Tíminn - 09.02.1967, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.02.1967, Blaðsíða 14
1 ...."■—■■■■III. IM II ■■■■ FRYSTIHÚSIN Framhais at nis 1 með því sem næst óbreyttu hrá efnisverði árið 1967 frá því sem var 1966, 0| ennfremur óbreyttum afurðaverðum á erlendum mörk- uðum. •ír Fyrri forsendan er rétt hvað viðkemur bolfiski, en sú síðari hef ur breytzt all mikið, þar eð stór felldara o<> skyndilegra verðfall hefur átt sér stað á erlendum mörk uðum heldur en dæmi eru til um áður að segja má. Um áramótin nam þessi verðlækkun á milli 160—170 milljónum króna sé reikn að með sama útflutningsmagni á frystum fiskafurðum og verið hafði næsta ár á undan. Þær verð lækkanir, er síðan hafa komið fram og gera má ráð fyrir að enn eigi eftir að eiga sér s£að, ef fram heldur sem nú horfir hafa verið áætlaðar röskar 100 milljónir króna. Hér er um það mikið vanda mál að ræða að það verður engan veginn leyst af þeim einum, er að þessum atvinnuvegi standa. Óhjá kvæmilegt er að horfast í augu við þá staðreynd, að þessum atvinnu vegi hefur verig of þröngur stakk ur skorinn á undanfömum vel- gengnisárum. Til hans hafa verið gerðar of háar kröfur um kaup gjald, hráefnisverð og annan fram leiðslukostnað. Afleiðingarnar hafa orðið þær, að allar erlendar verð hækkanir hafa aðeins verið milli færðar í gegnum frystiiðnaðinn inn í efnahagskerfið og nú sitja frysti húsin eftir með stóraukinn fram- leiðslukostnað og óviðráðanlegar verðlækkanir á flestum afurðum sínum á erlendum mörkuðum. Fundurinn telur að útilokað sé með öllu að frystihúsin geti haldig áfram rekstri sínum við ofan- greind rekstrarskilyrði, og að til- boð það, sem fulltrúar ríkisstjórn arinnar hafa gefið kost á til lausn ar þessum vanda dugi hvergi nærri til til þc«s að gera áframhaldandi rekstur mögulegan. í ályktun fundar SH um þetta mál er bent á ýmis hin sömu atriði og að ofan greinir. Síðan segir í þeirri samþykkt: — ,Fundurinn tel ur, að útilokað sé með öllu að, frystihúsin í landinu geti haldið uppi rekstri vig þau rekstrarskil yrði sem felast í tilboði því, sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafa gefið kost á.“ ÞAKKARÁVÖRP Hjartans þakkir sendi ég ykkur öllum, nær og fjær, sem sýndu mér vináttu og tryggS með heimsókn- um, gjöfum og skeytum, á 70 ára afmæli mínu 23. des. síðastl. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Andrésson, Ingveldarstöðum. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ágúst Jóhannes Pétursson andaðist í Landsspítalanum aðfaranótt 8. þ. m. Sigríður María Sigurðardóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Útför föður míns, tengdaföður og afa, Markúsar Þórðarsonar Grímsfjósum, Stokkseyri, fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 11. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili hins látna kl. 1,30. Andrés Markússon, Jónína Kristjánsdóttlr, Halldór Andrésson. Hugheilar þakkir til allra þeirra er auðsýndu hjálp og samúð við andlát og útför Þorsteins Jósepssonar blaðamanns Sérstakar þakkir viijum vlð færa prófessor Snorra Hallgrímssyni og öðrum læknum og starfsliði Landsspitalans. Edith Jósepsson, Ásta Þorsteinsdóttir, Ásta Jósepsdóttir. Öllum þeim mörgu, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vlð and- lát og jarðarför okkar kæra sonar, bróður, mágs og frænda, Sigurgeirs Geirssonar, Hamrahlfð 31, færum við alúðarfyllsfu þakkir. Sér í lagi viljum við þakka félögum hans í 'Flugbjörgunarsveitinni fyrir hversu hlýlega þeir hafa heiðrað minningu hans. Helga Slgurgeirsdóttir, Geir Pálsson, Ólafur Geirsson, Páll Geirsson, Eria Geirsdóttir, Björn Bjarnason, Adda Geirsdóttir, Benedikt Sigvaldason, Helga, Gelr og Halldóra. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, Önnu Kristófersdóttur frá Mosum. 