Tíminn - 17.05.1967, Side 8
TÍMINN
TVTTOVTKTTDAGtTR 1*7. maf 1967
MINNING
Ragnar Gunnarsson
Fossvöllum
F. 20. júlí 1902. D. 31. marz 1967.
Tilveru alla og töfra hennar
glæðir guðsandi
LÖgnxál hans, kveikja lífsneista
vitund verðandi.
Ldkt og laukur, lyftist úr moldu
fóstrar fræ og sáir.
Þannig er líf og þroski manna
eilíf upprisa.
D.S.
Hinn 31. marz s.l. hrannaðist
skýjakúfur á fjöllin í Út-Hlíð. —
Undanfamar vikur hafði gengið á
með íannkomu og veðurofsa, en
þennan dag virtist veðurglöggum
mönnum að myndi draga til
hlýrn áttar og vetrarhríðarnar
mundu nú láta undan síga í bili.
En mitt í þessum hugleiðingum
barst út um sveitina andlátsfregn
Ragnars Gunnarssonar bónda og
simstöðvarstjóra, Fossvöllum, sem
hafði andazt að kvöldi hins 31.
marz. Þessi fregn kom öllum mjög
á óvart, sökum þesis, að Ragnar
hafði innt af höndum símaþjón-
ustu þennan dag jafnt og aðra
daga
Það er oft á þessum augnablikum
þegar svona skeður, að
oft er eins og vitund vor
vakni af þungum dvala.
Djúpt M eigin barmi berst
bergmál himinsala.
Þá er eins og allir heyri
eilífðina tala.
D.S.
Það var vorið 1918 sem foreldrar
Ragnars, Ragnheiður Stefánsdóttir
og Gunnar Jónsson, fluttu búferl
um frá Bakkagerði í Borgarfirði
eystra, að Fossvöllum í Jökulsár-
hlíð. Áður höfðu þau verið búsett
á Seyðisfirði og ráku þar gistihús,
en það brann eftir fá ár, og urðu
þá fyrir miklu eignatjóni. Fluttu
þaðan til Húsavíkur austur, og
ráku þar búskap nokkur ár, en
fóru síðan að Bakkagerði í Borgar
firði eins og fyrr segir.
Þegar þau hjónin Ragnheiður
og Gunnar komu í Fossvelli, er
bamahópurinn 6 piltar og 6 stúlk-
ur. Ragnar 16 ára og naestelztur
sinna systkina.
Elztu bræðurnir studdu foreldra
sína, af mikilli atorku við bú-
störfin, en sauðfjárbúskapur var
þá aðalbúgrein bænda svo sem
kunnugt er. Segja má að það væri
mikið afrek horfinna kynslóða að
geta komið stórum barnahóp vel
til manns, við þær aðstæður sem
þá voru um afkomu alla. En þetta
tókst þó, þar sem framsýni, dugn-
aður og ráðdeild ráða ríkjum.
Gestkvæmt var á Fossvöllum í þá
daga. eins og nú. Þar var símstöð
og sottu þangað Jökuldælir og
Hlíð?.rmenn. Þar var einnig mikill
straumur ferðamanna, haust og
vor. Seyðisfjörður var þá aðal-
verzlunarstaður þessara sveita. En
hjómn Ragnheiður og Gunnar,
kunnn vel að taka á móti gestum.
Gestrisni var þeim í blóð borin,
og aldrei skorti neitt er hafa
þurfti til þeirra hluta.
Þau Ragnheiður Stefánsdóttir
og Gunnar Jónsson bjuggu á Foss
völlum fram til ársir.f 1932.
Brugðu þau þá búi. Börnin voru
komir, upp og flest flogin úr
breiðrínu. Sum á skólum, önnur
i atvinnu. Þetta ár tekur Ragnar
sonur þeirra við jörðinni og fer
að búa með Aðalsteini bróður
sínum, en móðir þeirra fyrir búi
innanstokks.
Strax og Ragnar var tekinn
við Kossvöllum kom í ljós að
hann var búmaður. Hann forðaðist
að setja á guð og gaddinn, sem
kallað var, en aflaði sér nægra
heyja handa búpeningi sínum.
