Tíminn - 21.01.1967, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 21. janúar 1967
TÍMINN
MINNING
EGGERT KJARTANSSON
bóndi á Hofsstöðum
f dag er jarðsunginn að
Fáskrúðarbakkakirkju í Mikla-
holtshreppi Eggert Kjartansson
bóndi á Hofsstöðum. Eggert fædd
ist að Oddsstöðum í Kolbeins-
staðahreppi 25. okt. 1890. Hann
var því á 77 aldursári er hann
lést. Eggert var sonur hjónanna
Kjartans Eggertssonar og Þór-
dísar Jónsdóttur. Bjuggu þau um
skeið við mikla fátækt að Odda
stöðum, en urðu að hætta búskap
þar og fara í húsmennsku eða
vinnumennsku til annara og láta
börn sín í fóstur. Börnin voru
sex, tvö þeirra dóu í æsku en
hinum var komið fyrir til upp
fósturs.
Eggert fór af þessum sökum
níu ára gamall frá foreldrum sín
um. Hann var eiM ár á _ Rauða
mel, en fór þaöan til Óla G.
I>aníelssonar að Miklaholti og
fjuttist síðar með honu r að Mið
hrauni og dvaldi hjá honum til
29 ára aldurs.
Óli Daníelsson var dugnaðar-
bóndi og forsjáll mjög í öllum
búskaparháttum. Hann vann sig
úr sárri fátækt til góðra efna
með dugnaði, hagsýni og spar-
semi og lærði Eggert þær dyggðir
lítulega af'fóstra sínum.
Árið 1919 hóf Eggert búskap
í Hörgsholti, ásamt systur sinni
Þorbjörgu. Hún giftist litlu síðar
Kristjáni Jónssyni, bróðursyni
Óla í Miðhrauni. Hann gerðist því
sambýlismaður Eggerts í Hörgs-
holti. Kristján var togarasjó-
maður og var því löngum í burtu
frá búinu, en Eggert hafði for-
sjá þess í sínum höndum.
Búskapur þeirra mága bless-
aðist vel og varð Hörgsholtið
fljótt of lítil jörð fyrir þá.
Árið 1923 hætti búskap í Dals
mynni í Eyjarhreppi merkis-
bóndinn Kristján Eggertsson
föðurbróðir Eggerts. Varð þá að
ráði að þeir mágar Eggert og
Kristján keyptu j’-'ðina og flytt
ust þangað. Um vorið; á meðan
þeir unnu að ávinnslu túnsins í
F. 2.1. 1885 d. 14.1. 1967.
Kveðja frá æskustöðvum.
Enginn frestur, ekkert dok,
er því ráð að lenda.
Nú eru komin leiðarlok,
langferðin á enda.
Sorg er mér þung í sinni,
segir lækur í gili. '
Nú er Ijúflingu: i----i,
ljóðin er söng mér forðum.
Eggert og Sigriður
á Hofsstöðum. Myndin tekin þegar
Eggert varð 70 ára.
Dalsmynni, kom óvenjulega hart
áhlaupsveður af norðri. í því i
veðri hrakti fé þeirra mága , ánaj
Fáskrúð og fórst þar talsverður
hluti þess. Var það að sjálfsögðu
þungt áfall frumbýlingum sem
stóðu í þeim stórræðum að kaupa
jörð. En þeir létu það ekki á
sig fá og héldu ótrauðir áfnam
og komu jfljótlega upp mjög blóm
legu búi í Dalsmynni,
Vorið 1925 kvæntist Eggert
eftirlifandi konu sinni Sigríði
Þórðardóttur frá Borgarholti. Þau
Fögnuður sálir fyllti,
framandi tónar seiddu.
Hlustuðu hrifnæm börnin
hjöluðu vættir í eyra.
Leiðirnar löngum skilja,
liggja þó aftur saman.
Sé ég að nýju sitja
systkin, á lækjarbakka.
Vel er horfi haldið,
hörmum ei liðna daga.
Byggður er bær að nýju
bærinn litli. sem hrundi.
bjuggu í Dalsmynni til ársins 1930
í sambýli við Kristján og Þor-
björgu. Þá hafði bú þeirra stækk
að svo mikið að þörf var meiri
heyskapar en Dalsmynni leyfði þá.
Egigert flutti þá um vorið að
Gerðubergi og bjó þar til ársins
1942 að hann fékk Hofstaði
keypta og flutti þangað búferlum.
Þar bjó hann til vorsins 1964.
Eggert og Sigríður eignuðust
þrjú böm: Þórdísd, sem er trú
lofuc Sigmundi Guðmundssyni
stýrimanni, búsett að Hraunbæ
92 Rvík., Kjartan, bóndi að Hofs
stöðum, kvæntur Soffíu Guðjóns-
dóttur frá Giaul í Staðarsveit og
Ingibjörgu, gift Gísla Gíslasyni
frá Djúpadal, búsett að Hofteigi
28 Rvík.
Auk barna sinna ólu þau upp
tvö fósturböm, Sigurð Jóhanns-
son frá Lágafelli og Áslaugu Guð
mundsdóttur. Fjöldi annara barna
og unglingia var hjá þeim hjónum
um lengri og skemmri tíma. Lýsir
það mannkostum Eggerts vel, að
vandalaus börn og/ unglingar sótt
ust mjög eítir að dvelja hjá
honum.
