Tíminn - 09.02.1967, Blaðsíða 5

Tíminn - 09.02.1967, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 9. febrúar 1967 Útgefandi: FRAMSðKNARlFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fnlltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Ang- lýsingastj.: Steingrimur Gislason. Ritstj.sterifstofur i Eddu- húsinu, simar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastrætl 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, sfml 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. Innanlands — I lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. t. Tillaga Helga Bergs í Tímanum í gær birtist grein eftir Helga Bergs, þar sem hann ræðir nánara tillögu sína um ráðstöfun nokk- urs hluta gjaldeyrissjóðs í tilefni af skrifum Gylfa Þ. Gíslasonar um þessi mál. Helgi segir m.a.: „Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra, ritar grein í Alþýðublaðið á laugardaginn, þar sem hann gerir að umtalsefni tillögu, sem ég setti fram nýlega um að nota hluta af gjaideyriseign þjóðarinnar — áður en hún geng- ur til þurrðar í þann verzlunarhalla, sem verið hefur að undanförnu og fyrirsjáanlegur er á næstunni — til þess að afla innlendum framleiðslugreinum fullkominna tækja og bætts búnaðar og styrkja þannig gjaldeyrisafkomuna í framtíðinni. Tillaga mín var sett fram í franjhaldi af því, að ég hef á undanförnum árum þrívegis flutt frumvörp á Al- þingi um það, að stofnað yrði til skipulegrar lánastarfsemi í því skyni að auka framleiðni atvinnuveganna og hagræð- ingu í þeim.“ Helgi víkur þessu næst að þeirri fullyrðingu Gylfa, að gjaldeyrissjóðurinn eigi að vera eins konar trygging gegn sveiflum í utanríkisviðskiptum, „eins konar trygging gegn gengisbreytingu og höftum, auðvitað engin eilífðartrygg- ing, en tímabundin trygging11. Þess vegna megi ekki nota hluta hans til skipulegra aðgerða til eflingar fram- leiðni atvinnuveganna. Um þetta segir Helgi svo: „Ef menn vilja leita annarrar skýringar á skoðana- ágreiningi milli mín og ráðherrans um þetta mál, en „fá fræði“ annars hvors, þá er hana hér að finna. Ráðherr- ann virðist gera ráð fyrir því, að viðskiptahallinn um þessar mundir sé tímabundið fjTÍrbrigði. sem muni lagast af sjálfu sér án skipulegra aðgerða til að efla framleiðslu kerfið og að gjaldeyrisforðinn muni nægja til að brúa þetta bil. Eg er á öðru máli. Eg tel, að samkeppnisað- staða íslenzkrar framleiðslu á innlendum og erlendum markaði sé nú orðin slík vegna óðaverðbólgu og aðeerða- leysis ríkisvaldsins, að öflugar og kerfisbundnar ráðstaf- anir þurfi að gera til þess að bæta hana, meðal annars með nýjum tæknibúnaði. aukinni sjálfvirkni og fleiru. Að öðrum kosti muni viðskiptahallinn halda áfram og aukast og gjaldeyrisforðinn hverfa í eyðsluna. Og' hvað mundi ráðherrann þá vilja gera. þegar farin væri þessi tímabundna „trygging gegn eengisbrevtingu og höftum?“ Það liggur raunar í orðum hans sjálfs Gengisbreyting, höft. Mér virðist skynsamlegra að breyta nokkru af hinni tímabundnu tryggingu í varanlegri tryggingu, en eina varanlega tryggingin gegn gengisbreytingu og höftum er samkeppnisfært og arðbært framleiðslukerfi“. Um þetta deiluatriði þeirra Helga og Gylfa er reynsl- an vafalaust bezti dómarinn, eins og um flest annað. í árslok 194.4 áttu íslendingar hlutfallslega miklu meiri gjaldeyriseign en nú. Sú ríkisstjórn, sem þá kom til valda, fylgdi nákvæmlega sömu stefnu í innflutnings- málum