Hann bar þann metnað í brjósti,
strax á fyrstu búskaparárunum,
að þ'jrfa ekki að leita til annarra,
heldur standast hverja raun,
hvermg sem viðraði og fylgdi það
honuim alla ævina.' Hann var fjár-
ræktaimaður og átti afburðagott
og vei ræktað sauðfé, enda var
umhyggja hans fyrir sauðfénu
alveg frábær. Var það á orði í
sveitinni, að helzt mætti ekki
vanta kind að kveldi, eiftir að
fé var tekið á hús. Á tímabili
seldi Ragnar kynbótahrúta víða
um Hérað.
Árið 1938, 6. maí, kvæntist Ragn
ar Önnu Björgu Einarsdóttur frá
Hrjót í Hjaltastaðahreppi, mynd-
arlegri og greindri konu, eins og
hún átti kyn til. Börn þeirra hjóna
eru þessi: Hermann, giftur Svöfu
Bergmann, búsett í Reykjavík;
Kristbjörg,, gift Valgeir Magnús-
syni; Eiður, Gunnar, Ragnheiður,
Guðnv, heima. Öll-eru börn þeirra
greindar og dugnaðarfólk.
Árið 1942 kaupir Ragnar Foss-
velli af Jökuldalslhreppi. Jörðin
er landstór. sauðfjárhagar ágætir.
og mikið af góðu landi til auk-
innar túnræktar. Fossvellir eru
metnir 24 hundr. að fornu mati.
Það þurfti framsýni og kjark
fyrir efnaMtinn bónda til að ráð-
ast í kaup á stórri jörð í þá
daga, en Ragnar hafði tekið tryggð
við iörðina og sveitina og ákvað
að hopa hvergi, hvað sem að
höndum bæri. En allt fór þetta
vel. Á þessu ári hækkuðu sauð-
fjárafurðir mikið, vegna stríðsins,
og sæmiilega áraði þá um nokkurt
skeið. Um þessar mundir gerist
Ragnar vegaverkstjóri. Fyrstu ár-
in s- þó verksvið hans bundið
við Hlíðarhrepp, en brátt falin
verkstjórn víðar um Hérað. Síð-
ustu 10 árin hefur hann verið
vegáverkstjóri allt sumarið. Af
þessum sökum gat hann ekki sinnt
búskapnum að sumrinu, en áhugi
á beyöflun og aukinni ræfct-
un var hinn sami og áður. Synir
Ragnars tóku þá við þessum störf-
um og fórst það vel úr hendi. Þá
var einnig húsakostur stórbœttur
á þessum árum. Byggð voru gripa
hús úr steinsteypu fyrir sauðfé
og .íautgripi, ásamt hlöðu. Þá
reis einnig frá grunni stórt og
vandað íbúðarhús við hæfi jarð-
arinnar. Við framkvæmdir hinna
síðari ára, hafa börn Ragnars
aðstoðað eftir beztu getu. Það
I dylst engum sem að garði ber,
að sérstakur myndarbragur er þar
á öliu. bæði úti og inni. Gestrisni
frábær, og hlýtt viðmót hús-
bænda og barna þeirra, þótti því
öllum þar gott að koma.
Enda þótt hér að framan hafi
verið drepið lauslega á nokkur
störf Ragnars Gunnarssonar bónda
á Fossvöllum, þá er þó enn ótalinn
all veigamikill þáttur í opinberu
starfi hans, en það er sdmaþjón-
usta, sem hann innti af höndum
í nálega 30 ár.
Landssimastöð var sett í Foss-
velli um leið og sími var lagður
frá Seyðisfirði norður um land
til Reykjavíkur, á árunum 1906
og 1907. Vestan Jökulsár, þ.e. í
Hlíðar- og Jökulsárhreppum, urðu
menn að sækja um landvegu í
síma. Eftir því sem tímar liðu,
koma fram kröfur til landssíma-
stjórnar um bætta símaþjónustu.
Var þá í fyrstu fjölgað símstöðv-
um um Hérað og bætti það nokk
uð úr. Þar kom að lokum, að
sírni var lagður inn á hvert heim
ili. Við þessa breytingu hlóðust
á Ragnar aukin þjónustustörf.
Siímatími hvern virkan dag 6 tím
ar, í stað 2 áður. Sökum fjarveru
að sumrinu, sem áður segir, varð
hann að fela Ragnheiði dóttur
sinni símaþjónustuna, og þuríti
•englnn yfir að kvarta. Að vetrin-
um n&fði Ragnar sjálfur þennan
staría á hendi.
