Tíminn - 09.02.1967, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.02.1967, Blaðsíða 8
8 T TlMlNN FIMMTUDAGUR 9. febrúar 1967 Hefur leikið yf ir 170 hlutverk Valur Gíslason, leikari, hefur litið talað um leiklist um dag- ana. Samt hefur hann verið ein fjörutíu ár á sviðinu og mun vera búinn að fara með 170— 180 hlutverk um dagana. Óhætt mun að fullyrða, að langflest þessara hlutverka hafi verið að- alhlutverk. Þessi þögn Vals er þvj í alveg öfugu hlutfalli við langan og glæsilegan feril á leiksviði. En það er ekki fyrr en farið er að ræða við Val, sem manni skilst að leiklistin er honum inngróið máttarvald, en ekki kippa af kennisetningum, sem hægt er að dreifa eins og rjúkandi grjúpánum á þorra- blótsborðið. Valur hefur marg sinnis kætt eða hryggt áhorfend ur, sem gleymdu því, að hann var bara að leika. Persónurnar hafa allar búið að hinum á- kveðna stíl Vals — leikstíl hans ef svo mætti segja, eilítið þurr- legum, aldrei yfirborðsleguim og alltaf innlifuðum. ■ Eðlilega hefur manni fUndizt slíkur leikari forvitnilegur, bæði vegna þess, hversu framar lega hann stendur í leiklistinni og einnig vegna þess, hvernig þögnin hefur umlukið hann eins og blár huliðshjúpur. Okkur þótti þvf ástæða til að vita, hvað hann hefði sjálfur að segja eftir að hafa talað tung- um margra á leiksviðinu í yfir fjörutíu ár. Nú leikur hann í tveim einþáttungum í Lindar- bæ og æfir nýtt hlutverk. Og í Lindarbæ þarf hann að skila tveimur gjörólíkum persónum sama kvöldið. Önnur rís upp úr kistu til að taka þátt í eigin jarðarför, svo að segja, en hin selur sprútt og berst við minn- — Hvað finnst þér nú minnis stæðast af því, sem þú hefur farið með, í innlendum leikrit- um annars vegar og svo erlend- um? Valur andvarpaði og þagði nokkra stund og sagði síðan; — Þessi spuming er nú alltaf lögð fyrir leikara. — Það er nú fyrir það, að við erum forvitin um, hvaða verk- efni hafi staðið upp úr að áliti leikarans. — Já, ég veit það. Hins vegar ér ákaflega erfitf að svara þessu. rf — Þú hefur fengið Silfur- lampann tvisvar, ekki satt? — Jú. — Og hann hefurðu fengið fyr ir iþað, sem gagnrýnendur telja bezt af því, sem þú hefur gert á þeim tíma, sem Silfurlampinn hefur verið veittur. — Já, það skulum við vona. Og enn þagði Valur og var að irílta fyrir sér hinum ýmsu hlutverkum, sem hann hafði leikið um dagana. —■ Flest af þessum 170—80 hlutverkum hafa verið aðalhiut verk? — Ekki segi ég það. En ákaf lega mörg, sagði Valur. Sann- leikurinn er að þegar maður á að svara svona, þá er um svo mörg hlutverk að ræða. Og það er ekki alltaf, að maður hafi notið mest þeirra hlutverka, sem hafa orðið áberandi fyrir sérstakan leik. Mörg þessara hlutverka hafa verið ansi erfið. Eg get t.d. nefnt Föðurinn eft- ir Strindberg. Eg tók eiginlega dálítið út f hvert skipti, sem ingarnar og ótrúa konu, tyggur skro og spýtir, og það er ekta skro, en ekki lakkris, eins og venjan er að nota. Valur seg- ir að það sé betra að spýta, þeg ar skro er notað, en hann tók stundum skro, þegar mikið var að gera í banbanum í gamla daga og ekki varð komizt út eft ir vindlingum. Brennivínssal- inn spýtir því af mikilli konst. Þannig er um allt hitt, sem verkar eðlilega og satt í með- ferð Vals á þessum kalli. Við spurðum Val fyrst að því, hvað honum fyndist um leiklistina í landinu. — Ef ég á að svara þessu al- mennt, þá mundi ég fyrst og fremst vilja miða við Reykjavík af því að þar er ég kunnugastur- Og óneitanlega finnst mér, að leiklistin standi hér með mikl- um blóma. Eg er þeirrar skoð- unar, að við eigum ótrúlega mikið af góðum leikurum núna — og það án þess að miða við mannfjölda. Það hefur orðið geysilega mikill vöxtur í leik- listinni undanfarna áratugi. Eins og víða hefur orðið raun- in á, þegar svona mikill áhugi sprettur upp allt í einu, þá vex þetta svo ótrúlega, og i Ijós - koma miklir hæfileikar, sem annars hefðu kannski ekki lát- ið á sér bæra. — En er þá alltaf. nægilegt svigrúm fyrir þá nýju krafta, sem-hrrm-álmenni áhugi vekur? — Þróunin verður nú