Tíminn - 17.05.1967, Blaðsíða 2
TÍMINN
3IIÐVIKUDAGUR 17. maf 1967
150 áfengisfíöskur
teknar afunglinguns
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Að venju var miMð um ferða-
á meðal ferðalög unglinga, en
mun minna var um drykkjuskap
hjá unglingunum núna en margar
Minningarsjóður
um Ragnheiði
Jónsdóttur
Stofnaður hefur verið minning
arsjóður um Ragnheiði Jónsdótt-
ur rithöfund, og verður honum
varið til þess að styrkja búnað
barnaherbergis í fyrirhugaðri bygg
ingu yfir Listasafn ASÍ. Minning
arspjöld verða til sölu á skrif-
stofu listasafnsins, Laugavegi 18,
fjórðu hæð, og Bókabúð Helga-
fells, Laugavegi 100.
lög um hvítasunnuhelgina, og þar hvítasunnuhelgar á liðnum árum,
en þar ber hæst „Þjórsárdals-
ævintýrið" svokallaða.
Lögreglan hafði naklkurn við-
búnað við aðalleiðir út úr bænum
og leitaði að áfengi hjá ungu
fólki undir 21 árs aldri. Miunu uim
150 flöskur hafa verið teknar af
þessu unga fólki. Margt af því
lagði leið sína austur að Laugar-
vatni, svo sem undanfarin ár, en
var snúið þaðan og hafnaði í ná-
grenni við Þrastaskóg.
Lögreglan í Reykjavík var til
staðar á Laugarvatni ásamt lög-
reglunni á Selfossi, en þar höfðu
skólayfirtvöld bannað öll tjiald-
stæði, enda allir. skólar í fullum
gangi og ekki æskilegt að safna
saiman á staðnum miklum hópi
af unglingum.
Karlakór Keflavíkur
farinn til Irlands
Nokkrir þátttakenda
að draga.
Sjóstangaveiðimótið
(Tímamynd-HE).
Vestmannaeyjum:
Sá aflahæsti fékk 639,5 kg.
HE-Vestinannaeyjum, þriðjudag.
Alþjóðlcgt stangveiðimót var haldi'ð í Vestmannacyjum um Hvíta-
sunnuna. Fjöldi vciðimanna, innlendra og erlendra tóku þátt í mótinu,
cða 73 alls. Meðal þeirra voru margar konur. Sveitakeppni var á mót-
inu og voru sveitir frá Akureyri, Keflavík, Reykjavík, Vestmannaeyj-
um, Akrancsi og einnig var svcit frá Kcflavíkurflugvelli.
Veður var hið bezta báða dag
anna sem mótið fór fram, sól-
skin fyrri daginn og renniblíða
SKÁKIN
Svart: Reykjavík:
Jónas Þorvaldsson
Haliur Símonarson
Hvitt: Akureyri
Gunnlaugur Guðmundsson.
Margeir Steingrímsson.
41. Hal—a4 Bd6—c5
báða dagana, en svolítil rigning
seinni daginn.
Árangur á mótinu var mjög góð
ur, og er jafnvel talað um heims
met hjá Kristjáni Jóhannessyni
frá Akureyri, en hann aflaði báða
dagana 639.5 kíló, en faðir hans
Jóhannes Kristjánsson, veiddi
flesta fiska eða 750. Aflahæsti bát
urinn var Sigurbjöm, skipstjóri
á honum var Hilmar Sigurbjörns-
son, en meðalaflinn á stöng um
borð var um 555,6 kg, eða rúm-
lega hálft tonn á mann, sem þyk
ir mjög gott. Aflahæsta konan
var Erla Eiríksdóttir frá Kefla-
vík sem veiddi 260 kíló en stærsta
fiskinn dró Stefán Þorvaldsson frá
Reykjavík, 27 punda lúðu.
Mótið hófst á Hvítasunnumorg
un kl. 9, en þá fóru bátarnir út
og komu inn kl. 18 á annan fóru
þeir einnig út kl. 9 og komu að
kl. 17.
