinnuvegunum. Hitt er svo líka pnnað mál, að gjaldeyriseignin ein er ekki ákvarðandi um stöðu landsins útávið, iýntökurnar i einu og öðru formi koma þar líka við sögu. Samkvæmt þeim tölum, sem ég velt réttastar, var heildar staðan útávið í árslok 1958 þann ig, að skuld umfram eignir ir Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.