Tíminn - 17.05.1967, Blaðsíða 12
12 TÍMINN
)
London — Amsterdam — Kaupmannahöfn
Brottfarardagar: 2. júlf — 16. júlí — 30. júlí — 13. ágúst — 27. ágúst — 3. sept. — 17. sept.
12 dagar — Verð kr. 11.800.—
Þessar stuttu og ódýru ferSir gefa fól'ki tækifæri til að kynnast jþremur vinsælum stórborg-
um Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar Milljónaborgin London, tilkomumikil og sðgu-
fræg höfuðborg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heill-
andi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við
sundið", Kaupmannahöfn, þar sem fslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund.
Borg í sumarbúningi með Tívolí og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja
dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð hefir átt vaxandi vinsældum að íagna með hverju
ári. f fyrra voru farnar fimm slfkar ferðir og komust færri en vildu.
Fararstjórar: Jón Helgason, Jón Sigurbjömsson og Gunnar Eyjólfsson.
París — Rínarlönd — Sviss
Brottför 18. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 17.650.00.
Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt í sjö ár, og jafnan við miklar vinsældir,
enda fólk komið heim með óbrotgjarnar endurminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að
kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar
í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í
skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til Ítalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og
dvalið fjóra daga við Rán í Riklesheim, einumfrægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín.
Þar er „Vínhátíðin", þar sem drottningin er krýnd. FaTÍð er i ökuferðir um Rfnarbyggðir ög
siglt á fljótinu með skemmtilegum farþegaskipum. — Fararstjóri: Jón Helgason.
Edinborgarhátíðin
Brottför 26. ágúst. — 7 daga ferð. Verð kr. 7,210.00
Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári i sex ár og jafnan fullskipuð. Fara allmargir ár-
lega, enda er Edimborgarhátíðin mikilfenglegasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edinborg er
mjög fögur borg og ánægjulegt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp
í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi.
Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London.
Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, lefkari.
Ítálía — septembersól
Brottfor 8. september — 21 dagur. — Verð kr. 21.300.00.
Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam-
banda SUNNU á ftalíu. — Flogið til iíilano og ekið þaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, með
3—4 daga viðdvöl í þessum borgum. Ffcneyjum, hinni „Fljótandi borg" ævintýra, söngs og sögu.
Umferðin líður fljótandi um skurðina fíægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz ,hin fagra
höfuðborg listanna á miðöldum Ítalíu.1 Róm eru helgaðir fimm dagar, því þar er margt að sjá.
Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento hinnar undurfögru borgar við
Capriflóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ökuferðir um fegurstu byggðir ftalíu kemur að
því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michel-
angelq (63 þús. smál. að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Riverian og aka síðan
til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferðarinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu
í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina, ef óskað er.
Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur.
Ítalía og Spánn
Brottför 23. scptember. — 21 dagur. — Verð kr. 24.,860,00
Þessi óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn fyrir 2 árum og aftur í fyrra,
fullskipuð og komust færri en vildu. Hefir fólki ekki áður gefizt kostur á að kynnast bæði
ftalíu og Spáni í einni og sömu ferðinni. Flogið er til Feneyja og dvalið þar. Flogið til Rómar
og dvalið þar í nokkra daga, til Napoli og alla leið til Sorrento. Frá Napoli er síðan siglt með
glæsilegu hafskipi til Spánar. Þaðan er ekið til Torremolinos, baðstrandarbæjarins fræga á
Sólströnd Spánar. Frá Sólströndinni er flogið til Madrid og að dvöl lokinni þar er flogið til
London og höfð þar tveggja daga viðdvöl. —
Fararstjóri: Jón Helgason.
Ævintýraferðin til Austurlanda
Brottför 7. október. — 21 dagur-Verð kr. 23.700,00.
Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vlnsælu ferðum SUNNU á ævintýrastóðir Austur-
landa. eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augun ber.
Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut
Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir
persneskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á
bökkum Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerusalem, dvalið f fimm daga og skoðaðir allir helztu
sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað
er. — Far'irstjóri: Guðni Þórðarson.
Heimssýningin í Montreal og New York
Brottfarardagar: 11 maí — 27. júlí 3. og 14. sept. 14 dagar kr. 12.800.
Heimssýningarárið er kjörið til að heimsækja Ameríku. Við fljúgum í þotum Pan American
tll New York og þaðan til Montreal þar sem dvalið er eina viku, heimssýningin skoðuð
og litíð á náttúruundur Kanada. Síðan dvalið aðra viku í New York, þar sem fólki gefst kostur
á' margs konar skemmtun og ferð til Washington. í ferðinni 27. júlí gefst kostur á að heim-
sækja fslendingabyggðir í Manitoba, Winnipeg og vera á hátíðahöldum íslendingadagsins að Gimli.
Fararstjórar: Jón Helgason og Guðni Þórðarson.
pselt er í ferðina 11. maí).
Ferðaskrifstofan SUNNA
SUNNUFERÐIR til sölarlanda
Vinsælar utanlandsferðir með íslenzkum tararstjórum
Margra ára reynsla og ótvíræðar vinsældir tryggja farþegum okkar snuðrulaust fcrðalag
undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar, viður-
kenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Á síðasta ári komu yfir 1500 ánægðir
farþegar heim úr RUNNU-ferðum. Það sem af er þessu ári hafi vfir 500 nýjir farþegar tekið
þátt í hópferðum okkar til útlanda.