sjaldan svo ör, að hún hindri nokkuð. En þegar tekin eru hér til sýn- ingar svona tuttugu leikrit á hverju ári, þá hljóta náttúru- lega tiltölulega mörg að verða útundan. Að mínu álití er ekki til fólk tií að fylla húsin á allar sýningar til langframa. Slíkt er ofætlun, enda koma alltaf lægð ir inn á milli í leikhúslifinu, þetta einu sinni eða tvisvar á vetri. — Mundir þú sem gamall bar dagamaður í leiklist telja, að sjónvarpið kynni að draga frá leikhúsunum? — Nei, ekki ef dæma skal eft ir því, sem maður heyrir úr öðr um stöðum. Að vísu Hefur fylgt sjónvarpi eins konar lægð í leik húslífi almennt, en hún bitnar einkum á þeim leikritum, sem síður eru sótt. Þau verða verr úti. En það fólk, sem á annað borð vill sjá ákveðin leikrit, læt ur ekki sjónvarpið aftra sér. Eg veít svo ekki, hve langan tima þetta verður að færast í eðlilegt horf aftur. Erlendis virðist sem ekki hafi svo mjög dregið úr aðsókn að leikhúsum vegna sjónvarps. Hins vegar mun hafa verið um minnkandi aðsókn að kvikmyndahúsum að ræða. — Hvað heldurðu, að þú sért búinn að fara með mörg hlut- verk í þau fjörutíu ár, sem þú hefur verið á sviði? — Eg þori nú ekki alminlega að fara með það. Eg var búinn að leika um hundrað hjá Leik- fólaginu, og utan þess, áður en ég byrjaði hjá Þjóðleikhúsinu. , Og það mætti segja mér að ég hafi farfð með yfir sjö- tiu hlutverk hjá Þjóðleikhús- inu. Nú og svo-koma hlut- verk í útvarpsleikritum og ým- iss konar verkefni á skemmtun um. Eg hef ekki bókhald yfir þetta, svo ég veit bara satt að segja enga nákvæma tölu yfir hlutverkin. Vaiur Gíslasen í hlutverki Jóns gamla. ég lék hann. Það var alltaf mik ill kvíði í mér fyrir hverja ein ustu sýningu. — Fáið þið ekki stundum hlutverk í hendurnar, sem ykk ur er hreinlega illa við? — Ja, jú, það getur komið fyrir. Sérstaklega, þegar maður fer að vinna þau. — Og ekki þarf endilega að vera um skúrk að ræða? — Nei. —Og samt haldið þið áfram með hlutverkið? — Já, maður beygir sig fyr- ir samstarfinu og reynir að gera sitt bezta, þó maður finni sig aldrei í þeim. Þrátt fyrir það þurfa hlutverkin ekki að koma illa út í augum almenn- ings. Því að það er mín reynsla að oft eru það hlutverk, sem maður hefur haft mest fyrir og er óánægður með sjálfur, sem standa bezt. En hin aftur á móti, sem manni finnst að ekk ert þurfi fyrir að hafa — hlut verkin standi alveg tilbúin og fyrirhafnarlaust sé að leika þau — komast kannski aldrei til almennings. Þá leikur maður meira fyrir sjálfan sig og nýt- ur þeirra of mikið sjálfur. Eg get tekið dæmi eins og Húsvörð inn. Til að byrja með fannst mér, að ég hefði ekkert í hann að gera. Og ég var eiginlega dá lítið hissa, og spurði leikstjór- ann, hvort hann áliti j raun og veru, að þetta væri hlutverk fyrir mig. Jú, hann hélt það. Nú, þá fór ég að vinna að því, og ég fór að njóta þess, þegar ég fór að komast að kjarna per sónunnar. — Þar hafa nú farið saman viðhorf áhorfenda og viðhorf leikara. Því það er allra manna mál, að það verk hafi tekizt á- kaflega vel. Þar hefur þetta þvj farið saman, að leikari hafi gaman af . . . Gaman af? Það er nú kannski ekki beint hægt að segja að ég hefði gaman af því. En maður nýtur hlutverka mis jafnlega — fær mismunandi mikla fullnægingu út úr þeim. í raun og veru finnst mér, að ieikarinn þurfi að fá einhverja fullnæingu i starfinu, og að hann finni, að einhver árangur náist. — Hvernig er það, Valur, þeg ar þú ert búinn að leika í svona mörgum hlutverkum, og svo kemurðu að nýju hlutverki. Er það alltaf sama vandamálið að byrja? — Nei, nei. — Þegar þið eruð orðnir svona miklir atvinnumenn. Kom ið þið bara ekki inn og farið úr jakkanum? — Nei, ja, það er oft byrjað þannig. En ég held, að lítið sé um leik. Þetta er nú yfirleitt þannig, ef um vandasöm hlut- verk er að ræða, að þau verða sjaldnast til á æfingunum sjáli um. Þau koma fram þar svona smám saman. En það gerist tyrst og fremst í einrúmi, gjarn an heima hjá Ieikaranum, eða hvar sem hann kýs að hugsa /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.