Um kvöldið fór fram verðlauna
afhending á Hótel HB.
Mótsstjóri var Páll Þorbjörns-
son, fyrrum skipstjóri í Vest-
mannaeyjum, og kynnti hann úr
slit. í undirbúningsnefnd voru
Halldór Snorrason, Magnús Valdi
marsson og Bolli Gunnarsson.
GS-Keflavík, þriðjuilag.
Karlakor Keflavíkur, ásamt
kvennakór, héldu sína árlegu sam
söngva fyrir styrktarfélaga í Bíó
höllinni í Keflavík 5. og 8. maí
s. 1. Á efnisskránni voru verk
eftir innlenda og erlenda höfunda.
Var húsfyllir bæði kvöldin og
kórunum frábærlega vel tekið.
Einn samsöngur var haldinn í
Hafnarfirði við góðar undirtektir.
Annan hvítasunnudag lögðu kór
arnir upp í söngför til írlands á
vegum ferðaskrifstofunnar Lönd
& Leiðir. Taka kórarnir þátt í
alþjóðlegu söngmóti, sem haldið
verður í borginni Cork á Suður-
írlandi. Fyrirhugað er, að halda
einn sjálfstæðan samsöng í Kill-
arney.
Söngstjóri kóranna er Þórir
Baldursson, en undirleik annast
Ragnheiður Skúladóttir á flygil og
Gunnar Sigurðsson bassa.
Margir einsöngvarar koma fram
með kórunum og einnig kvartett.
Að lokinni íriandsförinni munu
kórarnir syngja í nágrenni Kefla-
víkur m. a. í Reykjavík. Stjórn
Karlakórsins skipa Haukur Þórð
arson, Jóhann Líndal, Magnús Guð
mundsson, Magnús Jónsson og
Bergsteinn Sigurðsson.
4 stúlkur
slasast í
árekstri
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Um klukkan þrjú í gær
dag varð mjög harður árekst
ur á Keflavíkurveginum fyr
ir sunnan Straum. Rákust
þar saman Simca-fólksbíll,
lítill, og Skoda-sendiferða-
bíll- Tvær stúlkur er voru
í Simca-bílnum slösuðust al
varlega, og sömuleiðis tvær
stúlkur er voru farþegar í
Skoda-bílnum, en ökumaður
hans slapp svo til ómeiddur.
Önnur stúlkan í Simca-bfln
um festist í honum við
áreksturinn, og gekk erfið
lega að ná henni úr klemm-
unni. Orsök árekstursins
var sú, að með einhverjum
hætti beygði Simca b'llinn
skyndilega yfir á hægri veg
arhelming, og skullu bflarn
ir saman af miklu afli.
Mynftina af bflunum á á-
rekstursstað tók Hjalti Zoph
oníasson, og má glöggt sjá
hvað bíiarnir eru mikið
skemmdir.
17. maí-hátíö
Nordmannslaget í Reykjavík
heldur sína árlegu 17. maí skemmt
un í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld kl. 20.30.
Voru fermd fyrir 60 árum
SE-Alftanesi, þriðjudag.
Á hvitasunnudag komu sam
an i bessastaðakirkju 15 ferm
ingarsystkini sem fermd voru
par fyrir 60 árum. Hlýddu þau
messu í kirkjunni en þennan
dag voru fermd þar 5 börn.
A hvítasunnunni 1907 voru
fermd um 40 börn. Nokkru
t'leiri þeirra eru enn á lífi en
oau 15 fermingarsystkini sem
Komu til kirkjunnar nú, en
gatu ekki komið því við að
mæta. Séra Garðar Þorsteins-
son. prófastur ávarpaði þennan
hip sérstaklega og bau'ð hann
velkominn. — Myndina tók
GE af 60 ára fermingarbörn-
uaum framan við Bessastaða-
Kirkju.