Tíminn - 21.02.1967, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.02.1967, Blaðsíða 8
ÞRIÐJUDAGUK 21. febrúar 1967. 8 TÍMINN RAGNAR ÁSGEIRSSON: ÞOGNIN rofin hef lengi fur'ðað mig yfir tómlæti okkar íslendinga um bar- áttu Bjarna M. Gíslasonar fyrir málstað okkar í handritamálinu, sem nú er farsællega á enda kljáð á þann veg sem flestir íslending ar munu hafa óskað. Fyrst og fremst er það dönsku þjóðinni að þakka vegna réttlætiskenndar og göfuglyndis henmar, að hún skildi að handrit þessi áttu heima hér og hvergi annarsstaðar í veröldinni. Engir hafa jafngóð skilyrði til að rannsaka handritin eins og íslend- ingar sem alast upp við þá tungu sem þau eru skrifuð á. Þ*að ætti líka að vera gleðiefni fyrir alla erlenda vísindamenn á þessu sviði að fá að koma til þessa lands og fá að rannsaka þau hér þar sem þau eru rituð og þar sem hinar skráðu sögur hafa gerzt. Það verður lengi talinn merkis- dagur í sögu þjóðarinnar þegar Hæstiréttur Danmerkur felldi dóm inn á þann veg að handritunum skyldi skilað hingað, gefin ís- lenzku þjóðinni. Þá var mikið um dýrðir og margt talað og ritað um mikinn sigur. Mörg nöfn nefnd og mörgum þakkað en hvergi heyrði ég þá nafn Bjarna M. Gísla sonar nefnt. Eg bjóst við að þakk læti til hans fyrir þrotlausa bar- áttu hans í þessu máli yrði borið fram af rektor Háskólans sem fær handritin í sína umsjá og rík- isstjórninni en það var ekki svo mikið sem að menntamálaráðherra Gyifi Þ. Gíslason nefndi Bjarna á nafn í ræðu sinni til íslenzku þjóðarinnar um úrslit málsins. Bjarni M. Gíslason er ekki há- skólagenginn maður. Hann er að- eins sjálfmenntaður alþýðumaður, víðlesinn og fróður. Það hefur talltaf verið stolt okkar fslendinga að eiga slíka menn í alþýðustétt — og verður það vonandi alla tíð. Það var átakanleg slysni hjá þeim ráðherra sem fer með menntamál og auk þess kennir sig við Alþýðu flokkinn að þakka ekki Bjarnia M. Gíslaáyni starf hans þennan há- tíðisdag. Þessi skortur hans á hátt vísi vakti gremju margra Dana. Þó efast ég ekki um að G. Þ. Gíslason muni vena sá drengur að hann bæti fyrir þessa yfirsjón j sína, enda hefur hann góða að- ; stöðu til þess meðan hann situr í ! rí'kisstjórninni. ! Háskólamenn okkar héldu að j vísu fundi um handritamálið með- ! an það stóð yfir og gerðu sam- þykktir um það og hrópuðu í :kór: „Handritin heim! Handritin heirn!,,, en litlu múnu þau hróp hafa áorkað. Einnig söfn- uðu stúdentar smáupphæð til handritahúss. Hér heima voru allir sammála, við engan að berj- ast eða deila. En það var öðru máli að gegna í Danmörku. Þar voru hatrammir andstæðingar gegn því að handritin yrðu send heim, einkum meðal vísindiamanna, sem töldu eignarrétt Dana yfir þeim óvéfengjanlegan og lögðu til að fast yrði haldið í alla lagastafi og handritin aldrei látin af hendi. Þá er það sem Bjarni M. Gíslia son kemur til sögunnar í hand- ritamálinu. Skóiagöngu hafði hann ekki fe.ngið í æsku aðra en þá sem tíðkaðist þá, fram að ferm- ingu í útkjálkahéraði á fslandi, fyrir fjörutíu árum, en fór svo til sjós og var þar þangað til hann var orðinn 24 ára. En þá brá hann sér út yfir pollinn til Danmerkur og settist á skólabekk eins