Það leiðir aí staríi símstöðvar-
stjóra að margskonar kvabb dyn-
ur á þeim af símanotendum, en
er misjafnlega tekið. Þessu tók
i Ragn&r ætíð vel en lofaði þó
aldrei meiru en hann vissi sig geta
efnt. Þá voru reikningar allir
gagnvart sdmanotendum ávallt rétt
ir, og hið sama mátti segja um
öll önnur viðskipti hvers eðlis
sem voru. Allt varð að vera rétt.
Þegar nú að leiðarlokum, er
litið yfir ^evifleril Ragmrs á Foss-
völlum, má segja að ævi hans hafi
einkennzt af framsýni og atorku.
Hann kemur ungMngur til Foss-
í valla, á þeim tíma eru nokkrir
I stórbændur í næsta nágrenni á
| Jökuidal með margt hjúa og
isitjá eins og konungar í riki sínu.
• Vel má ætla að það hafi orðið
I honu.n metnaður til meiri afreka.
: Metnaður og atorka hefur að vísu
I verið ríkjandi meðal ættmenna
;hans, bæði fyrr og síðar. Hann
; byrjað: með tvær hendur tómar,
i en gætti þess að ráðast ekki í f jár
! frekrn framkvæmdir fyrr en fé
ivar fyrir hendi. Hann var vinur
vina sinna, og hjálpaihella ef til
hans var leitað, og skorti þá ekki
úrræði. Hann hafði ánægju af að
gleðjast með glöðum, og hélt
stundum myndarlegar veizlur vin-
um og kunningjum við ýms tæki-
færi. Á sextugsafmœlinu sótti
hann heim sveitungar hans og
fjölmargir aðrir á Héraði. Nú
þegar dagsverkinu er lokið finn-
um við aUir hvílíkt skarð er höggv
ið í bændastétt þessarar sveitar.
Hann var einn af máttarstólpum
sveitaríélagsins um árabil. Sannur
bóndi hins gamla og nýja tíma.
Hinn 8. apríl s.l. var gerð frá
Sleðbrjótskirkju útför Ragnars
Gunnarssonar að viðstöddu miklu
fjölmenni, hvaðanævia af Héraði.
Áður þann sama diag, var haldin
húskveðja á heimili hins látna.
Tveir prestar voru við jarðarför-
ina. Sóknarpresturinn, séra Einar
Þorsteinss'on, hélt húskveðjuna,
en Ágúst Sigurðsson prestur Valla
nesi, talaði í kirkjunni. Karlakór
úr Egilsstaðakauptúni söng undir
stjóri Svavars Björnssonar, og
Björn Pálsson, Egilsstöðum, söng
einsöng við undirleik söngstjóra.
Ég votta frú Önnu Einarsdóttir,
börnum og öðrum vandamönnum
innilegustu samúð mína.
Björn Guðmundsson.
HUSMÆÐUR!
ROBIN HOOD hveitið er kanacKsk gæða-
vara, sem að þér megið ekki láta vanta, ei
að þér viljið ná góðum árangri við hákstur
á hvers konar hrauði og kökum
ROBI.N HOOD hveitiðermjögríktafeggja-
hvítuefnum og einkar drjúgt til baksturs.
ROBIN HOOD hveitið fæst í öHum kaup-
félagshúðum á sérlega hagstæðu verði.
Innflutningsdelld
RADldNETTE
henta þar sem erfið skilyrði
eru. — Byggð fyrir fjaHlendi
Noregs.
Sérheefðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
þjónustuna af þekkingu.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
ABYPÍGÐ
DP.AÖE
Uti og innihurðir
Framleiðandi: jusxl-diefos BRtra
B.ti. WEISTAD & Co. Skúlagötu 65 IH.hœð ■ Sími 19155 • Pósthólf 579
Þau eru komin
Hin vinsælu FM fyrsxadags-albúm með hringjalæs-
ingu eru nú komin aftur. Rúma 60 umslög. —
Verð kr. 295,00. — Viðbótarblöð kr 12,00, og eru
til fyrir 2, 4 eða ö umslög.
Athugið, að þessi fvrstadags-umslöe taka yfir 25
blöð. Einmg höfum við albúm fyrir 48 umslög, en
það eru klemmubindi. Verð kr. 185,00.
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN S.F.
Týsgötu 1. — Sími 21170.