Tíminn - 21.01.1967, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 21. janúar 1967
TÍfVIINN
Útgefandi: FRAMSÖKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar Pörarinn
Þórarinsson (áb>, Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug.
lýsingasij.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur ' Eddu-
húsinu, simar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræú 1 Af.
greiðslusími 12323 Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur,
síml 18300 Askriftargjald kr. 105.00 á mán innanlands. — I
iausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
T ímamótaatburður
Samkvæmt tölum, sem Hágstofan hefur nýlega birt um
iirslit bæjarstjórnarkosninga á síðastliðnu vori, er
Framsóknarflokkurinn nú óumdeilanlega annar stærsti
flokkurinn 1 kaupstöðunum. Hann fékk 19,5% gildra
atkvæða, en fékk 16,8% 1 bæjarstjórnarkosningunum
1962. Hins vegar minnkaði fylgi Sjálfstæðisflokksins úr
47.2% í 42.5%. Alþýðubandalagið fékk 16.8% og Alþýðu-
flokkurinn 16,2%.
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna, sem fóru fram
samtímis í kauptúnum, eru óljósari, því að þar voru víða
blandaðir listar. Samt er augljóst, að Framsóknarflokk-
urinn hefur aukið verulega fylgi sitt þar og bilið milli
hans og Sjálfstæðisflokksins minnkað. Þar fékk Fram-
sóknarflokkurinn 18,9% af atkvæðamagninu, Sjálfstæð-
isflokkurinn 32.6%, Alþýðuflokkurinn 10.6% og Alþýðu-
bandalagið 4,7%. Afgangurinn féll á hina blönduðu lista.
Eysteinn Jónsson vék nokkuð að þessu í áramótagrein
sinni. Hann sagði m. a.:
„Bæja- og sveitarstjórnakosningarnar í vor möfkuðu í
raun og veru tímamót í ævi Framsóknarflokksins, því ég
hlýt að telja það tímamótaatburð að flokkurinn varð
stærsti flokkurinn í fjórum kaupstöðum landsins og vann
stórkqsllega á þegár á heildina er litið. Leynir sér ekki,
að það á mjög mikinn hljómgrunn að efla sterkan þjóðleg-
an umbótaflokk í landinu og verður þá Framsóknarflokk-
urinn fyrir valinu hjá mörgum, sem eðlilegt má teljast.
Alþýðuflokkurinn rígheldur sér í Sjálfstæðisflokkinn og
notar krafta sína til þess að viðhalda þeirri óstjórn, sem
landsmenn búa við. í Alþýðubandalaginu er allt löðrandi í
kommúnisma og allt í þoku um það hvert förinni er heitíð
svo ekki sé sterkara að orði komizt. Allar fyrirætlanir í
þá átt að skýra línurnar á þetm bæ á árinu og stofna flokk,
sem menn fengju að vita hvað vildi, fóru alveg út um
þúfur, en urðu í reynd til þess að styrkja yfirráð komm-
únista í samtökunum, sem voru þó ærin áður.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði sem svaraði 10. hverjum
stuðningsmanni í kaupstöðum í vor og hefði ekki þurft að
tapa nema 180 atkvæðum eða svo í viðbót til Framsóknar-
manna í höfuðborginni til þess að missa meirihlutann. Þó
er tæplega um deilt, að verr hefði farið ef kosið hefði
verið um stjórnarstefnuna beint. Þetta er í áttina og gef
ur góðar vonir um að ekki verði fyrir gýg unnið ef snarp-
lega verður sótt í vor.“
Mesta gleðiefnið
Eysteinn Jónsson vék í áramótagrein sinni að öðru
atriði sem ekki er síður ánægjulegt fyrir Framsóknar-
flokkinn: Hann sagði:
„Framsóknarflokkurinn átti fimmtugsafmæli 16. des.
og var þá margt rifjað upp um störf flokksins stórfelld í
þjóðarþágu og stefnuna, sem hér verður ekki endurtekið.
En mest gleður það Framsóknarmenn um þessar mundir
hve æskulýðssamtök flokksins eru sterk og þróttmikil.