lýðhá- skólans. Hann vildi verða rithöf- undur og sagnaskáld og var á góðri leið að fá viðurkenningu sem slík- ur, en. þá, um 1945, var handrita- Bjarni M. Gíslason. málið mjög á dagskrá og horfði þunglega við fyrir íslendingum. Þar gat Bjarni M. Gíslason ekki setig hjá aðgerðarlaus, og brátt tók baráttan hug hans allan og allian tíma hans frá öðrum störfum. Bjarni hóf bardagann skynsam- lega, bæði um sókn og vörn. Hann er stillingamaður, rökvís og vel máli farinn. Hann valdi þá aðferð að fræða danska alþýðu um hiand- ritamálið og ferðaðist um Dan- mörku þvera og endilanga og ræddi um málið í lýðskólunum og á oPinberum fundum og sýndi fram á hve hjartfólgið það væri okkur íslendingum. Hann fékk margia ágæta lýðskólakennara og aðra í lið með sér og með ræðu- höldum og blaðagreinum tókst Bjarna og fylgismönnum hans að skapa svo máttugt almenningsálit í Danmörku um að senda handrit- in heim að danskir stjórnmála- menn sáu sér ekki annað fært en að bera málið upp á þingi — Rikis- deginum — þar sem afhehdingin var samþykkt eftir langvarandi og harða baráttu. Bjarni M. Gíslason hefur skrifað þrjár bækur um handritin og auk þess óteljandi blaðagreinar um málið, þau 20 ár sem baráttan var hörðust .Það gegnir furðu hve lítið fslendingar hafa ritað um þátt Bjarna í handritamálinu. Það hef- ur verið vanrækt að skýra okkur frá því. Þetta er ef til vill af því að hann er ekki „Akademiker", bara sjómaður að vestan, hefur hvorki práfessorsnafnbót iié neinn rétt til að setja upp stúdentshúfu. í þessari 20 ára orustu upp á líf eða dauða, hafði Bjarni litla stoð héðan frá íslandi. Þó má geta þess að 1954 kallaði Ólafur Thors Bjarna hingað heim til skrafs og ráðagerða og var sá drengur að fyrirskipa að honum yrðu greiddar eitt þúsund danskar krónur á mál- uði. Við það tækifæri sagði Óliafur við Bjarna: „Það er ekki hægt að miða yðar starf við listamanna- starf og verður að launa það öðru- vísi“. Hitt mun fáum kunnugt að allir þeir peningiar fóru í beinan kostnað við baráttuna ’ fyrir mál- inu í Danmörku — og meira til. Þrjár bækur skrifaði Bjarni um handritamálið fyTir Dani, en grein- ar hans og fyrirlestrar munu þó enn fyrirfeitfarmeiri, ef út væru gefnir. Þá var það nauðsynl. fyrir Bjarnia að fylgjast með öllu sem skrifað var um handritamálið í tvo áratugi, en í það safn af blaðaúr- klippum fóru mörg hundruð dansk ar krónur á mánuði. En Bjami átti danska konu, kennara að menntun, í flastri stöðu. Hún vann fyrir heim- ili þeirra á meðan handritamálið krafðist allra starfskrafta Bjama óskiptra, á meðan heilsa hans leyfði, sem nú er því miður þrot- in. Enga lagalega skyldu munum við íslendingar hafa gagnvart hinni dönsku frú eða börnum hennar. Ég hef lengi verið undrandi yfir þögninni á íslandi yfir hiiju gæfu- samlega starfi Bjaraa M. Gíslason , ar að handritamálinu. Ég hélt að ; þökkin myndi fyrst berast honum ! frá Háskóla íslands, en úr því ■ horni hef ég ekki heyrt slíkt hljóð. 