Alþýðublaðið - 27.03.1984, Page 17
Þriðjudagur 27. mars 1984
17
Flogið er beint frá Keflavík til
Alicante. Er fiugtíminn 4 klst. og 15
mín. Bornar eru fram veitingar á
leiðinni, og reynt að gera farþegum
ferðina sem ánægjulegasta.
A flugvellinum í Alicante fer
fram vegabréfaskoðun og er því
hyggilegt að hafa vegabréfin við
hendina. Þegar farþegar hafa heinrt
töskur sínar og aðra pinkia — fara
þeir gegnum tollskoðun. Við toll-
hliðið bíða þeirra fararstjórar frá
Ferðamiðstöðinni, bjóða þá vel-
komna og vísa þeim í langferðabíla
sem aka með þá í sæluna i Beni-
dorm.
Klukkutima akstur (42 km) er frá
flugvellinum í Alicante til Beni-
dornt. Atliugið að tíniamisniunur á
íslandi og á Spáni cr 2 klst. eftir að
sumartími tekur þar gildi.
Staðurinn
Benidorm er á Costa Blanca,
hvítu ströndinni, á suð-austur
Spáni. Liggur bærinn í 42 knr fjar-
lægð frá Alicante og i 141 km fjar-
Iægð frá Valencia. A þrjár hliðar er
hann umkringdur fjallahring sem
tengist saman með fallegri sand-
strönd Miðjarðarhafsins. Beni-
dorm er því einn veðursælasti stað-
ur Spánar og meðalárshiti er 22 stig
C. í bænum búa að staðaldri 15.000
manns en þar dvelja um 300.000
manns þegar best lætur. Gamli
bæjarhlutinn stendur á tanga sem
skilur sundur hinar rómuðu strend-
ur Playa de Poniente og Playa de
Levante.
í Benidorm geta allir, jáfnt ungir
sem aldnir, fundið eitthvað við sitt
hæfi. Enginn þarf að láta sér leiðast
í sumarleyfinu. Algengara er að
leyfið dugi ekki til að kynnast öllum
þeim lystisemdum er staðurinn hef-
ur uppá að bjóða. Flestir koma til
að láta sólina verma og hita á sér
kroppinn. Hvað er þá notalegra en
liggja í hvíta sandinum við himin-
blátt Miðjarðarhafið baðaður
geislum sólarinnar og hlýða á þýtt
hljómfall öldunnar. Og ef sólar-
geislarnir gerast of ágengir er ekk-
ert betra en kasta sér í faðm hafsins
og taka nokkur röskleg sundtök.
Þeir sem ekki hafa eirð i sér til að
liggja og láta sig dreyma geta farið
á sjóskíði, leigt sér hjólabát eða far-
ið í gönguferð i flæðarmálinu.
Dægradvöl fyrir fullorðna
Nauðsynlegt er að taka sér hvíld
frá blessaðri sólinni þó heillandi sé.
Þann tíma má nota til að leika mini-
golf, tennis, bowling, borðtennis,
bruna um á hjóiaskautum, skella
sér í golf til Altea, eða ganga um sér
til skemmtunar. Ofurhugarnir fara
í minikappakstur en þeir sem ró-
legri eru leigja sér reiðhjól eða lítil
mótorhjól og þeysa um bæinn elleg-
ar fara upp í hæðirnar og njóta
kyrrðarinnar og fegurðarinnar sem
þar ríkir.
Fyrir börnin
Börnin njóta ekki síður sumar-
leyfisins í Benidorm en hinir full-
orðnu. Svamlað er í sundlauginni
eða sjónum allan daginn ellegar
reistir kastalar og aðrar fagrar bygg-.
ingar úr sandinum á ströndinni.
Leiktækjasalirnir, fjarstýrðu bát-
arnir og bílarnir og vatnsrenni-
brautir heilla jafnan yngstu kyn-
slóðina. Tívolíið er þó draumaland-
ið sem seiðir hana til sín með ölluni
sínum leyndardómum.
Framh. á síðu 24
Hafskiphf.
styðurauldð
'átaktil
útflutnkigs
islensKfar
iðnaðarvðru
Vegna aukins átaks í sölu á íslenskum iðnaðarvörum erlendis og í tilefni 25 ára
afmælis Hafskips bjóðum við útflytjendum eftirfarandi aðstoð:
Aukin umsvif Hafskips erlendis skapa okkar mönnum þekkingu á erlendum stað-
háttum, einkum á sviði flutninga, viðskipta og markaðsmála. Þessi þekking stendurtil
boða, m.a. með ráðgjöf og milligöngu.
Fimm svæðisskrifstofur Hafskips erlendis; í Kaupmannahöfn, Hamborg, Rotterdam,
Ipswich og New York og eigið flutningafyrirtæki, COSMOS Shipping Co. með skrif-
stofur sínar í fimm borgum Bandaríkjanna, eru tilbúnar að veita enn frekari þjónustu.
T.d. við ýmiskonar upplýsingaöflun, leit að viðskiptasamböndum, lækkun erlends
milliliðakostnaðar, tilboðaleit í flutninga milli svæða erlendis, aðstoð við hráefnisöfl-
un og útboð.
J.
4.
Skipaður hefur verið sérstakur milligöngumaður á aðalskrifstofu Hafskips í Reykjavík,
Þorsteinn Máni Árnason, til að sinna þessum verkefnum auk framangreindra aðila.
Leitið til hans með frekari fyrirspurnir.
Auk annarrar þjónustu sem að gagni gæti komið nefnum við síðast en ekki síst
hvetjandi flutningsskilmála á iðnaðarhráefnum til landsins og fullunninni iðnaðar-
vöru héðan.
Aukið átak í útflutningi
er íslensku þjóðinni lífsnauðsyn.
Hafskip hf. gengur heilshugar til leiks.
Okkar menn,- þinir menn
S HAFSKIP HF.
FYRSTI VÖKVALAUSI RAFGEYMIRINN
Á MARKAÐNUM. MESTA BREYTING
Á RAFGEYMI SÍÐAN HANN VAR
FUNDINN UPP AF GASTON PLANTÉ
ÁRIÐ1861 PÓLAR Hf; ® CHLORIDE
RATOEYMAVERKSMIÐJA • ElNHOLTl 6 • REYKJAVÍK-SÍMI 18401
I cwrsucta a