Raunar held ég að það fari tæpast framhjá nokkrum
hvar vaxtabroddinn er nú að finna í pólitísku lífi ungu
kynslóðarinnar á íslandi.
Samband ungra Framsóknarmanna hélt þing 1 haust, og
vafasamt er, hvort pólitísk æskulýðssamtök í landinu hafa
nókkru sinni haldið myndarlegra mót. Fjölmenni var
kjörinna fulltrúa víðs vegar að af landinu og ályktað um
innanlands- og utanríkismál með þvílíkum hætti að al-
þjóðarathygli vakti og straumhvörfum getur valdið“.
Eftirmaður Grimonds þykir
vænlegur til djarfrar forystu
Afstaða hans í Rhodesíumálinu hefur vakið sérstaka athygli
N:Ú í VIRUNNI, urðu for-
mannsskipti í þingflokkí Frjáls
lynda flokksins í Bretlandi. Síð
astl. miðvikudag birtu blöðin
til'kynningu frá Jo Grimond,
formanni flokksins, um að hann
hefði sagt af sér formennsk
unni, en myndi hinsvegar halda
áfnam þingmennsku og vinna
fyrir flokkinn. Blöðin spáðu
því þá, að nokkur átök gætu
orðið um eftirmann hans, því
að innan flokksins hefur bor-
ið nokkuð á ágreiningi milli
vinstri og hægri manna. Und-
ir forustu Grimonds hefur þó
vinstri armurinn eflzt miklu
meira, því að Grimond hefur
álveg lagzt á þá sveifina. Mark
mið hans hefur verið að gera
Frjálslyndia flokkinn að rót-
tækum umbótaflokki. Bersýni-
legt er, að Grimond hefur ver
ið búinn að undirbúa valið
á eftirmanni sínum áður en
hann sagði af sér. Daginn eftir
var tilkynnt, að þingflokkurinn
hefði eihróma valið Jeremy
Thorpe eftirmann hans. Þette
kom ekki á óvart, því að Thorpé
er sá þingmaður flokksins, sem
staðið hefur næst Grimond
í skoðunum. Sé einhver munur
á skoðunum þeirra, er hann
helzt sá, að Thorpe er enn rót-
tækari.
Blöðin skýra þannig frá, að
þingflokkurinn hafi valið milli
þriggja formiannsefna. í fyrstu
umferð fékk Thorpe 6 atkvæði
en hinir tveir þrjú atkvæði
hvor. Eftir þessi úrslit drógu
þeir sig í hlé og Thorpe var
kosinn einróma. Upplýst er, að
Grimond kaus Thorpe í fyrstu
umferðinni, og sennilega hefði
hann ekki dregið sig í hlé, ef
hann hefði ekki verið búinn
að tryggja kosningu hans áður.
ÞAÐ er ekki vegna aldurs,
að Grimond segir af sér flokks
forustunni. KDann er ekki nema
53 ára. Hann er hins vegar bú-
inn að vera formaður flokksins
í rúm 10 ár og það er þreyt
andi starf í litlum flokki, Sem
ekki getur gert sér von um
nein völd, heldur starfar fyrst
og fremst af hugsjónalegum á-
stæðum. Undir forustu Grim
onds hefur flokkurinn tekið
mikilll breytingu. Hann til-
heyrði gamla tímanum, ef svo
mætti segjia, þegar Grimond tók
við forustunni og Iifði mest á
fornri frægð og vana. Grhnond
endurskapaði hann að miklu
Ieyti. Undir forustu hans varð
flokkurinn róttækur og fram
sækinn að nýju. opinn fyrir nýj
um hugmyndum og reiðubúinn
til að berjast fyrir þeim. Þess
vegna er stundum sagt, — og
ekki að ástæðulausu, — að
hann sé áhrifamesti flokkurinn
í Bretlandi. Stóru flokkarnir
hafa oft að lokum tekið upp þau
mál, sem Frjálslyndi flokkur
inn hafði orðið fyrstur til að
taka á dagskrá.
í seinustu þingkosningum
fékk Frjálslyndi flokkurinn 12
þingsæti og 2.3 millj. atkvæða
í næstu kosningum á undan
Jeremy Thorpe
fékk hann 3.1 millj. atkvæða.