og núv. ríkisstjórn, en hirti lítt um að bæta rekstrarskilyrði atvinnuveganna. Útkoman varð sú, að gjaldeyriseign>» eyddist öll á tveimur árum og meira til. Næsta ríkisstjórn varð ekki aðeins að grípa til ströng- ustu gjaldeyrishafta, keldur einnig víðtækrar skömmt- unar. Það er þessi öfugþróun, sem blasir við framundan, að óbreyttri stefnu. Hvort er nú skynsamlegra, að bíða að- gerðalaus eftir henni eins og ríkisstjórnin virðist vilja eða hefjast strax handa ym að afstýra henni með aukinni framleiðþi atvinnuveganna, eins og Helgi Bergs leggur til? TÍMINN ERLENT YFIRLIT Kosygin fær aðrar viðtökur í Bretlandi en Krustjoff fékk Afstaðan til Sovétríkjanna er að stórbreytast í Vestur-Evrópu Kosygin TÓLF ÁR eru senn liðin síð- an þeir Bulganin og Krustjoff komu í opinbera heimsókn til Bretlands. Bulganin var þá for- sætisráðherra, en Krustjoff að- alritari Kommúnistaflokksins. Krustjoff var þá enn ekki form- lega orðinn hinn „sterki mað- ur“ Sovétríkjanna, þótt hann væri það í reynd. í orði kveðnu var hann því aðeins talinn fylgdármaður Bulganins. En það var samt Krustjoff sem setti svip á ferðalagið. Því var ætlað að stuðla að bættri sam- búð Bretlands og Sovétríkjanna. Árangur þess varð sáralftilL Enn var langt bil milli forustu manna austurs og vesturs í Evrópu. Mikil tortryggni var enn gagnkvæm. Vestanmenn þóttust enn sjá, að það væri höfuðmarkmið Sovétleiðtog- anna að leggja undir sig allan heiminn og beittu þeir í þeim tilgangi hvers konar ráðum. Moskva væri enn miðstöð, þar sem skipulögð væri samsæri gegn ríkisstjórnum vjða um heim. Austanmenn þóttust hins vegar sjá, að enn væri það tak mark vestanmanna að grafa undan rússnesku byltingunni og leggja kommúnismann að velli. Brezkir stjórnmálaleiðtogar voru enn við sama heygarðs- homið og þegar þeir vildu hjálpa rússnesku hvítliðunum til að bæla byltinguna niður eftir fyrrp heimsstríðið. Á ÞEIM TÓLF ártim, sem liðin eru síðan Bulganin og Krustjoff gistu Bretland, hefur margt breytzt. Ef til vill hefur þó ein meiita byltingin orðið í sambúð ajisturs og vesturs í Evrópu. Þess vegna er and- rúmsloftið nú allt annað, þegar forsætisráðherra Sovétríikjanna heimsækir Bretland opinber- lega í annað sinn. Þegar Búlg- anin og Krustjoff komu til Bretlands 1953, hikuðu brezku blöðin ekki við að lýsa andúð sinni á ástandinu austantjalds- í tilefni af heimsókn Kosygin, sem stendur yfir um þessar mundir, hefur tónninn í brezku blöðunum verið allt annar. Þau hafa keppzt við að birta hól- greinar um Kosygin og þær breytingar, sem hafa orðið í Sovétríkjunum síðari árin og þó einkum síðan Kosygin varð forsætisráðherra. Brezku blöð- in bera þess augljósan sv:p. að þau taka á móti Kosygio líkt og hann væri forsætisráðherra ríkis, sem stefndi að batnandi sambúð v;ð Bretland, en ekk: ríkis sem væri að undirbúa á- rás, sem vænta mætti þá og þega'r. Þannig var hins vegar blærinn þegar Búlganin og Krustjoff heimsóttu Bre'land. ÞAÐ, SEM veldur þessu breytta viðhorfi eru öðru fremur þær breytingar sem orð ið hafa í Sovétríkjunum sjálf- um á þessum tíma. Þessar breyt ingar hófust í stjórnartíð Krust joffs og því var hann orðinn sæmilega séður í Vestur-Evr- ópu, þegar hann hrökklaðist frá völdum. Nokkur ótti greip þá ýmsa, því að í fyrstu var ekki ljóst um fyrirætlanir eftir- manna hans. Nú er fengin meira en tveggja ára reynsla af stjórn þeirra. Hún er í stuttu máli sú, að þeir hafi í