'Hlýhugur og vinsemd Skaftfellinga verður okkur ógleymanleg. Jón Bjarnason, börn og tengdabörn. TÍMINN FIMMTUDAGUR 9. febrúar 1967 Segir, að fáist ekki viðunandi lausn á vand^málum frystilhúsanna, telji fundurinn óhjákvæmilegt að til komi stöðvun húsanna. Þá gerði fundur SH ályktun um þær tillögur sem fram hafa komið í viðræðum við ríkisstjórning um endurskipulagningu á uppbyggingu og rekstri hraðfrystiiðnaðarins. Segir þar, að fundurinn sé sam- þykkur því, að málefni frystiiðnað arins verði tekin til ýtarlegrar at- hugunar en við þá athugun verði að leggja sérstaka áherzlu á að frystiiðnaðinum verði tryggð nægj anleg og hagkvæm stofnlán til eðlilegrar uppbyggingar og breyt- inga sém unnig sé að í fullu sam ræmi við þarfir hans. Aftur á móti varar fundurinn við þeim hugsunarhætti að halda að vandamál frystiiðnaðarins verði leyst með einfaldri skipulagsbreyt ingu. ítrekaði fundurinn þá skoð un frystihúsaeigenda, að rekja megi aðsteðjandi erfiðleika frysti húsanna til enn veigameiri ástæðna en hugsanlegs skipulagsleysis þess atvinnuvegar, eða d^aga þurfi úr framleiðslugetu þeirra, jafnvel með því að leggja mörg þeirra nið ur. Segir í ályktuninni að hrað frystiiðnaðurinn þafi sannað það á erlendum mörkuðum, að hann er fyllilega samkeppnisfær við hlið stæðan iðnað annarra þjóða, sé um sambærilegar rekstraraðstæður að ræða á sviði fjármála og fram leiðslukostnaðar. Á báðum fundunum voru gerðar samþykktir um þá tillögu full- trúa rikisstjórnarinnar, að stofn aður verði verðjöfnunarsjóður, sem hafi það hlutverk að jafna á milli ára verulegum hluta þeirra verðbreytinga á fiskafurðum sem eiga sér stað á erlendum mörkuð um. Lýsa báðir fundirnir því yfir, að ekki geti þeir tekið endanlega afstöðu til þessarar tillögu, fyrr en fyrir liggi nákvæmar tillögur um uppbyggingu sjóðsins fjár- öflun og starfsemi, en fallast þó á að tilnefna fulltrúa í nefnd til athugunar á máli þessu. KOSYGIN Framhals af bls. 1. Pravda segir að sundur- lyndi leiðtoga í Peking hafi verið vatn á myllu Bandaríkjamanna, sem hafi fært út árásarstefnu sína. þetta sjónarmið sovézkra komm- únista er nýtt. Eins og kunnugt er, hafa KSnverjar sakað Sovét- menn um að vera í slagtogi með iBandarJkjamönnum í Vietnam- deilunni, en Sovétmenn hafa hins vegar ásakað Kínverja fyrir að koma í veg fyrir nauðsynlega hjálp til handa Norður-Vietnam, með umsvifunum í sambandi við menningarbyltinguna. Fréttastofan Nýja Kína segir í dag, að heimsókn Kosygin til Lundúna sé liður í samsæri Banda ríkjamanna og Rússa gegn Kína, kommúnismanum, byltingunni og þjóðum alls heims. Kosygin, forsætisráðherra sat í dag boð borgarstjóra Lundúna og hélt þá öllum á óvænt snarpa tölu þar sem hann deildi mjög á stefnu Bandaríkjamanna í Vietnam-deil- unni og lagði áherzlu á mikilvægi þeirrar kröíu Norður-Vietnam- stjórnar, að Bandaríkjamenn hættu loftárásum á Norður-Viet- nam, án nokkurra skilyrða. Þá fyrst væri hægt að fara að tala um friðarviðræður. Kosygin og Wilson, forsætisráð- herra Breta hafa átt marga ieyni- lega fundi, þar sem Vietnam-mál- ið og öryggismál Evrópu hafa verið efst á blaði. Kosygin beindi þeirra áskorun til brezku stjórnarinnar að reyna að kjima á viðræðum um írið í Vietnam á grundvelli Genfarsátt- málans frá 1954. Um ástandið í Evrópu sagði Kos- ygin, að í þeirri heimsálfu yrði að ríkja friður og samvinna, því annað myndi boða stríð. ★ Stjórn S-Vietnam og Bandarikja menn lýstu yfir fjögurra daga vopnahléi í Vietnam frá og með deginum í dag, en Vietcong boð- aði fyrir sitt leyti viku vopnahlé, ef Bandaríkjamenn féllust á það ©f sinni háifu. Hernaðaryfirvöld í Saigon halda því fram, að skæru- liðar Vietcong hafi rofið vopna- hléið 23 sinnum á fyrstu 12 klukku stundunum. Þá er haft eftir heim- ildum í Saigon, að Bandaríkj'a- menn og stjórnarhermenn muni sennilega draga úr hernaðaraðgerð um fyrstu dagana eftir að vopna- 'hléi lýkur og myndi það koma fram eins og óformleg framleng- ing vopnahlésins. Loftárásir á Norður-Vietnam stöðvast nú í þriðja sinn á sjö vikum. Bandarikjamenn hættu loft árásum um tíma yfir jólahelgina, um áramótin og svo nú í tilefni nýárshátíðar Vietnam-búa. Páll páfi sjötti beindi því í dag til Johnsons, Bandaríkjaforseta, og