1 Þá hélt ég að slíkt þakklæti myndi berast frá ríkisstjóminni, og alveg sérstaklega frá þeim ráðherra sem kenndur er við menntun og er sítalandi við sérhvert tækifæri sem býðst. Dagblöðin hér á landi þögðu líka fullri þögn um hlut Bjarna í unnum sigri í handritla- málinu, þangað til að Snorri Sig- MINNING Gylfi Snær Gunnarsson verzlunarmaður Kvaddur er í dag frá Neskirkju, hinztu kveðju, Gylfi Gunnars- son, verzlunarmaður, en hann lézt i svefni á heimíli sínu hinn 14. febrúar s.l. aðeins 34 ára að aldri, frá konu og þrernur korn- ungum bömum. Maður á erfitt með að sætta sig við, að ungur maður, sem kenndi sér einskis meins og virtist hverjum manni hraustari, sé svo skyndilega og fyrirvaralaust kvaddur á braut, mitt í önn dagsins, þar sem alit virtist bjart framundan. Gylfi fæddist 23. okt. 1932 í Reykjavík. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, Kristínu Eiríks dóttur og Gunnari M. Magnúss, rithöfundi, og var eínn þriggja bræðra. Hann lauk námi í héraðs skóla, en lærði síðar kortagerð á vegum Veðurstofunnar og vann á Keflavíkurflugvelli sem kortagérðarmaður, þar til hann kvæntist og fluttist aftur til Reykjavíkur. Einnig stundaði hann nokkuð sjómennsku, var m.a. um eins árs skeið í sigling- um, en á s.L ári festi hann kaup á verzlun í Reykjavik, sem hann rak siðan. Gvlfi kvæntist 28. desember 1961, Oddnýju Siguröardóttur,! hjúkrunarkonu, sem æfctuð er frá Litla-Hrauni í Hnappadalssýslu. Samlíf þeirra var sterkt og gótt og var hún manni sínum mikil stoð og mikill vinur og skapaði honum og börnum þeirra svo gott heimili, sem kostur var á. Oddnýj er mikilhaef og góð kona. Húrij lærði hjúkrun erlendis, en gerð-j ist hjúkrunarkona á Landakotsspít ala, er hún kom heim að námi loknu. Um eins árs skeið áttu bau heima á Hvammstanga, þar sem Oddný tók að sér hjúkrunarstörf þar, en þau fluttust aftur suður s.l. haust og settust að á Sel- tjarnarnesi. Gylfi Snær var sérlega bráð- þroska, búinn miklu líkamlegu atgerfi, fríður sýnum og glæsi- legur á velli. Hann lagði stund á frjálsar fþróttir og komst korn- ungur í fremstu röð. Þá kynntist ég Gylía fyrst um 1950, og mér fannst hann efnilegastur þeirra fjölmörgu iþróttamanna, sem komu þá fram á sjónarsviðið. Hann var einn þessara manna, sem virtist hafa hæfileika á hvaða sviði íþrótta sem var, ótrú- lega fjölhæfur. Hins vegar settu meiðsli strik í reikninginn, og hann gat lítið sem ekkert stund- að íþróttir í nokkur ár. Kunningsskapur okkar varð að vináttu, þegar við vorum her- bergisfélagar í þrjár vikur á Ólympíuleikunum í Helsinki 1952 sem blaðamenn, en Gylfi skrifaði um þá fyrir Þjóðviljann, Þar kynntist ég áhuga hans og þekkingu á íþróttum — og ég kynntist einnig ungum, traustum manni, sem gott var að eiga að félaga. Og ég sá í þessum unga — óvenju sterka manni — íþrótta mann, ekki síður glæsilegan, en þá, sem bar hæst á þessum leik- um. En atvikin höguðu því þann- ig, að íþróttaferill hans varð ekki sá, sem við vinir hans, bjuggumst við — vegna þrálátra meiðsla í baki. En honum tókst þó um síðir að vinna að nokkra isyti bug á þessum meiðslum — 05 kom þá fram á sjónaisviðið á nv.; Hann haslaði sér að vísu nýjan! völl — áður voru það stökkin | log hlaupin, þar sem hann barj hæst.1 en nú voru baft köstin,1 einkum spjótkastið og hann varð ; tvívegis íslandsmeistari f þeirri grein og landsliðsm. í nokkur ár. Gylfi var einnig búinn góðum hæfileikum