Ilann bauð þá fram í fleiri
kjördæmum. Það er kosninga
fyrirkomulagið, einmennings-
kjördæmin, er halda flokknum
niðri. Ef hlutfallskosningar
væru í Bretlandi myndi flokk
urinn sennilega geta fengið
allt að 100 þingsætum og verða
úrslitaaflið á þinginu.
Grimond var búinn að gefa
til kynna, að hann myndi láta
af forustunni fljótlega. Hann
vildi helga sig fleiri málum og
gefa nýjum kröftum í flokkn
um tækifæri til að sýna sig. Á
þingi flokksins síðastliðið baust
bar mikið á ungum róttækum
menntamönnum, sem sum blöð
in kölluðu „rauðu varðliðanna
hans Grimonds“. Grimond lét
hina róttæku framkomu þeirra
sér vel líka og taldi hana
merki um vaxandi þrótt flokks
ins. Hann hefur valið eftir-
mann sinn í þessum anda. JeT
emy Thorpe var sá af þing-
mönnum flokksins, er vakti
mesta athýgli á ‘ flokksþinginu
fyrir róttæka ræðu, sem hann
hélt um. Rhodesíumálið. Hann
kvað Breta ekki mega hika við
að eyðileggjá samgönguleiðir í
Rhodesíu með loftárásum, ef
stjórn Smith yrði ekki komið
öðru vísi á kné. íhaldsblöðin
deildu mjög harðlega á hann
fyrir þetta, og hafa síðan reynt
að gefa honum nafnið Sprengju
Thorpe-
ÞAÐ er wandasamt verk að
taka við flokksformennskunni
af Grimond. Hann hefur verið
glæsilegasti flokksforinginn í
Bretlandi síðustu 10 árin. Hann
er manna myndarlegastur í
sjón, mjög snjall ræðumaður
og kann vel að ræða við frétta
menn sjónvarps og bliaða.
Thorpe er talinn líklegur til að
reynast honum ekki mikið síðri
í þessum efnum, þótt ekki sé
hann eins glæsilegur í útliti.
Hann er ágætur ræðumaður og
svarar skýrt og greinilega í
viðtölum við blaðamenn. Hann
er frægur fyrir snyrtimennsku
í klæðaburði og kurteislega
framgöngu. Hann hefur oft
verið siagður „einn bezti leik-
ari neðri málstofunnar" og veld
ur því fáguð framkoma hans
og ræðustíll, en hann beitir
mjög fyndni og spaugilegum
tilsvörum. Af þessum ástæðum
hefur hann orðið eftirsóttur
sjónvarpsmaður.
Thorpe er 37 ára gamall og
hefur átt sæti á þingi síðan
1959, er hann vann þingsæti
af íhialdsmönnum. Hann hefur
haldið því síðan. Thorpe er
kominn af þekktri íhaldsætt og
áttu bæði faðir hans og afi
sæti á þingi fyrir Íhaldsflokk
inn. Hann, gekk á skólann í
Éton og lauk síðan lögfræði-
prófi við' Oxford háskóla. Síð
ar sbundaði hann framhalds-
nám í Bandaríkjunum. Hann
er piparsveinn eins og Heath,
foringi íhaldsflokksins. Sein
ustu árin hefur hann verið
gjaldkeri Frjálslynda flokksins
og hefur þótt reynast vel í pví
starfi. Hann hefur lagt mikið
kapp að efla flokksstarfið.
í þinginu hefur Thorpe látið
mannréttindamál mest til sín
taka. einkum talað máli blökku
manna í Afríku. Þá hefur hann
verið mikill fylgismaður S.Þ.
f vi er yfirleitt spáð, , að
Thorpe muni reynast mikilhæf
ur flokksforingi, sem hafi lag
á því að vekja athygli á sér og
flokknum og verið óragur við
að halda fram nýjum, róttækum
skoðunum. Það þarf hann líka
að vera, ef hann á að fullnægja
því hlutverki að vera foringi
lítils flokks, sem vinnur meira
fyrir málefni en völd. Þ.Þ.