flestum efnum gengið lengra en Krustjoff í því að auka frjálsfæði, þótt þeir fari að með vissri gát, og enn sé gamli tíminn ríkjandi á ýmsum svið um t. d. í sambandi við fretsi rithöfunda. Einkum hefur verið unnið að því að auka frjálsræði á hinu efnahagslega sviði, t- d. með vísi að samkeppni og sér hagnaði til að örfa framleiðslu og vörugæði. Á sviði landbún aðarins hefur þetta þegar borið mikinn árangur og hefur upp- skera aldrei orðið meiri í Sov étríkjunum en á síðastl. ári. Sama er að segja um ýmsar iðn greinir, sem framleiða neyzlu vörur. Þá hafa íbúðabyggingar aldrei verið meiri. Þannig hefur verið meira gert að því að sinna þörfum neytenda en nokkru sinni fyrr, jafnframt því, sem kaupmáttur launa hef ur aukizt. Frjálsræði almenn- ings til að bera fram óskir sín ar í þessum efnum hefur lika aukizt. Rússneskt þjóðfélag er því orðið verulega annað og vestrænum mönnum geðfeldara en það var' fyrir 12 árum, þótt grundvallarstefnu kommúnism- ans sé enn fylgt í meginatrið- um. Það skiptir kannske mestu máli frá vestrænu sjónarmiði, að þessar breytingar be-ra flest ar merki um, að meiri áherzla er lögð á uppbyggingu inn á við en vinninga út á við. ÞETTA kemur þó enn gleggra í ljós í sambúð Sov- étríkjanna við hin kommúnista ríkin í Evrópu. { tíð StaUns stjórnuðu Rússar þeim með harðri hendi. Þetta brevttist smám saman í tíð Krustjoffs og hefur haldizt áfram. Valdhafar Sovétríkjanna hafa gert sér ljóst, að það borgar sig ekki að halda þjóðum undirokuðum til langframa. Það er sama lexí- an og Bretar og Frakkar eru búnir að læra í nýlendunum „g Bandaríkjamen munu sennilega læra í Vietnam. Ýmsir telja þetta merki um, að sambúð Sov étríkjanna og hinna Austur- Evrópuríkjanna sé ótraustari en áður. Það er hæpin ályktun. En allar hafa þessar breyt- ingar orðið til þess að dregið hefur úr óttanum við Sovét- ríkin í Vestur-Evrópu — ótta, sem vissulega var ekki ástæðu laus í tíð Stalíns og átti þá meginþátt í stofnun Atlants- hafsbandalagsins. Sjálfir tor- tryggðu Rússar Atlantshafs- bandalagið í fyrstu og töldu sér stafa þaðan árásarhættu. Þeir hafa hins vegar lært af reynsl unni, að þar er um varnarsam- tök ein að ræða, og vafalaust óttast þeir ekki lengur árás af hálfu Bandaríkjanna, Bretlands eða Frakklands. Þetta hefur dregið úr tortryggni þeirra. En 1 ótti þeirra við endurvakta W þýzka hernaöarstefnu heldur U áfram. Sá ótti stendur í vegi I góðrar samvinnu í Evrópu. ? LOKS er svo að nefna það, að R versnandi sambúð Rússa og | Kínverja hefur átt sinn þátt í i að draga úr ótta við Rússa í 1 Vestur-Evrópu. Vegna Kínverja munu Rússar hafa meiri þörf fyrir það en ella að bæta sam búð sína við Vestur-Evópu. Af þessum ástæðum öllum er Kosygin nú yfirleitt vel I t*kið í brezkum blöðum Blöðin búast þó ekki við neinum stórfelld- um árangri af viðræðum hans við brezka stjórnmálamenn. Það þarf meira en vinsamleg orð til þess að gerðar séu stökkbreyt | ingar eins og t. d. þær að 1 leggja niður Varsjárbandalagið i eða Nato. En dropinn holar ® steininn. Með vaxandi vinsam 1 legum skiptum, getur smám sam | an skapazt grundvöllur fyrir 1 batnandi sambúð og víðtækara | samstarf. Ef menn íhuga breyt | ingarnar, sem hafa orðið síðan | Bulganin og Krustjoff heim- I sóttu Bretland fyrir 12 árum, g geta menn vel hugsað sér, að |! þær verði ekki minni í sambúð i Evrópuþjóðanna næstu 10 ár- §

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.