leiðtoga í Suður- og Norður- Vietnam að nota vopnahléð til frið arviðræðna. Sendi hann boðskap sitt í bvoru lagi til Johnsons, og Ho Ohi Minh og Nguyen var Thieu, hershöfðingja og forseta S-Vietnam. GULLFOSSFERÐ Framhald af bls. 16 ars staðar, en þó sérstaklega á baðströndina, og var þar af- skaplega mikið af Þjóðverjum. Veðrið var svo gott og hlýtt að maður dró sig bara í hlé vegna sólarinnar. Hitinn komst upp í 23 stig í skugga, og þótti okk ur nóg um. — Næst var farið til Las Palmas, sem er afskaplega stór baðströnd. Ég held hún sé 7 km. löng, og var full af fólki. Það var varla hægt að ganga ströndina, það var svo mikið af fólki þar. Ferðamanna fjöldinn var minnstur á Azor- eyjum, en fór svo vaxandi, meira á Madeira, mikið var í Santa Cruz og lang mest í Las Palmas, enda voru alls staðar stór skip, skandinavísk og ítölsk á sams konar siglingu og Gullfoss. — f Casablanca var dvalizt í tvo daga, og var það næsti viðkomustaðurinn. Meira en helmingur ferðalanganna fór til Marakéch, sem er 250 km. inn í landi. Þar var mikil eymd og mikið volæði, að minnsta kosti sums staðar í borginni. í sömu borg er svo eitthvert flottasta hótel, sem hægt er að hugsa sér, það er ekki hægt að segja að það sé fyrsta flokks luxus A — væri nær að segja, annað eins hef ég aldrei séð. Villuhverfið í borginni var svo stórkostlegt, að kapphlaupið í Arnarnesinu hefur ekkert að segja á móti því. — Frá Casablanca var siglt til Lissabon og skipið yfirgef- ið. Fólkið gat eiginlega ekki áttað sig á því, að ferðinni með Gullfossi væri lokið. Kvöldið áður en við komum til Lissa- bon var skipstjóramiðdagur, og maturinn var ennþá meiri og betri en við höfðum áður feng ið i ferðinni, og var þó varla hægt að gera betur í matar- gerð. — 81 farþegi var með flug- vélinni frá Lissabon til London, nokkrir urðu eftir, og ætluðu að fara aftur með Gullfossi til baka og heim. Alls munu hafa verið um 100 farþegar með skipinu, þá að meðtöldum kon um áhafnarinnar. Áhöfnin er rúmlega 60 manns, svo samtals voru með skipinu um 170 manns. Nokkuð fleiri verða í heimferðinni, þvj 119 komu fljúgandi til Lissabon og auk þess tveir menn til viðbótar í áhöfnina. Fararstjórar á heimleiðinni verða Sigurlaugur Þorkelsson og Friðjón Ástráðs son. STÚDENTAR Framhals af bls. 1. þeir gera yfirlit yfir kostnað við námið. Nú munu skólagjöld erlendra stúdenta vera í kringum 70 pund á ári eða þar upi bil. Þó er það eitthvr*! breytilegt. Hyggst brezka stjórnin spara 5 millj. punda með þessu móti en það sýndist mörg- um, að ráðlegra væri að lækka kostnaðinn við lúðrasveit brezka hersins, sem mun kosta ríkið um 6 milljónir punda á ári, að því er fregnir herma. Fara til Sviþjóðar til að kyana sér akstur í hálku KJ-Reykjavík miðvikudag. Á laugardaginn fara þeir Hauk ur Pétursson stjórnarmaður í FIB og Sigurður Ágústsson fram- kvæmdastjóri Varúaðar á vegum til Svíl>jóðar í boði NTF, sem er skammstöfun fyrir landssamtök um umfcrðaröryggi, og munu þeir kynna sér þar akstur í hálku á sérstöku æfingasvæði sem sænski herinn hefur í Östersund. Sigurður Ágústsson sagði í við tali við Tímann í dag að þeir myndu vera í þrjá daga á þessu æfingasvæði, en á tímabilinu frá því í janúar og fram í marz eru þarna 10 námskeið í hálkuakstri við allskonar skilyrði, auk þess sem farið er yfir bókleg verkefni. Sigurður sagði að ferð þessi væri farin með það fyrir augum að sköpuð yrði aðstaða til æfinga í akstri í hálku en ráðagerðir voru um á æfingar í hálkuakstri færu fram á Rauðavatni fyrir ofan Reykjavík í vetur. Af því gat þó ekki orðið að sinni vegna tíðarfars ins, og eins þótti Rauðavatn ekki nógu heppilegur staður vegna þess að þjóðvegurinn liggur á vatnsbakkanum en æfingasvæði sem þessi þurfa að vera vel af- mörkuð, svo hægt sé að gæta fyllsta öryggis við aksturinn. Ann ars sagði Sigurður að í athugun væri að koma upp svæði þar sem hægt væri að æfa akstur, bæði hraðakstur, akstur f myrkri — og þá í hálku líka.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.