andlega. Hann var hugsandi maður og las mikið, eink- um um fræðileg efni og dulræn, og þá allmikið Austurlandafræði Hneigðist hann að dulrænum svið um, enda hafði hann sjálfur ýmsa hæfileika á þeim vetfcvangi, sem á ýmsan hátt sýndu þroska hans. Hann flíkaði þó þessum hæfileikum ekki mikið, enda innst inni dulur maður, þótt hann væri glaður og félagslyndur í hópi vina sinna og félaga. Ég sendi eiginkonu hans og börnum, foreldrum og bræðrum mínar innilegustu samúðarkveðj ur. Þau hafa misst mikið, en minn ingin um góðan dreng lifir. Hallnr Símonarson. HeiSurs- doktor Títt var að prúðir piltar Jærðu til prestsskapar fyrr á dögunum, en um það síðar sig ekkert kærðu, og allir snérust að lögunum. Bágt er að andinn útlægur verðL Ég ætla það væri snjallræði, og hentugt Drottni, ef háskólinn gerði mig heiðursdoktor i guðfræðL 18. febr. 1967. Sk. G. fússon minnti á hann í Tíman- um fyrir skömmu síðan, svo kom grein Kristjáns H. Jónssonar á Akranesi 2. þ.m. í Morgunblaðinu. Þar næst kom greinin: Handrita- málið og þjóðin í Tímanum 11. þ. m., eftir Hj. G. Því næst kom rit- stjórnargrein í Morgunblaðinu sem viðurkenndi þátt Bjiama M. Gísla- sonar í handritamálinu. Þökk sé þeim höfundum þessara greina. — í gær, 14. þ.m. birtist svo í Morg- unblaðinu viðtal vig Bjama, og blaðamaðurinn spyr: Hverjir eiga mestan heiður skilið fyrir sigur- inn? Bjami svarar: „Danir“. Um það verður ekki deilt“. Hygg ég þetta rétt svar og býst ég við að engar aðrar þjóðir hefðu sýnt smá þjóð eins og okkur, slíkan dreng- skap. Því næst nefnir hann nöfn margra danskra manna sem lögðu okkur lið af heilum hug, málinu til. framgangs, en hins getur Bjarni ekki, að flestir þessara manna sóttu oftast ráð sín og rök til sóknar og varnar í málinu til hans, B.M.G. Þá getur Bjarni þess að af vís- indamönnum okkar hafi enginn haft meiri áhrif á gang málsins en Jón prófessor Helgascyi. Er það vel að það fréttist um landið allt, því hann átti þó ekki alltaf hægt um vik í málinu, sem danskur embættismaður og forstöðumaður Árnasafns. Ég er þakklátur áðurnefndum greinarhöfundum, sem rufu þögn- ina hér um þátt vestfirska sjó- mannsins Bjarna M. Gíslasonar í handrifcamálinu. Það var nauðsyn- legt úr því að vísindamennimir gerðu það ekki. Þjóðin þakkar hon- um. En hér þarf meira en o.ðin tóm. Bjarni hefur eytt þriðjungi ævi sinpar tij bacáttunnar fyrir því að fá handritin heim. Nú koma þau heim, loksins, eftir 300 ára útivist. Það verður áreiðanlegia mikill hátíðisdagur þegar þeim verður skilað aftur. Að lokum vil ég geta þess að svo prúðmannlegur var málflutn- ingur Bjarna að í Danmörku nýt- ur hann, að orustunni lokinni, bæði virðingar og vináttu dönsku þjóðarinnar. Er okkur sæmd að slfkum manni. En á hvern hátt get um við launað Bjarna fyrir afrek hans? Við, alþýðan, kjósum full- trúa á Alþing og þeir velja okkur ríkisstjóm. Við ætlumst til þess af þeim að þeir taki ákvarðanir í slíku máli sem þessu. Það er þvi undir manndómi alþingismanna og ráðherranna komið, hvemig þeir launa Bjarna M. Gíslasyni — og um leið mælikvarði á manngildi þeirra- 1S. nóvember. Ragnar Á§geirssonu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.