Við auglýsum sjaldan, því ánægðir viðskiptavinir komnir heim úr vei hcppnuðum og
skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta auglýsing. Nú þegar er upppantað í marg-
ar ferðir og fá sæti laus í fiestum hinna.
MIÐVTKUDAGUR 17. maí 1967
Jónsmessuferðin til Norðurlanda og Skotlands
Brottför 20. júlí — 16 dagar kr. 14.800.
Þessi vinsæla ferð hefir verið farin árlega við miklar vinsældir.
Flogið til Bergen. Ekið og siglt um hinar fögru fjalla- og fjarða-
byggðir Vestur-Noregs, heimabyggðir íslenzku landnámsmann-
anna. Dvalið í Osló, Kaupmannaihötn, og að lokum tvo daga í
Glasgow, þar sem fólk hefur frjálsan tíma og fer í stutta ferð um
vatnahéruð skozku hálandanna.
Æskulýðsferðir séra Ólafs Skúlasonar
Fyrir nokkrum árum stofnaði æskuíýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar
til þeirrar nýbreytni að efna til ódýrra æskulýðsferða til útlanda,
eins og lengi hefir tíðkazt með nágrannaiþjóðunum. Fyrir tveim-
ur árum fór séra Ólafur Skúlason fyrstu æskulýðsferðina á vegum
SUNNU, í samvinnu við æskulýðsnefod Þjóðkirkjunnar, og vegna
þess hve þessar ferðir hafa orðið vinsælar jafnt af hinu unga fólki
og aðstandendum þess höfum við nú skipulagt, þrjár slíkar ódýrar
æskulýðsferðir í sumar.
Danmörk — Skotland 29. júní — 20. júlí.
Flogið til Danmerkur. Farið þaðan með járnbraut og skipi til
Englands. Ekið til Skotlands og dvalið á æskulýðsheimili skozku
þjóðkirkjunar. D'valið nokkra daga í Kaupmannahöfn.
Fararstjóri: Séra Björn Jónsson, Keflavík.
Danmörk — Noregur — Svíþjöð, 4.—18. júlí.
Fldgið til Danmerkur. Ekið þaðan cil Noregs. Dvalið á Æskulýðs-
heimili við Oslófjörð. Farið um vatnabyggðir Svíþjóðar og dvalð
nokkra daga í Kaupmannahöfn. Flogið heim.
Fararstjóri: Séra Sigurður Haukur Guðjónsson.
Danmörk — Þýzkal. — Rínarlönd — Holland, 18. júlí 1. ágúst.
Flogið til Kaupmannahafnar. Ekið um Fjón og Jótland til Þýzka-
lands. Dvalið í Rínariöndum. Komið til Hollands og dvalið í
Kaupmannahöfn siðustu daga ferðarínnar. Flogið heim.
Fararstjóri: Séra Ólafur Skúlason.
Mallorka — London
Brottfarardagar: 25. maí — 8. júní — 22. júní — 6. júlí —
— 20. júlí — 3. ágúst — 17. ágúst — 31. ágúst.
14. sept. — 28. sept. — Verð frá kr. 9.600.
Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda
og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin-
sældir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem
flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU
beztu fáanleg kjör vegna þess að skrifstofan semur um fyrir
rúmlega 100 gesti yfir árið, til margra ára.
Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með
einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km.
frá miðri höfuðborginni Palma, Mallorca er vinsælasti ferða-
mannastaðurinn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem
hugurinn girnist. Sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf,
góð hótel og góðan mat. Á heimleiðinni er stanzað dag í
London. Innifalið í verði ferðar eni flugferðir, ferðir milli
flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltíðir á dag á Mallorca
og gisting og morgunverður í London.
Þið fljúgið með íslenzkri flugvél beint til Mallorca á 7 tímum
og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágæts íslenzks fararstjóra og
skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð
á beztu hótelum i þremur verðflokkum, eða dvöl í luxusíbúð-
um og getið fengið bíl með. Nú þarf enginn lengur að fara til
Kaupmannahafnar til að komast ódýrt til Mallorca með „billeg-
um‘‘ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir.
fslenzkar ferðir hæfa fslendingum bezt, því við gerum okkur
ekki ánægða nema með það bezta.
Fararstjóri: Njörður P. Njarðvík.
Kaupmannahöfn (Hamborg) — Edinborg
10. september. — 10 dagar. — Verð kr. 6.900.00.
Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin í fyrsta sinn í fyrra,
FerSin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir flugvél til
ferðarinnar. Dvalið í hinni glaðværu Kaupmannahöfn,
skroppið í tvo daga til Hamborgar og stanzað í sólarhring í
Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst i fyrsta
sinn eru margir búnir að panta af þeim, sem voru með i
fyrra.
Fararstjórar: Geir Aðils og Jón B. Gunnlaugsson.
í SUNNUFERÐUM
eru cingöngu notnð góð hótel. Fiogið lengstu leiðirnar og ekið
eingöngn þar sem Iandslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er:
Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum
sjáifum oklcur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt
hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur
verð og gæði annarra fcrða — og vandið valið. Biðjið um ná-
kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirlcitt komast
aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk
getur treyst og síðast en ekld sízt. — SUNNA auglýsir aldrei
ferð, sem ekH er farin.
Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070.