Eggert var bóndi í 45 ár alls.
Hann reyndist mjög duglegur
verkmaður, hagsýnn og far-
sæll bóndi. Hann virti þær dyggð-
ir, sem hann ólst upp við. vinnu-
semi, sparsemi og nýtni, en var
jafnframt vakandi fyrir nýjum
viðhorfum breyttra tíma. Hann
var virkur þátttakandi í þeirri
umbótaþróun sem orðið hefur í
landbúnaðinum almennt síðustu
áratugina. Eggert var sérlega
kvikur í öllum hreyfingum og
harður til átaka og mjög vaskur
glímumaður í æsku. Hann ^ar
þátttakandi í stofnun ungmenna
félagsins í æskusveit sinni og
hafði alla ævi yndi af íþrónuin
og leikjum æskunnar. Hann sýndi
skilning á viðhorfum hennar,
hvatti hana til félagsstarfs og
var jafnan fús cil stuðnings við
þau málefni, sem barist var fyrir
til félagslegra umbóta hverju
sinni. Þannig veitti hann mörgum
uimbótamálum sveitar sinnar stuðn
veit i ngah ú s i ð
ESKXXK
BÝÐUR
YÐUR
GRILLAÐAN
KJUKLING
o.fl.
í liandhœgum
umhúðum til að taka
GlSll ÚLAFSSON
frá Eíríksstöðum
ing.'M.a. gaf hann land til skóg-
ræktar á ágætum stað úr jörð
sinni og véitti þvi máli marg
háttaðan stuðning. Hann sýndi
í þessu sem öðru trú sína á ísland
og íslenzka gróðurmold.
Eggert var lengst af í sínum
búskap veitandi en ekki þiggjandi.
iHann bjó hin síðari ár við góðan
efnahag og vildi láta gott af sér
leiða. Það var gott að leita til
hans um hjálp, því hann var ein-
staklega hjálpsamur og greiðasam
ur oig vinsæll af nágrönnum sín-
um og sveitungum.
Eggert var glöggur á almenn
málefni og var eindreginn stuðn-
ingsmaður samvinuhreyfingar-
innar oig framsókarQpkksins og
lagði þeim félagssamtökum lið,
hvenær sem þörf var á. Hann mat
öll þjóðleg verðmæti mikils og
var traustur þegn; íslenzks lýðveld
is á öllum sviðum.
Æskusveitin hans kveður hann
í dag og þakkar honum trygga
samfylgd. Sjálfur þakka ég hon-
um einlæga vináttu og tryggð um
áratugi og marga hjálp veitta mér
og mínu heimili.
Konu hans og börnum votta ég
einlæga samúð.
Gunnar Guðbjartsson.
LEÐUR — NÆLON OG
RIFFLAÐ GÚMMÍ.
i V'' 4
Allar solningar og aðrar
viðgerðir afgreiddar með
stuttum fyrirvara.
Sknvinnuslofan
Skipholti 70
(inngangur frá bakhliðj
T rúlotunarhringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum um allt land.
HALLDÖR,
Skólavörðustfg 2.
FJÖUPJAW • fSAFIRPI
UJ 1 in n I JRP
I__ I
Undi sér ungur drengur,
áður álbökkum mínum.
Byggði sér bú átti
búsmala af völum og leggjum.
Þrjú v-.-u systkin saman,
sæl um vordaga laniga.
Drukku úr litlum lófum
lækjarins tæru veigar.
Eilífðin engu glatar,
alllj - - i föstum skorðum.
Leggirnir löngu týndu
liggja nú hér með tölu.
Lengi stakan, lýðum kær,
lætur tið hlýnia.
Meðan sól og sunnanblær
signir minning þína.
Þórhildur Sveinsdóítir.
'HEIM
ASICUR
suðurlandsbraut ÍJ+
sími 38550
EINANGRUNARGLER
FIMM ÁRA ÁBYRGÐ
Söluumboð:
SANDSALAN S.F.
Elliðavoqi 115,
sími 30120, pósth. 373
3
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Siaukin sala
BRIDGESTON E
sannar gæðin.
Veitir aukið
öryggi i akstri.
BRIDGESTONE
évallt fyrirliggjandi
GÓÐ ÞJÓNUSTA —
Verzlun og viðgerðir.
Sími 17 9-84
Gúmmíbarðinn h.í,
Brautarhoiti 8,
Brauðhúsið
LAUGAVEGI 126
Smurt brauð
$ Snittur
Cocktailsnittur
Brauðtertur'
S I M I 2-46-31.
Islenzkur heimilisiðnaður,
Laufásveg 2.
Höfum mikið ún'a' at ta)
lepum ullarvömm silfur
og leirmunum tréskurði
batik munsturoókum oe
fleira
Islenzkur heimilisiðnaður,
Laufásveg 2.
Biörn Svpinb'örnsson,
hæstaréttai-lnomaður
Lögfræðiskritstofa,
Sölvhólsgötu 4,
Sambandshúsinu, 3 hæð
simar 12343 og 23338
HrSRVGÍiJHNDDR
Smiðum svetnherbergis
oc eldhössinnrétfingar
S I M I 37 2-57
HÖGNI JÓNSSON,
Lögtræði og fasteignastof
Skólavörðustig 16,
sfmi 13036
heima 17739.
A!